Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 21

Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 21 Bjöm Bjamason formaður utanríkismálanefndar Alþingis um áformaðan niðurskurð í Keflavíkurstöðinni Hljótum að taka mið af aðstæðum BJÖRN Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að íslendingar hljóti að bregðast við breyttum aðstæðum og viðurkenna þá staðreynd að ekki þurfi sama tækjabúnað á Keflavíkurflugvelli og verið hefur. Hann leggur hins vegar áherzlu á að ákvarðanir um breyt- ingar í varnarstöðinni verði teknar í samráði Bandaríkjamanna og Islendinga. „Það hefur verið alveg ljóst um nokkurt skeið að við kynnum að standa frammi fyrir því að ákvarðan- ir Bandaríkjamanna vegna fjárlaga- halla þeirra hefðu áhrif á starfsemina á Keflavíkurflugvelli," sagði Bjöm í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að í viðræðum nefndar á vegum ríkissijómarinnar, sem hann átti sæti í, við stjómvöld í Washington í september síðastliðnum, hefði komið fram að þessi staða kynni að koma upp, og nefndin hefði vakið athygli á því í skýrslu sinni. Bjöm sagði að undanfarið hefði flugvélum vamarliðsins verið fækk- að. „Sem betur fer hafa verið minni verkefni fyrir þessi tæki hér á landi og þá hafa þau verið dregin til baka. Það er eðlilegt, til dæmis með hlið- sjón af því hvemig þau komu. Við samþykktum að taka við fleiri flug- vélum vegna þess að menn mátu öryggishagsmunina með þeim hætti að það væri nauðsynlegt. Nú hljótum við einnig að véra tilbúnir að taka mið af breyttum aðstæðum og þeirri staðreynd að ekki þurfi öll þessi tæki til að halda hér uppi vömum.“ Öryggishagsmunir til grundvallar Hann sagðist ekki telja óhjá- kvæmilega niðurstöðu að allur flug- flotinn yrði færður frá Keflavíkur- stöðinni. „Þetta mál er til skoðunar. Það er lagt að flughemum og öðmm stofnunum Bandarílqahers að spara og þá er eðlilegt að hveijum steini sé velt. Það er hins vegar alveg skýrt, eftir að við fómm til Bandaríkjanna, að það verður haft samráð við ís- lenzk stjómvöld á gmndvelli vamar- samningsins. Hitt skulum við hafa í huga að þegar ríki em að taka ákvarðanir um ijárlög sín, fara menn fram með ákveðinni leynd, í Banda- ríkjunum eins og annars staðar. Það er nauðsynlegt við slíkar ákvarðanir að um þær ríki trúnaður og ákveðin leynd hvíli yfir gerð fjárlaga. Þess vegna kann þetta mál að vera við- kvæmara í samskiptum ríkjanna en ella. Meginsjónarmið mitt er að leggja verði öryggishagsmuni íslend- inga til gmndvallar í samskiptum okkar við Bandaríkin um vamar- samninginn en við hljótum, eins og allir, að taka mið af þeim fjármunum sem til em og nauðsyn þess að halda úti þessum dým tækjum hér á landi.“ í skýrslu nefndarinnar um örygg- is- og vamarmál segir m.a.: „Skýrt hefur komið fram hjá bandarískum stjómvöldum að breyttar aðstæður dragi ekki úr þeirri skuldbindingu Bandaríkjanna í vamarsamningnum að tryggja vamir lands og þjóðar. „Jafnframt veldur niðurskurður á fjárveitingum til landvama því að ekki er unnt að útiloka frekari sam- drátt en þegar hefur orðið í Keflavík- urstöðinni. Málefni hennar mega ekki ráðast af einhliða ákvörðunum Bandaríkjamanna vegna þrýstings í ríkisfjármálum, heldur verða ákvaið- anir að byggjast á sameiginlegu mati bandarískra og íslenzkra stjórn- valda á breyttum aðstæðum í örygg- ismálum. í viðræðum nefndarinnar við bandarísk stjómvöld