Morgunblaðið - 07.05.1993, Síða 37
Bjarna Benediktssonar forsætisráð-
herra og þeirra systkina. Móðir
Ólafs, föðurbróður míns, var Mar-
grét Þórðardóttir, alþingismanns
Guðmundssonar alþingismanns í
Hala í Holtunum, en Þórður var
einn af helstu framfaramönnum
Rangæinga á sinni tíð. Þannig var
Ólafur heitinn kominn af búhöldum
í báðar ættir. Þeir bræðumir vom
fjórir: elstur var Ásgeir, heildsali í
Reykjavík, fæddur 1891, dáinn
1962, Ólafur, fæddur 1893, Þórður,
fæddur 1896, en yngstur var Ragn-
ar, hæstaréttarlögmaður og löggilt-
ur endurskoðandi, fæddur 1906,
dáinn 1982, en hann rak eigin lög-
fræði- og endurskoðunarstofu í
Reykjavík frá 1942 til dánardags.
Þau Ólafur og Margrét eignuðust
tvær dætur, sem báðar dóu innan
við tveggja ára aldur, þær Ragn-
hildi, dána 1903, og Aðalheiði, dána
1913.
Ólafur heitinn varð búfræðingur
frá Bændaskólanum á Hvanneyri
1914. Hann var tvær vertíðir til
sjós frá Garði á Suðurnesjum, árin
1911 og 1912. Sjósóknin var þá
stunduð á árabátum og þurftu menn
að vera harðduglegir og hraustir
til að þola vosbúðina sem starfinu
fylgdi. Ólafur bjó síðan í föðurhús-
um og vann þar við bústörf. Árin
1920-1923 var Ólafur á fjórum
vetrarvertíðum á togara frá Reykja-
vík, þar af tvær hjá Halldóri á
Háteigi, skipstjóra og útgerðar-
manni, sem giftur var Ragnhildi
Pétursdóttur frá Engey, frænku
Ólafs. Árið 1934 tók hann við
rekstri búsins í Lindarbæ ásamt
bróður sínum Þórði og hafa þeir
rekið bú þar síðan. Þeir keyptu tún
og land jarðarinnar Götu og túnin
í Vétleifsholti 1, Ráðagerði og
Gíslakoti, allt árið 1947, og samein-
uðu landi Lindarbæjar.
Búskapur þeirra bræðra bar
ávallt vott um fyrirhyggju í hví-
vetna. Þannig vildu þeir aldrei taka
lán vegna framkvæmda og gættu
þess ávallt að eiga fyrningar í hlöð-
unni til að mæta löngum vetri ef
svo bæri undir. Metnaður þeirra var
ekki síst falinn i velferð skepnanna,
en umhyggjan fyrir þeim var tak-
markalaus. Þeir bræður stunduðu
blandaðan búskap, höfðu yfirleitt
10-15 mjólkandi kýr eftir að farið
var að seija mjólk til Mjólkurbús
Flóamanna og 100-200 fjár,
hænsni til heimilisbrúks og ávallt
20-30 hross. Þeir hættu kúabúskap
um 1970, en fjárbúskap stunduðu
þeir allt til 1989. Ennþá eru níu
hestar í Lindarbæ þannig að búskap
stundaði Ólafur til dauðadags.
Ólafur hafði alla tíð mikinn
áhuga á þjóðmálum. Mestur var
áhugi hans á málefnum sveitarinnar
eins og ýmis störf hans að atvinnu-
málum og félagsmálum bera vitni
um, en hann gegndi fjöldamörgum
trúnaðarstörfum' fyrir sveitunga
sína. Hann var einn af stofnendum
Ungmennafélags Ásahrepps 1911
og var þar formaður í nokkur ár.
Hann var einn stofnenda Búnaðar-
félags Ásahrepps, sat í stjórn fé-
lagsins í mörg ár og var gerður að
heiðursfélaga þess 1980.
