Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 14. MARZ 1993 31 sú sigling verður ekki farin, en ferð- in heim, eins og skátar segja, er hafin. Margs er að minnast eftir 30 ára kynni og teljum við okkur lánsöm að hafa verið honum samferða öll þessi ár. Persónuleiki hans var stór, það leyndi sér ekki að þar fór listamaður og mikið náttúrubam. Áhugamálin voru mörg og húgmyndirnar ótæm- andi, það var gert meira en tala um þær, þeim var hrint í framkvæmd. Á ferðum sínum til útlanda, er voru æði margar, gerði hann gjarnan stans á heimili okkar í Keflavík, oft var þá setið fram eftir nóttu og ræddar nýjustu hugmyndir hans og langanir. Fannst okkurþær stundum óraunverulegar þar til þær voru komnar í framkvæmd. Fyrir þessar stundir og ekki síður skemmtilegar stundir í Stykkishólmi og Sauraskógi viljum við þakka í dag. Hamingjumaður í einkalífi var hann einkasonur hjónanna Sigurðar Ágústssonar og Ingibjargar Helga- dóttur. Eins og mörg einkabörn vildi Ágúst eignast stóra fjölskyldu og sá draumur rættist. Hann kvæntist Rakel Olsen frá Keflavík 9. febrúar 1963. Þau eignuðust 4 böm sem eru: Ingibjörg Helga, f. 1963; Sig- urður, f. 1965; Ingigerður Selma, f. 1971; og Ragnhildur Þóra, f. 1976. Fyrsta barnabarnið fæddist í október sl., Ragnheiður Rakel, dóttir Sigurð- ar og Ragnheiðar Hansson. Við munum sakna Ágústs sáran. Það munu einnig gera aðrir, sem þekktu hann vel. Tengdamóðir mín, Þóra Gísladóttir, biður fyrir bestu kveðjur og þakkir. Henni reyndist hann sem besti sonur. Sárastur verður söknuðurinn hjá Rakel og börnum þeirra. Gefi góður guð þeim styrk í harmi þeirra. Stella Olsen, Birgir Ólafsson. Mitt í miklum önnum var Ágúst Sigurðsson forstjóri í Stykkishólmi kallaður til hinstu ferðar, en hann lést í Landspítalanum mánudaginn 8. mars sl. á 59. aldursári. Ágúst fæddist í Reykjavík 18. júlí 1934. Foreldrar hans voru Sig- urður Ágústsson kaupmaður og al- þingismaður í Stykkishólmi og kona hans Ingibjörg Helgadóttir. Eftir próf frá Verslunarskóla íslands og ströf hjá Coldwater Seafood Corp. í Bandaríkjunum hóf hann störf við fyrirtæki foreldra sinna í Stykkis- hólmi. Hann tók við stjóm fyrirtæk- isins 1968 og stjómaði því til dauða- dags. Ágúst naut þess í uppvexti að alast upp á menningarheimili sem hann mat mikils. Mátti sjá það síðar er hann stofnaði sitt eigið heimili hversu annt honum var um að búa fjölskyldu sinni sem bestar aðstæð- ur. Var eftir því tekið hversu kært honum var heimilið og hvað hann naut þess að vera gestgjafi, svo ör- látur, listrænn og smekkvís sem hann var. Eftirlifandi eiginkona Ágústs er Rakel Olsen. Með þeim hjónum var mikið jafnræði og það hefur verið athyglisvert að fylgjast með því hversu samtaka þau hafa verið við að stjórna fyrirtækinu, svo erfitt sem það er í því ölduróti sem gengið hefur yfir íslenskan sjávarútveg. En það duldist engum sem þekkti Ág- úst að fjölskyldan og bömin vom honum mikils virði. Ágúst og Rakel stofnuðu heimili í Clausenshúsinu, húsi foreldra hans, þar sem fjöl- skyldan naut sín saman. Eftir að þau Rakel fluttust að Ægisgötu og eignuðust sitt glæsilega heimili var til þess tekið hversu mikla alúð hann sýndi móður sinni eftir að hún varð ein 5 gamla húsinu. Þau hjónin eign- uðust fjögur efnileg börn. Þau em Ingibjörg Helga, Sigurður, Ingigerð- ur Selma og Ragnhildur Þóra. Starfsvettvangur Ágústs var á sviði verslunar, útgerðar og fisk- vinnslu. Er óhætt að segja að hann hafi ekki að jafnaði farið troðnar slóðir. í mörgu var hann frumkvöð- ull, einkum varðandi vinnslu hörpu- disks og í því að búa starfsaðstöðu fiskvinnslufólksins sem besta. Hug- kvæmni hans og kjarkur til þess að fara ótroðnar slóðir í atvinnurekstr- inum var styrkur hans og hann naut þess að fylgjast með nýjungum og nýta sér þær í fyrirtækinu. Hann var víðfömll heimsmaður sem órag- ur dró til sín