Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 45

Morgunblaðið - 07.05.1993, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1993 i'á MEÐLAGSGREIÐSLUR OG SKATTATEKJUR Meölagskröfur rlkisins meB 12.021 bami alls Tekjur meölags- greiöenda þurla alls aö vera Skattur af tokjum meölags- grelöenda Tekjur sem afla þarf til greiöslu eins meölags 1 meölag 1993 12.021x123.600 -1.485.795.600 kr. 2.533.065.120 kr. 1.047.169.120 kr. 17.560 kr. 10.300 kr. 1992 12.021x90.612 -1.089.246.852 kr. 1.811.083.860 kr. 721.716.918 kr. 12.555 kr. 7.551 kr. Mism. 32.988 396.548.748 kr. 721.981.260 kr. 325.452.202 kr. 5.005 kr. 2.749 kr. 722.000.950 kr. . .. Hvað hefur gerst? Frá Eiríki Á. Hermannssyni: Nú þegar fjórir mánuðir eru liðnir frá stofnun Félags forsjárlausra for- eldra er rétt að staldra við og spyija hvort eitthvað hafi áunnist og þá hvað? Þrátt fyrir þrotlaust starf þeirra manna sem í stjóm þessara samtaka voru kosnir stendur fátt eftir nema velvilji, skilningur og svik- in loforð stjórnvalda. Skipuð hefur verið ein nefnd af félagsmálaráð- herra. í henni er einn fulltrúi frá ráðuneytinu, einn frá Innheimtu- stofnun og einn frá Félagi forsjár- lausra foreldra. Nefndin hefur fund- að tvisvar en þær viðræður hafa litlu skilað enda var þessari nefnd þröng- ur stakkur skorinn samkvæmt emb- ættisbréfi ráðherra. Það eina sem hefur komið frá nefndinni er að mönnum er boðið að semja við Inn- heimtustofnun um að greiða aðeins með þremur bömum í einu og halda áfram að safna skuld á dráttarvöxt- um. Það er nánast það sama og menn hafa haft. Á fyrstu dögum þessa árs fór stjóm FFF þess á leit við félagsmála- ráðherra í bréfi að hún beitti sér fyrir reglugerðarbreytingu þar sem heimild Innheimtustofnunar til að ganga að launum manna yrði minnk- uð úr 75% af launum niður í 50%, og dráttarvextir yrðu felldir niður. Áður en þetta bréf var sent taldi stjóm FFF sig hafa fengið loforð aðstoðarmanns félagsmálaráðherra fyrir þessari breytingu. Undirritaður átti líka nokkur símtöl við aðstoðar- mann ráðherra þar sem hann fullviss- aði mig um að þetta yrði eitt af því sem sú nefnd sem ráðherra hafði skipað mundi afgreiða. Fulltrúi ráð- herra í nefndinni, sem jafnframt er formaður hennar hafði hvorki heyrt á hana minnst né að ráðherra væri tilbúinn að gefa út þessa reglugerð- arbreytingu sem bráðabirgðaaðgerð íyrir þá verst settu og aðeins á með- an verið væri að vinna að nýju og manneskjulegra innheimtukerfi. Á síðustu 5 árum hafa meðlags- greiðendur orðið fyrir 90% hækkun á meðlagi án þess að framfærsluað- ilinn hafi fengið krónu hækkun. Fyrri hækkunin varð við tilkomu stað- greiðslukerfisins en þá misstu með- lagsgreiðendur 50% frádrátt af með- lagi til skatts og um síðustu áramót varð 40% hækkun á meðlagi án þess að sá aðili sem framfærsluna hefur fái meira í sinn vasa. Þar er líka athyglisvert og þá sérstaklega fyrir mig og þá aðila sem aðhyllst hafa jafnaðarstefnu að báðar þessar hækkanir hafa orðið í ráðherratíð Alþýðuflokksins. Sú fyrri þegar Jón Baldvin var fjármálaráðherra og sú síðari í tíð Sighvats Björgvinssonar sem heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra. Nú er svo komið að meðlag á ís- landi er orðið eitt það hæsta í Evr- ópu og er það hvergi eins hátt hlut- fall af launum vekamanns eins og hér. Hvað með verkalýðshreyfínguna? Hefur heyrst hósti eða stuna frá henni um þessa sérsköttun á tæplega níu þúsund meðlagsgreiðendur? Eg