Hann var féhirðir Landþurrkun-
arfélags Safamýrar frá stofnun
þess um tíu ára skeið, en það félag
byggði mýrarskurðinn mikla sem
Ólafur faðir hans hafði mælt fyrir
og breytti Safamýri úr hálfgerðu
flóði í eitt mesta engi landsins, sem
gaf af sér tugi þúsunda hestburða
af heyi árlega. Hann var meðal
stofnenda Kaupfélags Rangæinga
og í stjórn þess 1928 til 1933 og
1935 til 1948, þar af formaður í
átta ár. Hann var gerður að heiðurs-
félaga Kaupfélags Rangæinga
1969. Hann var einn stofnenda
Slysavarnafélagsins Gleym mér ei
og í stjórn þess í nokkur ár. Gleym
mér ei hafði m.a. að markmiði að
sem flestir sýslubúar lærðu sund.
Hann var í stjórn Nautgriparæktar-
félags Holtamanna í 28 ár, í stjórn
Hrossaræktarfélags Holtamanna
1951 til 1958. Faðir Ólafs stofnaði
og rak Lestrarfélagið Þörf og var
lestrarfélagið til heimilis í Lindarbæ
og önnuðust þeir bræður Ólafur og
Þórður að nokkru um rekstur þess.
Ólafur sinnti ennfremúr ýmsum
opinberum störfum. Hann var
hreppstjóri 1936 til 1976 eða í 40
fijítít 1AM ,i :t.Jí )AGU i i'l QHiAJfJj't-iijJl'.'M
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 7. MAÍ 1993
#7
ár. Sinnti hann því af mikilli reisn,
en þeim starfa fylgdu oft ferðalög.
Heimsótti hann alla sveitunga sína
árlega í mörg ár. Lagði Ólafur mik-
ið upp úr því að vera vel ríðandi,
enda reið hann aldrei nema gæðing-
um í embættisferðum sínum. Hann
átti m.a. hestinn Prata, bleikálóttan
skeiðhest, sem enginn annar mátti
ríða og allir þekktu í sveitinni.
Hann var endurskoðandi hrepps-
reikninga í fjöldamörg ár frá 1946.
Hann var virðingarmaður Bruna-
bótafélags íslands frá 1936 og síð-
ar Samvinnutrygginga. Hann var
fulltrúi vesturhluta Rangárvalla-
sýslu á aðalfundum Mjólkurbús
Flóamanna árin 1959 til 1971. Þessi
skýrsla er ekki afrekaskrá Ólafs,
en sýnir áhuga hans á framförum
og félagsanda. Hann lét ekki kjósa
sig í nefndir vegna fordildar, heldur
þótti einstaklingum og stofnunum
gott að njóta ráða hans.
Eftirlifandi bróðir Ólafs, Þórður,
býr í Lindarbæ ásamt ráðskonunni
Svanhvíti Guðmundsdóttur, fæddri
1912. Svanhvít hefur búið þar frá
1938 og gengið frá upphafi í öll
búverk, jafnt úti sem inni. Er hún
sannkallaður bústólpi. Svanhvít
vann sem ráðskona víða, áður en
hún ílentist í Lindarbæ. I Lindarbæ
bjó einnig ráðskonan Sigríður Gísla-
dóttir, fædd 1885, dáin 1974, en
hún kom í Lindarbæ árið 1903 og
bjó þar æ síðan, mikil ágætiskona.
Sigríður, sem var úr Flóanum, var
sívinnandi við matseld, tiltektir,
pijónandi eða eitthvað annað sem
til féll og aldrei sá ég hana fara
að sofa þann tíma er ég dvaldist í
Lindarbæ og alltaf var hún á fótum
þegar ég vaknaði.
ðlafur heitinn var alla tíð heilsu-
hraustur, fékk eitt sinn slæma
lungnabólgu og var á Vífilsstöðum
í sex vikur og 1981 fékk hann
vægt heilablóðfall, sem háði honum
síðan nokkuð í tali án þess þó að
bagalegt væri. Lengri er tæpast
hans sjúkrasaga. Hann dó í svefni
án þess dauðinn boðaði komu sína
með sérstökum eða áþreifanlegum
hætti. Það er gott að fá að deyja
heima hjá sér, ekki síst þegar mað-
ur hefur átt heima á sama stað í
heila öld. Við systkinin, Oddný,
Kristín og Ragnar, erum þakklát
fyrir þær samverustundir sem við
höfum átt með heimilisfólkinu í
Lindarbæ. Við þökkum þeim Sig-
urði og Steinunni í Kastalabrekku,
nágrönnum fólksins í Lindarbæ,
alla veitta aðstoð og umhyggju síð-
ustu árin.
