Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborö 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
VamarUðið og
öryggi Islands
Bandaríska vamarliðið kom
hingað til lands fyrir rúmlega
fjörutíu áram til þess að tryggja
öryggi þjóðarinnar á viðsjárverðum
tímum og sem framlag Islendinga
til sameiginlegra vama hins frjálsa
heims. Það var aldrei ætlun þeirra,
sem stóðu að komu vamarliðsins
og börðust fyrir vera þess hér í
landinu, að erlent herlið yrði hér
um aldur og ævi. Þess vegna er
það fagnaðarefni, ef breytingar í
okkar heimshluta á undanfömum
áram hafa leitt til þess, að ekki
er lengur þörf fyrir jafn fjölmennt
vamarlið og verið hefur á Keflavík-
urflugvelli frá 1951.
Rökin fyrir því, að nú sé tíma-
bært að draga úr umsvifum vam-
arliðsins, era augljós. Sovétríkin
heyra sögunni til. Þótt Rússland
ráði yfír herbúnaði þeirra er ljóst,
að þjóðir Vesturlanda telja sér
ekki standa ógn af rússneska stór-
veldinu, heldur hafa þær tekið
höndum saman um að veita Rúss-
um öflugan fjárhagslegan stuðning
til þess að byggja landið upp eftir
gjaldþrot kommúnismans. Kafbát-
amir, sem vora stöðugt á sveimi
í kringum ísland, era ekki lengur
hér á ferð. Herflugvélamar, sem
komu reglulega frá Kólaskaga,
sjást ekki lengur. Bandarísku flug-
sveitimar á Keflavíkurflugvelli
hafa ekki lengur sama hlutverki
að gegna og áður.
Þessi rök hljóta að vega þungt
í viðræðum íslenzkra og banda-
rískra stjómvalda næstu vikur um
breytingar á starfsemi vamarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli. Frá sjón-
arhóli Bandaríkjamanna er
ástæðulaust að veija fjármunum
bandarískra skattborgara í hemað-
aramsvif, sem ekki er lengur þörf
á að þeirra mati. Frá sjónarhóli
okkar íslendinga er það ánægju-
efni, að tímabært reynist að fækka
veralega í erlendu herliði í landinu.
Slíkum breytingum fylgja hins
vegar ný viðhorf í öryggismálum
okkar íslendinga, sem við verðum
að taka afstöðu til. Sérhver sjálf-
stæð þjóð verður með einhveijum
hætti að tryggja öiyggi sitt. Það
á ekki sízt við um smáþjóð, sem
býr í landi, sem er hemaðarlega
mikilvægt vegna legu sinnar. Þess
vegna er það verkefni íslenzkra
stjómvalda nú, þegar fyrirsjáan-
legt er að verulegar og jafnvel
róttækar breytingar verða á starf-
semi vamarstöðvarinnar í Kefla-
vík, að leggja grandvöll að nýrri
stefnu í öryggismálum, sem tryggt
geti öryggi þessarar smáþjóðar í
framtíðinni. Kalda stríðinu er lokið
en það er ekki þar með sagt, að
friður ríki í heiminum. Fullkomin
óvissa ríkir um framtíð fyrram lýð-
velda Sovétríkjanna. A Balkan-
skaga ríkir ógnaröld. Við getum
ekki búið í friði í landi okkar nema
tryggja öryggi okkar með viðun-
andi hætti og í þeim efnum skiptir
höfuðmáli, að Keflavíkurstöðin
verði starfrækt þannig, að með litl-
um fyrirvara verði hægt að nýta
hana til fulls við breyttar og hættu-
legar aðstæður.
Fréttir þær, sem Morgunblaðið
hefur birt frá Washington, sýna
svo ekki verður um villzt, að
Bandaríkjamenn telja tímabært að
endurskoða vamarstefnuna, a.m.k.
einstök atriði hennar, jafnvel styrk
flugflotans sjálfs, sem er ekki
veigaminnsti þátturinn í könnunar-
og eftirlitsneti Atlantshafsbanda-
lagsins hér á norðurslóðum.
Æskilegt hefði verið að meira
framkvæði hefði komið frá íslenzk-
um stjómvöldum í þessum efnum.
En hvað sem því líður skiptir máli,
að við leggjum sjálfstætt mat á
hagsmuni okkar og stöðu, sem
þarf ekki endilega að vera það
sama og Bandaríkjamanna. Þeir
meta málin út frá sínum hagsmun-
um, við út frá okkar hagsmunum.
