Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 45

Morgunblaðið - 18.05.1993, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993 45 sínum eignaðist hún dóttur, Þóru Haraldsdóttur, sem oftast var kölluð Dadda. Eiginmaður hennar var Guð- mundur Jónsson óperusöngvari. Seinni maður Ástu var Jón Axel Pétursson, bankastjóri Landsbanka íslands. Eignuðust þau einn son, Pétur Axel. Þegar ég kom í fjölskylduna var ég boðin velkomin með hlýhug. Ásta og Jón þjuggu á Hringbrautinni, Dadda og Guðmundur á Hagamel og við Pétur á Ægisíðunni. Það var mikill samgangur og Ásta og Jón voru ánægð að hafa bæði börnin sín náiægt sér. Dadda og Guðmundur höfðu ætíð verið þeim stoð og stytta. Þau tóku við uppeldi á Jóni Áxel, sonarsyni Ástu og Jóns, er móðir hans lést. Gleðin var mikil þegar einkasonur Ástu og Jóns kom heim með hugarfarsbreytingu eftir erfíða lífsbraut. í júní 1980 lést eiginmaður Ástu, Jón Axel, og í júlí 1982 lést dóttir hennar, Dadda, öllum mikill harm- dauði. Ásta bognaði og bar harm sinn í hljóði. Hún treysti á son sinn sem reyndist henni vel og vildi allt gera tii að létta henni lífið. Það urðu margar samverustundirnar hjá litlu fjölskyldunni á Ægisíðunni, Jón Axel yngri var kominn til okkar og í sept- ember 1980 fæddist okkur sonur sem skírður var Pétur Axel. Ásta sýndi honum alla þá ömmuhlýju er hún gat. Þegar svo sonur hennar, Pétur Áxel, greindist alvarlega sjúkur um áramótin 1982-83 og lést í'júlí 1983 dó stór hlutur í Ástu. Það var þá sem ég kynntist enn betur hennar innri persónu. Hún hafði verið tengdamamma mín, en nú bættist við að við urðum góðar vinkonur, sem deildum saman gleði og sorg og studdum hvor aðra eftir mætti. Við sátum tvær saman nokk- ur jól með litla Pétur og reyndum að gera okkar besta. Oft voru lesin ljóð og hlustað á tónlist. Aldrei gleymi ég kvöldinu þegar við hlust- uðum á vínarvalsana og dönsuðum saman í lokin. Við hlógum mikið, hún þá orðin 84 ára. Heimilið hennar á Hringbrautinni var hennar stolt, svo og garðurinn sem hún hlúði að með blómum og trjám. Hún bauð gestum gjarnan út í garðinn til að skoða hann og þiggja þar veitingar á góðum sumardögum. Ásta hafði mikla samúð með þeim sem undir höfðu orðið í lífinu og var stuðningsaðili Líknarfélagsins Verndar, þar sem hún vissi að heim- ili var rekið til hjálpar þeim sem undir höfðu orðið í lífsbaráttunni og tilbúnir voru til að hjálpa sér sjálfír. Landakotsspítali var henni kær og naut hún góðrar þjónustu sjúkra- hússins síðustu árin með hjálp Tóm- asar Jónssonar lækriis og starfsfólks. Reyndust þau Ástu mjög vel síðustu ævidagana og gerðu allt er þau gátu fyrir hana. Það er margs að minnast og verð- ur það geymt í minningunni. Fjöl- skylda mín þakkar allar góðar stund- ir. Ég kveð Ástu vinkonu mína og þakka henni allan hlýhug er hún sýndi mér á erfiðum stundum í lífs- ins baráttu. Hún kenndi mér margt sem ég veit að mun nýtast mér vel. Nú er hún kominn til þeirra sem voru henni svo kærir. Hvíli hún í friði. Rósa. í dag kveðjum við Ástríði Einars- dóttur, kæran vin og velunnara. Þau fátæklegu orð sem hér verða sett á blað um Ástríði eru létt á þá vog- arskál mannkærleika og mannúðar, sem hún hefur alla sína ævi sýnt og gefíð af til þeirra, sem lent hafa í ógæfu og farið á skjön við samfélag- ið. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi ári 1989, er ég tók við formanns- starfi hjá Vernd og Fangahjálpinni, að kynnast Ástríði Einarsdóttur. Þá hafði hún í mörg ár styrkt heimili Verndar með höfðingtegum gjöfum. Er fundum okkar bar saman var Ástríður rúmliggjandi á Landakots- spítala, en þar fékk hún ávallt hjálp í veikindum sínum. Viðmót Ástríðar var hlýtt og geislaði af góðvild og mannkærleika og í tali hennar um starf Verndar kom vel í Ijós sú mikla umhyggja sem Ástríður bar fyrir ógæfumönnum. Framkvæmdastjórn Verndar þakkar Ástríði fyrir samfylgdina og sendir ættingjum hennar innilegustu samúðarkveðjur. Birgir Þ. Kjartansson, for- maður Verndar. Inga Þórbjörg Svav- arsdóttir - Minning Einhvem tíma seint í sumarleysinu 1979 vöfrum við hjón um eina mal- bikaða planið í Vanabyggðinni og vitum ei hvað gera skal eftir að hafa árangurslaust knúið dyra á ný- keyptri íbúð okkar til að kanna eitt- hvað nánar og búa þar með í haginn fyrir veturinn. Skyndilega opnast næstu dyr og hressileg rödd segir: „Komið þið sæl og velkomin í húsið. Ég heiti Inga Svavarsdóttir og geymi lyklana fyrir hann Demetz ef þið þurfið eitthvað að komast inn.