Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 32
JKiWjpinMa&fö ATVINNURAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR Kvöldvinna Óskum eftir fólki í símasölu á kvöldin og um helgar. Reynsla af sölustörfum ekki nauðsynleg. Þeir, sem hafa áhuga á að selja fyrir gott málefni, sendi nafn, kennitölu og símanúmer inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 18. mars, merkt: „F - 101“. Starffyrir þig? Ert þú að leita að spennandi og áhugaverðu starfi. Ef svo er þá óskum við eftir að ráða áhugasamt og duglegt fólk til að sjá um ný og spennandi söluverkefni. Tekjutrygging og góð sölulaun í boði fyir gott fólk. Vinsamlegast hafið samband við Brynhildi Barðadóttur í síma 688300. * VAKA-HEUGAFELL Síðumúla 6, sími 688300 Barnapössun og heimilishjálp óskast fyrir gott heimili í vesturbænum fyrir ung hjón með 2ja ára stúlku ca hálfan dag- inn eða eftir samkomulagi. Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild Mbl. fyrir 19. mars merkt: „H - 14088“. Styrktarfélag vangefinna Viltu vinna með fötluðum? Kvöld- og helgarvinna Við leitum að fólki, sem vill gerast liðsmenn fyrir fatlaða, karla og konur, á öllum aldri. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi áhuga á að vinna með fötluðum og stuðla að því að þeir eigi þess kost að njóta menningar- og félagslífs. Liðveisla fyrir hvern einstakling er frá 10-30 tímum á mánuði. Handleiðslu veita félagsráðgjafar Styrktarfélags vangefinna. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins á Háteigsvegi 6. Frekari upplýsingar veitir Björg Karlsdóttir í síma 15622 miðvikudaginn 17. mars nk. Samkvæmt lögum um málefni fatlaöra nr. 59/1992 skulu sveitarfélög eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liöveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð, sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun. Styrktarfélag vangefinna. Lögfræðingur með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi, óskar eftir starfi. Margt kemur til greina. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 24. mars merkt: „Lögfræðingur - 11887“. Mosfellsbær Sumarstörf Mosfellsbær auglýsir til umsóknar eftirfar- andi sumarstörf árið 1993: Vinnuskóli og skólagarðar Yfirflokksstjóri, flokksstjórar og leiðbeinend- ur við skólagarða. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verk- stjórn og reynslu í að starfa með unglingum. Áhaldahús Tækjamenn með réttindi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjar- skrifstofu. Umsóknarfrestur er til 2. apríl. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 666218 daglega á milli kl. 11.00 og 12.00. Garðyrkjustjóri. Fóstrur Arnarberg Amarberg er nýuppgerður leikskóli þar sem dvelja samtímis 23 börn. Fóstra eða starfs- maður með aðra uppeldismenntun óskast allan daginn nú þegar. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 54493. Álfaberg Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis- menntun óskast sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 53021. Norðurberg Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis- menntun óskast sem fyrst allan daginn. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 53484. Smáralundur Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis- menntun óskast allan daginn nú þegar. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 54493. Ennfremur veitir leikskólafulltrúi upplýsingar um störfin í síma 53444. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. Nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur óskar eftir áhugaverðu og vel launuðu starfi. Húsnæði verður að fylgja. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. apríl merkt: „H - 14090“. S-f. JÓSEFSSPlTALl LANDAKOTI Aðstoðarlæknar Staða reynds aðstoðarlæknis á handlækn- ingadeild Landakotsspítala er laus til umsókn- ar. Staðan veitist til eins árs frá 1. júní 1993. Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf, sendist til yfirlæknis handlækn- ingadeildar, sem veitir nánari upplýsingar í síma 604300. Staða aðstoðarlæknis á augndeild Landa- kotsspítala er laus til umsóknar. Staðan veitist til tveggja ára frá 1. júlí 1993. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf, sendist til prófessors Einars Stefánssonar, sem veitir nánari upplýsingar í síma 604300. St. Jósefsspítali, Landakoti. Bókasafnsfræðingur Óskum að ráða bókasafnsfræðing til starfa hjá traustu og vel reknu verktakafyrirtæki í Reykjavík. Um er að ræða krefjandi og sjálf- stætt starf. Vinnutími kl. 13-17. Starfssvið: Skipuleggja og annast bóka- og fagtímaritasafn. Skjalavarsla. Bera ábyrgð á og annast útgáfu á fréttabréfi fyrirtækisins. Ýmis fjölbreytt skrifstofustörf, s.s. bréfa- skriftir, aðstoð við innlend og erlend útboð og samningagerð. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og skipulega að faglegum verkefnum. Mjög góð íslenskukunnátta nauðsynleg. Önnur tungumálakunnátta, s.s. enska og Norður- landamál nauðsynleg. Þekking á ritvinnslu. Einhver reynsla af almennum skrifstofustörf- um kæmi sér vel í þessu starfi. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar: „Bókasafnsfræðingur58“, fyrir20. mars nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.