Morgunblaðið - 18.05.1993, Qupperneq 56
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
MORGVNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Fótbolti á
sjómanna-
dag útgerð-
unumdýr
ÚTGERÐARMENN í Hafnar-
firði hafa áhuga að breyting
verði gerð á því á að knatt-
spymuleikur sjómanna sé liður
í hátíðarhöldum vegna sjó-
mannadagsins í bænum.
Ástæðan er sú að undanfarin
tvö ár hafa þrír sjómenn orðið
fyrir talsverðum meiðslum í
leiknum og misst allt að sex
mánuði úr vinnu en notið fullra
launa og óskerts aflahlutar á
meðan. Sjómannadagsráð bæj-
arins hefur haft til athugunar
hvort unnt sé að draga úr þeim
hraða og því kappi sem fylgt
hefur leiknum og hefur jafnvel
verið rætt um að sjómenn spili
í sjógöllum.
Jón Guðmundsson, forstjóri
Sjólastöðvarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið
að ekki hefði verið
óskað formlega
eftir því við sjó-
mannadagsráð að
knattspyrnuleik-
urinn yrði felldur
niður, en í ljósi
reynslunnar væru
útgerðir ekki sátt-
ar við það að bera
fulla ábyrgð á
þeim meiðslum sem af leiknum
kunni að hljótast. „Ef menn sem
ekki eru vanir fótbolta fara í hörku-
keppni þá er hætta á slysum og
það hafa hvað eftir annað orðið
fjarvistir sem hafa kostað offjár,“
sagði Jón Guðmundsson.
Hann kvaðst telja að víðar í
kringum landið væru uppi raddir
um að falla frá knattspyrnuleikjum
'á sjómannadegi vegna slæmrar
reynslu af meiðslum.
Beðnir að draga úr kappinu
Karel Karelsson, formaður sjó-
mannadagsráðs í Hafnarfirði, sagði
að knattspymuleiknum yrði ekki
aflýst, en hins vegar hefði verið
haft samband við sjómenn og þeir
beðnir að draga úr kappi sínu við
leikinn. Ýmsar leiðir til að draga
úr hraðanum hefðu komið til tals
en einnig hefði verið rætt lauslega
um möguleika á því að taka sér-
stakar tryggingar vegna þessa.
Allt væri þetta þó enn á umræðu-
stigi.
Veðurfræðingar spá ekki batnandi veðri fyrr en undir helgi
Lítil áhrif
á dýra- og
fuglalífið
Tjaldbúinn á kafi í snjó
EINN af fyrstu gestunum á tjaldstæðinu á Akureyri lét sér fátt um fínnast þó úti geisaði ígildi stórhríðar
um helgina. Þama var á ferðinni hjólreiðamaðurinn Björgvin Hólm sem ætlar sér að nota maímánuð til að
hjóla hringinn í kringum landið. Til Akureyrar kom hann frá Siglufirði og var ferðin nokkuð tímafrek.
Þegar að Lágheiði kom var veðrið ekki upp á það besta né heldur færðin og þurfti Björgvin að ganga með
hjólið á öxlinni í um fjóra klukkutíma yfir heiðina. Hann sagðist hafa tjaldað Ólafsfjarðarmegin við Lág-
heiðina og þar hvíldi hann sig um tíma, gisti tvær nætur í tjaldinu áður en hann hjólaði áleiðis til Akureyrar,
en þangað kom hann á laugardaginn. „Það er bara gaman að þessu,“ sagði Björgvin um leið og hann gáði
til veðurs.
AFDRIF nýfæddra dýra eru
mönnum ofarlega í huga eftir
áhlaupið sem gerði norðan- og
austanlands fyrir helgina.
Skarphéðinn Þórisson líffræð-
ingur á Egilsstöðum segist ekki
óttast að veðrið hafi valdið telj-
andi skakkaföllum. Veðurfræð-
ingar spá því að veðrið batni
ekki að ráði fyrr en undir helgi.
Skarphéðinn sagði að veðrið
hefði getað haft áhrif á nýfædda
hreindýrskálfa, en kýmar bera í
maí. Afdrif kálfanna réðust af því
hvernig veðrið hefði verið norðan
Vatnajökuls. Þar bera flestar kýr
á einum stað vestan við Snæfell.
Aðspurður um fuglalíf sagði
Skarphéðinn að auðnutittlingurinn
væri farinn að verpa, en fyrsta
kynslóðin hugsanlega flogin úr
hreiðrinu. Einhverjar líkur væru
þó á að ungar í hreiðri hefðu drep-
ist. Gæsavarp hefði byijað fyrir
hretið og vitað væri til að fennt
hefði yfir hreiður. Skarphéðinn
sagði dæmi um að smáfuglar, þúfu-
tittlingur, máríuerla og músarrind-
iU, hefðu leitað skjóls í mannabú-
stöðum.
