Morgunblaðið - 07.05.1993, Qupperneq 10
Ml MORGÚNBLAÐIÖ FÖSTUDAGUR 7. MAf Í993
Kór Laugarneskirkju.
Tónleikar Kórs
Laugameskirkju
KÓR Laugarneskirkju heldur
árlega vortónleika laugardaginn
8. maí kl. 17.00 í Laugarnes-
kirkju.
Efnisskráin er fjölbreytt, m.a.
verða flutt verk frá endurreisnar-
tímabilinu eftir Palestrina, Gallus,
De Victoria, Perti og Mozart og
rómantísk verk eftir Mendelsohn,
Bramhs og Duruflé.
Þá flytur kórinn einnig negra-
sálma.
Laugardaginn 15. maí heldur
kórinn tónleika í Skálholtskirkju.
Stjórnandi kórsins er Ronald
Turner.
Morgunblaðið/Þorkell
Helgi Þ. Svavarsson, Óskar Einarsson, Arnþrúður Lilja Þorbjörnsdótt-
ir og Jón Guðmundsson. Á myndina vantar Eiinu Gunnlaugsdóttur.
Níu tónverk fimm
höfunda frumflutt
TÓNLEIKAR tónfræðadeildar Tónlistarskólans í Reykjavík
verða haldnir föstudaginn 7. maí klukkan 20.30 í Bústaða-
kirkju. Þar verða fluttar níu nýsmíðar eftir fimm höfunda sem
allir utan einn eru nemendur tónfræðadeildar skólans.
Kór Stykkis-
hólmskirkju
50 ára
KÓR Stykkishólmskirkju er
50 ára um þessar mundir.
Af því tilefni heldur kórinn
tónleika í Stykkishólmskirlqu
laugardaginn 8. maí kl. 17.
A efnisskrá eru m.a. Messa
eftir Schubert, lög úr Fiðlaranum
á þakinu, lög eftir Jón Nordal,'
Sigfús Halldórsson, Frans Lehar
o.fl. Fjöldi hljóðfæraleikara kem-
ur fram með kórnum, einnig
bamakór og félagar úr kórum
nágrannabyggðanna.
(Fréttatilkynning)
Myndlistar-
sýning Soffíu
frá Bjargi
SOFFÍA Þorkelsdóttir frá Bjargi
opnar sýningu á verkum sínum að
Óldugötu 15, félagsheimili Geðhjálp-
ar, klukkan 13 þann 8. maí n.k.
Flest verkin á sýningunni eru blý-
antsteikningar, en einnig eru nokkr-
ar vatnslita- og akrylmyndir. Sýning
Soffíu verður opinn alla daga e.h.
næstu tvær til þijár vikurnar.
Tónverkin eru afrakstur vetrar-
starfsins í tónfræðadeild, en tón-
smíðar eru þar valfag ér nýtur
þeirra vinsælda, að nær allir nem-
endur deildarinnar fyrr og síðar
hafa kosið sér þær að höfuðvið-
fangsefni.
Verkin sem flutt verða em: Tvö
smáverk fyrir málmblásara eftir
Helga Þ. Svavarsson; Tilbrigði við
Þorlákstíðir eftir Óskar Einarsson;
Söknuður fyrir söngtríó og litla
hljómsveit eftir Amþrúði Lilju Þor-
björnsdóttur við samnefnt ljóð Jó-
hanns Jónssonar; Flautufuglinn
fyrir blokkflautukvartett eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur; tvö verk eftir Jón
Guðmundsson, Nýheiðin dans- og
skemmtitónlist í anda vopnfirskrar
vitfirringar fyrir þijá gítara og
Strengjakvörtun hin fyrsta fyrir
strengjakvartett; auk þessa verða
flutt þijú stutt raftónverk eftir þau
Helga, Arnþrúði og Jón.
Flytjendur á tónleikunum eru
nemendur Tónlistarskólans í
Reykjavík auk nokkurra atvinnu-
manna, stjórnendur Bernhard Wilk-
inson og Helgi Þ. Svavarsson.