“ Þannig kom Inga til dyranna, jafn- vel þótt ekki hefði verið á þær drep- ið. Hress í bragði. Hrein og bein. Hraustleg og þróttmikil. Vandræðin leyst á sömu stundu. Svo hefur hún ábyggilega boðið okkur kaffi þarna í kulinu. Norðansteytan hlýnaði við það viðmót sem þama mætti okkur af hendi verðandi granna. Það við- mót kólnaði aldrei - alltaf var hjálp- semin vís. Senn eru liðin fjórtán ár frá því að við keyptum íbúðina. En á þess- ari stundu varð okkur ljóst að í kaup- bæti höfðum við fengið góða granna. Og slíkir eru auði betri, það höfum við oftsinnis fengið að reyna á þess- um tíma. Það var sama hvort biðja þurfti fyrir barn sem ekki fékk leng- ur inni á leikskóla, eða banka upp á í rigningunni miklu um miðja nótt þegar fara þurfti á fæðingardeildina. Alltaf var Inga til staðar. Og þegar við komum heim var búið að föndra eitthvað með barninu, baka kökur sem það flutti með sér yfir um, eða hvað annað sem var. Og í ársfjar- veru okkar skrifaði hún á milli þess sem hún barðist við veikindin, og hringdi þegar hún var of máttfarin til að geta haldið á penna. Inga hafði alltaf tíma fyrir fólk. Húsið fór ekki heldur varhluta af umhyggju hennar. Það var strax sjálfsagt að fela henni lyklavöld að íbúð okkar í fjarveru. Og þá var ekki hætta á því að blómin gleymd- ust, nei, ætli þau hafí ekki oftast lit- ið betur út þegar við komum en fór- um. Og gjaman var búið að slá garð- inn líka og klippa runnana. Svo þurfti að þvo planið og þrífa stéttarnar. í öllu þessu stóð hún, en gætti þess jafnframt að bæta sambýlisfólki sínu í munni þegar ráðist var í slík stór- virki. I fýrrasumar tók hún svo risp- ur í blómabeðunum eða á gluggunum þegar þeir feðgar eða tengdadætum- ar voru ekki heima og hún slapp úr umhyggjusamri gæslu þeirra í veik- indunum. Því að Inga var ekki ein. Oftast nefndum við þau Guðmund bæði í einu og hann hefur ekki átt síðri hlut í hinu góða nágrenni. Það hefur auð- vitað alltaf verið sjálfsagt að ætlast til að hann ætti að lagfæra flest utan- húss á sameigninni. Og allt var þetta alltaf gert eftirtölulaust og af átaka- lausu frumkvæði þeirra hjóna beggja. Synirnir hafa tekið geðgæði þeirra og yfirlætislausan dugnað í arf og fest ráð sitt svo þeim er full- kosta. Fyrsta barnabarnið komið vel á legg, en þau sem á eftir koma fá því miður ekki notið samvista við ömmu sína. Inga var sál hússins. Þannig lifir hún í minningu okkar sem með henni bjuggum. Af þeim kynnum urðum við rík og þökkum. Erlingtir og Sigríður. í dag verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík, ömmusystir mín Ástríður Einarsdóttir, sem varð 91 árs daginn fyrir andlát sitt. Aðr- ir munu eflaust rekja æviferil henn- ar og lífshlaup. Ég mun einungis minnast hennar hér í fáum orðum. Ástríður, eða „Ásta frænka" eins og við systkinin vorum vön að kalla hana, var stórbrotin persóna og ógleymanleg þeim, sem kynntust henni. Hún var stolt af sínum upp- runa, skarpgreind, stálminnug og hafði ríka kímnigáfu. Á sínum yngri árum hafði hún verið vel á sig kom- in líkamlega, æfði m.a. fimleika af kappi. Á ljósmyndum frá konungs- komunni árið 1921 er hún í hópi giæsilegra fimleikastúlkna, er sýndu íþrótt sína við það tækifæri á Mela- vellinum. Sumum hefur eflaust þótt hún heldur stutt í spuna, en þeir sem kynntust henni vel vissu, að undir hörðu