Og þótt hagsmunir þessara tveggja
þjóða hafi yfirleitt farið saman
þarf það ekki alltaf að vera svo í
öllum atriðum.
Morgunblaðið hefur á undan-
fömum áram og áratugum itrekað
minnt þjóðina á, að vamarliðið kom
ekki hingað til þess að tryggja Is-
lendingum tekjuauka. Morgun-
blaðið hefur ávallt varað við því,
að við yrðum fjárhagslega háðir
dvöl vamarliðsins hér. Fjárhagsleg
sjónarmið og atvinnustig geta ekki
ráðið ferðinni um framtíð banda-
ríska vamarliðsins. Það er ekki
einn af atvinnuvegum íslenzku
þjóðarinnar. Það breytir ekki því,
að við verðum fyrir tekjutapi og
fólk missir vinnu vegna fyrirsjáan-
legs niðurskurðar í umsvifum vam-
arliðsins. Við hljótum að horfast í
augu við þau vandamál. Þau á
ekki að nota sem röksemd í viðræð-
um við bandarísk stjórnvöld á þann
veg að ekki megi gera eðlilegar
breytingar á vamarstöðinni, ef
unnt þykir að öðra leyti. Það er
heimsástandið, sem í raun á að
móta vamarstefnu okkar og Atl-
antshafsbandalagsins og nú eru
aðstæður gjörólíkar því, sem verið
hefur í kalda stríðinu.
Frétt Morgunblaðsins í gær hef-
ur valdið nokkra uppnámi, m.a. á
Alþingi. Á blaðamannafundi í gær
staðfesti utanríkisráðherra frétt
blaðsins í öllum meginatriðum. Til-
raunir bandarískra embættis-
manna í Washington í gær til þess
að draga úr mikilvægi málsins era
misskildar tilraunir til þess að
breiða yfír þær hugmyndir, sem
era á döfínni í bandaríska stjórn-
kerfínu. Þær hugmyndir era bæði
eðlilegar og skiljanlegar. Banda-
rískir embættismenn hafa sjálfír
komið þeim á framfæri við íslenzk
stjómvöld. En Bandaríkjamenn
mættu gjaman minnast þess, að
þegar kemur að þáttaskilum í mik-
ilvægu samstarfí eins og vamar-
samstarf þessara tveggja þjóða
hefur verið, hlýtur krafa okkar
íslendinga að vera sú, að þeir
standi að þeim þáttaskilum af
þeirri hreinskiptni, sem við teljum
okkar hafa sýnt í öllum samskipt-
um við þá.
Starfsmenn varnarliðsins Alis eru íslenskir starfsmenn varnarliðsins 936 og búa um 72% þeirra á Suðumesjum en um 28% á höfuðborgarsvæðinu. Skfpting eftip starfsstéttum:
Skrifstofu- og verslunarstörf 202 21,6%
Iðnaðarstörf 184 19,7%
Almennt verkafólk 177 18,9%
Slökkvilið og snjóruðningur 140 14,9%
Stjórnun 123 13,2%
Verkstjórn 70 7,5%
Verkfræðingar og tæknimenn 40 4,2%
ALLS 936
flöpip íslenskir starfs- menn sem varnarliðið greiðir kostnað af:
Starfsm. Aðalverktaka 370
Keflavíkurverktaka 107
Ratsjárstofnunar 62
ræstingaverktaka 58
pökkunar- og flutningaverktaka 48
Starfsm. annarra verktaka 49
sem vinna að öðrum verkefnum 10
Starfsm. á vegum ríkisfyrirtækja 11
ALLS 715
Alls var því 1.651 íslenskur starfsmaður sem varnariiðið greiddi kostnað af í fyrra. Varnariíðiö:
Vamarliðsmenn 2.999
Borgarlegir starfsmenn 102
Fjölskyldur varnarliðsmanna 2.600
ALLS 5.701
Fyrirhugaður niðurskurður hjá Varnarliðinu
S veitar stj órnar menn á Suðurnesjum um samdrátt hjá varnarliðinu
Atvimiulif þolir ekki samdrátt
og- sveitarfélög missa tekjur
SVEITARSTJÓRNARMENN á Suðurnesjum segja að búast
hafi mátt við fréttum af samdrætti í starfsemi varnarliðsins.
Hins vegar komi það á óvart ef starfsemin verður dregin
svo mikið saman á skömmum tíma og fregnir nú herma.