Blessuð sé minning Ólafs föður-
bróður míns.
Ólafur Ragnarsson.
Fyrir 42 árum fluttist ég og fjöl-
skylda mín í Vetleifsholtshverfi, að
Parti (sem nú er Kastalabrekka).
Þá var ein jörð í byggð í hverfinu,
Lindarbær. Þar bjuggu bræðumir
Ólafur og Þórður Ólafssynir, ráðs-
kona þeirra Sigríður Gísladóttir og
vinnukona Svanhvít Guðmunds-
dóttir. Sigríður lést 8. október
1974, en þá tók Svanhvít við hús-
stjóm á heimilinu.
Þar sem þetta fólk var næstu
nágrannar kynntist ég því strax
mjög náið. Við sem fluttum á illa
hýsta eyðijörð og höfðum takmark-
að af áhöldum og tækjum til bú-
starfa, leituðum oft til þeirra
bræðra er okkur vantaði eitthvað,
hvort heldur það var tæki eða góð
ráð. Kom þá strax í ljós að Ólafur
í Lindarbæ var fús til að hjálpa og
gera manni greiða. Venjulega
þakkaði hann fyrir það að við skyld-
um biðja um aðstoð ef með þurfti.
Foreldrar Ólafs voru Ölafur
Ólafsson bóndi og hreppsjóri, ætt-
aður frá Lundum í Stafholtstung-
um, og Margrét Þórðardóttir frá
Hala í Ásahreppi. Ólafur heitinn
ólst upp í Lindarbæ og átti þar
heima alla sína ævi eða tæp 100
ár. Það er því ljóst að Ólafur hefur
munað tímana tvenna. Hann stund-
aði sjómennsku á togurum á yngri
ámm. Sjómennska í þá daga var
bæði volksöm og erfið. Ólafur var
harðduglegur og minntist þeirra
daga með nokkru stolti. Hann nam
búfræði á Hvanneyri, búfræðingur
þaðan 1914 og alla tíð vitnaði hann
í búfræðinámið. Hann taldi nauð-
synlegt fyrir alla sem ætluðu í bú-
skap í sveit að afla sér þekkingar
á því sviði.
Búskapur í Lindarbæ stóð á
traustum fótum. Ólafur tileinkaði
sér tækninýjungar við búskapinn
strax þegar þess var kostur. Setti
hann til dæmis súgþurrkun í fjós-
hlöðu, með þeim fyrstu sem það
gerðu. Bústofn þeirra bræðra var
afurðasamur og vel um hann hugs-
að. Sérstaklega tók ég eftir því að
alltaf var farið í gripahús á sama
tíma dag hvern.
Félagsmál voru Ólafi mjög hug-
leikin og kom hann við sögu í nær
öllum félagsmálum sveitarinnar.
Hann var stofnandi Ungmennafé-
lags Ásahrepps. Hann var sérstak-
lega virkur félagsmaður alla tíð og
búinn að vera heiðursfélagi þess
um áratugaskeið. Hann var stofn-
andi Kaupfélags Rangæinga á
Rauðalæk, sat um árabil í stjórn
og formaður þess í átta ár. Hann
var kosinn heiðursfélagi þess á 50
ára afmæli félagsins 20. nóvember
1969. Á seinni árum og fram á
síðasta dag spurði hann um félagið
nánast alltaf þegar ég hitti hann.
Greinilegt var að góðar fréttir af
kaupfélaginu glöddu hann mikið.
Ólafur var sérstaklega heiðraður
af Sláturfélagi Suðurlands fyrir góð
og óslitin viðskipti við félagið yfir
50 ár á 90 ára afmæli hans 12.