minnist þess ekki að hafa heyrt á það minnst hjá Guðmundi Guð- mundssyi, Magnúsi L. Sveinssyni eða öðrum vekalýðsleiðtogum að sú 90% kjaraskerðing sem meðlagsgreiðend- ur hafa orðið fyrir umfram aðra á síðastliðnum fímm árum sé yfírleitt í umræðunni nú í þessum kjarasamn- ingum. Ég vil því hvetja alla með- lagsgreiðendur og aðra launþega til að fella alla þá samninga sem nú eru í burðarliðnum ef ekki fæst leiðrétt- ing á málefnum meðlagsgreiðenda. Hér að neðan er tafla sem sýnir hækkun meðlags sem varð um síð- ustu áramót. Þessi tafla sýnir jafn- framt að í rauninni er meðlag 17.560 krónur því það er sú upphæð sem meðlagsgreiðandi þarf að vinna sér inn til að borga 10.300 krónur sem framfærandinn fær. Inn í þessa töflu er ekki reiknaður persónufrádráttur enda teljum við okkur þurfa á öllum þeim afslætti að halda til að fram- fleyta okkur sjálfum. EIRÍKUR Á. HERMANNSSON, formaður Félags forsjárlausra foreldra, Asparfelli 8, Reykjavík. '1 LfTTi Vinningstölur 5. maí 1993 VINNINGAR FJÖLDI i VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING H 6 af 6 0 42.800.000,- C1 5 af 6 r-^^hónus 1 1.048.524,- 0| 5af6 12 44.655,- Qj 4af6 591 1.442,- 5.BCT 1.975 185,- Heildarupphæö þessa viku: 45.601.981,- aisi.: 2.801.981,- UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11 LUKKULiNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR STEINAR WAAGE Högni í óskilum Hálfstálpaður, ógeltur högni, svartur með hvítttrýni, hvíta bringu og hvítar loppur hefur leitað ásjár á Bárugötu 33. Gæti hafa verið heimilislaus um nokkurt skeið en er kassavanur og blíðlyndur. Uppl. gefur Anna í síma 22906. Peimavinir Þrettán ára bandarísk stúlka með áhuga m.a. á bókalestri, bamapöss- un og hestum: Tracy Daniel, 8420 Holloway Dr., Theodore, Alabama 36582, U.S.A. Frá Kanada skrifar kona sem útvegar fullorðnu fólki roskna pennavini þar í landi án gjaldtöku. Henni má senda upplýsingar um aldur, kyn og áhugamál: Helen Paquin, 2231 Hamilton St., Regina, Saskatchewan S4P 2E7, Canada. Þrítug kona í Ghana með áhuga á atargerð, tónlist o.fl.: Helena A. Buckman, 43 Methodist Road, P.O. Box 43, Apam, Ghana. Sextán ára japönsk stúlka með áhuga á.tónlist og íþróttum: Yuriko Tomoda, 322-2 Ebara Hidako-cho Hyogo-ken, 669-53 Japan. LEIÐRÉTTINGAR Rangt símanúmer Þau mistök urðu í tapað fundið í Velvakanda í blaðinu í gær að rangt símanúmer birtist í grein um tapað gullúr. Rétt símanúmer er 37319. Síldarvinnslan með hagnað en ekki tap í töflu í viðskiptablaði í gær yfír helstu kennitölur úr ársreikningum sjávarútvegsfyrirtækja var rang- lega sagt að Síldarvinnslan hefði verið með tæplega 79 milljóna tap á sl. ári. Hið rétta er að fyrirtækið var með tæplega 79 milljóna hagn- að. Þessi villa kom einnig fram í frétt í tengslum við töfluna en þar var ranglega sagt að af sjávarút- vegsfyrirtækjum á hlutabréfamark- aði hefði aðeins ÚA skilað hagn- aði. Þá var hlutafé sagt vera 178 milljónir en rétt tala er 162 milljón- ir. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. SKOVERSLUN Fótboltaskór Verð kr. 1.795 Stærðlr: 30-39. Litur: Svartur. Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur Domus Medica, Egilsgötu 3, sími 18519 Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 Toppskórinn, Veltusundi, sími 21212. Jakki + skyrta + bindi Bolir verð áður Bolir verð nú 9.900, - 2.900, - 1.500,- EIÐISTORGI og KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.