Þeir segja að alkunna sé að atvinnuástand á Suðurnesjum
sé bágborið og ljóst að sveitarfélögin missi spón úr aski sín-
um, því ýmsar tekjur hafi runnið til þeirra frá varnarliðinu.
„Við eram ekki alveg óviðbúnir
þessu, en það er mikil og snögg
sveifla ef þessi niðurskurður verður
í einu vetfangi," sagði Ellert Eiríks-
son, bæjarstjóri í Keflavík.
Ellert sagði að Keflavíkurbær
hefði ýmsar óbeinar tekjur af vera
varnarliðsins, en beinar tekjur væra
engar aðrar en útsvar starfsmanna,
því bærinn fengi engin aðstöðugjöld
frá varnarliðinu. „Auðvitað þýðir
þetta tekjutap, því samdráttur þýðir
minni veítu. Við eigum þó eftir að
kynna okkur hvaða deildir fara, því
það er mjög misjafnt eftir deildum
hversu fjölmennir íslenskir starfs-
menn era. Þessi niðurskurður á einn-
ig eftir að skella af töluverðum þunga
á höfuðborgarsvæðinu, því varnarlið-
ið sækir ýmsa þjónustu og verslun
þangað."
Ellert sagði að strax og ljóst var
að fé til bandarískra hermála yrði
skorið niður hefðu íslendingar átt að
hefja viðræður við Bandaríkjamenn
um tvíhliða samkomulag um sam-
drátt á Keflavíkurflugvelli. „Við eig-
um að fara til Washington, liggja þar
í stjómmálamönnum og krefjast þess
að þessar breytingar fari fram á
skipulegan hátt, svo þær verði sem
sársaukaminnstar fyrir báða aðila.“
Hann sagði að ef hlutfall Keflvík-
inga sem misstu vinnuna yrði hið
sama og hermanna sem hyrfu á brott,
mætti eiga von á að 200 manns yrðu
atvinnulausir vegna þessa. „Ef niður-
skurðurinn hefði verið á 5-6 ára
tímabili, þá hefði verið hægt að kom-
ast út úr þessu, en það er mjög alvar-
legt ef þetta skellur á allt í einu.“
Sveitarfélögin verði
með í ráðum
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í
Njarðvík, tók í sama streng og Ellert
og sagði að búast hefði mátt við
þessum samdrætti. „Það óvænta nú
er að það er gert ráð fyrir miklu
meiri samdrætti og það án þess að
við hefðum af því spumir," sagði
Kristján. „Eg minni á að vamarsamn-
ingurinn er tvíhliða og um svona
mikinn samdrátt, séu fréttir réttar,
þarf auðvitað að semja. Sveitarfélög-
unum á Suðurnesjum kemur þetta
miklu meira við en svo, að það eigi
ekki að heyrast stuna eða hósti um
þetta mál fyrr en í Morgunblaðinu."
Krisiján kvaðst vona að ríkis-
stjórnin færi að semja við Banda-
ríkjamenn um hvemig niðurskurði
yrði háttað, þannig að atvinnulífið á
Suðurnesjum þyrfti ekki að líða fyrir
og sveitarfélögin fengju tíma til að
vinna upp nýja atvinnumöguleika.
Hann kvaðst vona að sveitarfélögin
yrðu höfð með í ráðum.
Kristján sagði að sveitarfélög á
Suðurnesjum byndu vonir við Eignar-
hg.ldsfélag Suðurnesja hf., sem stofn-
að var í gærkvöldi. „Við höfum feng-
ið 300 milljóna króna loforð frá Aðal-
verktökum, en þeir peningar verða
notaðir í uppbyggingu atvinnulífs
hér. Hitaveita Suðumesja leggur
fram 40 milljónir í sama tilgangi og
sveitarfélögin, ásamt vatnsveitu og
lífeyrissjóðum, leggja fram 115 millj-
ónir. Þetta nægir þó engan veginn
til að mæta niðurskurðinum á Vellin-
um. Þar hljóta frekari aðgerðir að
koma til, bæði af hálfu Suðumesja-
manna og ríkisvaldsins."
Beinar tekjur Njarðvíkur vegna
vamarliðsins hafa verið fasteigna-
gjöld og aðstöðugjöld af eignum, sem
era tengdar starfSemi íslenskra aðila,
annarra en Aðalverktaka. Þá fær
bærinn útsvar frá íslenskum starfs-
mönnum vamarliðsins. „Það er engin
leið að átta sig á um hvaða upphæð-
ir er að ræða. Við byijum á því að
fara fram á að utanríkisráðherra
skýri þetta mál nánar fyrir okkur,“
sagði Kristján Pálsson.