ágúst 1983. Einnig var hann kjör-
inn heiðursfélagi Búnaðarfélags
Ásahrepps 23. apríl 1980 fyrir ára-
tuga störf í þágu félagsins. Þetta
sýnir að Ólafur var vel virtur með-
al félaga sinna.
Skapgerðarmaður var Ólafur og
stóð oft fast á sínum skoðunum
og fylgdi þá máli sínu eftir af festu.
En hann var sáttfús og fljótur til
að rétta fram sáttahönd ef svo bar
undir og brosti þá oft sínu blíðasta
brosi þegar sennu lauk.
Innst inni var Ólafur fyrst og
fremst sveitamaður sem naut þess
að rækta jörðina og búféð af alúð.
Hann naut þess að dvelja heima
þar til hann kvaddi hinn jarðneska
heim í friði og ró. Ber það sérstak-
lega að þakka Svönu og Þórði sem
önnuðust hann af tryggð og kær-
leika fram á síðasta dag.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
Ólaf Ólafsson nágranna með hlýju
í huga. Persónuleiki hans er manni
ógleymanlegur, það er margs að
minnast og margt að þakka frá
Iiðnum árum.
Ég votta nánum ættingjum hans
og vinum samúð um leið og ég
óska þeim blessunar, bjartra og
langra ævidaga.
Blessuð sé minning Ólafs Ólafs-
sonar.
Sigurður Jónsson.
+
Innilegar þakkir færum við öllum, sem
sýndu okkur samúð og vinsemd við
andlát og útför móður okkar, dóttur,
systur og frænku,
ARNDÍSAR HARALDSDÓTTUR,
Hraunbæ 160,
Reykjavík.
Sigriður Vilhjálmsdóttir, Rut Vilhjálmsdóttir,
Vilhjálmur Pétursson,
Haraldur Sigurðsson, Guðrún G. Guðiaugsdóttir,
Dagrún E. Ólafsdóttir, Steinunn Kjartansdóttir,
Ólafur Haraldsson, Þórarinn Haraldsson,
Ása Sigurðardóttir.
__________Brids____________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsklúbbur Fél. eldri
borgara, Kópavogi
Þriðjud. 4. maí sl. var spilaður tví-
menningur, 18 pör mættu og var spil-
að í tveim riðlum. 10 og 8 para, og
urðu úrslit í A-riðli:
Garðar Sigurðsson/Eysteinn Einarsson 133
ÞórarinnAmason/BergurÞorvaldsson 132
Guðm. Guðmundsson/Sigurlín Ágústsdóttir 119
Meðalskor 108
B-riðill:
StefánJóhannesson/ÁmiJónasson 98
MargrétSigurðard./JónHermannsson 91
Ingiríður J ónsd./U na J ónsdóttir 88
Meðalskor 84
Næst verður spilað þriðjud. 11. maí
kl. 19 á Digranesvegi 12.
Bridsfélag Hornafjarðar
Aðaltvímenningur vetrarins stendur
yfir og er lokið 10 umferðum.
Staðan eftir 10 umferðir.
Sigurpáll Ingibergsson/Gunnar P. Halldórsson 69
Kolbeinn Þorgeirsson/Svava Gunnarsdóttir 68
Magnús Jónasson/Skeggi Ragnarsson 66
Kirstjón Elvarsson/Jakob Karlsson 44
JónNíelsson/Grétar/GesturH. 37
Helgi H. Ásgrimsson/Þórir/Rapar Bj. 22
Lokaumferðin verður spiluð sunnu-
dagskvöldið 16. maí.
Bridsfélag Reykjavíkur
Lokið er 31 umferð í Butlernum.
