Morgunblaðið - 07.05.1993, Síða 11

Morgunblaðið - 07.05.1993, Síða 11
MOKGUNBIiADH) FÖSTUDAGU.R ft^AÍ- 19g3 ÍÉi Borealis 6 opnar á morgun Daði Guðbjörnsson NORRÆNI listatvíæringurinn Borealis 6 verður opnaður í Lista- safni íslands af menntamálaráðherra, Olafi G. Einarssyni, laug- ardaginn 8. maí. Þetta er í fyrsta skiptið sem slík sýning er skipulögð hér á landi, en áður hafa Borealis-sýningar verið haldnar á hinum Norðurlöndunum. Borealis-sýningarnar eru sameig- inlegt verkefni Norrænu listamið- stöðvarinnar á Sveaborg og eins mikilvægs listasafns á Norðurlönd- unum í senn. Gengið er út frá salar- kynnum viðkomandi safns og þar af leiðandi eru Borealis-sýningamar ekki farandsýningar heldur bundnar við einn stað í senn. Núverandi skipulag á Borealis komst á með Borealis 2, en sú sýn- ing var sameiginlegt verkefni NLS á Sveaborg og Henie-Onstad listamið- stöðvarinnar í Hövikodden utan við Osló, árið 1985. Árið 1987 var Bore- alis 3 haldin í Malmö Konsthall og Borealis 4 var skipulögð í Louisiana- listasafninu í Humlebæk 1989. 1991 var Borealis 5 svo skipulögð á vestur- strönd Finnlands undir heitinu Efnið og útgeislun þess. Á Borealis 6 í Listasafni íslands eru verk eftir 8 listamenn, undir þemanu Orka og víddir. Þeir eru: Ulf Rollof (Svíþjóð), Bente Stokke (Noregi), Finn Neur Petersen (Dan- mörku), Maaria Wirkkala (Finn- landi), Finnbogi Pétursson (íslandi), Óperettan Mikado á Húsavík Morgunblaðið/Silli Þátttakendur í óperettunni Mikado sem sýnd var á Húsavík fyrir skömmu. listar „the noble art of self defense". Kannski hefur listamaðurinn að þessu sinni tekið orðspeki Goethe of bókstaflega „þar sem ljósið er skærast er skugginn dýpstur", eða hann er að gefa spekinni langt nef. í öllu falli dembir Daði hráum, hörð- um og óvægum dökkum formum á myndflöt, sem er fínt, fallega og vel málaður. Þannig er líkast sem hann megni ekki að vinna lengi að einni myndheild án þess að bæta einhverjum gjörólíkum formum við. Útkoman getur þannig einna helst skilgreinst sem „Vanity Fair“, leik- hús fáránleikans á myndfleti. Einn- ig mætti skilgreina þetta sem reim- leika í björtu, í senn glettnislegra sem óræðara, þar sem kvenímyndin er oftast nálæg með tónrænt form- uð bijóst og sakleysislega mótuð sköp, en andlit márkað nokkrum fljótfærnislega máluðum doppum. Hér ægir saman alvöru og háði, heimsádeilu sem skopi, — líf kvikn- ar og ljómi áru þess er skínandi björt, en um leið er groddafenginn skuggi á næsta leiti, líkast aðskota- hlut um sporbaug jarðar, eða kló- settpappírsrifrildum og tíðatöppum er blasa við manni í sjónum á sund- spretti í draumavík við sólarströnd. Á sumarsýningu Norræna húss- ins á síðasta ári átti Daði nokkrar mjög hreinar og klárar myndir og satt að segja skil ég ekki þessa þróun á ekki lengri tíma, þótt oft hafi myndflöturinn verið flúraður ókennilegustu formunum áður. Sumir hlutir mynda Daða á sýn- ingunni að Kjarvalsstöðum eru svo fínt og ferskt málaðir að þeir stæðu alveg fyrir sínu sem málverk einir og sér, en það er fjári erfitt að fylgja honum í öllum þessum tiltektum. Það er eins og hann vilji sleppa lausum öllum púkum og árum ald- arinnar nú er hún byltir sérí dauða- teygjum og boða um leið fæðingu nýrrar aldar. Og vissulega eru þess- ar fæðingarhríðir umbrotamiklar en þær gefa frekar til kynna en að marka ákveðna stefnu. Ætli að kjarninn í þessu sé ekki, að farsælast sé að flýta sér hægt, „festina lente“? Húsavík. ÓPERETTUNA Mikado eftir Gil- bert og Sullivan sýndu söngnem- endur Tónlistarskólans á Húsa- vík fyrir skömmu við góða að- sókn og undirtektir. Kennari þeirra og stjórnandi sýningar- innar var Natalia Chow, sem jafnframt annaðist undirleik ásamt Helga Péturssyni. Flytjendur voru 14 en sólósöngv- arar voru Matthildur Rós Haralds- dóttir, Berglind Rós Magnúsdóttir, Elísabet Hauge, Guðfinna Sverris- dóttir, Eiríkur Jóhannsson, Sighvat- ur Árnason, Einir Björnsson, Rík- harður Hjartarson. Þótt finna hafí mátt að hér voru nýnemar í sinni fyrstu raun á söng- sviðinu var frammistaða þeirra eftir stuttan námstíma og aðstæðum eftir- tektarverð