Minni tekjur
„Þetta leggst hrikalega illa í okkur
Grindvíkinga, því við myndum missa
heilmikið úr atvinnulífínu, bæði með
beinum og óbeinum hætti,“ sagði Jón
Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í
Grindavík. Hann sagði að ekki hefði
verið reiknað út hvaða tekjur bærinn
hefði af varnarliðinu, þvi þar spiluðu
margir þættir inn í. „Það er þó ljóst
að tekjur minnka í kjölfar slíks niður-
skurðar og svo kemur því kannski
til viðbótar, að fólksfækkun gæti
orðið í kjölfarið," sagði hann. „Það
er ekki bjart yfír í atvinnumálum
hér, því atvinnuleysi hefur verið við-
varandi í alllangan tíma, með
100-120 manns á atvinnuleysis-
skrá.“
Jón Gunnar sagði að markviss
uppbygging atvinnulífsins, eins og
Eignarhaldsfélag Suðurnesja hf.
stefndi að, tæki langan tíma og gæti
ekki bætt upp það aukna atvinnuleys-
is, sem blasti við ef af þessum niður-
skurði yrði. „Við hefðum átt að geta
séð þetta fyrir, bæði út frá breyttum
aðstæðum í heiminum og stjórnmál-
unum í Bandaríkjunum. íslendingar
hafa hins vegar lifað í þeirri von áð
þetta myndi snerta alla aðra en þá,
þar sem völlurinn væri svo mikilvæg-
ur,“ sagði Jón Gunnar Stefánsson.
Flýta verður
uppbyggingu atvinnu
„Við verðum að flýta þeirri at-
vinnuuppbyggingu, sem við stefnum
að með stofnun Eignarhaldsfélags
Suðumesja," sagði Sigurður Valur
Ásbjamarson, bæjarstjóri í Sand-
gerði. „Atvinnuástandið hefur verið
bágborið hér undanfarið ár og bæjar-
félagið hefur reynt að stuðla að úr-
bótum, en aðeins hefur verið unnt
að leysa vandann tímabundið. Það
þarf víðtækari lausnir og samstöðu
allra sveitarfélaganna hér.“
Sigurður Valur sagði að erfitt
væri að meta fjárhagsleg áhrif um-
svifa varnarliðsins á Sandgerðisbæ.
„Við höfðum aðstöðugjöldin, en sá
tekjustofn er núna að detta út. Það
átti að tryggja okkur tekjustofn í
staðinn, en lausn á því máli er ekki
fundin enn. Það er þó ljóst að sam-
dráttur á Vellinum hefur mikil áhrif
fyrir einstaklinga og sveitarfélög hér
og forsvarsmenn sveitarfélaganna
munu bera saman bækur sínar um
þessi mál,“ sagði Sigurður Valur.
1989 1993 1994
18 12 ?
Flugfloti
Varnarliðsins
-15C Eagle orrustuþota
*9 *7 ? í| P-3C Orion karoátaleitarflugvél
/
Sikorsky HH-60 G þjörgunarþyria*
Myndin sýnir Sikorsky SH-3G Sea King
þyrlu sem áöur var i notkun hér á landi
?
?
\
1
\
1 ?
26
FLUGVÉLAKOSTUR Varnarliðsins hefur skroppið nokkuð
saman á síðustu árum. Vegna færri kafbátaferða Rússa
eru að jafnaði færri kafbátaleitarvélar staðsettar hér.
Nauðsyn þótti á átján orrustuþotum og tveimur ratsjár-
vélum um miðjan síðasta áratug, er allt upp í 170 sovézkar
Lockeed KC-135 R
Hercules eldsneytidbirgðavél
Lockeed KC-130
Hercules björgunárflugvél
P-3 Orion flutningaflugvél
E-3A AWACS ratsjárflugvél
^SAMTALS
vélar flugu inn á íslenzka loftvarnasvæðið, en undanfarið
ár hefur ekki ein einasta rússnesk herflugvél sézt í íslenzkri
lofthelgi. Orrustuþotunum hefur verið fækkað um sex nú
þegar og ratsjárvélarnar eru einnig farnar heim.
