Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 Þroskaheftir Fimmtu Ólympíuleikarnir eftirHarald Jóhannsson „Hér eru samankomnir 1.600 þroskaheftir menn og konur frá öllum heimshomum, fólk sem oft- ast hefur verið stjakað við og ýtt til útjaðra samfélaganna. í kvöld er þetta fólk skyndilega ekki lengur utangarðs, heldur höf- um við nú skipað því sess mitt á meðal okkar. Þetta er táknræn _mynd, sem aldrei skyldi gleym- ' ast.“ Þetta m.a. sagði Thomas Klest- il, forseti Austurríkis, í opnunar- ræðu sinni við setningarathöfn 5. ólympíuleika þroskaheftra, sem haldnir voru í Schladming og Salz- burg dagana 20.-27. mars sl. Þessi hópur samanstóð að fólki á öllum aldri frá 63 þjóðlöndum, sem allt hafði það sameiginlegt að hafa verið úrskurðað í flokk þroskaheftra. Ég, sem þetta set á blað, minn- ist þess úr minni sveit, að fólki sem talið var hafa takmarkaðri möguleika til þroska en almennt gerðist var miskunnarlaust skipað til óæðri bekkja, jafnvel á bak yið lás og slá, þegar gesti bar að garði. Enginn lét sér tilfinningar né þarf- ir þessa fólks sig neinu skipta, þó sjálfsagt væri að beisla vinnukraft þess og nýta, oft mun meira en góðu hófi gegndi. Það hét að vera matvinningur. Árið 1963 stofnaði frú Eunice Kennedy Striver til íþróttabúða fyrir þroskahefta í Maryland í Bandaríkjunum. Kom þá fljótt í hljós, að vistmenn búðanna sýndu Ötvíræðari hæfni til íþróttaiðkana en menn hafði rennt í grun. Frú Kennedy lét ekki hér við sitja, en fékk því til leiðar komið, að fyrstu alþjóðlegu ólympíuleikar þroska- heftra voru haldnir í Chicago sum- arið 1968 með rúmlega 1.000 þátt- takendum frá Brandaríkjunum og Kanada. Þessir leikar vöktu al- heimsathygli. Þeir þóttu takast með miklum ágætum og hefur þróun þeirra ekki látið staðar num- ið. í dag eru meðal 120 þjóða stundaðar íþróttir, sem sniðnar eru [þróttamennirnir úr Ösp og þjálfaramir. „ Af íslands hálfu mættu 12 vaskir strák- ar til leiks. Yoru þeir á aldrinum 13 ára til rúmlega fertugs. Þeir gengu fram á kapp- leikjum af aðdáunar- verðri yfirvegun.“ við hæfi þessa fólks. Árið 1988 samþykkti alþjóða ólympíunefndin að þessir leikar mættu bera sæmdarheitið „Olympic". Þeir ólympíuleikar þroska- heftra, sem nýafstaðnir eru í Aust- urríki, eru þeir fyrstu sem haldnir eru utan Bandaríkjanna. Þar átti sjálfsagt stóran hlut að máli aust- urrísk-ættaði Hollywood-kvik- myndaleikarinn Schwarzenegger, sem er fæddur og uppalinn í Schladming og er tengdasonur frú - Beint flug firá Akureyri - 23. júní -25. júní kr. 22.700,- Flug - hótel - Lslensk fararstjórn. Aðeins 50 sæti Vcrð pr. niann m.v. 2ja manna hcrberfíi kr. 22.700,-. Innifalið í verði er flug til Parísar frá Akureyri, hótel í 2 nætur og íslensk fararstjórn. Gist á Paris Bercy hótelinu, mjög góðu 3ja stjörnu hóteli í miðbæ Parísar. HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17,2. hæð • Sími 624600 Kennedy. Af íslands hálfu mættu 12 vask- ir strákar til leiks. Voru þeir á aldrinum 13 ára til rúmlega fer- tugs. Þeir gengu fram á kappleikj- um af aðdáunarverðri yfirvegun, og gerðu sitt ýtrasta til að sigra í drengilegum átökum, og gerðu það líka stundum, en tóku ósigrum með karlmennsku og hugarró. Einkunnarorð þessarar sérstöku íþróttakeppni eru: „Ég vil vinna, en ef ég sigra ekki, vil ég að minnsta kosti hafa lagt mig fram um það.“ Allir í þessum hópi, sem vakti athygli meðal annarra þátttak- enda og áhorfenda, eru úr íþrótta- félaginu Ösp sem var stofnað 18. maí 1980 undir forystu Ólafs Ól- afssonar, sem var fararstjóri í þessari ferð. Hann hefur um ára- tuga skeið helgað þroskaheftum allar sínar frístundir án kröfu til launa. Hann segir: „Þakklæti þessa fólks, foreldra og annarra aðstandenda, er mér mikilla pen- inga virði“. Þakklæti, sagði hann, en e.t.v. er það eitt aðaleinkenni einstaklinganna, sem hér eru til umræðu. Einlægari þakklætisvott- ur fyrir lítilræði en frá þessu fólki er vandfundinn. Kurteisi í hví- vetna, hógværð í framkomu, lítil- læti og tillitssemi er á