Staða efstu para:
Aðalsteinn Jörgensen/Bjöm Eysteinsson 232
ÓlafurLárusson/HermannLárusson 219
EirikurHjaltason/RagnarHermannsson 209
Guðlaugur R. Jóhannsson/Öm Arnþórsson 204
ÞórðurSigfússon/HjálmarS.Pálsson 160
Jónas P. Erlingsson/Oddur Hjaltason 151
Júlíus Snorrason/Sigurður Siguijónsson 122
Björgvin Víglundss./Jón S. Gunnlaugss. 105
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Aðalsteinn Jörgensen/Bjöm Eysteinsson 126
Björgvin Víglundsson/Jón Steinar Gunnlaugsson87
EirikurHjaltason/RagnarHermannsson 78
Þrösturlngimarsson/RagnarJónsson 76
ÞórðurSigfússon/HjálmarS.Pálsson 74
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjpdag lauk vortvímenning
félagsins. Úrslit urðu þessi:
Óskar Sigurðsson/Sigurður Steingrimsson 390
MagnúsOddsson/LiljaGuðnadóttir 344
ÓlafurOddsson/Guðjón Siguijónsson 341
Agnar Öm Arason/Gunnar Þó’r. Guðmundsson 335
Hæstu skor kvöldsins hlutu:
Ólafur Oddsson/Guðjón Siguijónsson 128
Næsta þriðjudag verður Firma-
keppni. Spilaður verður einmenningur.
Allir velkomnir.
N orður landamót
yngri spilara 1993
Norðurlandamót yngri spilara verð-
ur haldið f Árósum í Danmörku
20.-27. júní nk. Keppt verður í tveim
flokkum, yngri spilara flokki, sem eru
fæddir ’68 og síðar, og yngri spilara
flokki, sem eru fæddir ’73 og síðar.
Nú hefur verið ákveðið að senda lið í
yngri flokkinn líka en það er í fyrsta
sinn sem ísland sendir lið erlendis í
þann flokk. Þeir sem hafa verið valdir
í yngri flokkinn eru: Ragnar T. Jónas-
son, Tryggvi Ingason, Halldór Sigurð-
arson og Hlynur Magnússon. Þeir eru
allir frá Ísafirði. Fyrirliði með báðum
liðum verður Matthías Þorvaldsson.
íslandsmót í parakeppni 1993
íslandsmót í parakeppni verður
haldið í Sigtúni 9, helgina 8.-9. maí.
Sprenging varð í þátttöku og eru skráð
64 pör til keppninnar . Spiluð verða
tvö spil milli para, alls 126 spil. Byij-
að verður kl. 10 á laugardagsmorgun
og byijað aftur kl. 15.30 og spilað til
kl. 20. Á sunnudagsmorguninn verður
einnig byijað kl. 10 og spilað til 14.30
og gert kiukkutíma matarhlé og móts-
lok verða kl. 20 á sunnudag. Ef ein-
hver forföll verða hjá skráðum kepp-
endum verður haldið sama tímaplani
en keppninni lýkur þá fyrr á sunnu-
dagskvöld.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
THOMAS KOHBERGER,
lést í Florida Hospital í Orlando 18. apríl sl.
Útför hans hefur farið fram.
Agnes Ingvarsdóttir Kohberger
frá Bjargi, Garði,
Kathleen Depelisi
og fjölskylda.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MÖGNU GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Syðri Löngumýri,
siðast til heimilis Depluhólum 3.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og
deildar B-5, Borgarspítala.
Haraldur E. Ingason, Hafdís Theódórsdóttir,
Guðrún Ingadóttir, Jóhann Bragi Hermannsson
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför sonar okkar og bróður,
GUÐJÓNS GUNNARSSONAR,
Skólavegi 4,
Fáskrúðsfirði.
Bryndfs Guðjónsdóttir,
Gunnar J. Jónsson,
Jósep Freyr Gunnarsson,
Selma Ósk Gunnarsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ÞÓRU GUÐLAUGSDÓTTUR
frá Fellskoti.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks á 3. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Ragnheiður Hannesdóttir,
Guðlaugur Hannesson, Ingunn Ingvarsdóttir,
Hannes Magnússon, Elizabeth Cook,
Rósa Þóra Magnúsdóttir, Gunnar Richardsson,
Hannes Guðlaugsson, Steinunn Kristófersdóttir
og barnabarnabörn.