Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
27
Tóftir á Seltjarnarnesi óráðin gáta
SEX til átta hringlaga tóftir,
sú stærsta 20-25 metrar í
þvermál, sjást greinilega úr
lofti vestan Nesstofu á Sel-
tjarnarnesi. Hringirnir hafa
verið mældir en erfitt er að
fullyrða nokkuð um tilurð
þeirra nema að undangeng-
inni rannsókn að sögn Guð-
mundar Olafssonar fornleifa-
fræðings. Guðmundur getur
þess þó að annað hvort sé um
að ræða náttúruleg fyrirbæri
eða leifar af mannvirkjum
sem engar ritaðar heimildir
séu til um.
Eftir því sem Guðmundur segir
er mjög erfitt að fullyrða nokkuð
um tilurð hringanna nema að und-
angenginni rannsókn. Engu að síð-
ur segir hann að hér hljóti annað
hvort að vera um að ræða náttúru-
leg fyrirbæri, t.d. hafi hólar verið
sléttaðir út, eða leifar af mann-
virkjum, sem engar heimildir væru
til um. Þær gætu t.d. tengst út-
ræðri eða búskap og verið svo
dæmi sé nefnt hlutar af fjárbyrgj-
um eða réttum.
Aðspurður sagði Guðmundur að
ekki væri hægt að segja til um frá
hvaða tíma tóftirnar væru og ekk-
ert sérstakt benti til þess að þær
væru frá landnámi. Svo sagði hann
að komið gæti til greina að tóftirn-
ar væri frá ólíkum tímum og
mögulegt væri að eitthvað af þeim
væri af náttúrulegum orsökum og
aðrar ekki. Hann kvað fjölmörg
dæmi um hringlaga tóftir af þessu
tagi á landinu öllu.
Guðmundur sagði að teknar
hefðu verið loftmyndir af svæðinu
fyrir um það bil 13 árum. „Við
komum þá auga á hringina og í
kjölfarið voru þeir skoðaðir á jörðu
niðri. Þarna hefur hins vegar ekk-
ert verið grafíð og því er gátan
enn óráðin,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að ekki stæði til að
rannsaka tóftimar í bráð þó þær
væru forvitnilegar. „Við höfum
engin tök á að sinna öllu eða skoða
allt forvitnilegt. Okkur skortir alla
aðstöðu til þess,“ sagði hann og
minntist þess að varla væri hægt
að hafa undan því sem bráðlægi á.
Þess skal þó getið að samkvæmt
lögum verður að fara fram rann-
sókn á svæðinu ef fara á út í fram-
kvæmdir á því.
Lítið vitað
Morgunblaðið/Bjöm Rúriksson
Hringlaga tóftir
HORFT til suðurs yfir Nesstofu og hringlaga tóftirnar sem merktar eru inn á með pílum. Myndin er tekin kl. 23 þann 25. júlí 1985.
Ferðir SL með eldri borgurum,
Hressari, frískari
og um fram allt
kótari!
Megin markmið „Kátra daga“,
ferða eldri borgara, er að
farþegarnir komi heim hressari,
frískari og um fram allt kátari en
þeir voru fyrir.
Þess vegna er dagskráin létt,
mikið sungið og dansað, málin
rædd í rólegheitum og rómantíkin
blómstrar.
Asthildur Pétursdóttir
fararstjórinn vinsæli.
Mallorca 7.-28. sept.
Gist á Ponent Mar, glæsilegu íbúðarhóteli á Palma Nova ströndinni.
Öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar og loftslagið hressir bætir og kætir!
De Vossemeren, Sælureitur í fíelgíu
13. - 27. ágúst.
Þessi sæluhúsagarður er „bróðir“ hinna hollensku sæluhúsa í Kempervennen.
Gistingin er fyrsta flokks og ótal möguleikar til upplyftingar og dægradvalar.
írland 19. júlí - 2 ágúst.
Skemmtileg rútuferð um alla fegurstu staði írlands
þar sem íslendingum er tekið með brosi á vör.
Kátir haustdagar á Flórída, 16. okt. -2. nóv.
Sigling um Karíbahafið og dvöl á glæsihótelum á Flórídaskaganum.
Ferð sem sæmir höfðingjum!
Kempervennen Eldri en 60 — begra verð
í júní og ágúst gefum við farþegum okkar kost á tilboði sem er vel til þess fallið að
treysta fjölskylduböndin: Ef einn eða fleiri í hópnum er eldri en 60 ára veitum við
veglegan afslátt á gistingu í hollensku sæluhúsunum í Kempervennen.
Samviiniuferðir-Lands ýn
, _ ar .
^ Verði fyrir ^
QATLAS/®
EUROCARD
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60
Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55 • Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbréf 92 - 13 490 • Akureyrl: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 - 1 10 35
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 • Símbréf 98 -1 2792