Elín Gunnlaugsdóttir, einn þeirra
höfunda sem eiga verk á tónleikun-
um, útskrifast með lokapróf í tón-
smíðum úr tónfræðadeild Tónlistar-
skólans nú í vor. Lokaverkefni
hennar er tónverk fyrir hljómsveit
sem hún kallar Myndir af hafínu.
Mun hljómsveit skólans flytja það
næsta haust.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Táknrænar vísanir
________IVIyndlist_____________
Bragi Ásgeirsson
Málarinn Daði Guðbjörnsson fer
ekki troðnar slóðir í listsköpun
sinni, heldur anar áfram í nær
stjórnlausum pataldri við form og
inntak myndlistarinnar.
Daði sótti sitt listræna uppeldi á
hugmyndafræðilegu sviði, en upp-
götvaði að hin einangraða tilbúna
hugmyndafræði var einungis ein
kreddan í viðbót, eitt lítið innskot
í umræðu núlista og snéri sér því
að málverkinu. Menningarmála-
nefnd Reykjavíkurborgar hefur
boðið listamanninum að sýna mynd-
verk sín í vestri sal Kjarvalsstaða,
og þar getur að líta mikinh fjölda
málverka frá síðustu árum, er
bregða ljósi á margræða innri tog-
streitu milli málverks og hug-
myndafræði.
Fari maður að hugsa um þróun-
ina án leiðsagnar sjálfskipaðra eða
löggiltra forsjárhyggjumanna,
kemst maður fyrr eða síðar að þeirri
merkilegu niðurstöðu, að nútíma-
listin hófst ekki með hinum svo-
nefnda og margtuggna „modern-
isma“. Heldur er hér um að ræða
rökræðu sem staðið hefur yfir frá
dögum fom Grikkja. Allar fullyrð-
ingar um annað hljóta að vera
markleysa, því að margt af vísdómi
fornaldarinnar eru burðarstoðir og
kjölfesta vestrænnar menningar
enn þann dag í dag.
Stílbrigðin tóku út þróun sína um
aldir og það línurit, er auðlesið frá
upphafi. Nýir tímar, er orsökuðu
kaflaskil í sögunni mörkuðust af
endurfæðingu eða endurreisn („rin-
ascimento") eða kannski réttara
uppstokkun fyrri gilda. Og þegar
þess er gætt að fæðingarhríðarnar
hófust fyrir sex hundruð árum, (um
1390), og lok tímabilsins markaðist
í byijun sextándu aldar með and-
láti tveggja höfuðsnillinga, þeirra
Leonardos (1519) og Rafaels
(1520), má vera ljóst að ekki var
um hugljómun listhöndlara né mey-
fæðingu að ræða. Hér var öllu held-
ur að menn snéru sér til fomaldar-
innar og endurvöktu gildi hennar
um leið og þeir endurnýjuðu þau í
ljósi nýrra tíma. Meistarar „Trec-
ento“ tlmabilsins einkum Giotto
mddu nýjum hugmyndum braut og
vinirnir Bmnelleschi, Donatello og
Ghiberti, sem voru sitt á hvað og
allt í senn gullsmiðir, myndhöggv-
arar og húsameistarar, þróuðu þær
áfram ásamt fleirum. Þeir og þá
einkum Bruneschelli uppgötvuðu
miðjufjarvíddina, rýmis- og himna-
fjarvíddina auk þess sem hlutfalla-
samræmið í mannslíkamanum er
forn Grikkir dýrkuðu var tekið upp
og yfirfært á öll svið sjónlista tím-
anna hús, höggmyndalist, málverk
skipulag...
Ghiberti leitaði einkum til spor-
göngumanna hins merkilega
Lysippos frá Sikyon, sem uppi var
á 4. öld fyrir Krists burð er mark-
aði hnignun klassísku iistarinnar,
en sem endurnýjaðist í Hellenis-
manum eða síðgríska tímabilinu „et
di capo rinaque".
