Morgunblaðið - 18.05.1993, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
f€lk í
fréttum
Meðal gesta sem fögnuðu útgáfu bókarinnar voru Ingvar Sigurðs-
son, Arni Harðarson og Valdimar Ornólfsson.
Hjónin Rakel Sigurðardóttir Rosenblad og Dr. Esbjörn Rosenblad
með Islandsbók sína. Myndin er tekin í samkvæmi í Norræna húsinu.
BÓKAÚTGÁFA
Ný bók á ensku
um Island
Iceland from Past to Present"
nefnist ný bók á ensku um
ísland fyrr og nú. Höfundar bók-
arinnar eru hjónin Rakel Sigurð-
ardóttir Rosenblád og Dr. Esbjörn
Rosenblad. Dr. Esbjöm Rosenblad
var lengi sendiráðsritari sænska
sendiráðsins í Reykjavík og hefur
einnig gegnt sendiherraembætti
hér á landi.
Fyrir nokkrum árum kom út
bók um ísland á sænsku eftir Dr.
VAKORIALISTI
|Dags. 18.5.1993. NR. 129
5414 8300 1028 3108
5414 8300 1064 8219
5414 8300 1130 4218
5414 8300 1326 6118
5414 8300 2728 6102
5414 8300 2814 8103
5414 8300 3052 9100
5421 72**
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
| Ofangreind kort eru vákort.
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann. sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
Esbjörn Rosenblad, Island i saga
och nutid, og mæltist hún vel fyr-
ir og fékk afar góða dóma. Nýja
bókin byggir að stórum hluta á
sænsku útgáfunni, en hefur verið
endurskoðuð og aukin. í bókinni
er jöfnum höndum fjallað um
sögu, stjórnmál, menningarmál og
atvinnulíf.
í tilefni útkomu „Iceland from
Past to Present“ var haldið sam-
kvæmi í Norræna húsinu á laugar-
daginn. Þar voru þau hjón hyllt
fyrir starf sitt í þágu íslands og
íslensk-sænskrar menningarsam-
vinnu.
„Iceland from Past to Present"
er 440 bls. Ensk þýðing hennar
er gerð af Alan Crozier. Útgef-
andi er Mál og menning.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300 0004 4817
4507 3900 0003 5316
4507 4300 0014 8568
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0002 1040
Afgreióslufólk vinsamlegast takíö ofangreind
kort úr umlerö og sendið VISA Islandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klðfesta kort og visa á vágest.
mBBSBHiMi
Hðfðabakkay9 • 112 Reykjavfk
Slmi 91-671700
EROBIKK
Með sextíu manns í vinnu
JJinn kunni íslenski erobikk-
kennari Jónína Ben keypti
Aktiverum 1. febrúar 1993 og
hefur síðan þá unnið hvert afrek-
ið af öðru,“ segir í nýlegu hefti
B&K Sportsmagazine, sem er eitt
stærsta íþróttablað á Norðurlönd-
um. Segir þar ennfremur að boð-
ið sé upp á eitt hundrað ólíka tíma
á viku hverri, en mestar vinsæld-
ir vekji fitubrennslutímarnir,
enda hafi verið fullskráð í þá frá
upphafi. Um 8.000 manns hafi
sótt tíma hjá Aktiverum í febrúar
sl. og að nokkrir bestu leiðbein-
endur Svíþjóðar starfi hjá fyrir-
tækinu.
Við slógum á þráðinn til Jón-
ínu, sem búsett er í Helsingborg
til að heyra nánar um starfsemina
og fyrirtækið. „Ég var fram-
kvæmdastjóri hjá Aktiverum sem
var í eigu sex karlmanna. Fyrir-
tækið gekk ekki vel og var nærri
komið í gjaldþrot, því eigendurnir
vildu allir vera í forstjóraleik. Það
varð úr að ég keypti fyrirtækið,
sem er mjög stórt, og breytti öll-
um rekstrinum," segir Jónína.
„Starfsfólk er hér í kringum
sextíu, þar af þrettán sjúkraþjálf-
arar. Ég lét hvern starfsmann
hafa sitt verksvið, þannig að úr
varð fjöldi lítilla stjómenda; ein
stúlka sér um móttökuna, önnur
um þrifin, sjúkraþjálfararnir
starfa sjálfstætt og það sama
má eiginlega segja um kenn-
arana.“
Tveir stórir tækjasalir og
aðrir tveir erobikksalir
Jónína segir að ekki sé hægt
að bera saman starfsemina í þessu
fyrirtæki og Stúdíó Jónínu og
Agústu, því Aktiverum sé miklu
stærra og umsvifameira. Sem
dæmi má nefna, að í húsinu eru
tveir stórir tækjasalir og tveir
erobikksalir.
