Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C
122. tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
„Alien“
á uppboði
EMMA Pryke, einn af höf-
undum skrímslanna í „Ali-
en“-myndunum bandarísku,
heldur hér um höfuð sjálfrar
skrímslamóðurinnar en hún
ásamt ýmsum fleiri listaverk-
um kvikmyndanna verður
boðin upp hjá Sotheby’s-upp-
boðboðsfyrirtækinu í London
í næstu viku. Búist er við,
að fyrir skrímslið fáist allt
að tvær og hálf milljón króna.
Reuter
Tyrknesku kvennanna minnst í Solingen
Skora á Kohl að
sækja athöfnina
Bonn. Reuter.
ÞRÝST var á Helmut Kohl kanslara Þýskalands í gær um
að vera viðstaddur minningarathöfn um þrjár stúlkur og
tvær konur sem biðu bana er kveikt var í húsi tyrkneskra
innflytjenda í bænum Solingen sl. laugardag.
Stjórnarandstöðuþingmenn hafa
tekið upp hanskann fyrir innflytj-
endur og í gær skoruðu þingmenn
kristilegra demókrata, flokks
Kohls, einnig á hann að fara til
athafnarinnar. Kom það í kjölfar
mikillar gagnrýni á kanslarann fyr-
ir að segja, að nærvera sín bætti
ekki fyrir það, sem útlendingar
hefðu liðið.
Sextán ára piltur er í haldi grun-
aður um þátttöku í íkveikjunni í
Solingen. Hann var nágranni hinna
látnu og er móðir hans lykilvitni
lögreglunnar. Að sögn lögreglunnar
var framburður piltsins um meinta
samverkamenn rangur en á grund-
velli hans voru myndir af þeim unn-
ar í tölvum og birtust þær í fjölmiðl-
um, m.a. í Morgunblaðinu.
Ráðleysi í málefnum
Bosníu ógnar NATO
Fundur fastafulltrúa árangurslaus og lítils vænst af utanríkisráðherrafundi
Brussel, Saríyevo. Reuter.
ENGINN árangur varð af
fundi fastafulltrúa Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, um
ástandið í Bosníu í Brussel í
gær og óttast margir, að ráð-
leysið og sundurlyndið innan
bandalagsins sé farið að stefna
framtíð þess í voða. Serbar
héldu í gær uppi látlausri stór-
skotahríð á múslimabæinn
Gorazde í Bosníu og höfðu náð
á sitt vald tveimur þorpum í
útjaðri hans og brennt til
grunna.
Fastafulltrúar NATO ræddu í gær
um áætlun Sameinuðu þjóðanna um
griðasvæði í Bosníu fyrir múslima
og hvernig þau yrðu varin en gert
er ráð fyrir að til þess þurfi að
minnsta kosti 60.000 hermenn.
Ætlaði Manfred Wörner, fram-
kvæmdastjóri NATO, að senda Sam-
einuðu þjóðunum bréf með sam-
þykktum fundarins en við það var
hætt enda samstaðan engin.
Algjört klúður
„Þetta var algjört klúður. Við vit-
um ekki í hvorn fótinn við eigum
að stíga eða hvert stefna skuli,"
sagði einn fastafulltrúanna og Wöm-
er hefur látið í ljós ótta við, að gef-
ist þjóðir heims, einkum vestrænar
þjóðir, upp fyrir óöldinni í Júgó-
slavíu kunni það að verða banabiti
viku koma utanríkisráðherrar NATO I Rannsóknir bandarískra vísindamanna á norðurheimskautssvæðinu
saman í Aþenu en margir kváðust
kvíða því, að sá fundur yrðí jafn
marklaus og aðrir.
Gorazde að falla
„Ástandið sums staðar á Gorazde-
svæðinu er víti líkast,“ sagði frétta-
maður útvarpsins í Sarajevo í gær
en þá höfðu Serbar brennt til grunna
tvö þorp í útjaðri bæjarins. Er
Gorazde síðasta meiriháttarvigi
múslima í Bosniu. Er búist við, að
hann muni falla í hendur Serbum á
hverri stundu.
Skotið var í gær af serbneskum
varðbáti á ítalskan fískibát á Adría-
hafi með þeim afleiðingum, að einn
maður lést og annar særðist.
Daglegt líf í Dobrinja
ÍBÚAR í Dobrinja, einu úthverfi Sarajevo,
verða að fara á milli hverfa hálfbognir og á
hlaupum til að verða síður fyrir skoti frá
leyniskyttum Serba. Hér hefur bílhræjum
Reuter
verið hlaðið upp til skjóls en þau mega sín
þó lítils gegn sprengikúlunum. í fyrradag
týndu 15 manns lífi þegar Serbar skutu á
knattspyrnuvöll í borginni.
Fangar
fálauna-
lækkun
Stokkhólmi. Reuter.
FANGAR í Svíþjóð sleppa
ekki frekar en aðrir lands-
menn við afleiðingar efna-
hagssamdráttarins. Nú
hafa launin fyrir fangelsis-
vinnuna verið lækkuð
verulega.
Sænska dómsmálaráðuneyt-
ið ákvað í gær að skera niður
skattfijálsa „vasapeninga"
fanganna um 20% en þá fá
þeir fyrir vinnuna, sem þeir inna
af hendi í fangelsinu. Verða
þeir framvegis rúmar 2.600 kr.
á viku.
Þótt vasapeningar fanganna
séu ekki miklir, þá er nokkuð
um það, að Rússar komi til
Svíþjóðar í þeim tilgangi einum
að bijóta af sér. Bíða þeir síðan
lögreglunnar á vettvangi og
játa á sig allar sakir í von um
þokkalegan fangelsisdóm. Fyrir
þá eru 2.600 kr. í erlendum
gjaldeyri stórfé, sem þeir gætu
aldrei unnið sér inn í Rússlandi.
Mengunin minnkað mikið
New York. Frá Huga ólafssynl, fróttaritara Morgunblaðsins.
MENGUN á norðurheimskautssvæðinu
hefur minnkað um allt að helming frá
því fyrir tíu árum, að því er vísindamenn
við bandarísku Andrúmslofts- og sjávar-
rannsóknarstofnunin segja í nýrri
skýrslu. Þeir þakka það auknum mengun-
arvörnum í Evrópu og Rússiandi og segja
mjög hafa dregið úr líkum á staðbund-
inni hlýnun á norðurslóðum af völdum
iðnaðarlofts.
Vísindamenn urðu fyrst varir við verulega
mengunarmóðu á norðurheimskautssvæðinu á
síðari hluta áttunda áratugarins, sem var rak-
in til útblásturs brennisteinstvísýrings frá verk-
smiðjum í Vestur-Evrópu og Sovétríkjunum.
Þessi mengun náði hámarki nokkrum árum
síðar og margir létu þá í ljós ugg um að hún
gæti valdið staðbundinni hlýnun, sem bræddi
ís og yki á svokölluð gróðurhúsáhrif.
Slíkt hefur ekki orðið raunin, að hluta til
vegna þess að Vestur-Evrópulönd hafa hert
mengunarvarnir til að draga úr súru regni, en
einnig vegna þess að Rússar hafa dregið úr
brennslu á olíu og kolum en nota meira jarðgas
í staðinn. Skýrsla bandarísku vísindamannanna
er byggð á mælingum í Alaska, en þeir telja
hana marktæka fyrir allt norðurheimskauts-
svæðið, þar sem það hafí sýnt sig að mengun-
in dreifðist mjög jafnt þar yfír. Þá benda athug-
anir á Grænlandi til, að þar hafi verulega dreg-
ið úr mengunarmóðunni.