Morgunblaðið - 03.06.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
29
Deilur innan bandaríska Demókrataflokksins
Þrýst á Clinton um að
reka uppreisnarmenn
Washington. The Daily Telegraph.
STUÐNINGSMENN Bills Clintons Bandaríkjaforseta á Bandaríkja-
þingi hafa hrundið af stað herferð gegn nokkrum af reyndustu þing-
mönnum Demókrataflokksins, sem hundsuðu flokksaga og hollustu
við forsetann og skipulögðu andstöðu við efnahagsstefnu hans. Þess-
ir stuðningsmenn forsetans, sem flestir eru í hópi nýrra þingmanna
í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vilja að þeir sem ákafast börðust
gegn því að fjármálaáætlun forsetans fengi staðfestingu deildarinn-
ar, verði látnir svara til saka.
Nýliðarnir hafa einkum beint
spjótum sínum að formönnum hinna
ýmsu undirnefnda innan fulltrúa-
deildarinnar og vilja þeir að 11
þeirra hið minnsta verði vikið úr
starfi. Segja þeir hinir sömu að
áhrifamiklir og reyndir þingmenn
hafi ekki siðferðislegan rétt til þess
að leggjast gegn helstu baráttumál-
um Demókrataflokksins og Clintons
forseta. Ekki er einungis um að
ræða nýliða á þingi sem eru þessar-
ar hyggju heldur hafa ýmsir þekkt-
ir þingmenn þeirra á meðal Dan
Rostenkowski, sem fer fyrir fjár-
veitinganefnd fulltrúadeildarinnar,
lýst yfir stuðningi við þetta sjónar-
mið.
Clinton sár og bitur
Fjárlagafrumvarp forsetans var
samþykkt í fulltrúadeildinni með
219 atkvæðum gegn 213 í síðustu
viku og herma heimildir að í Hvíta
húsinu hafi menn gerst bæði reiðir
og bitrir er í ljós kom hversu marg-
ir þingmenn demókrata gengu til
liðs við Repúblíkanaflokkinn í at-
kvæðagreiðslu þessari. Demókratar
hafa meirihluta í báðum deildum
Bandaríkjaþings. Sagt er að Bill
Clinton hafi tekið þessari niður-
stöðu þunglega og að forsetinn
hafi lýst yfir því að laun heimsins
væru vanþakklæti er í ljós kom
hversu margir voru tilbúnir til að
láta hollustu við flokk og forseta
lönd og leið. Til þess að ná fram
nauðsynlegum meirihluta varð að
gera ýmsar breytingar á uppruna-
legu fjárlagafrumvai’pi ríkisstjórn-
arinnar.
Alls munu um 80 þingmenn
demókrata í fulltrúadeildinni vera
þeirrar hyggju að refsa beri þeim
sem gegn forsetanum lögðust.
Fremstar í flokki hinna hefnigjörnu
fara tvær þingkonur, þær Leslie
Byrne frá Virginíu og Jolene Unso-
eld frá Washington. „Við erum
mörg þeirrar skoðunar að þeir sem
gegna forustuhlutverki eigi að vera
í brúnni þegar þjóð þeirra þarf á
kröftum þeirra að halda,“ sagði
Jolene Unsoeld. Dyggustu stuðn-
ingmenn Clintons forseta vilja að
formönnum nokkurra undirnefnda
verði vikið úr starfi með tilvísun til
reglu einnar sem kveður á um að
sérstök nefnd á vegum flokksins
geti rekið menn úr slíkum störfum
hafi þeir reynst fláráðir eða verið
staðnir að því að misnota aðstöðu
sína.
Reuter
Franskar, sósa og salat
Borís Jeltsín Rússlandsforseti heilsaði í gær upp á starfsfólk McDon-
alds-skyndibitastaðar sem nýverið var opnaður í Moskvu. Einn slíkur
hefur verið í rekstri í höfuðborg Rússlands frá árinu 1990 og er talið
að tæpar 50 milljónir manna hafi sest þar að snæðingi en nærri iætur
að níu milljónir manna búi í Moskvu. Á myndinni fær forseti Rússlands
sér „frönskurnar" sem ómissandi þykja þegar slík næring er meðtekin.
Fríið í Fenexjum
Aspin dýrkeypt?
Washington. The Daily Telegraph.
FIMM daga hvíld frá annasömu starfi, sem Les Aspin, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, tók sér á Ítalíu ásamt vinkonu
sinni, hefur orðið til þess að bylgja reiði og hneykslunar hefur
risið vestra. Ástæðan er kostnaðurinn við þetta stutta Ieyfi ráð-
herrans en hluta hans munu bandariskir skattgreiðendur bera.
Aspin sem er 54 ára og fráskil-
inn sneri heim til Bandaríkjanna
á þriðjudag og bjó sig undir að
svara spurningum m.a. varðandi
kostnað vegna gistingar þeirra
30 manna sem nutu með honum
veðurblíðunnar í Feneyjum. Með
Aspin í för var Sharon nokkur
Sarton, sem er nokkrum árum
yngri en ráðherrann og í
stjórnunarstöðu hjá stálfyrirtæki
einu vestra.
Ráðherrann réttlaus fangi?