nýbreytni og þekkingu sem hann vildi nýta sér við fyrirtæk- ið. í Stykkishólmi var starfsvett- vangur Ágústs og hann unni Hólm- inum mjög, því kynntist ég vel. Hann hafði drukkið sögu héraðsins og sögu staðarins í sig á heimili foreldranna þar sem mikil virðing var borin fyrir þeim menningarverð- mætum sem kynslóðirnar hafa skilað hver til annarrar. í verkum sínum sýndi Ágúst þann vilja að varðveita og endurgera gamla verslunarhúsið og þá muni sem tilheyrðu liðnum tíma. Hann sameinaði viljann til framkvæmda og framfara þeim vilja sínum að varðveita umhverfið og láta hlutina falla vel að því sem fyr- ir var. í öllu starfi sínu við fyrirtæk- ið naut Ágúst þess ríkulega stuðn- ings sem Rakel veitti honum þar sem hún hefur staðið sem klettur við hlið hans í fyrirtækinu í blíðu og stríðu. Leiðir okkar Ágústs lágu fyrst saman þá er Sigurður faðir hans var alþingismaður Snæfellinga og feður okkar áttu samstarf á sviði sveitar- stjórnarmála og í starfí fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Síðar áttum við eftir að eiga samleið í tæpa tvo áratugi í Hólminum við hin ólíkustu við- fangsefni án þess að nokkru sinni brygði skugga á þau samskipti. Kynntist ég því vel hversu tryggur Ágúst var og mikill vinur vina sinna. Að leiðarlokum vil ég minnast Ágústs með þakklæti og virðingu og senda Rakel og börnum þeirra samúðarkveðjur frá mér og fjöl- skyldu minni. Sturla Böðvarsson. Þegar ég var barn heyrði ég syst- ur mína tala með mikilli lotningu um Ágúst í Stykkishólmi. Hann var mikill skáti og tilfinning mín var sú, að allt sem hann gerði væri stórkost- legra en hjá öðrum. Ágúst varð strax í mínum augum goðsögn. En svo hætti ég að vera barn og var kynntur fyrir Ágústi Sigurðssyni frystihúsforstjóra og konu hans, frú Rakel Ólsen. Minnist ég þess, að þá var ég kynntur sem litli bróðir Krist- ínar. Þegar ég sá Ágúst var hann eins og aðrir menn í útliti. Og árin liðu og ég kynntist Ágústi á heima- velli. Listfengi hans og smekkvísi var óbrigðul. Engan mann þekki ég, sem hefur haft jafn gaman af því, sem fallegt er. Á það jafnt við um lifandi hluti og dauða. í hugsun og að upplagi var hann einstakur mað- ur-. Ágúst var sannur sonur foreldra sinna, einkasonur og líklega dekur- bam, en hann þoldi það vel því að upplagið var svo gott. Allt, sem hann tók sér fyrir hendur, gerði hann af mikilli festu. í æsku átti skátastarf allan hug Ágústs, en svo tók alvaran við, hann stofnaði eigin fjölskyldu og skyldur vegna atvinnurekstur föður hans tóku við. Ágúst gerðist frumheiji í vinnslu hörpudisks. Stóðu aðrir ekki jafnfætis honum í þeim efnum. Þrátt fyrir að Ágúst væri sannur heimsmaður, þá var hann innhverfur persónuleiki. Hann starfaði meira í bakvarðarsveit í sínum rekstri. Hann gerðist frímúrari og held ég að frí- múrarastarfið hafi gefið honum mik- ið og átt vel við hug hans, því að þar gat hann hugsað um innsta eðli tilverunnar. Undanfarin ár hafa eflaust verið Ágústi þungbær vegna veikinda, sem hann bar í hljóði. Vera má að höfuð hans hafí stundum verið nokk- uð þungt, en alltaf gekk hann upp- réttur til hinstu stundar. Ég þakka Ágústi Sigurðssyni ein- staka vináttu í stuttri samfylgd og flyt frú Rakel og bömum þeirra sam- úðarkveðjur mínar og konu minnar. Og það veit ég að Tóta vinkona mín saknar vinar í stað. Góður drengur er fallinn. Fari hann í friði. Guð geymi Ágúst Sig- urðsson. Vilhjálmur Bjarnason. Minning Jóhann Steinþórsson frá Stykkishólmi Fæddur 12. október 1923 Dáinn 8. mars 1993 í dag, 12. mars, verður borinn til grafar föðurbróðir minn, Jóhann Steinþórsson. Mig langar í fáum orðum að minnast hans og kveðja hann um leið. Það er nú svo undar- legt þetta sálartetur, þessi upp- spretta mannlegra tilfínninga, að gefí maður því yfirhöfuð gaum þá streyma minningamar fram ljóslif- andi og skýrar. Mannkostir Jóhanns frænda