Arne Olav Brundtland hjá Norsku utanríkismálastofnuninni
Ekkí mikið eftir til að hafa
eftirlit með frá Keflavík
ARNE Olav Brundtland, sem starfar að rannsóknum hjá norsku utanríkis-
málastofnuninni, segir við Morgunblaðið að það hafi lengi legið í loftinu
að dregið yrði úr varnarviðbúnaði Bandaríkjamanna á íslandi. Hann
segir hins vegar að ef komi til þess að allar F-15 og P-3-Orion vélar
Bandaríkjahers verði kallaðar heim jafngildi það þvi að Keflavikurstöðin
sé „sett í salt“. Nærri helmingsfækkun í varnarliðinu gilti sama máli.
Brandtland segir að í norsku stjórn-
málalífí hafí menn ekki fengið ná-
kvæmar fregnir af þessum áformum
en mörgum virðist sem þau séu rétt-
mæt í ljósi þess hversu mikla þörf
Bandaríkjamenn hafí fyrir að draga
úr útgjöldum til vamarmála.
„Mikilvægasta hlutverk Keflavíkur-
stöðvarinnar er eftirlit á hafí. Rúss-
neski flotinn er ekki lengur með um-
svif á nærliggjandi hafsvæðum og það
er því ekki mikið eftir til að fylgjast
með. Frá herstöðvum í Noregi og
Bretlandi er líka fylgst með því sem
fer fram á norðurslóðum. Það er auð-
velt að flytja flugvélar. Ef þörf krefði,
myndi það einungis taka nokkrar
klukkustundir að flytja eftirlitsvélam-
ar aftur til íslands og það sama á við
um F-15 orrustuþotumar. En maður
skilur vel ef íslensk yfirvöld vilja af
öryggisástæðum reyna að draga úr
niðurskurði Bandaríkjamanna. Það er
auðveldara að fara á brott en að koma
til baka með skömmum fyrirvara,"
segir Brundtland.
Það er að hans mati grandvallarat-
riði að Bandaríkjamenn telji enga
hemaðarlega ógnun stafa af Rúss-
landi lengur. „Áður vora það oft
bandamenn okkar sem vöraðu við en
við sem vildum gera minna úr hætt-
unni úr norðri,“ segir Brundtland. „Nú
virðist sem þetta hafí snúist við.“
Eftir að hafa átt viðræður við
bandarísk stjórnvöld uni þessi mál í
Washington fyrir tveimur vikum telur
Brundtland að Bandaríkjamenn hafi
minni áhyggjur af norðurflota Rússa« -
en Norðmenn. Hann segir hins vegár
að í þeim samtölum sem hann átti
hafí verið lögð áhersla á að Banda-
ríkjafloti væri áfram mjög öflugt hem-
aðartæki. Þó svo að skip væra stödd
í Kyrrahafi eða á Miðjarðarhafi væri
norðurflotinn rússneski alls ekki
gleymdur og flotasveitimar væru
mjög hreyfanlegar og næðu til mjög
víðáttumikils svæðis.
Utanríkisráðherra í utandagskrárumræðu á þingi um málefni varnarliðsins
Stjómarandstaðan með
hræsni og tvískinnung
í UTANDAGSKRÁRUMRÆÐU á Alþingi í gær sökuðu þingmenn stjómar-
andstöðunnar Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Björn
Bjarnason formann utanríkismálanefndar Alþingis um að leyna Alþingi
upplýsingum sem fram hefðu komið um áform bandariskra stjórnvalda
í þá vem að draga úr umsvifum varaarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Jón
Baldvin og Bjöm mótmæltu þessu og sagði Björn að málið hefði verið
margrætt í utanríkismálanefnd. Utanríkisráðherra kallaði málflutning
þingmanna sljómarandstöðunnar hræsni og tviskinnungshátt þegar þeir
lýstu áhyggjum af atvinnuástandi á Suðurnesjum.
Hjörleifur Guttormsson var máls-
hefjandi og sagði það hafa vakið veru-
lega athygli þegar fram kom í Morg-
unblaðinu í gær að mikill niðurskurður
væri fyrirhugaður í herstöðinni í
Keflavík. Hann beindi fyrirspumum
til utanríkisráðherra um það hvenær
íslensk stjómvöld hefðu fengið vitn-
eskju um líkur á miklum niðurskurði
í herstöðinni, hveijir í ríkisstjóm og í
hópi alþingismanna hefðu fengið upp-
lýsingar um þá stöðu mála og hvenær
og hvers vegna ráðherra hafí ekki
upplýst utanríkismálanefnd og Alþingi
milliliðalaust um í hvert efni stefndi.
