Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 2

Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 Softis dregur til baka sölu á hluta af hlutabréfunum SOFTIS hf. hefur dregið til baka sölu á hlutabréfum fyrir um 900 þúsund krónur af þeim bréfum sem auglýst voru til sölu í sl. viku en það voru bréf fyrir 1,2 milljónir króna. Reglur kveða á um að ef hluta- fjáraukning er yfir 10 milljónir króna að söluverði og hluthafar eru fleiri en finmitíu þá er nauðsynlegt að vera með annað hvort formlegt útboð eða þá að sótt er um undanþágu frá því til Verðbréfaþings Is- lands. Þeim formsregium var ekki fylgt eftir í útboði Softis. Forráða- menn Softis töldu að útboðið félli ekki þar undir, þar sem fyrirtækið var einungis að selja til sinna hluthafa. Forráðamenn Softis munu útbúa þau gögn sem þarf til og hefja ef til vill aftur sölu bréfanna að þvi loknu. Að sögn Jóhanns P. Malmquist stjómarformanns Softis urðu þau hlutabréf, sem þegar hafa verið seld og þær rúmu 100 þúsund krónur sem eftir eru í sölu, til áður en hlut- hafar urðu 50 og voru þau þyí gef- in út með réttum formsatriðum. í bréfi sem bankaeftirlitið sendi Softis í gær segir m.a.: „Að mati bankaeftirlitsins bar að fylgja regl- um um gerð útboðsgagna vegna almennra útboða markaðsverðbréfa o.fl. við útgáfu og sölu nýs hlutafjár í Softis hf. sem ákveðið var á aðal- fundi félagsins 14. október 1992 . .. Samkvæmt fýrirliggjandi upplýs- ingum hefur þessa hins vegar ekki verið gætt. I þeim efnum skiptir ekki máli þótt einungis hluthöfum hafi verið gefinn kostur á að kaupa hlutabréfin áður en þau voru boðin öðmm til kaups.“ Útboðsgögn útbúin Jafnframt segir í bréfinu að bankaeftirlitið beini þeim „tilmælum til Softis hf. að útbúin verði útboðs- gögn í samræmi við nefndar reglur Seðlabanka íslands og þau send hluthöfum félagsins. Eintak útþoðs- gagna óskast jafnframt sent banka- eftirlitinu. Þau hlutabréf sem enn kunna að vera óseld úr útboði verði ekki boðin hluthöfum til sölu fytr en að uppfylltum skilyrðum um út- boðsgögn. Jafnframt beinir banka- eftirlitið þeim eindregnu tilmælum til forráðamanna Softis hf. að fram- vegis verði fylgt settum reglum við almenn útboð markaðsverðbréfa á vegum félagins." Afvelta bor Morgunblaðið/Muggur EFTIR óhappið á Reykjanesbraut var hafíst handa við að koma bornum aftur upp á flutningabílinn. Umferðartafir á Reykjanesbraut í klukkustund í gær Bor valt af flutningabíl UMFERÐ um Reykjanesbraut tafðist í um klukkustund skömmu eftir hádegið í gær er bor vait þar af flutningabíl. Óhappið átti sér stað við afleggjarann til Grindavíkur en verið var að flytja borinn þangað frá Kefla- víkurflugvelli. Að sögn lögreglunnar í Keflavík virðast festingar hafa losnað af bomum sem er á beltum og í eigu Islenskra aðalverktaka. Við óhappið brotnaði önnur borstöngin og loft- pressa áföst bomum skemmdist nokkuð. Engin slys urðu á fólki og eignatjón er ekki verulegt. Strax var hafist handa við að koma bornum aftur á flutningsbfl- inn en það tók um klukkustund og á meðan tafðist umferðin um braut- ina á þessum stað. Kostar 9% meira að rekabílinn BÍLAR sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur haft til viðmiðunar við útreikn- inga á rekstrarkostnaði fólksbíla hafa hækkað að meðaltali um 12% frá apríl á síðasta ári. Á sama tíma hækkaði bensín um 16% frá fyrra ári fram til 5. maí sl., en um rúm 17% fram tií þessa dags. Hækkun á rekstrarkostnaði heimilis- bílsins er að meðaltali um 7-9%. Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB, sagði að örlftil meðaltalslækkun hefði orðið á bílatryggingum og það væri óvefengjanlega áhrif frá komu Skandia-tryggingafé- lagsins inn á markaðinn. Verð á hjólbörðum, vara- hlutum og viðgerðarþjónustu stendur í stað milli ára, en bensínverð og verð á bflum hefur hækkað verulega. í útreikningum FÍB kemur fram að það kostar á bilinu 435-600 þúsund krónur á ári að eiga og reka fólksbíl af árgerð 1993. Sjá C-12: „Það kostar 435-600 þúsund á ári...“ Friðrik Pálsson forstjóri á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna Þurfum aukið erlent fé til atvinnuuppbyggingar Annarra kosta en gengisfellingar líklega ekki völ, sagði Jón Ingvarsson MEIRA erlent fjármagn til atvinnuuppbyggingar hér á landi í sam- vinnu við Islendinga og leiðrétting á gengi var meðal þess sem for- ystumenn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna lögðu áherslu á í ræðum sínum á aðalfundi SH, sem hófst í gær. Hagnaður SH og dótturfyrir- tækja nam 176 milljónum króna í fyrra á móti 169 milljónum króna árið áður. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, sagði að Islendingar yrðu að auka erlend samskipti, sem væru til þess fallin að skapa nýjar hugmyndir og ný tækifæri. Hingað þyrfti að ná meira erlendu fjármagni til aukinn- ar atvinnuuppbyggingar með ís- lendingum. „Þau sárafáu fýrirtæki, sem eitthvað mega sín, þurfa að taka höndum saman og stofna til samstarfs um að hasla sér völl í viðskiptum, sem geta aukið starf- semi erlendis og/eða dregið frekari starfsemi til landsins, sagði Friðrik. Gengisleiðrétting Jón Ingvarsson, formaður stjóm- ar SH, gerði gengismálin að umtals- efni. Hann sagði að gengisfelling hlyti alltaf að vera neyðarúrræði, en líklega væri nú ekki annarra kosta völ. „Þegar verðhrun á sjávar- afurðum og aflasamdráttur valda slíkum tekjusamdrætti í sjávarút- vegi og að til fjölda gjaldþrota horf- ir í atvinnulífi landsmanna, fæ ég ekki séð hvemig hægt sé að ná jafnvægi milli tekna og gjalda nema með gengisleiðréttingu," sagði Jón Ingvarsson stjómarformaður SH. Friðrik Pálsson talaði einnig um gengismálin: „A meðan aðrar þjóðir og það stórþjóðir fella gengi gjald- miðla sinna svo um munar, m.a. til að styrkja útflutningsstarfsemi sína og leggja í mjög vaxandi mæli áherslu á miiliríkjaviðskipti, búum við einhvers konar æðri markaðsbú- skap, þar sem lögmálið um framboð og eftirspum eftir gjaldeyri á ekki við og við virðumst jafnvel halda, að hátt skráð gengi krónunnar hafi ekkert með það að gera, hversu illa okkur gengur að skapa nýjar út- flutningsgreinar og auknar útflutn- ingstekjur," sagði Friðrik Pálsson. SH flutti í fýrra út sjávarafurðir að verðmæti 17,5 milljarðar króna. Af fýrirtækjum innan SH var mest framleitt hjá Útgerðarfélagi Akur- eyringa hf. eða rúm 10 þúsund tonn að verðmæti rúmir tveir