Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
ráðinu á þann hátt. Hann sagði til
dæmis í samtali við Morgunblaðið
fyrir rúmu ári, þegar íslendingar
ákváðu að ganga út hvalveiðiráð-
inu, að hann tryði því að ráðið
væri að fara í ábyrga átt og sum
þeira málefna, sem ísland hefði
haft áhyggjur af, kynnu að verða
til lykta leidd innan skamms.
Nú hafa orðið stjómarskipti í
Bandaríkjunum og mannaskipti í
bandarísku stjórnarstofnunum, þar
á meðal NOAA, Haf- og veður-
fræðistofnun Bandaríkjanna sem
hefur með sjávarútvegsmál að
gera. í sæti Knauss sest væntan-
lega vísindamaður að nafni James
Baker þótt tilnefning hans í emb-
ættið hafi ekki verið staðfest enn
á Bandaríkjaþingi. Hann mun þó
ekki vera ábyrgur fyrir þeirri
stefnu sem nú hefur verið boðuð,
að styðja ekki tillögur um hvalveið-
ikvóta á ársfundinum í Japan held-
ur var ákvörðun um það að öllum
líkindum tekin af háttsettari mönn-
um í bandaríska stjórnkerfinu.
Norðmenn lýstu því yfir í fyrra,
að þeir hygðust hefja hrefnuveiðar
í atvinnuskyni í sumar, hvort sem
Alþjóðahvalveiðiráðið gæfi þeim
hrefnuveiðikvóta eða ekki. Þar sem
Norðmenn mótmæltu hvalveiði-
banni hvalveiðiráðsins á sínum
tíma eru þeir ekki bundir af því
samkvæmt lögum hvalveiðiráðsins,
en hvalveiðar Norðmanna gegn
vilja hvalveiðiráðsins yrðu væntan-
lega í Bandaríkjunum taldar bijóta
gegn friðunarmarkmiðum hval-
veiðiráðsins og því háðar Pelly-
ákvæðinu.
Þótt Bandaríkin hafi nú lýst því
yfir, að þau muni virða ákvarðanir
ráðsins, samþykki meirihluti þess
að úthluta veiðikvótum, þykir ólík-
legt að sá meirihluti fáist nema
með fulltingi Bandaríkjanna. Um
leið eru taldar auknar líkur á að
Norðmenn segi sig úr Alþjóðahval-
veiðiráðinu og komi af fullum
þunga til liðs við Sjávarspendýrar-
áð Norður-Atlantshafs, NAMMCO,
í því skyni að byggja það upp sem
hvalveiðiráð sem hafi lögsögu yfir.
hvalastofnum á þessu hafsvæði.
En þótt af því verði gæti orðið
erfið barátta að fá Bandaríkja-
stjórn og Bandaríkjaþing til að við-
urkenna hvalveiðar undir
NAMMCO. Og ekki þarf að búast
við því að slíkar veiðar ættu upp
á pallborðið hjá umhverfisvemdar-
samtökum.
Jóhann Sigurjónsson
sjávarlíffræðingur
Stofnarnir
við Island
þola veiðar
„ÞAÐ er miður ef bandarísk
stjórnvöld taka ekki lengur mið
af vísindalegum staðreyndum
þegar stefna þeirra í hvalfrið-
unarmálum er annars vegar,“
segir Jóhann Sigurjónsson sjáv-
arlíffræðingur hjá Hafrann-
sóknarstofnun og formaður vís-
indanefndar Norður Atlants-
hafs sjávarspendýraráðsins
(NAMMCO). Hann segir það
ljóst að á Islandsmiðum séu
hvalastofnar sem þoli veiðar.
„Við höfum átt fjölmarga fundi
ipeð Bandaríkjamönnum á undan-
förnum árum, t.a.m. meðan á rann-
sóknaveiðunum stóð, og þar hafa
menn rætt málin ekki síst á vísinda-
legum grundvelli. Það er auðvitað
miður ef þekking okkar á ástandi
stofnanna skiptir ekki lengur máli
í umræðunni um skynsamlega nýt-
ingu og verndun stofnanna. Það
er augljóst mál að það eru stofnar
hér við land sem þola veiðar, eins
og við á Hafrannsóknarstofnun
höfum haldið fram, og reyndar
fengið rækilega staðfest á alþjóða-
vettvangi, m.a. í vísindanefnd Al-
þjóðahvalveiðiráðsins," segir Jó-
hann.