Þá vildi hann fá svar við því hvaða
orðsendingar hefðu farið milli ís-
lenskra og bandarískra stjórnvalda
síðustu daga og vikur, hvaða skref
væru fyrirhúguð af hálfu stjórnvalda
í framhaldi af þessum tíðindum og til
hvaða ráðstafana ríkisstjómin ætli að
grípa í atvinnumálum á Suðumesjum
í ljósi líklegrar þróunar og til bjargar
því fólki sem að ósekju yrði þolendur
þessara breytinga. Áð síðustu vildi
hann vita hvort ríkisstjórnin í ljósi
þessara atburða væri reiðubúin til að
taka upp samráð við alla þingflokka
um að herstöðvarsamningnum yrði
sagt upp, ísland skipaði sér utan hem-
aðarbandalaga og íslenskir öryggis-
hagsmunir yrðu tryggðir, m.a. í sam-
vinnu við Sameinuðu þjóðimar.
Ekki tímabært að upp-
lýsa utanríkismálanefnd
í svari Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar utanríkisráðherra kom fram að ís-
lensk stjómvöld hefðu 16. apríl síðast-
liðinn fengið vísbendingu um að á
vegum bandarískra hemaðaryfirvalda
væri verið að kanna kosti sem gætu
þýtt breytingu á starfsemi varnarliðs-
ins. Upplýsingar um þessa vísbend-
ingu hefði forsætisráðherra fengið,
og hann hefði síðan tjáð utanríkisráð-
herra að hann hefði skýrt formanni
utanríkismálanefndar frá málinu.
Um það hvers vegna utanríkisráð-
herra hefði ekki upplýst utanríkis-
málanefnd og Alþingi um í hvert
stefndi sagði Jón Baldvin að það hefði
ekki verið tímabært vegna þess að
vísbendingamar hefðu verið óstað-
festar, og væra það reyndar enn, og
málið væri enn á því stigi að það
væri verið að afla um það upplýsinga,
sem hægt væri að setja fram þannig
að þær teldust áreiðanlegar eða óyggj-
andi. Utanríkisráðherra sagði engar
orðsendingar um þetta mál hafa farið
milli íslenskra og bandarískra stjóm-
valda undanfama daga og vikur.
Hann sagði að hann hefði seinnihluta
apríl myndað starfshóp embættis-
manna í utanríkisráðuneytinu sem
hann hefði falið að undirbúa tillögur
og greinargerð af hálfu íslenskra
stjórnvalda um hugsanlegar breyting-
ar á starfsemi vamarliðsins. Hann
hefði óskað eftir því að þessir embætt-
ismenn næðu viðtölum við rétta aðila
í bandaríska stjómkerfínu nú á næstu
dögum, en engar dagsetningar hefðu
verið ákveðnar.
Utanríkisráðherra sagði að til við-
bótar þeim almennu aðgerðum sem
ríkisstjómin hefði gripið til í atvinnu-
málum þá hefði hún tekið ákvarðanir
um sértækar aðgerðir að því er varðar
atvinnumál á Suðumesjum. Þar bæri
hæst ákvörðun um að veija allt að
300 milljónum króna af fjármunum í
eigu íslenskra aðalverktaka til tiltek-
inna arðbærra verkefna í atvinnulífi
á Suðurnesjum, að því tilskildu að
aðilar á Suðurnesjum legðu fram þar
á móti um 200 milljónir króna og að
sýnt væri fram á af heimamönnum
að um væri að ræða verkefni sem
væra arðbær og gætu orðið atvinnulíf-
inu lyftistöng og skapað arðbær
starfstækifæri.
„Þessu til viðbótar hefur ríkisstjóm-
in lengi haft í undirbúningi að stofna
sérstakt fríiðnaðarsvæði á Suðumesj-
um. Fyrir liggja áfangaskýrslur um
það mál, ákvörðun ríkisstjómar um
stuðning við málið og framlög til þess
að hrinda því {framkvæmd. Félag um
það verður stofnað nú á næstu dög-
um. Viðræður við aðila sem lýst hafa
áhuga á að setja upp atvinnustarfsemi
á Suðumesjum ættu þar af leiðandi
að geta hafist. Allt hefur það mál
dregist nokkuð í ljósi þeirra tafa sem
orðið hafa á staðfestingu samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið, sem
er forsenda fyrir því að erlendir aðilar
hafí áhuga á slíkri starfsemi," sagði
utanríkisráðherra; Hann svaraði því
neitandi að ríkisstjómin væri í ljósi
þeirra atburða sem um ræðir reiðubú-
in til að taka upp samráð við alla þing-
flokka um að herstöðvasamningnum
yrði sagt upp.