milljarðar. Sjá bls. 14-15: Aðalfundur SH. Mikil andstaða kaupmanna við þjónustugjald af nýju debetkortunum Verslanir hvattar til að semja ekki um kortin KAUPMANNASAMTOK Islands hafa sent bréf til smásöluverslana þar sem þær eru hvattar til að gera ekki samning einslega við í dag Orri snýr aftur Glæsihesturinn Orri frá Þúfu kem- ur fram í Reiðhöllinni eftir tveggja ára frí frá sýningvm 13 Kapitalisk paradís Nýkjörinn þrítugur forseti rúss- neska sjálfstjómarlýðveldisins Kal- mykíu boðar kapítalíska paradís 22 Óvænt sending Páll Stefánsson ljósmyndari var valinn til að prófa nýja gerð af Leicu til prófunar áður en mynda- vélin verður sett á markað 38 illiií&i lÉÍLÍX >4 , 1*) 1 * ' W Í* i ll§^Íj|llɧ§ [ FininUtu og tveir irif\ [ msi» umírrúarvOísla ug £ Leiðari Vamariiðið og öryggi Islands 24 Fasteignir ► Sumarbústaðir - Húsbréfalán eftir landshlutum - Nýjar íbúðir í Setbergshlíð - Innanstokks og utan Daglegt líf ► Erum við að ala upp karlremb- ur? -1 Namibíu - kynlíf við kvill- um - Reynsluakstur Ford Escort - Rekstrarkostnaður fólksbíla - Ibsen-safn í Osló - íshestar kortafyrirtækin um debetkort. Samtökin hafa haft forystu um samstöðu smásöluverslunar vegna samninga við bankana og greiðslukortafyrirtækin um þetta mál. Hefur nefnd úr hópi kaup- manna verið skipuð til viðræðna við bankana og segir í bréfi sam- takanna að það sé „álit allra að verslunin eigi ekki að greiða þjón- ustugjald fyrir þessa þjónustu". Fyrirhugað er að að nota svonefnd Pos-tæki fyrir debetkort en þau eru nú víða notuð í kreditkortaviðskipt- um. í bréfi Kaupmannasamtakanna kemur fram að borist hafi upplýs- ingar um að bankarnir ætli að krefja verslunina um þóknun fyrir að taka á móti þessum greiðslum. Fregnir hafi borist af því að hugmyndir séu um þjónustugjald sem nemi um helm- ingi af gjaldi því sem verslunin greið- ir nú af kreditkortunum. Hvorki bankarnir né kortafyrir- tækin hafa haft frumkvæði að við- ræðum við samtök kaupmanna um málið. Samninganefnd kaupmanna hefur fengið til fundar við sig starfs- mann RÁS-nefndar, sem unnið hefur að undirbúningi á upptöku debet- korta, og forstjóra kortafyrirtækj- anna. Á þeim fundi reyndust þeir ekki tilbúnir til að ræða um þjónustu- gjald, að því er fram kemur. Samkeppnisráð fylgist með Þetta mál var til umræðu á aðal- fundi Kaupmannasamtakanna í gær. Deildu sumir fundarmenn hart á all- ar hugmyndir um þjónustugjald af debetkortum. Úlfar Ágústsson, kaupmaður á ísafirði, kvaðst raunar telja að bankamir ættu fremur að greiða kaupmönnum fyrir að færa greiðslur frá verslunum inn í banka- kerfið. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, var á fundinum m.a. spurður álits á réttmæti þjónustugjalda af debetkortum. „Mér finnst alveg ein- sýnt að kaupmenn muni þurfa að bera einhvem kostnað af því sem hefur verið kallað staðgreiðslukort," sagði ráðherra. Hann kvaðst hins vegar telja óeðlilegt að hagræðingin sem með þessu fengist í bankakerf- inu félli með öllu bönkunum í skaut. Einmitt vegna fákeppni á þessum markaði væri greinilega nauðsynlegt að Samkeppnisráð og Samkeppnis- stofnun fylgdust með þessu máli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.