varð fullt samkomulag um þetta atriði." Ekki dregið úr mikilvægi Bjöm var spurður hvort hugmynd- ir um að fækka verulega í flugsveit- um á Keflavíkurflugvelli sýndu ekki að tal bandarískra stjómvalda um aukið mikilvægi stöðvarinnar kæmi ekki fram í verki, og að mat ís- lenzkra og bandarískra stjómvalda á henni væri ólíkt. „Menn geta talið stað mjög mikilvægan án þess að vera þar með tækjabúnað sem. þeir telja óþarfan. Menn verða að vera tilbúnir að greina á milli tækjabúnað- ar og mikilvægis þess að hafa að- stöðu," svaraði Bjöm. Hann sagði að aðstæður hefðu breytzt áður. Hermenn hefðu verið við ratsjár- stöðvar NATO á öllum landshomum og verið kallaðir til baka þegar ekki var lengur þörf á þeim á sjöunda áratugnum. Þessum ratsjárstöðvum hefði verið fækkað um tvær, en nú væru þær að nýju orðnar fjórar í landinu. „Það er enginn fastur punkt- ur í þessu. Menn hljóta að nota þau tæki, sem þeir þurfa hvetju sinni.“ Aðspurður hvort íslenzk stjórnvöld hefðu sinnt því nægilega vel að búa svo um hnútana að fækkun í liði Bandaríkjamanna kæmi ekki sem reiðarslag yfir atvinnulíf á Suður- nesjum, sagðist Bjöm alltaf hafa talið að meta ætti veru varnarliðsins fyrst og fremst út frá öryggishags- munum. „Við höfum margir varað við því að íslendingar yrðu ekki of háðir vamarliðinu efnahagslega, þvi að til þess kynni að koma að umsvif þess drægjust saman og þá lentum við í gífurlegum vandræðum ef við værum of háðir því fjárhagslega. Ég hef verið í þeim hópi, sem hefur bent á þetta og sagt að ekki væri sjálfgef- ið til eilífðamóns að hér yrði fjöldi bandarískra hermanna. Ég get hins vegar skilið að ótta setji að mörgum, sem eiga afkomu sína undir dvöl vamarliðsins, þegar þeir lesa flenni- fréttir á borð við þá, sem túrtist á forsíðu Morgunblaðsins í gær.“ A ^LIFEYRIR að þínu valil Y.-- , Yifðu lifinu P' ALLT LÍFIÐ! Leggbu grunn ab litríku ævikvöldi! Hefurbu leitt hugann að lífeyrisréttindum þínum á efri árum? Hjá mörgum stefnir í mikla tekjulækkun á þeim árum sem svigrúmið getur verið hvað mest til að njóta lífsins! Sameinaða líftryggingarfélagið hf. býður nýjan valkost í lífeyrismálum; Óskalífeyri. Óskalífeyrir er sveigjanleg trygging sem býður upp á séreignar- og sameignar- fyrirkomulag lífeyris ásamt nauðsynlegum persónutryggingum. Mikilvægt er að fara snemma að huga að þessum málum og leggja þannig grunn að litríkum dögum eftir að starfsævi lýkur. Hugleiddu eftirfarandi spurningar varðandi lífeyrissparnað þinn: Viltu tryggja þér örugga afkomu til æviloka, safna í eigin sjóð eða sameina kosti séreignar- og sameignarlífeyris? Þarftu hærri lífeyrisgreiðslur í ákveðinn tíma, hluta sjóðsins eða hann allan út- borgaðan í einu lagi t.d. vegna ferðalaga eða annarra spennandi viðfangsefna? Hefur þú áhrif á lífeyrisréttindi þín eða ákveða aðrir hvernig fjárhagur þinn verður á efri árum? Hvenær viltu hefja töku á lífeyri þínum, um sextugt eða síðar? Viltu tryggja þig gegn áföllum á sparnaðartímanum t.d. með afkomu- eða líftryggingu? ÓSKALÍFEYRIR - NÝJUNG í LÍFEYRISMÁLUM! Þú færb nánari upplýsingar hjá tryggingarráðgjöfum Sameinaöa líftryggingarfélagsins hf. Hafðu samband! Sameinaða líftryggingarfélagiö hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 91- 692500 I eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöbvarinnar hf. SÁ/0 v~

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.