Morgunblaðið - 07.05.1993, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
29
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tekist er á um hvort stækka eigi barnadeild FSA með því að byggja við núverandi deild út á þak tengi-
byggingar eða byggja nýja álmu. Þau Baldur Jónsson yfirlæknir og deildarstjórarnir Valgerður Valgarðs-
dóttir og Kristín Sigurðardóttir telja farsælustu lausnina að byggja út á þakið þar sem þau standa.
A
Hörður Askelsson á
hádegistónleikum
HÖRÐUR Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, heldur hádegis-
tónleika í Akureyrarkirkju á
morgun, laugardaginn 8. maí, og
hefjast þeir kl. 12.
Tónleikarnir verða m.a. helgaðir
minningu Páls ísólfssonar, en á
þessu ári eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu hans. Auk verka eftir Pál leik-
ur Hörður „Snertur“ eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem samið var fyr-
ir vígslu hins nýja orgels Hallgríms-
kirkju og loks leikur hann verk eft-
ir Jón Nordal.
Hörður Áskelsson fæddist á Ak-
ureyri árið 1953 og stundaði nám
við Tónlistarskólann á Akureyri og
í Reykjavík en var síðan í fram-
haldsnámi við kirkjutónlistardeild
tónlistarháskólans í Diisseldorf og
lauk organista- og kantorprófi þar
vorið 1981. Hann var ráðinn organ-
isti við Hallgrímskirkju sumarið
1982, hann stofnaði Mótettukór
kirkjunnar og var aðalhvatamaður
að stofnun Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Hann hefur komið
fram á tónleikum víða á íslandi, í
Noregi, Þýskalandi og á Ítalíu.
Tekist á um tvo kosti vegna stækkunar barnadeildar Fjórðungssjúkrahússins
Þakbyggmg” eða ný álma
FRÁ því í febrúar hefur sú ákvörðun stjórnar Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri að byggja við barnadeild spítalans út á þak tengibyggingar
legið í salti, en þessi ákvörðun var tekin í nóvember síðastliðnum. Til er
í sjóði drjúgur hluti þeirrar upphæðar sem áætlað er að kosti að byggja
barnadeildina út á þakið, en ástæða þess að ekkert hefur orðið úr
framkvæmdum er m.a. sú að viðraðar voru hugmyndir um byggingu
sérstakrar álmu sunnan við gamla sjúkrahúsið. Stjórn FSA hefur m.a.
rætt þetta mál við samstarfsnefnd um opinberar byggingar þar sem
verið er að skoða ýmsa fleti og er þess vænst að niðurstaða liggi fljótt
fyrir og að í samræmi við hana og vilja heilbrigðis- og fjármálaráð-
herra verði tekin ákvörðun um hvor kosturinn verður fyrir valinu.
Yfirmenn á barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri telja mjög
brýnt að aðstaða á deildinni verði
bætt, en hún hefur verið í bráða-
birgðahúsnæði á stigapalli í 17 ár.
Mikið álag hefur verið á deildinni í
vetur og innlögnum ijölgað umtals-
vert. Frá áramótum hafa 277 böm
verið lögð inn á deildina sem er 40
börnum fleira en var árið á undan.
Iðulega em mun fleiri böm á deild-
inni en fjöldi rúma segir til um. „Það
er í raun með ólíkindum hversu vel
okkur helst á starfsfólki við þau skil-
yrði sem hér em, en dugnaður og
langlundargeð hjúkmnarfólks hefur
haldið þessu gangandi. Það lifir allt-
af í voninni um að úr rætist," sagði
Valgerður Valgarðsdóttir deildar-
stjóri á bamadeild.
Baldur Jónsson yfirlæknir sagði
að byggingamál deildarinnar hefðu
velkst áfram í kerfinu um nokkurra
ára skeið. Stækkun barnadeildar var
sett á forgangslista í skýrslu nefndar
frá árinu 1990. Starfshópur sem
skipaður var ári síðar fór í saumana
á öllum þáttum er snertu uppbygg-
ingu nýrrar deildar og síðasta haust
samþykkti stjórn sjúkrahússins að
deildin skyldi stækkuð með því að
byggja við núverandi rými út á þak
tengibyggingar til suðurs.