yfirborði bjó viðkvæm sál, sem var bæði örlát og hjálpfús. Lífið hafði heldur ekki alltaf leikið við hana, því að bæði börnin hennar dóu úr krabbameini í blóma lífsins. Sjálf barðist hún við afleiðingar þess sjúk- dóms í áratugi án þess að bugast. Eiginmann sinn, Jón Axel Pétursson, missti hún á besta aldri og hún minntist hans ávallt með miklum hlýhug. Ástríður var höfðingi heim að sækja og gerði sér far um að eiga fallegt og hlýlegt heimili. Hún átti stóran kunningjahóp og naut þess að sitja og spjalla um ýmis málefni gjarnan yfir kaffibolla og konjaks- glasi, enda hafði hún ákveðnar skoð- anir á hlutunum og fylgdist ávallt vel með því sem var að gerast í þjóð- félaginu. Allt fram á síðustu æviár spilaði hún brids við vinkonur sínar og stundaði sundlaugarnar sér til hressingar. Hún var ávallt glæsilega til fara og það leyndist engum að þar fór höfðingi. Hún studdi dyggi- lega við bakið á ýmsum góðgerðar- málum og samtökum og oft aðstoð- aði hún lítilmagnann. Þrátt fyrir háan aldur og lasleika bjó hún í húsi sínu á Hringbrautinni fram á síðasta æviár sitt og naut þar góðrar aðstoðar ýmissa aðila og er þar helst að nefna Rósu tengda- dóttur hennar svo og sonarson henn- ar Jón Axel, sem annaðist gömlu konuna af einstakri alúð. Síðari árin urðu ferðir hennar á Landakotsspítalann æ tíðari, en þar naut hún frábærrar hjúkrunar og læknishjálpar. Hjúkrunarfólki, læknum og öðru starfsfólki Landa- kotsspítala skulu hér færðar sérstak- ar þakkir og þá sérstaklega Tómasi Árna Jónssyni lækni. Júlíus Valsson. ERFIDRYKKJUR )f^ Verð frá kr. 850- P E R L A N sími 620200 Erfidrykkjur Glæsileg kaíli- hlaðlwrð íaUegir salirogmjög góð þjónusta. Upplýsiiigítf ísíma22322 FLUGLEIDIR Rim uminiR t Sonur okkar, BJARKI FRIÐRIKSSON, Kambaseli 50, lést fimmtudaginn 13. maí. Þuriður Einarsdóttir, Friðrik Alexandersson. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VIGDÍS BENEDIKTSDÓTTIR frá Bolungarvík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 18. maf, kl. 13.30. Bjarndís Albertsdóttir, Guðbrandur Rögnvaldsson, Margrét Albertsdóttir, Snjáfrfður Árnadóttir, Bára Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, KRISTRÚN HELGADÓTTIR, Þiljuvöllum 33, Neskaupstað, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. maí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Hinriksson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÖRN ALBERT OTTÓSSON, Ólafsvík, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 21. maí kl. 14.00. Rútuferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9.00 um morguninn Magnea Magnúsdóttir, Hrafn Arnarson, Hrönn Þórisdóttir, Helgi F. Arnarson, Gunnhildur Hauksdóttir, Kristinn Arnarson, Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, Albert Arnarson, Sigurrós Úlla Steinþórsdóttir og barnabörn. t Eiginkona mín og móðir, ODDA MARGRÉT JÚLÍUSDÓTTIR, Helgamagrastræti 48, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 19. maí kl. 14.00. Jón Laxdal Halldórsson, Valgerður Dögg Jónsdóttir. t Amma okkar, ÁSTRÍÐUR EINARSDÓTTIR. Hringbraut 53, veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 18. maí, kl. 13.30. Ástríður Guðmundsdóttir, Jón Guðmann Pétursson, Þorvarður Jón Guðmundsson, Jón Axel Pétursson, Halldóra Guðmundsdóttir, Þóra Steinunn Pétursdóttir, Pétur Axel Pétursson. t SIGURÐUR GUNNARSSON, Bjargi, Vfk í Mýrdal, lést á heimili sínu sunnudaginn 16. maí. Útför hans fer fram frá Víkurkirkju laug- ardaginn 22. maí kl. 14.00. Systkinabörn og bróðir hins látna. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er vottuðu okkur samúð með ýmsu móti við andlát og jarðarför SIGRÍÐAR S. BJARKLIND. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsliði öldrunardeildar Borgar- spítalans fyrirfrábæra hjúkrun og umönnun meðan hún dvaldist þar. Fyrir hönd ættingja, Jón Bjarklind.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.