Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARZ 1993 eftir Agnesi Bragadóttur LÍKAST til er Jón Sigairðsson iðnaðar- og viðskipta- ráðherra sá ráðherra ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar sem tekist hefur á hendur hvað flest stórverkefnin, án þess að ná nokkru sinni að sjá þau verða að veru- leika, ekki síst vegna ytri aðstæðna. Má í þeim efnum nefna áform um nýtt álver á Keilisnesi, sem annað- hvort eru að renna út í sandinn, eða hafa verið lögð í saltpækil til nokkurra ára. Einkavæðingaráform ráðherrans á ríkisbönkunum eru sömuleiðis runnin út í sandinn, að minnsta kosti um stundarsakir. Þá eru efasemdir innan stj órnarflokkanna um ný lög um Seðlabanka íslands á þessu vorþingi orðnar svo háværar, að harla ólíklegt hlýtur að teljast að þau verði að veruleika í tíð ráðherrans. Eitt nýjasta dæmið um áform ráðherrans um stórverkefni er það sem hann nefndi stofnun fjárfestingarbanka iðnaðar- ins á 60 ára afmæli Félags íslenskra iðnrekenda 6. febrúar síðastliðinn. Hann greindi afmælisbörnunum 0 frá samkomulagi iðnaðarráðuneytisins við FII og Landssamband íslenskra iðnaðarmanna um stofnun slíks fjárfestingarbanka með yfirtöku Iðnlánasjóðs og sameiningu hans við Iðnþróunarsjóð í ársbyrjun 1996. Nú síðastliðinn miðvikudag áréttaði ráðherrann þessa stefnu sína í ræðu á ársþingi Félags íslenskra iðnrekenda, jafnframt því sem hann var búinn að gefa bankanum sínum nafn, íslenski. fjárfestingar- bankinn hf., og boðaði að nú væri unnið að gerð lagafrumvarps um stofnun bankans, sem yrði í eigu samtaka iðnaðarins og ríkisins. að er rétt sem ráðherrann sagði í ræðu sinni, að náðst hefði sam- komulag á milli iðnaðarráðuneytis- ins og forystumanna hagsmunaaðila iðnaðarins um þetta mál, en þar með er líka upptalið allt sem lýtur að samráði og samkomulagi við aðila sem að málinu hljóta að koma með einum eða öðrum hætti. Enginn sem málið snertir, hvorki stjórnar- menn í Iðnlánasjóði, Iðnþróunar- sjóði, né ráðherrar ríkisstjórnarinn- ar, að forsætisráðherra undanskild- um, hafði af áfomiunum heyrt, þeg- ar ráðherrann gerði málið heyrin- kunnugt í afmælishófínu í febrúar. RÁÐHERRAR KOMU AF FJÖLLUM Samt sem áður sagði ráðherrann orðrétt í ræðu sinni á afmælisfund- inum: „Það er ánægjulegt að geta skýrt frá því hér að samkomulag er um það í aðalatriðum að mynduð verði á grundvelli Iðnlánasjóðs fjár- festingarstofnun í hlutafélagsformi í samræmi við þá nýju samræmdu bankalöggjöf, sem væntanlega verður samþykkt nú á vorþinginu.“ Og síðar sagði ráðherrann: „Innan ríkisstjórnarinnar hefur verið fjallað um þessar tillögur og er nú unnið að nánari útfærslu þeirra." Þeir tveir ráðherrar sem sátu afmælis- hófíð auk iðnaðar- og viðskiptaráð- herra komu af fjöllum. Þeir voru Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra og höfðu samkvæmt mín- um upplýsingum aldrei heyrt á málið minnst þegar „samkomulag- ið“ var kynnt. EITT SÍMTAL VIÐ FORSÆTISRÁÐHERRA Iðnaðarráðherra afhenti svo ráð- herrum ríkisstjórnarinnar minnis- blað á ríkisstjórnarfundi 9. febrúar um málefni Iðnlánasjóðs og Iðnþró- unarsjóðs, en það var þremur dög- um eftir afmælishóf FII. Þar segir m.a.: „Á afmælisfundi Félags ís- lenskra iðnrekenda sem haldinn var sl. Iaugardag nefndi ég almennum orðum eftir samráð við forsætisráð- herra að samkomulag væri um málið í aðalatriðum." Þegar gengið var á viðskiptaráðherra á ríkis- stjórnarfundinum skýrði hann orð sín á þann veg, að með því að segja að málið hefði verið rætt innan ríkisstjórnarinnar, hefði hann átt við þá staðreynd, að hann hefði átt símtal við Davíð Oddsson forsætis- ráðherra um málið, þar sem forsæt- isráðherra var staddur í sumarbú- stað forsætisráðherra á Þingvöllum. Púnktur. Basta. Ákveðnir stjórnarmenn Iðnlána- sjóðs og Iðnþróunarsjóðs munu hafa setið sama afmælishóf og hlýtt í samskonar undran á ræðu ráðherr- ans og samráðherrar hans gerðu. Þeir vissu víst nákvæmlega ekkert um áform ráðherrans. Svo er að heyra að samstarfs- menn Jóns Sigurðssonar í báðum stjórnarflokkum séu orðnir heldur þreyttir á starfsaðferðum hans og vinnubrögðum og það á ekki síður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.