Hagsmunir skarast
Hann segir að yfirleitt sé reynt
að taka tillit til vísindalegra stað-
reynda við stjórn fiskveiða á ís-
landi á íslandsmiðum, þótt þeir sem
starfi á Hafrannsóknarstofnun telji
að enn megi gera betur á því sviði,
það sé enda í samræmi við yfir-
lýsta stefnu íslenskra stjórnvalda
við nýtingu auðlinda sjávar.
„í Bandaríkjunum virðast nú
önnur sjónarmið ráða ferðinni þar
sem sjávarspendýrin lúta ekki sömu
stjórnunarlögmálum og gilda al- |
mennt um fiskveiðar. Það er einnig
umhugsunarvert að fiskveiðar með
netum hafa verið bannaðar í Kali-
forníu vegna þess að þar skarast
hagsmunir sjávarspendýranna og
fiskimanna."
Magnús Friðgeirsson, Iceland Seafood
Farið er að vilja
almennings og
þingmeirihluta
BANDARÍSK stjórnvöld hafna vísindalegum rökum og fara að vilja
almennings og þingmeirihluta, segir Magnús Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum, um afstöðu Banda-
ríkjamanna til hugsanlegra hvalveiða íslendinga. Islendingar verði
að hafa heildarhagsmuni að leiðarljósi þegar þeir vegi það og meti
hvort hefja eigi hvalveiðar á ný.
„Þessi tíðindi koma mér ekkert
á óvart, en þó ber á það að líta að
Bandaríkjamenn eru með þessu að
hafna vísindalegum rökum. Hitt get
ég staðfest að almenningur hér
virðist mjög andsnúinn hvalveiðum
og ég undrast það heldur ekki að
meirihluti Bandaríkjaþings er á
sama máli,“ sagði Magnús.
Ekki kúvending
Hann kvaðst ekki telja að mikil
kúvending hafi orðið i afstöðu
bandarískra stjórnvalda í hvalfrið-
unarmálum við stjórnarskiptin þar
í landi, að öðru leyti en því að „áð-
ur fyrr kváðust þeir ekki sjá fyrir
sér vísindaleg rök til málsins, en
gerðu sér á sama tíma grein fyrir
vilja almennings hér. Núna virðist
eins og þeir hafi gert sér grein fyr-
ir vísindalegum rökum í málinu en
hafni þeim og fari að vilja almenn-
ings. Stjómvöld segja að þrátt fyrir
að færi megi rök fyrir því að hægt
sé að veiða úr ákveðnum stofnum
hvala þá yilji þau ekki fara gegn
skoðunum almennings eða þing-
meirihluta,“ sagði Magnús.
„Ég tel að það þurfi að vinna
mjög mikið að þessum málum áður
en hvalveiðar hefjast. Það vakna
upp spurningar um hvort bandarísk
stjórnvöld ætli sér að hafa bein
afskipti af málinu, með viðskipta-
þvingunum, eða munu þau láta hjá
líða þar til bandarískur almenningur
mótmælir," sagði Magnús.
1!7
NÖATÖN
Lambalæri
599
Kindahakk
398 p“
21 Miúkís
429
■<9
Kryddlegið
lambakjöt
á grillið!
Sirlon sneiðar
795 pr. kg.
Grillkótilettur
795 pr kg
Rifjasneiðar
295 p"g
Lambasvið
249 pr~g.
Nýr
Sjóeldislax
í 1/1
499 p"g
6 stk. pítubrauð
109.-
emmess
ÍSBLÓM 4 stk.
199.-
Sunglory
Appelsínudjús 11t.
79.-
Sunglory
Epladjús 1 It. |jananar QO
89.-
SPRITE
2 Lítrar
119
pr.kg
„Castel Frites“
-franskar 750 g
199.
Balsen Club
Saltkex
49 -
nakl
2,Bkg.ARIEL
þvottaduft
+ 640 ml
pakkinn . . , .
Lenor mykingarefm
Libbys Bakaðar
baunir 1/2 dós
45.-
899.
Micro
poppkorn
89.-
Agúrkur
25-
- stykkið!
Tómatar
195 P>.kg
SANITAS
PILSNER1/21
58.-
Rampers
Phases.
&3>
■ O T
I ■ l
bleiur
998
Shampoo
3 brúsar 150 ml
199.-
0NÓATÚN
Jokonomi
Eldhúsrúllur 4 stk.
179.-
VSkonomiV
WC rúllur 8 stk
179.-
Nóatúni 17 - S. 617000 Hamraborg 14, Kóp. - S. 43888 Furugrund 3, Kóp. - S. 42062
Rofabæ 39 - S. 671200 Þverholti 6, Mos. - S. 666656 Laugavegi 116 - S. 23456