Morgunblaðið - 07.05.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
21
Bjöm Bjamason formaður utanríkismálanefndar Alþingis um áformaðan niðurskurð í Keflavíkurstöðinni
Hljótum að taka mið af aðstæðum
BJÖRN Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að
íslendingar hljóti að bregðast við breyttum aðstæðum og viðurkenna
þá staðreynd að ekki þurfi sama tækjabúnað á Keflavíkurflugvelli og
verið hefur. Hann leggur hins vegar áherzlu á að ákvarðanir um breyt-
ingar í varnarstöðinni verði teknar í samráði Bandaríkjamanna og
Islendinga.
„Það hefur verið alveg ljóst um
nokkurt skeið að við kynnum að
standa frammi fyrir því að ákvarðan-
ir Bandaríkjamanna vegna fjárlaga-
halla þeirra hefðu áhrif á starfsemina
á Keflavíkurflugvelli," sagði Bjöm í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagði að í viðræðum nefndar á vegum
ríkissijómarinnar, sem hann átti
sæti í, við stjómvöld í Washington í
september síðastliðnum, hefði komið
fram að þessi staða kynni að koma
upp, og nefndin hefði vakið athygli
á því í skýrslu sinni.
Bjöm sagði að undanfarið hefði
flugvélum vamarliðsins verið fækk-
að. „Sem betur fer hafa verið minni
verkefni fyrir þessi tæki hér á landi
og þá hafa þau verið dregin til baka.
Það er eðlilegt, til dæmis með hlið-
sjón af því hvemig þau komu. Við
samþykktum að taka við fleiri flug-
vélum vegna þess að menn mátu
öryggishagsmunina með þeim hætti
að það væri nauðsynlegt. Nú hljótum
við einnig að véra tilbúnir að taka
mið af breyttum aðstæðum og þeirri
staðreynd að ekki þurfi öll þessi
tæki til að halda hér uppi vömum.“
Öryggishagsmunir til
grundvallar
Hann sagðist ekki telja óhjá-
kvæmilega niðurstöðu að allur flug-
flotinn yrði færður frá Keflavíkur-
stöðinni. „Þetta mál er til skoðunar.
Það er lagt að flughemum og öðmm
stofnunum Bandarílqahers að spara
og þá er eðlilegt að hveijum steini
sé velt. Það er hins vegar alveg skýrt,
eftir að við fómm til Bandaríkjanna,
að það verður haft samráð við ís-
lenzk stjómvöld á gmndvelli vamar-
samningsins. Hitt skulum við hafa í
huga að þegar ríki em að taka
ákvarðanir um ijárlög sín, fara menn
fram með ákveðinni leynd, í Banda-
ríkjunum eins og annars staðar. Það
er nauðsynlegt við slíkar ákvarðanir
að um þær ríki trúnaður og ákveðin
leynd hvíli yfir gerð fjárlaga. Þess
vegna kann þetta mál að vera við-
kvæmara í samskiptum ríkjanna en
ella. Meginsjónarmið mitt er að
leggja verði öryggishagsmuni íslend-
inga til gmndvallar í samskiptum
okkar við Bandaríkin um vamar-
samninginn en við hljótum, eins og
allir, að taka mið af þeim fjármunum
sem til em og nauðsyn þess að halda
úti þessum dým tækjum hér á landi.“
í skýrslu nefndarinnar um örygg-
is- og vamarmál segir m.a.: „Skýrt
hefur komið fram hjá bandarískum
stjómvöldum að breyttar aðstæður
dragi ekki úr þeirri skuldbindingu
Bandaríkjanna í vamarsamningnum
að tryggja vamir lands og þjóðar.
„Jafnframt veldur niðurskurður á
fjárveitingum til landvama því að
ekki er unnt að útiloka frekari sam-
drátt en þegar hefur orðið í Keflavík-
urstöðinni. Málefni hennar mega
ekki ráðast af einhliða ákvörðunum
Bandaríkjamanna vegna þrýstings í
ríkisfjármálum, heldur verða ákvaið-
anir að byggjast á sameiginlegu
mati bandarískra og íslenzkra stjórn-
valda á breyttum aðstæðum í örygg-
ismálum. í viðræðum nefndarinnar
við bandarísk stjómvöld varð fullt
samkomulag um þetta atriði."