Miðjufjarvíddin kom svo loks í
málverkið 1427 í freskómálverki
Masaccio í S. Maria Novella kirkj-
unni í Flórenz.
Að halda er svo er komið, að
menn geti rifið gróin gildi niður á
nokkurra ára fresti og byggt allt
upp aftur eftir eigin höfði hlýtur
að vera mikill misskilningur, og í
ætt við heimsendakenningar ofsa-
trúarleiðtoga, sem hiklaust ganga
út í opinn dauðann og taka helst
allan söfnuð sinn með um leið.
Og hafa slíkar harmsögur ekki
um sumt svip af listhópum, sem
vilja frelsa heiminn og eru hinir
einu handhafar stórasannleika? Þeir
hafa það í öllu falli sameiginlegt,
að þeir sem eru fyrir utan túngarð-
inn eru óhreinir og ber að forðast
þá sem kaunum slegið fólk, úrelt
myglað og gelt.
Ekki þarf svo að líta marga ára-
tugi aftur til að uppgötva, að hver
kynslóðin af annarri hefur rifið nið-
ur stópsannleik fyrirrennaranna.
En nú eru listamenn aftur komnir
á bólakaf í fortíðina og hafa jafn-
vel leitað á vit goðafræðinnar.
Reynslan hefur líka sýnt að þessi
hraða uppstokkun nær engri átt.
Daði Guðbjörnsson er einn af
þeim er leyfðu sér að efast um hið
guðdómlega og óskeikula í hug-
myndafræði áttunda áratugarins og
fór að mála með sígildu miðlunum,
en gleymdi þó ekki fræðunum með
öllu. Og auðvitað fannst ýmsum
fyrri samheijum hann vera óhreinn
og bijóstumkennanlegur um leið.
Einkenni listar Daða eru fyrst
og fremst hvers konar formrænar
vísanir til myndlistar nútíðar sem
fortíðar, og hver mynd getur verið
sem uppstokkun margra gilda. I
öllu falli virka sum málverka hans
eins og slagur á milli ólíkra formein-
inga svo og blíðra sem hvellra lita-
samhljóma, þar sem allt getur verið
í einni bendu þannig að skoðandinn
stendur sem ráðþrota og grípi um
höfuð sér.
Vel málaður og mjúkur form-
rænn stígandi er rofinn af hörðu
og freku formi, sem kemur eins og
skrattinn úr sauðarleggnum og
virkar sem högg undir bringspalir
eða „solar plexus“ eins og það heit-
ir á máli hinnar fögru sjálfsvarnar-
UM HELGINA
Tónlist
Nútímatónlist á
Kjarvalsstöðum
9. maí verða haldnir á Kjarvalsstöð-
um tónleikar með verkum Ríkharðs
H. Friðrikssonar. Tónleikar þessir eru
hluti af tónleikaröð sem Kjarvalsstaðir
hafa staðið fýrir í vetur til kynningar
á ungum íslenskum tónskáldum. Flytj-
endur verða Jóhanna Þórhallsdóttir
söngkona, Guðni Franszon klarinettu-
leikari, Monica Abendrodt hörpuleikari
og Caput-hópurinn. Einnig verða flutt
verk fyrir segulband og sjálfspilandi
píanó. Ríkharður H. Friðriksson hefur
lagt stund á tónsmíðar í Reykjavík,
New York, Siena og Haag.
Tónleikarnir verða haldnir eins og
áður sagði, sunnudaginn 9. maí og
hefjast klukkan 20.30. Aðgangseyrir
er krónur 300.
Röð vortónleika hefst
um helgina
Fyrstu vortónleikar Tónlistarskól-
ans í Keflavík verða haldnir í sai skól-
ans á morgun laugardaginn 8. maí
klukkan 13 og 15. Á þessum tónleikum
koma yngri og styttra komnir nemend-
ur fram og leika á ýmis hljóðfæri.
Sunudaginn 9. maí verða tónleikar
á sama stað og hefjast þeir klukkan
16. Þar koma fram nemendur í 3. og
4. stigi námsins þ.e. nemendur sem
komnir eru vel af byijendastiginu. Á
öllum þessum tónleikum mun foreldra-
félag Lúðrasveitarinnar verða með
kaffisölu í skólanum.