Sjá bls. 25: „Spjó kyngdi ...“
Mat sérfræðinga OECD að of mikil afkastageta sé helsti vandi íslensks sjávarútvegs
Gengisfelling myndi
hægja á hagræðingu
EFNAHAGS- og framfarastofnunin í París (OECD) hefur birt árs-
skýrslu sína um íslensk efnahagsmál. Þar segir að samkeppnishæfni,
afkoma atvinnulífs og viðunandi jöfnuður í utanríkisviðskiptum verði
best tryggð með því að halda aftur af innlendri kostnaðar- og tekjuþró-
un. Grundvallarvanda sjávarútvegs sé ekki að finna í rangri gengis-
skráningu krónunnar, heldur megi fyrst og fremst rekja hann til of
mikillar afkastagetu í greininni.
„Tillaga um Þróunarsjóð sjávarút-
vegsins gengur út á að ráðast til
atlögu við þann vanda. Auk þess
hefur stöðug ofveiði og torræðir
umhverfísþættir haft neikvæð áhrif
á fískistofna. Frekari gengisfelling
kynni því einungis að hægja á óhjá-
kvæmilegri hagræðingu sem sjávar-
útvegurinn stendur frammi fyrir, og
þar með viðhalda þeim óstöðugleika
sem leitt hefur af of lítilli flölbreytni
útflutningsframleiðslunnar," segir í
lokakafla skýrslunnar.
Höfundar skýrslunnar segja einn-
ig að samverkandi áhrif umhverfis-
þátta og ofveiði valdi því að allt eins
megi reikna með að áfram verði
óhjákvæmilegt að draga úr sókn í
þorskstofninn, ef takast eigi að efla
hann og tryggja á þann hátt fram-
gang fiskveiða til lengri tíma. Þá
er talið mjög mikilvægt fyrir stjóm-
völd að ekki verði hróflað við þeim
árangri sem náðst hefur í baráttunni
við verðbólguna og í ríkisfjármálum.
Umskipti hugsanleg á næsta
ári
„Frá sjónarhóli stjórnvalda virðist
óbreytt gengisstefna eðlileg viðmið-
un í komandi kjaraviðræðum í því
skyni að tryggja litlar launabreyt-
ingar svo að vextir, sem reynst hafa
þungir í skauti, geti smám saman
farið lækkandi," segir í skýrslunni.
Skýrsluhöfundar benda á að
næsta ár kunni að verða ár um-
skipta í efnahagslegu tilliti vegna
þróunar á útflutningsmörkuðum,
sem gæti orðið hagstæð, og fyrstu
áhrifa af efnahagssamrunanum í
Evrópu. Ef réttar aðstæður skapist,
sé líklegt að stóriðjuáform á borð
við Atlantsál verði að veruleika fljót-
lega í kjölfarið.
Banaslys varð á
Reykjanesbraut
MAÐUR á miðjum aldri lést í hörðum árekstri þriggja bíla á Reykja-
nesbraut í gærkvöldi. Áreksturinn varð með þeim hætti að bíll manns-
ins fór yfir á rangan vegarhehning og lenti þar I veg fyrir vörubíl
sem kom aðvífandi. Vörubíllinn hafnaði síðan á þriðja bílnum.
Slysið varð um kl. 18.30, skammt
norðan við íþróttavöllinn í Kaplá-
krika. Chevrolet fólksbíl var ekið
norður Reykjanesbrautina og
sveigði hann skyndilega yfír á rang-
an vegarhelming og hafnaði á vöru-
bfl sem ekið var í suðurátt. Vörubíll-
inn hafnaði síðan á afturhluta jap-
ansks fólksbíls sem ekið var í norð-
'urátt á eftir Chevrolet-bflnum.
Tveir slasaðir
Ökumennirnir voru einir í bílun-
um. Tveir þeirra slösuðust en eru
ekki alvarlega slasaðir. Einn bíllinn
er talinn ónýtur en hinir eru mikið
skemmdir. Miklar umferðartafir
urðu á Reykjanesbrautinni vegna
slyssins og þurfti að fjarlægja bfl-
ana með dráttarbílum.
A slysstað
MorgunDiaoio/ingvar
MAÐUR á miðjum aldri lést í þriggja bíla árekstri á Reykjanesbraut-
inni í gærkvöldi. Bifreið hans er gjörónýt.
Breytingar á
Iðnó í sumar
HAFIZT verður handa um end-
urbyggingu Iðnó við Vonar-
stræti í sumar. Húsið, sem hýsa
á menningarmiðstöð í framtíð-
inni, verður fært til fyrra horfs
að utan, nema hvað byggður
verður glerskáli Tjarnarmegin.
í sumar verður húsið lagfært
að utan, en unnið verður að endur-
bótum innanhúss næsta vetur.
Stefnt er að því að húsið verði til-
búið næsta vor. Endurbyggingin á
að kosta um 100 milljónir króna.
Sjá miðopnu: „Glerskáli verð-
ur byggður...“