Ekki dregið úr mikilvægi
Bjöm var spurður hvort hugmynd-
ir um að fækka verulega í flugsveit-
um á Keflavíkurflugvelli sýndu ekki
að tal bandarískra stjómvalda um
aukið mikilvægi stöðvarinnar kæmi
ekki fram í verki, og að mat ís-
lenzkra og bandarískra stjómvalda á
henni væri ólíkt. „Menn geta talið
stað mjög mikilvægan án þess að
vera þar með tækjabúnað sem. þeir
telja óþarfan. Menn verða að vera
tilbúnir að greina á milli tækjabúnað-
ar og mikilvægis þess að hafa að-
stöðu," svaraði Bjöm. Hann sagði
að aðstæður hefðu breytzt áður.
Hermenn hefðu verið við ratsjár-
stöðvar NATO á öllum landshomum
og verið kallaðir til baka þegar ekki
var lengur þörf á þeim á sjöunda
áratugnum. Þessum ratsjárstöðvum
hefði verið fækkað um tvær, en nú
væru þær að nýju orðnar fjórar í
landinu. „Það er enginn fastur punkt-
ur í þessu. Menn hljóta að nota þau
tæki, sem þeir þurfa hvetju sinni.“
Aðspurður hvort íslenzk stjórnvöld
hefðu sinnt því nægilega vel að búa
svo um hnútana að fækkun í liði
Bandaríkjamanna kæmi ekki sem
reiðarslag yfir atvinnulíf á Suður-
nesjum, sagðist Bjöm alltaf hafa
talið að meta ætti veru varnarliðsins
fyrst og fremst út frá öryggishags-
munum. „Við höfum margir varað
við því að íslendingar yrðu ekki of
háðir vamarliðinu efnahagslega, þvi
að til þess kynni að koma að umsvif
þess drægjust saman og þá lentum
við í gífurlegum vandræðum ef við
værum of háðir því fjárhagslega. Ég
hef verið í þeim hópi, sem hefur bent
á þetta og sagt að ekki væri sjálfgef-
ið til eilífðamóns að hér yrði fjöldi
bandarískra hermanna. Ég get hins
vegar skilið að ótta setji að mörgum,
sem eiga afkomu sína undir dvöl
vamarliðsins, þegar þeir lesa flenni-
fréttir á borð við þá, sem túrtist á
forsíðu Morgunblaðsins í gær.“
A
^LIFEYRIR
að þínu valil
Y.--
, Yifðu lifinu
P' ALLT LÍFIÐ!
Leggbu grunn ab litríku ævikvöldi!
Hefurbu leitt hugann að lífeyrisréttindum þínum á efri árum? Hjá mörgum stefnir
í mikla tekjulækkun á þeim árum sem svigrúmið getur verið hvað mest til að
njóta lífsins!
Sameinaða líftryggingarfélagið hf. býður nýjan valkost í lífeyrismálum; Óskalífeyri.
Óskalífeyrir er sveigjanleg trygging sem býður upp á séreignar- og sameignar-
fyrirkomulag lífeyris ásamt nauðsynlegum persónutryggingum. Mikilvægt er að
fara snemma að huga að þessum málum og leggja þannig grunn að litríkum
dögum eftir að starfsævi lýkur.
Hugleiddu eftirfarandi spurningar varðandi lífeyrissparnað þinn:
Viltu tryggja þér örugga afkomu til æviloka, safna í eigin sjóð eða sameina kosti
séreignar- og sameignarlífeyris?
Þarftu hærri lífeyrisgreiðslur í ákveðinn tíma, hluta sjóðsins eða hann allan út-
borgaðan í einu lagi t.d. vegna ferðalaga eða annarra spennandi viðfangsefna?
Hefur þú áhrif á lífeyrisréttindi þín eða ákveða aðrir hvernig fjárhagur þinn verður
á efri árum?
Hvenær viltu hefja töku á lífeyri þínum, um sextugt eða síðar?
Viltu tryggja þig gegn áföllum á sparnaðartímanum t.d. með afkomu- eða
líftryggingu?
ÓSKALÍFEYRIR - NÝJUNG í LÍFEYRISMÁLUM!
Þú færb nánari upplýsingar hjá tryggingarráðgjöfum Sameinaöa líftryggingarfélagsins hf. Hafðu samband!
Sameinaða líftryggingarfélagiö hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Sími 91- 692500
I eigu Sjóvá-Almennra trygginga hf. og Tryggingamiðstöbvarinnar hf.
SÁ/0
v~