Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1993
Utskriftarnemar
___>
MHI með sýningu
VORSYNING útskriftarnema Myndlistar- og handíðaskóla íslands
var opnuð laugardaginn 15. maí kl. 14. Að þessu sinni útskrifast 45
nemendur frá skólanum og verður sýningin nú á fjórum stöðum í
bænum.
Sýningin verður í hinu nýja List-
háskólahúsi við Laugarnesveg, í
Perlunni, í húsnæði skólans í Skip-
holti 25 og í Sólon íslandus.
í Listaháskólahúsinu sýna nem-
endur úr málun, skúlptúr, fjöl-
tækni, leirlist og textíl. í Perlunni
sýna nemendur úr grafískri hönnun,
í Skipholti 25 sýna nemendur úr
grafík og málun og í Sólon íslandus
sýna nemendur úr fjöltækni.
Sýningin í Listaháskólahúsinu og
Skipholti 25 verður opin helgina
22. og 23. maí frá kl. 14-18. Sýn-
ingin í Perlunni og Sólon íslandus
verður opin á daglegum opnunar-
tíma þessara staða til 23. maí.
(Fréttatilkynning)
Söngskólinn í Reykjavík
Átta ljúka 8. stigi
ÁTTA af nemendum Söngskólans í Reykjavík ljúka að þessu sinni
8. stigi sem er lokapróf úr almennri deild söngnáms. Prófingu fylg-
ir þátttaka í tónleikum sem verða í Islensku óperunni.
Tónleikarnir verða miðvikudag-
inn 19. maí kl. 20: Hörn Hrafnsdótt-
ir, mezzo-sópran, og David Knowles
píanó. Elín Huld Árnadóttir, sópran,
og Kolbrún Sæmundsdóttir, píanó.
Kristín Sigfúsdóttir, mezzo-sópran,
og Kolbrún Sæmundsdóttir píanó.
Kristin Ragnhildur Sigurðardóttir,
sópran, og Lára Rafnsdóttir, píanó.
Fimmtudaginn 20. maí, upp-
stigningardag, kl. 16: Hólmfríður
Jóhannesdóttir, mezzo-sópran, og
Elín Guðmundsdóttir, píanó. Bjöm
Ingiberg Jónsson, tenór, ogKolbrún
Sæmundsdóttir, píanó. Borghildur
Jónsdóttir, mezzo-sópran, og Kol-
brún Sæmundsdóttir, píanó. Dagný
Þ. Jónsdóttir, sópran, og Hólmfríður
Sigurðardóttir, píanó.
(Fréttatilkynning)
Þeir sem ljúka 8. stigi eru aftsta röð: Hörn Hrafnsdóttir, Elín Huld
Árnadóttir og Björn Ingiberg Jónsson. Miðröð: Kristín Sigfúsdóttir
og Dagný Þ. Jónsdóttir. Fremta röð: Kristín R. Sigurðardóttir, Borg-
hildur Jónsdóttir og Hólmfríður Jóhaiinesdóttir.
STANGAVEIMMESSA Í PERLUNNI
Opid I dag frá kl. 17—22
Opið í kvöld hjá Stongaveiðifélagi Reykjavíkur - Kynning á Sogi kl. 20.30.
Dansævintýri JSB
Jazzdans
Ólafur Ólafsson
Nemendaleikhús JSB.
Danshöfundar: Anna
Norðdahl, Ágústa Kol-
beinsdóttir, Irma Gunnars-
dóttir, Karl Barbee, Mar-
grét Árnþórsdóttir. Hand-
rit og búningar: Bára
Magnúsdóttir. Tónlist:
Ymsir höfundar. Stjórn-
andi: Bára Magnúsdóttir.
Borgarleikhúsið, maí 1993.
Það er staðreynd, að ævintýri
má segja á svo marga vegu. Ein
leiðin til að koma þeim til skila
er að dansa þau. Nota þetta al-
þjóðlega og aðgengilega tjáning-
arform sem dansinn er. Þá gefst
líka hveijum og einum töluvert
ráðrúm fyrir eigin túlkun.