Frestað
í upphafi var áætiað að byggð
yrði ný álma sunnan við gamla
sjúkrahúsið, en norðanmönnum til-
kynnt að ekki væri hægt að útvega
fé til slíkra framkvæmda. I byijun
þessa árs kom fram á fundi með
fulltrúum úr heilbrigðisráðuneyti að
þakbyggingin væri ekki góð lausn.
Slík bygging væri ekki samkvæmt
áætlun um uppbyggingu sjúkrahúss-
ins og var samþykkt á fundi í febr-
úar að fresta öllum frekari ákvörð-
unum um stækkun barnadeildar þar
til ljóst yrði hvort fé fengist til bygg-
ingar nýrrar álmu.
Ef deildin yrði stækkuð út á þakið
yrði um 750 fermetra .byggingu að
ræða með núverandi húsnæði og er
áætlað að kostnaður nemi um 85
millj. kr., en framkvæmdafé fyrri ára
sem ekki hefur verið notað er um
50 milljönir auk þess sem Akureyrar-
bær leggur fram hluta af kostnaði.
Kostnaður við byggingu nýrrar álmu
er á bilinu 3-400 milljónir kr.
„Við viljum fyrir alla muni að eitt-
hvað verði gert, það liggur á að
stækka deildina og bæta aðstöðuna.
í okkar huga er farsælasta lausnin
sú að byggja út á þakið, við erum
ekki hrifin af hugmyndinni um bygg-
ingu sérstakrar álmu, því það er
alls ekki ljóst hvaða starfsemi yrði
í þeirri hugsanlegu byggingu,“
sögðu yfirmenn deildarinnar.
„Tónlist í
kirkjunni“
„TÓNLIST í kirkjunni," er
yfirskrift málþings sem haldið
verður í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju á morgun, laug-
ardaginn 8. maí, en það hefst
kl. 14.
Á málþinginu flytja erindi þeir
Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, Þorkell Sigur-
bjömsson, tónskáld og séra
Kristján Valur Ingólfsson, rektor
Skálholtsskóla. Að loknum erind-
um verða pallborðsumræður, en
í þeim taka þátt auk ræðu-
manna, þeir Björn Steinar Sól-
bergsson organisti Akureyrar-
kirkju, Jón Hlöðver Áskelsson,
tónskáld og Haukur Guðlaugsson
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar.
Málþingið er hluti af kirkju-
listaviku sem staðið hefur yfir í
Akureyrarkirkju.
lands dagana 26. maí til 2. júní
1993.
Frá kaffisölu Kvenfélags Heima-
eyjar árið 1991.
■ KVENFÉLAGIÐ Heimaey
heldur sitt árlega lokakaffi sunnu-
daginn 9. maí nk. á Hótel Sögu,
Súlnasal. Aðaltilgangur kaffisöl-
unnar er að bjóða öldruðum Vest-
manneyingum til fagnaðar. Kven-
félagið er 40 ára um þessar mund-
ir, stofnað 9. apríl 1953, hugmynd-
in að stofnun félagsins var þegar
13 konur frá Vestmannaeyjum
komu saman í Reykjavík og ákváðu
að stofna félag. Aðalmarkmið fé-
lagsins skyldi vera að viðhalda
kynnum meðal kvenna úr Vest-
mannaeyjum og styðja og gleðja
sjúka og aldraða Vestmanneyinga
er hér dvelja í sjúkrahúsum. í félag-
inu eru nú hátt á þriðja hundrað
konur og hefur það um árabil gefið
veglegar gjafir til líknarmála, m.a.
með ágóða af kaffisölu þeirra.
(Fréttatilkynning)
H UNGLINGAR frá Félagsmið-
stöðinni Bústöðum hafa undanfar-
in ár verið í tengslum við jafnaldra
sína í Ikast kommune í Danmörku.