Læðst á refaklóm
Páll Pétursson sagði illt til þess að
vita hve Islendingar væru orðnir háð-
ir varnarliðinu efnahagslega. Hann
sagði að sem kunnugt væri þá væri
atvinnuástand á Suðurnesjum erfítt,
og fólk þar vantaði úrræði en ekki
fyrirheit sem ekki væru efnd. Páll
sagðist átelja vinnubrögð utanríkis-
ráðherra og formanns utanríkismála-
nefndar í þessu máli, þar sem þeir
hefðu ekki greint utanríkismálanefnd
á fundum hennar upp á síðkastið frá
þeim upplýsingum sem þeir hefðu
fengið.
„Þetta sýnir mér að þeir hafa verið
að læðast þama á refaklóm og ekki
komið hreint fram við hvorki þingið
eða utanríkismálanefnd."
Málið oft á dagskrá
utanríkismálanefndar
Bjöm Bjamason formaður utan-
ríkismálanefndar sagði stöðu íslands
gagnvart Bandaríkjunum og
vamarsamstarfið við Bandaríkin hafa
verið á dagskrá utanríkismálanefndar
oftar en einu sinni í vetur, og
raunverulega hefði ekkert gerst í
þessu máli annað en að frétt hefði
birst í Morgunblaðinu um að
hugsanlega yrðu einhveijar
breytingar á Keflavíkurflugvelli. Málið
hefði oftar en einu sinni verið rætt í
utanríkismálanefnd í vetur.
Varðandi þær upplýsingar sem
hefðu borist um að þessar breytingar
væra kannski á döfinni ákveðnar nú
en áður, þá hefði hann ekki talið
ástæðu til þess að gera þær að sér-
stöku umtalsefni miðað við það hvem-
ig mál hafa verið lögð upp í nefnd-
inni. Umræður um þessi mál hefðu
farið fram 27. apríl síðastliðinn og þar
hefði hann vikið sérstaklega að því
að það kynni að koma til þess að vegna
ákvarðana um fjárveitingar í Banda-
ríkjunum yrði veruleg röskun á starf-
seminni á Keflavíkurflugvelli.
„Málið er mjög óljóst og varla til
þess ætlandi að menn beri óljósar
fréttir sem staðfesta niðurstöðu undir
utanríkismálanefnd eða aðra, þannig
að ég biðst algerlega undan því að
ég hafí verið að leyna nokkram upp-
lýsingum," sagði Bjöm.
Samráðsleysið tíl
háborinnar skamrnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði
frétt Morgunblaðsins í sjálfu sér ekki
vera neina frétt þar sem það hefði
legið fyrir síðan 1989 að mikill niður-
skurður væri fyrirhugaður á Keflavík-
urflugvelli. Þetta væri hins vegar að
verða áþreifanlegri staðreynd en verið
hefði, og hefði því átt að ræða málið
í utanríkismálanefnd.
„Þó auðvitað sé þetta sársaukafull-
ur atburður ef fjöldi manns missir
þarna vinnuna, þá hljótum við samt
að fagna því ef áðstæður í heiminum
eru þannig að herinn geti horfíð héðan
á brott.“
Anna Ólafsdóttir Bjömsson sagði
samráðsleysi stjómvalda við utanrík-
ismálanefnd vera til háborinnar
skammar og dæmigert fyrir vinnu-
brögð ríkisstjórnarinnar. Þá hefði ríkt
vítavert andvaraleysi vegna atvinnu-
mála á Suðurnesjum þrátt fyrir að
löngu væri ljóst að hveiju stefndi þar,
og ástæða væri til að harma hvemig
á þeim málum hefði verið tekið.
Samráðsákvæði
laga brotið
Steingrímur J. Sigfússon sagði að
hneyksli hefði orðið í samskiptum rík-
isstjómarinnar og formanns utanríkis-
málanefndar við utanríkismálanefnd
og Alþingi, og í raun og vera brotið
samráðsákvæði laga.