ímyndunaraflið fær að leika
iausum hala. Það er snar og
nauðsynlegur þáttur í uppvexti
og þroska hvers og eins að hann
fái að reyna á sköpunar- og túlk-
unargleðina í sjálfum sér. Nem-
endur Jazzballettskóla Báru
fengu svo sannarlega að reyna
sig við alvöru aðstæður í Borgar-
leikhúsinu. Á verkefnaskránni
voru fimm atriði, sem voru
vangaveltur kennara og nem-
enda út frá þekktum verkum og
sögum. Það var Hárið, Innrásin
frá Mars, Tommi ogJenni, Ranð-
hetta og Mjallhvít.
En höfðu dansararnir eitthvað
til málanna að leggja? Sam-
kenndin og hippastemmningin
ríktu í Hárinu en ógnin og óviss-
an í Innrásinni. Frásögnin í
Rauðhettu var með sínu sniði og
allir kannast við fjandvinina
Tomma og Jenna. í Mjallhvíti
var unnið útfrá þema: Sjálfseyð-
ingarmáttur eigingirninnar. Hér
voru mjög misjafnlega þjálfaðir
dansarar á ferð. Aðalatriðið var
að fá að reyna sig, fá að njóta
uppskeru vetrarins. Sem betur
fer er það sammerkt með öllum
ballettskólunum í borginni, að
stjórnendur þeirra skilja nauðsyn
þess, að nemar fái að reyna sig.
Það er ekki hægt að ætlast til
þess, að nokkur einstaklingur
geti stokkið fullskapaður fram á
sjónarsviðið. Hann þarf að reyna
sig og námið tekur mörg ár og
þroskaferlið er oft hægt.
I heildina má segja um sýning-
una, að á margan hátt var hún
frábrugðin jazzdanssýningum
sem oft sjást fyrir það hvað hún
var glettin, björt og litrík. Jazz-
dansi hættir stundum til að vera
ansi glennu- og gleðikonulegur.
Hefur aldur dansaranna þá oft
ekki skipt neinu máli. En í þann
pytt duttu Bára Magnúsdóttir
og samkennarar hennar alls
ekki. Dansarnir hæfðu dönsur-
unum. Greinilegt var, að vinna
var lögð í dansverk eins og Mjall-
hvíti, þar sem hvert hlutverk
átti sitt dansstef. Sama er að
segja um bæði Tomma ogJenna
og Rauðhettu. Bæði dansarnir
og búningarnir voru til fyrir-
myndar og alúð lögð í verkin.
Börnin skemmtu sér vel. Dans-
lega voru nemendurnir misjafn-
lega langt á veg komnir og at-
riði eins og Hárið minntu meira
á söngleik en jazzdans, en það
var í góðu lagi. Reyndar vöktu
jarðarbúarnir í Innrásinni frá
Mars athygli fyrir góðan og mjög
samtilltan dans.
Seint verður lögð of rík
áhersla á það, að tjáningar- og
sköpunargleði barna og unglinga
fái útrás. Þegar um er að ræða
dans, hvort sem það er ballett,
jazzdans eða einhver önnur tján-
ing í hreyfingu, er það algjört
skilyrði að snemma sé byijað.
Nemendaleikhús JSB var spor í
þá réttu átt.
Mjallhvít og dvergarnir sjö.
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Matreiðslumeistarar okkar hafa uppgötvað frábæra
grásleppunnar fyrir nútíma matargerð
Þessa viku verða Ijúffengir réttir úr grásleppu
á boðstólum á eftirtöldum veitingastöðum á kynningarverói.
Spennandi uppskriftabæklingar liggja frammi
á veitingastöðunum og í verslunum Hagkaups,
'par sem fiskurinn verðurtil kaups á kynningarverði.
Komdu og njóttu vel i
Fiðlarinn, Akureyri
Hótel Stykkishólmur
Veitingahúsið
við Tjörnina
eiginleika
Kynningar
frá Veitingahúsinu
við Tjörnina
og ÞremurFrökkum
í Hagkaup
Kringlunni:
Þrið kl.16-17
mið kl. 16-17
fös kl.16-18
lau kl. 14-15
LANDSSAMBAND _
smábátaeieenda SmSSíír
^ fÍQlíiAnaAnrinc
cuw
Aflanýtingamefnd
Þrír Frakkar
•GÓÐGÆTI Ú R HAFINU • Á NÝJAN H Á T T •