því stigi, sem margir mættu tileinka sér án þess að bíða af tjón á sálu sinni. Asparfélagar mættu til Salz- burg á vegum íþróttasambands fatlaðra, sem þeir eru aðilar að, en fulltrúi þeirra með hópnum var Þórður Á. Hjaltested. Þjálfarar Aspar undir þessa keppni og þátttakendum til halds og trausts, ekki síst á leikvangin- um, voru Karl Þorsteinsson og Sveinbjörn Sigurðsson. Athyglisvert var að fylgjast með gagnkvæmu trausti íþróttamanna og ofangreindra fyrirliða, sem byggðist á jafnréttisgrundvelli og einlægum trúnaði. Ég er þess fullviss, að ég halla ekki á neinn þegar ég upplýsi hér, að þegar ég mætti til fundar við íslenska hópinn vegna beiðni for- ráðamanna mótsins fyrir milli- göngu Erich Eibl, ræðismanns í Salzburg, var mér í fyrstu fyllilega óljóst hveijir væru íþróttamenn og hveijir fyrirliðar. Tölur segja að 2% mannkyns teljist til þroskaheftra, þó draga megi í efa að nokkur sé í stakk búinn til að segja nákvæmlega til um hveijir séu þroskaheftir og hveijir ekki, því oft er mjótt á milli. Frú Kennedy á lofsverðan þátt í þeirri heimsbyltingu, sem orðin er í sambýli annarra við þroska- hefta, sem áður drógu fram lífið, var meinaður aðgangur að lær- dómi og þátttöku í almennum at- höfnum og var öllum til ama og óþurftar. Það er ótrúlega stutt síðan þró- uð samfélög hættu að sparka mis- kunnarlaust í hverkonar minni- hlutahópa. Enn kemur þó fyrir að frumstæðum einstaklingum hefur ekki lærst að tileinka sér þá sjálf- sögðu þróun siðmenningarinnar, en þeim fer fækkandi. Fullyrt er að þriðji hver íbúi Salzburg og nágrennis hafi að meira eða minna leyti verið viðrinn mótið, sem var í alla staði til fyrir- myndar og aðstandendum til mik- ils sóma. Þakklæti og hlý bros hundraða íþróttamanna og kvenna, sem þátt tóku í ólympíuleikunum í Austur- ríki, til þeirra þúsunda sem lögðu sig fram með launarlausri vinnu eða með framlagi í annarri mynd mun endast þeim lengur en for- gengilegir málmblönduhlunkar í buddunni. Höfundur starfar á ferðaskrif- stofu i Vínarborg. Oryggisfilma Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsdeild Hún vetningáf élagsins Lokadagurinn hjá Húnvetningum var 12. maí og var spilaður eins kvölds tvímenningur í 16 para riðli. Lokastaðan: Tryggvi Gíslason - Gísli Tryggvason 240 HermannJónsson-BaldurAsgeirsson 230 EggertEinarsson-AntonSigurðsson 230 Eðvarð Hallgrimsson - Jóhannes Guðmundss.230 Ólafurlngvarsson-JóhannLúthersson 222 Hittumst á ný á hausti komandi. Sumarbrids 1993 Sumarbrids byijar föstudaginn 21. maí næstkomandi og verður spilað alla daga nema laugardaga og hefst spilamennskan alltaf kl. 19.00. Skráning er á staðnum og spil- aður verður Mithcell-tvímenning- ur með tölvuútreikningi. Keppnisgjald er 500 krónur á mann á kvöldi. Allir velkomnir og spilað er í Sigtúni 9. Sumarbrids er kjörinn vett- vangur til að æfa sig í keppn- isbrids og hafa gaman af. Keppn- * isstjóri verður Sveinn R. Eiríks- son. Bridsfélag Kópavogs Spiluð var önnur umferðin í vortvímenningnum sl. fimmtudag. Kvöldskor: A/V. Óskar Sigurðsson - Þorsteinn Berg 328 Þórður Jörundsson - Jón Andrésson 291 N/S: JacquiMcGreal-SigurðurSiguqónsson 333 Sigurður ívarsson - Jón Steinar Ingólfsson 327 Staðan: Jacqui McGreal - Kristín E. Þórarinsdóttir 649 Sigurður ívarsson - Jón Steinar Ingólfsson 615 Óskar Sigurðsson - Þorsteinn Berg 606 Ólafur B. Ólafsson - Baldvin Valdimarsson 592 Sigríður Möller - Freyja Sveinsdóttir 583 Síðasta umferðin verður spiluð næsta fimmtudag. Vetrarstarfinu lýkur síðan með aðalfundi föstu- daginn 21. maí kl. 20.00. RAÐSTEFNA NÁMSKEIÐ EÐA FUNDIR Á DÖFINNI? I Múlalundi færð (oú fundarmöppur, barmmerki (nafnmerki) , áletranir, merkingar og annað sem auðveldar skipulag og eykur þægindi og árangur þátttakenda. Allar gerðir, margar stærðir, úrval lita og áletranir að þinni ósk! HafSu samband vi& sölumenn okkar í síma 68 84 76 eða 68 84 59. Múlalundur Vínnustofa SÍBS - Hátúni 10c Símar: 68 84 76 og 68 84 59.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.