míns em mér afar ljósir. Einlægni og hlýja voru ríkir þættir í skap- höfn hans. Prúðmennska hans var einstök og hlýjan í glettnu brosi hans yljaði okkur, ættingjum hans og samferðafólki. Jóhanni var létt um að yrkja eins og svo mörgum af hans fólki bæði í föður- og móð- urætt. Hann sat lengi yfir kveðskap sínum og hver svo sem vísan var skyldi hún vera vel kveðin. Hann hafði gaman af að segja frá og hélt auðveldlega athygli manna við þá iðju. Efalaust hefur hann vanist því á uppvaxtarárum sínum í Breiðafjarðareyjum að menn segðu hverjir öðrum sögur þegar farið var milli eyja einhverra erinda. Ekki hefur þýtt að beija að dyrum sögu- laus á þeim tímum. Allar voru sög- ur Jóhanns ánægjulegar og velvil- jaðar. Það eru alkunn en óskrifuð lög samfélagsins að viðurkenningu hljóti þeir sem unnið hafa til veg- tyllna eða eru upphafðir vegna stöðutákns síns eða jafnvel ríki- dæmis. Jóhann var ríkur í andanum og ríkur að mannkærleika. Lítillæti hans og góðir eiginleikar munu fylgja honum í annan heim og leiða hann inn í þá eilífð sem setur mann- kærleika ofar veraldlegum gildum. Ég vil votta bömum Jóhanns og systkinum og öðrum aðstandendum hans mína innilegustu samúð. Jóhanna S. Einarsdóttir. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. I I I i HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 Fatasaumur Kennari: Herdís Kristjánsdóttir. 24. mars-12. maí. Miðvikud. kl. 19.30-22.30. Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga -fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800. I __' — i l ■ S t J FASTEIGN ER FRAMTID A lf FASTEIGNA ff4 MIÐLUN SVERRIR KRISJJANSSON LÖGGILUIR FASTEIGNASALI SUÐURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 68 7072 SÍMI 68 77 68 1 í Stykkishólmi Til sölu 137 fm fallegt timburhús á einni hæð, byggt 1984 (Asparhús). Húsið skiptist í anddyri, eldhús, búr, þvottaherb., bað, 3-4 svefnherb. og stofur. Gott hús á fallegum stað. FASTEIGN ER FRAMTID A íT FASTEIGNA ff MIÐLUN SVERRIR KRISTJANSSON LOGGILTUR FASTEIGNASALI SUÐURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVIK, FAX 687072 SÍMI 68 77 68 Atvinnuhúsnæði Til sölu er nýtt og vandað iðnaðarhúsnæði. Allur frágangur mjög góður. Lofthæð ca 4,20 m. Stórar innkeyrsludyr. Húsnæðið er nú þegar tilbúiö til notkunar. Verð pr. fm 31-42 þús. Áhv. lán að mestu til 15 ára með fyrstu afborgun 1995. Útborgun samkv. nánara samkomulagi. FASTEIGN ER FRAMTID • • If FASTEI GNA ff MIÐLUN SVERRIR KRISTJANSSON LOGGILTUR FASTEIGNASALI SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVIK, FAX 687072 SÍMI 68 17 68 Á hafnarsvæðinu Skammt frá Sundahöfn er til leigu 1000-1500 fm hús- næði sem er með mjög góðri lofthæð ca 6 m við mæni og 4,8 m við vegg og skrifstofuaðstöðu sem er 288 fm. Stórar innkeyrsludyr. Athafnasvæði og aðkoma að húsinu er mjög góð. Frystir og kælir geta fylgt. Húsnæðið verð- ur laust fljótlega. Langtímaleigusamningur. FASTEIGNA- OG FIRMASALA AUSTURSTRÆTI 18. 101 REYKJAVÍK Atvinnu- húsnæði - gott verð 430 frn atvinnuhúsnæði með útsýni yfir sundin. Nánast fullbúð atvinnuhúsnæði við Krókháls með góðum inn- keyrsludyrum. Hentar undir hverskyns starfsemi, iðnað, verslun eða skrifstofuhald nema væri allt í senn. Er nú innréttað með þarfir útgáfufyrirtækis í huga. Gott verð. Afar góð kjör. Undir glerhimni við Eiðistorg Tvö samliggjandi bil 2 x 44 fm. Hvort um sig með sýn- ingarglugga. Má auðveldlega sameina í eitt. Möguleikar á samtengingu við miklu stærra húsnæði. Upplýsingar veitir Þorsteinn Broddason á skrifstofunni. Blómaverslun í fullum rekstri til sölu. Vel staðsett fyrirtæki sem verið hefur í rekstri um árabil og tryggt eigendum sínum góða afkomu. Upplýsingar veitir Þorsteinn Broddason á skrifstofunni. Framtíðin hf., fasteignasala, Asturstræti 18, sími 622424.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.