Þetta er bundið við þá sem eru í
9. bekk þannig að þegar byijað er
í 9. bekk að hausti þá er hafist
handa við að mynda tengsl við jafn-
aldra í Ikast kommunale ungdoms-
skole. Eftir veturinn, sem notaður
er í fjáröflunarstarf, er hafíst handa
við að skipleggja heimsókn til Dan-
merkur sem farin er seinni hluta
sumars. Þá er dvalið í Ikast komm-
une í tvær vikur við leik og starf
með dönskum unglingum. I ár er
það óvenju stór hópur sem hefur
ákveðið að fara í ferðina til Dan-
merkur og því verða krakkamir að
vinna við fjáröflun fram á sumarið.
Núna um helgina (sunnudaginn 9.
maí) verða þau t.d. með bás í Kola-
portinu og selja þar ýmislegt góð-
gæti. Vonast aðstandendur ferðar-
innar til að sem flestir, sem leið
eiga í Kolaportið, taki eftir ungling-
unum, þó ekki væri til annars en
forvitnast um þetta norræna sam-
starf.
(Fréttatilkynning)
I ÁRLEG fuglaskoðunarferð
Ferðafélagsins verður farin laug-
ardaginn 8. maí. Lagt verður upp
frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin kl. 10 árdegis og verður fyrst
ekið út á Álftanes og hugað að
fuglum þar. Sérstaklega verður
skyggnst eftir margæs en hún er
hér á ferð um þetta leyti á leið sinni
til varpstöðvanna á Grænlandi.
Áfram verður haldið um Hafnar-
fjörð og suður á Miðnes, komið
við á Garðskagavita, Sandgerði
og víðar. Þá verður haldið á Hafnar-
berg.
■ FISKIFÉLAG íslands boðar til
fundar laugardaginn 8. maí um
umhverfisáhrif veiðarfæra. Fundur-
inn verður haldin í húsi Fiskifé-
lagsins, Höfn v/Ingólfsstræti í
Reykjavík og hefst hann kl. 14.
Frummælendur á fundinum verða
Einar Hreinsson sjávarútvegs-
fræðingur og Sveinbjörn Jónsson,
sjómaður frá Súgandafirði. Einar
sýnir neðansjávarmyndir um botn-
lag og áhrif togveiðarfæra á sjávar-
botninn, m.a. fjallar Einar um skað-
semi veiðarfæra fyrr og nú, nútíma
togveiðarfæri og búnað þeirra,
meint landspjöll af völdum togveið-
arfæra og hvort fyrstitogarar séu
ryksuguskip? Þá er einnig rætt um
umgengni á landgrunninum svo og
um dragnótina og hvort hún eyði
öllu lífi á grunnslóð. Einar starfar
hjá Netagerð Vestfjarða á ísafírði
og hefur tekið mikið af myndum
neðansjávar um hvernig veiðarfæri
hegðaj sér í sjó og áhrif þeirra á
umhvefí sitt. Sveinbjörn gerir út á
trillu frá Suðureyri við Súganda-
fjörð og hefur unnið við fískverkun
og í útgerð um árabil.
Frá handavinnusýningu aldr-
aðra.
■ FÉLAGS- og tómstundastarf á
vegum Reykjavíkurborgar á 24
ára afmæli um þessar mundir en
öldrunarþjónustudeild Félagsmála-
stofnunar rekur nú félags- og tóm-
stundastarf á 13 stöðum í höfuð-
borginni. Um þessar mundir er vetr-
arstarfinu að ljúka og sumarstarfið
með orlofí, ferðalögum og sumar-
dagskrá að hefjast. Sýningar á
handavinnu og listmunum aldraðra
verða um næstu helgar og verða
sem hér segir: Frá 8.-10. maí kl.
14-17 verða sýningar á Afla-
granda 40, Norðurbrún 1, á Vest-
urgötu 7 og í Lönguhlíð 3. Dag-
ana 15.-17. maí frá kl. 14-17
verða sýningar í Bólstaðarhlíð 43,
í Hvassaleiti 56-58, Seljahlíð
v/IJjallasel, í Hraunbæ 105 og í
Hæðargarði 31. í tilefni af ári aldr-
aðra í Evrópu verður efnt til sam-
sýningar í Tjarnarsal ráðhússins
dagana 22. maí til 27. maí.