og lofar góðu fyrir suma þeirra eftir meira nám. Þetta er lofs- vert framtak, sem var áheyrendum til mikillar ánægju. Natalia Chow, sópransöngkona, er frá Hong Kong og er þetta fyrsti veturinn sem hún kennir við Tónlist- arskólann á Húsavík. Eftir almennt nám í sínum heimahögum hóf hún nám við tónlistardeild Hong Kong Bapist College, en þar var henni veittur styrkur frá Professor Sze Yi Kwei Scolarship til frekara náms. Steina Vasulka (Íslandi/Bandaríkj- unum), Giovanni Anselmo (Ítalíu) og Roman Signer (Sviss). Allir vinna listamennirnir verk sín í nánun tengslum við upplifun sína af landi og menningu þótt jafnframt heyri list þeirra með ólíkum hætti undir áðurnefnda undirskrift. Gefín er út vegleg sýningarskrá, sem prýdd er fjölda litmynda. Félag- ar í tónlistarhópnum Ými halda átján einleikstónleika í tengslum við sýn- inguna. Leiðsögn verður um hana í fylgd sérfræðings á hveijum sunnu- degi klukkan 15. Sýningunni Orka og víddir/Borealis 6 lýkur 20. júní 1993. Sýningin er opin daglega nema mánudaga klukkan 12-18. Hún útskrifaðist með masters-prófi í tónmenntakennslu frá háskólanum í Reading i Englandi 1989. Áður en Natalia kom til íslands var hún í fastri stöðu sem tónlistar- kennari við International Institute of Music í Hong Kong. - Fréttaritari. Nemendur Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. vortónleikar eldri deildar skólans og hefjast þeir kiukkan 20.30 í Hafnar- borg. Þar koma fram margir af efni- legustu nemendum skólans og þeir sem lengst eru komnir í námi. I heim- sókn á þessa tónleika koma 25 skóla- stjórar tónlistarskóla á Norðurlöndun- um. Mánudaginn 10. maí verða vortón- leikar yngri deildar skólans og þefjast þeir klukkan 20 í Hafnarborg. Á þess- um tónleikum koma fram ungir nem- endur tónlistarskólans og leika á hin margvíslegustu hljóðfæri. Síðustu tónleikar skólans á þessu starfsári verða tónleikar strengja- deildarinnar, föstudaginn 13. maí klukkan 20 í Hafnarþorg. Skólaslit Tónlistarskóla Hafnar- ijarðar verða föstudaginn 21. maí klukkan 18 í Hafnarþorg. Myndlist Jóhanna Boga sýnir í Listasafni ASÍ Jóhanna Bogadóttir sýnir málverk í Listasafni ASÍ við Grensásveg 16a. Sýningin verður opnuð á morgun, laugardaginn 8. maí klukkan 15 og mun standa til 23. maí. Opið alla daga klukkan 14-19 Á sýningunni eru málverk frá sl. þremur árum. Jóhanna hefur haldið margar einkasýningar bæði hér á landi og erlendis. Einnig hefur hún tekið þátt í samsýningum víða um heim. Nú á sl. tveim árum hafa verið haldn- ar sýningar á verkum hennar á ýmsum stöðum erlendis. í Svíþjóð í Gavle Konsthall 91, í nútímalistasafninu í Sundsvall 1991, í Haag í Hollandi 92, Galleri Due í Helsinki 92 og í Kaup- mannahöfn hjá Nordisk Ministerad 92, einnig í Berlin 93. Verk eftir Jóhönnu eru í eigu ýmissa safna t.d. í Atheneum í Helsinki og Museum of Modern Art, New York. Valgerður sýnir í List- munahúsinu Valgerður Bergsdóttir opnar sýn- ingu í Listmunahúsinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, á morgun laugar- daginn 8. maí klukkan 16. Þetta er sjöunda einkasýning Val- gerðar en hún hefur tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum og alþjóðpleg- um gi’afíksýningum og hlaut verðlaun fyrir grafík á Banska Bystrica-tvíær- ingnum í Tékkóslóvakíu í vetur. Val- gerður hlaut 1. verðlaun í samkeppni um gerð uppdráttar fyrir glerglugga í Reykholtskirkju 1992. Á sýningu Valgerðar nú eru litaðar teikningar sem lýsingar við fornar helgimyndir Sólarljóða. Sýning Valgerðar í Listmunahúsinu er opin frá klukkan 10-18 virka daga og klukkan 14-18 um helgar. Sýning- unni lýkur 23. mai. Honda er auðveldur í endursölu og heldur sér vel í verði. Hugleiddu það, nema þií sért að kaupa þér bíl til ltfslíðar. Það er mikill munur á því hversu ; vel bílar halda sér í verði. Munurinn ! á endursöluverði ársgamallrar “ Honda og annarra bíla getur verið 1 töluverður. Að ári liðnu getur 1 Honda verið allt að 25% verðmeiri en aðrir bílar í sama verðflokki. ta VATNAGÖRÐUM - SÍMI 689900 -góð fjárfesting

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.