„Munurinn hjá mér er að ég
get lagt mig fram um að reka
fyrirtækið og þarf ekki að hafa
áhyggjur af því að kenna svo
mikið sjálf. Ég kenni ekki nema
1-2 tíma á dag og get þá einbeitt
mér að markaðssetningunni. Það
hefur skilað sér, því við gerðum
til dæmis stóran samning við
stærsta dagblaðið hér, Helsing-
borgs dagblad. Fyrirtækið er einn-
ig með samning við Reebock,
þannig að þeir borga mjög vel
fyrir auglýsingar.“
Jónína segist byggja starfsem-
ina upp á því að vera með stunda-
skrá með fjöldann allan af tímum,
svipað og þegar hún starfaði á
Íslandi. Ennfremur reyni hún að
fýlgjast með nýjungum. „Nú eru
til dæmis allir kennararnir hjá
mér að fara á ID-ráðstefnuna,
sem er stærsta erobikkráðstefnan
í heiminum. Við verðum þar í viku
og á meðan koma kennarar frá
Gautaborg og sjá um kennslu.
Hjá mér starfa líka tveir íslenskir
kennarar, Guðfínna Sigurðardótt-
ir og Ásgeir Bragason og þau eiga
stóran þátt í að rífa upp staðinn.“
Snýst mikið um fræðslu
Svíar eru komnir mun skemur
í erobikkinu miðað við íslendinga,
að mati Jónínu. „En þeir eru miklu
heilbrigðari en við. Þeir hjóla og
skokka meira; það er ekkert mál
að fara út í skóg og hlaupa, svo
að við höfum aðallega iagt áherslu
á fræðslu. Við höfum m.a. gefið
upplýsingar um hvað á að æfa
mikið og hvaða álag á að vera
við þjálfunina.
Þarna nýtist menntunin mín vel
og með mér vinnur annar íþrótta-
kennari við fræðslu, en sá lærði
einnig í Bandaríkjunum. Þetta er
það sem hefur gert staðinn þann-
ig að fólk lítur upp til hans. Það
hafa komið kennarar alls staðar
að úr Svíþjóð til að sækja nám-
skeið hjá okkur.“
Þegar Jónína er spurð, hvort
hún sé alveg sest að í Svíþjóð,
hlær hún og segir: „Nei, nei, það
er ekkert víst. Það má alltaf selja
eitt fyrirtæki. Ég hef gert það
áður. Þetta eru bara dauðir hlut-
ir. Hins vegar sakna ég mjög
fólksins heima, nemandanna og
ijölskyldunnar. Við Ágústa vorum
einnig mjög samrýndar og áttum
gott með að vinna saman, þó allt-
af hafi einhver verið að reyna að
finna eitthvað til að eyðileggja
það. Við höfum ennþá samband
og það gleður mig mjög að þeim
gengur líka vel.“
Jónínu Benediktsdóttur gengur mjög vel með nýju líkamsræktarstöðina sína í Helsingborg. Svo
vel, að gamlir nemendur frá Islandi koma við hjá henni í tíma eigi leið um borgina. Jónína er hér
(önnur frá vinstri) í hópi starfsmanna stöðvarinnar. Lengst til hægri er Ásgeir Bragason.
BORGARNES
Eldfjörug
árshátíð
*
Arshátíð nemenda Grunnskóla
Borgarness var að þessu sinni
óvenju fjölbreytt enda eldfjörug og
skemmtileg. Álls tóku um 70 nem-
endur á einn eða annan hátt þátt
í árshátíðinni. Aðalatriði dagskrár-
innar voru atriði úr söngleiknum
Grease en auk þess voru mörg
smærri sungin og leikin atriði. Sýn-
ingarnar voru haldnar í Félagsmið-
stöðinni Óðali og hafði miðstöðinni
verið breytt í kaffihús. Sátu sýning-
argestir til borðs og var þeim boðið
upp á kaffi og kleinur á milli at-
riða. Auk kennara við Grunnskóla
Borgarness sáu þau Þröstur Guð-
bjartsson og Eygló Egilsdóttir um
leikstjórn og annan undirbúning.
Morgunbalðið/Theodór
Frá vinstri, Kristín Eyglóardóttir og Guðrún Hildur Jóhannsdóttir taka
létta upphitun fyrir farman spegilinn áður en þær stökkva inn í „Gre-
ase“-leikinn.