„Að sjálfsögðu er það fagnaðarefni
að þróunin sé í átt til þess að hér
dragi úr vígbúnaði og herinn hugsi
sér til hreyfings. En tilfínningar
manna verða eðlilega blendnar við þær
aðstæður að þetta dregur athyglina
að því hversu efnahagslega háð við
erum dvöl hersins og þvi alvarlega
ástandi sem skapast á Suðurnesjum
í kjölfarið og er það þó nógu slæmt
fyrir. í þeim efnum er auðvitað hæstv-
irt ríkisstjóm með allt niður um sig
eins og reyndar víðar og hefur reynst
gjörsamlega ófær um að taka þar á
nokkram hlut.“
Hræsni og tvi-
skinnungsháttur
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra tók aftur til máls og sagði
að ef þau tæplega tvö þúsund manns
sem ættu atvinnu sína á Suðumesjum
undir starfsemi vamarliðsins, verk-
taka í þjónustu þess eða annarra við-
skiptaaðila, myndu heyra málflutning
stjórnarandstöðuþingmanna, þá
myndi það undrast hræsni og tviskinn-
ungshátt þessara svokölluðu málsvara
þjóðfrelsis á íslandi.
„Þetta fólk ber einkum og sér í
lagi þungar áhyggjur af atvinnu þess
fólks sem starfar við þessar atvinnu-
greinar, og talsmenn Alþýðubanda-
lagsins dirfast að koma hér fram og
segja að Alþýðubandalagið hafi lagt
fram einhverjar tillögur. Staðreyndin
er sú að þegar reynt hefur verið að
halda samningsaðilum okkar að því
að fjármagna umsamdar framkvæmd-
ir þá hafa talsmenn Alþýðubandalags-
ins fordæmt það og kallað það að
fara með betlistaf til erlendra aðila.
Og þegar gerðar hafa verið ráðstafan-
ir til þess að tryggja íslensku atvinnu-
lifí ný útflutningstækifæri eins og til
dæmis með EES-samningnum, sem
gæti gerbreytt hlutverki Keflavíkur-
flugvallar og orðið lyftistöng fyrir
sjávarútveg á Suðurnesjum, þá hefur
gervöll stjómarandstaðán fordæmt
það. Og í þriðja lagi þegar unnið hef-
ur verið að því að hrinda í framkvæmd
frísvæði á Suðumesjum sem nýtti þá
aðstöðu sem þama er og byggir á
forsendum EES-samningsins þá hef-
ur þessi stjómarandstaða fordæmt
það. Þannig að ég lýsi því yfír í sam-
bandi við þessa svokölluðu áhyggjur
sem þetta fólk lýsir yfir: Vei yður,
þér hræsnarar!"
Hitaveita Suðurnesja
Viðskipti
við vamar-
liðið 60%
teknanna
VTÐSKIPTI varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli við Hitaveitu Suður-
nesja námu tæpum 60% af tekjum
hitaveitunnar á síðasta ári. Hlutur
varaarliðsviðskiptanna er um einn
milljarður. Hlutur vatnssölu hita-
veitunnar til vamarliðsins er 42%
af tekjunum og rafmagnsnotkun
14% að sögn Júlíusar Jónssonar
framk væmdastj óra.
Vegna ákvæða í samningi hitaveit-
unnar við vamarliðið sem undirritaður
var í febrúar sl., er vamarliðinu
óheimilt að draga meira úr kaupum á
vatni árlega en sem nemur 7,5% af
árlegri notkun. Tekjur hitaveitunnar
af vatnsnotkun vamariiðsins á síðasta
ári námu rúmum 700 milljónum og
miðað við það yrði beinn tekjumissir
hitaveitunnar vegna 7,5% samdráttar
í vatnsnotkun vamarliðsins um 54
milljónir króna á ári. Um er að ræða
3-4% samdrátt heildartekna. Að sögn
Jóns mega báðir aðilar óska eftir end-
urskoðun á samningnum eftir 5 ár.
Vamarliðið getur hins vegar dregið
úr rafmagnsnotkun að vild og að sögn
Jóns er þannig er ómögulegt að segja
til um hvaða heildaráhrif minnkandi
umsvif vamariiðsins og fækkun
mannafla hafa á tekjur hitaveitunnar.
„Ef af þessu verður minnka öll um-
svif hér og óbeinu áhrifín á reksturinn
gætu jafnvel orðið meiri en þau sem
hægt er að mæla beint,“ sagði hann.