Miðvikudags- og fímmtudagskvöld-
ið í næstu viku þ. 12. og 13. maí verða
svo tónleikar eldri og lengst komnu
nemendanna einnig í sal skólans og
hefjast þeir klukkan 20.30.
Föstudagskvöldið 14. maí verða
hljómsveitartónleikar skólans í Félags-
bíói. Þar munu yngri og eldri lúðra-
sveitir koma fram ásamt strengja-
sveit. Hefjast tónleikarnir klukkan
20.30.
Laugardaginn 15. maí fara svo fram
skólaslit, að þessu sinni í Félagsbíói.
Þar munu nokkrir hópar koma fram
s.s. barnakór, hópur Suzuki nemenda
og 17 af elstu og lengst komnu nem-
endunum munu flytja mjög frumlegt
verk eftir Stockhausen. Meðal annars
verður spilað á blásturshljóðfæri í
bala og fleira óvenjulegt.
Aðgangur að öllum tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
Kammertónleikar á
Sólon Islandus
Kamrnertónleikar verða haldnir á
Sólon íslandus sunnudaginn 9. maí
klukkan 17. Fram koma Auður Haf-
steinsdóttir fiðla, Lisa Ponton lágfiðla,
Richard Talkowsky selló, Richard
Kom bassi, Einar Jóhannesson klari-
nett, Jósef Ognibene horn, Bijánn
Ingason fagott fg Steef van Oosterho-
ut slagverk. Leikin verða: „Till Eu-
lenspiegel - Einmai anders" (Grot-
esque musicale) eftir Richard Strauss
í umritun Franz Hascnöhrl, „Tilbrigði
fyrir 4 trommur og lágfiðlu" eftir
Michael Colgrass og „Septett í B-dúr“
eftir Franz Berwald.
Tónleikar Tónlistar-
skóla Garðabæjar
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla
Garðabæjar standa nú yfir. í kvöld
klukkan 19 verða tónleikar í Kirkju-
hvoli þar sem fjöldi nemenda leika
m.a. verk eftir Bach, Rameau, Couper-
in, Purcell, Bonancini, Mozart, Schub-
ert, Liszt, Grieg, Poulenc, Bartók,
Hindemith og Hjálmar H. Ragnarsson.
Leikið verður á píanó, fiðlur, selló,
blokkflautur, gítar, þverfautur, klari-
nett og trompett.
Mánudaginn 10. maí klukkan 19.30
verða hljómsveitartónleikar í Kirkju-
hvoli. Þar koma fram þijár blásarasve-
itir skólans undir stjórn Edwards J.
Frederiksens og strengjasveit undir
stjórn Andrzejs Kleinas. M.a. verður
fluttur píanókonsert í d-moll eftir
Bach og leikur Gunnlaugur Þór Briem
einleik í konsertinum.
Miðvikudaginn 12. maí klukkan 18
sýna forskóladeildir söngleikinn óla
Lokbrá undir stjórn Guðrúnar Ás-
björnsdóttur. Fimmtudaginn 13. maí
klukkan 20 halda söngnemendur Si-
eglinde Kahmann tónleika í Kirkju-
hvoli þar sem flutt verða ljóð og óperu-
aríur eftir innlenda og erlenda höf-
unda. Föstudaginn 14. maí klukkan
Jóhanna Bogadóttir.
Valgerður Bergsdóttir
20 enda svo söngnemendur Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur þessa tónleika-
hrinu með ljóða og aríusöng.
Allir tónleikarnir verða I Kirkju-
hvoli og er aðgangur ókeypis.
Vortónleikar Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar
Þessa dagana standa yfir vortón-
leikar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
þegar hafa verið haldnir tvennir tón-
leikar, þ.e. tónleikar skólalúðrasveita
skólans og tónleikar forskólans.
1 dag, föstudaginn 7. maí, verða