■ BORGARDEKKJA TORFÆR-
AN verður haldin laugardaginn 8.
maí kl. 13. Þetta er fyrsta keppni
ársins í torfæruslagnum og verður
hún haldin í neðri gryfjum við Jós-
epsdal. 18 keppendur eru skráðir
til keppni. Sýning verður haldin
föstudaginn 7. maí kl. 14 hjá Bíla-
búð Benna á Vagnhöfða í tilefni
Borgardekkjatorfærunnar. Þar
verða allir helstu keppendur með
tæki sín. Þar verður einnig forsala
aðgöngumiða á Borgardeklqator-
færuna.
■ KONUR í Lionsklúbbnum Eir
í Reykjavík hafa til nokkurra ára
selt miða á frumsýningu einnar
kvikmyndar í Háskólabíói. Nú er
það myndin Mýs og menn og fer
frumsýningin fram á laugardag kl.
14. Áður en sýningin hefst syngur
Signý Sæmundsdóttir, óperusöng-
kona, nokkur lög. Mýs og menn
eftir sögu nóbelsskáldsins Johns
Steinbeck í nýrri útfærslu og leik-
stjórn Gary Sinise verður stór-
myndinn í ár sem Háskólabíó hefur
gefið Lionsklúbbnum Eir frumsýn-
ingarrétt á. Jafnan hefur Lionsklúb-
burinn sett þau markmið að and-
virði af sölu um eitt þúsund miða
hverju sinni, renni til forvarn-
arstarfa í baráttunni gegn eitulyfj-
um. Enn eru markmiðin þau sömu.
Konurnar selja miðana á frumsýn-
inguna, en sýningardaginn verða
aðgöngumiðar seldir í Háskólabíói.
Sýning um
fyrsta verk-
fræðinginn
OPNUÐ verður í anddyri Háskóla-
bíós laugardaginn 8. maí sýning
til að minnast þess að 100 ár eru
liðin frá því að ráðinn var til starfa
fyrsti verkfræðingur Iandsins.
Verkfræðingur landsins varð síð-
ar að embættinu landsverkfræð-
ingur, sem var við lýði til ársloka
1917. Fyrsti landsverkfræðingur
var Sigurðiu- Thoroddsen sem
jafnframt var fyrsti Islendingur-
inn til að ljúka prófi í verkfræði.
Sigurður gegndi embætti til 1904
en tók þá við starfí kennara við
Lærða skólann í Reykjavík. Tveir
aðrir gegndu embætti landsverk-
fræðings, þeir Jón Þorláksson síðar
forsætisráðherra og borgarstjóri í
Reykjavík árin 1905-1917 og Thor-
vald Krabbe 1906-1917 en hann tók
þá við nýstofnuðu embætti vita- og
hafnarmálastjóra. Undir embætti
landsverkfræðings heyrðu nær allar
opinberar framkvæmdir en á þessum
árum voru þær að lang mestu á sviði
samgöngumála.
Árið 1917 varembætti landsverk-
fræðings lagt niður en við tóku tvær
nýjar stofnanir, Vegagerð ríkisins
og Vita- og hafnamálaskrifstofan.
Það eru einmitt þessar tvær stofnan-
ir, arftakar landsverkfræðingsemb-
ættisins, sem standa að sýningunni
ásamt Verkfræðingafélagi Islands.
Sýningin vei'ður opin fyrir almenn-
ing 8. til 21. maí nk. á virkum dögum
kl. 9.00—16.30 og fyrir bíógesti frá
kl. 16.30 en á laugardögum og
sunnudögum kl. 12.00— 14.30 fyrir
almenning en annars fyrir bíógesti.
Sýningin verður formlega opnuð
kl. 13.30 laugardaginn 8. maí nk. í
anddyri Háskólabíós, nýrri hluta.
(Úr fréttatilkynningu)