Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1993
21
Árgjöld Vinnuveitendasambandsins lækkuð um 5%
Stefnt að 12% lækkun
á rekstrarkostnaði YSI
AÐALFUNDUR Vinnuveitendasambands íslands sam-
þykkti sl. þriðjudag að lækka árgjöld til sambandsins ann-
að árið í röð. Árgjaldaálagið var lækkað um 5% eða úr
0,86% í 0,34% af heildarlaunagreiðslum næst liðins árs en
fjórðungur árgjalda renna til Vinnudeilusjóðs. Samkvæmt
rekstrarreikningi VSI námu árgjöld aðildarfélaganna sem
ganga í rekstrarsjóð VSI 78,9 milljónum kr. á síðasta ári
og árgjöld til Vinnudeilusjóðs námu 26,3 millj. kr.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í samtali
við Morgunblaðið að talsmenn
Vinnuveitendasambandsins hefðu
boðað mjög stíft að fyrirtækin yrðu
að skera niður í sínum rekstri. „Fé-
lagsgjöld í hagsmunasamtök at-
ist úr 384 millj. kr. frá árinu á
undan. Hlutverk sjóðsins er að
bæta tjón, sem meðlimir Vinnuveit-
endasambandsins verða fyrir vegna
vinnustöðvana.
vinnurekstrarins eru hluti af fram-
leiðslukostnaðinum og við álítum
þess vegna að það sé skylda okkar
að reyna að praktísera það sem við
predikum í þessu efni,“ segir hann.
Rekstraráætlun Vinnuveitenda-
sambandsins gerir ráð fyrir 12%
samdrætti á milli ára. Á síðasta ári
voru árgjöldin lækkuð um 10% og
sagði Þórarinn óhjákvæmilegt að
lækka þau enn frekar. Til að mæta
því yrði Vinnuveitendasambandið
að taka til í sínum rekstri. „í þessu
felst hins vegar engin ákvörðun um
að draga úr þeirri þjónustu sem við
veitum,“ sagði hann.
Rúmlega 900 þúsund kr. hagnað-
ur varð af reglulegri starfsemi VSÍ
á síðasta ári. Skv. rekstrarreikningi
voru rekstrartekjur rúmlega 89
millj. kr. en rekstrargjöld tæplega
87 millj. kr.
Eignir Vinnudeilusjóðs 450
millj.
Eins og framan greinir gengur
hluti árgjalda til Vinnudeilusjóðs
en skv. efnahagsreikningi námu
heildareignir sjóðsins 450 milljón-
um kr. á síðasta ári og höfðu auk-
Landsþing
Lionsmanna
LIONSMENN og -konur á
íslandi halda dagana 21. og
22. maí sitt árlega þing. Að
þessu sinni er þingið haldið
í íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi.
Á þingið eru boðaðir 350 fulltrú-
ar hinna 102 klúbba sem nú eru
starfandi í hreyfingunni. Á þinginu
eru að venju kosnir forystumenn
hreyfingarinnar næsta starfsár auk
þess sem væntanlegir stjórnendur
klúbbanna setjast á skólabekk þar
sem þeir eru upplýstir um skyldur
sínar. Þá verða þar tekin fyrir á
námsstefnum málefni klúbbanna
(bjartsýnisklúbburinn) alþjóðleg
samvinna og aðalbaráttumál hinnar
alþjóðlegu Lionshreyfingar sem er
„Sight first“. Tilgangur þessa verk-
efnis er að reyna að draga úr blindu
í heiminum. En þó að aðalefni Li-
onsþings í Kópavogi sé á alvarlegri
nótunum þá nota meinn einnig
tækifærið að gleðjast saman.
Föstudaginn 21. maí kl. 21 verð-
ur kynningarkvöld þar sem aðgang-
ur er ókeypis og allir Lionsmenn
eru velkomnir. Þingslit verða um
kl. 17.15 á laugardeginum en um
kvöldið verður lokahóf þar sem all-
ir Lionsmenn eru boðnir velkomnir
ásamt gestum sínum. Hljómsveitin
Pónik leikur fyrir dansi auk þess
sem skemmtiatriði verða flutt.
(Fréttatilkynning)
GI65-S-
ISLENSKUR
IÐNAÐUR
VIUI
IVERKI
Flestlr Islendlngar kiósa fremur íslenska
framleiðslu en erlenda. Vörugæðl og
vandvlrknl eru |iví höfð í fyrlrrúmi. Samt harf að
treysta betur stöðuna á helmamarkaðl. í Iðnaði
eru margvísleglr mögulelkar á nýsköpun. Tll að
nýta möguleikana þurfa ráðamenn að sýna viljann
í verkl. Veljum íslenska framlelöslu og eflum
íslenskt atvinnulif.
ÍSLAND ÞARFNAST IÐNAÐAR.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Samtök atvinnurekenda i Iðnaðl