Blaðamenn biðu þeirra Aspins
og ungfrú Sarton á flugvellinum
í Washington en þau vildu ekki
við þá ræða. „Er maðurinn fangi
eða hefur hann rétt til að taka
sér helgarleyfi?“ spurði hins veg-
ar talsmaður Aspins er fjölmiðla-
menn svifu á hann.
Aspin hélt til Evrópu í opinber-
um erindagjörðum. Hann flaug
með Boeing 707 þotu í eigu ríkis-
ins yfir Atlantshafið ásamt 22
manna áhöfn og lífvörðum. Þá
sjö daga sem hann dvaldi í Eyr-
ópu kom hann við í höfuðstöðvum
Atlantshafsbandalagsins
(NATO) í Brussel, var viðstaddur
minningarathöfn um fallna her-
menn við Anzio á Ítalíu og átti
fund með þarlendum varnarmála-
fræðingum í Rómarborg.
Er skyldustörfunum var lokið
naut Aspin lífsins í Feneyjum og
bjó á Hotel Daniele, sem mun
standa undir þeim fimm stjörnum
sem það prýðir. Aspin greiddi
sjálfur fyrir gistinguna og hermt
er að Sharon Sarton hafi boðist
til að greiða þær tæplega 70.000
íslensku krónur sem flugið heim
með ríkisþotunni kostaði.
Kostnaðarsöm
menningarneysla
Vestra hefur það hins vegar
hleypt illu blóði í menn að meðan
þau tvö nutu dásemda ítalskrar
menningar og veðublíðunnar
þrotlausu var áhöfn ríkisþotunn-
ar og níu sérlegum aðstoðar-
mönnum ráðherrans, þeirra á
Les Aspin
meðal herlækni, flotamálasér-
fræðingi og lífvörðum, fyrirskip-
að að vera i „viðbragðsstöðu“.
Fólst hún í því að þeir gistu á
ítölskum gistihúsum á kostnað
skattborgara vestra. Bandarískir
blaðamenn, sem af annálaðri
framtakssemi hafa þaulkannað
verð á hótelherbergjum á Ítalíu,
áætla að kostnaðurinn vegna
aðstoðarmanna forsetans sé tæp-
ast undir 20.000 Bandaríkjadöl-
um eða um ein og hálf milljón
króna. Þessar fréttir koma í kjöl-
far annarra m.a. af þeirri ákvörð-
un Bills Clintons forseta að láta
klippa sig á flugvellinum í Los
Angeles. Kostnaðurinn vegna
tafa á flugumferð sem af þessu
hlaust hefur vakið mikið umtal í
Bandaríkjunum og gárungar þar
nefna þotu forsetans ekki lengur
„Air Force One“ heldur „Hair
Force One“.
Les Aspin hefur sagt að þetta
fylgi starfmu, hann fá tæpast
stigið skref án þess að liðsafli
þessi fylgi í kjölfarið. „Ég væri
sannast sagna ágætlega sáttur
við að fá að vera einn í ró og
næði,“ bætti hann við.
Starfsmaður TV2 sendi gabbfrétt í danska sjónvarpið
Fréttin rættist nokkurn veginn daginn eftir
Kaupmannaliöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
STARFSMAÐUR TV2 sendi á annan í hvítasunnu gabbbréf til danska
sjónvarpsins um að danskir hermenn í liði Sameinuðu þjóðanna í
Sarajevó hefðu sjasast. Fréttin vakti ugg meðal aðstandenda dan-
skra hermanna. Á þriðjudag féllu hins vegar tveir danskir bílstjór-
ar, sem keyrðu hjálpargögn á vegum EB og fjórir félagar þeirra
slösuðust. Þetta er fyrsta mannfall í liði Dana á ófriðarsvæðinu.
Danska sjónvarpið bað TV2 um einn starfsmaður stöðvarinnar með
að senda sér evrópsk fréttaskeyti
um hvítasunnuna, því móttakari
þeirra var bilaður. TV2 er í ríkis-
eign, en fjármögnuð með auglýsing-
um. Af óskiljanlegum ástæðum lét
frétt um að átta danskir hermenn
hefðu slasast í Sarajevó, svo
áhyggjufullir aðstandendur hringdu
unnvörpum í danska herinn, sem
varð að bæta við starfsfólki til að
róa þá. Starfsmaðurinn játaði á sig
skömmina og hefur nú fengið
skömm í hattinn og hótun um brott-
rekstur ef eitthvað í þessa áttina
endurtaki sig.
Á þriðjudag gekk fréttin svo
næstum eftir, því þá létust tveir
danskir bílstjórar í flutningalest
með neyðarhjálp rétt við Sarajevó
og fjórir slösuðust, þegar bílalestin
varð fyrir sprengjuárás.
Eftirspumm eflir eldri
Honda er það mikil, aö við
lílum á notaöa Honda sem
góða greiðslu uppí nýja.
Okkur vantar yfirleitt eldri Honda
til að geta sinnt eftirspurn. Ef þú átt
Honda og hefur hug á að skipta og fá
þér nýja, þá metum við eldri bílinn á
sanngjörnu verði og þú eignast
nýjan Honda fyrirhafnarlítið.
ra '
HONDA
VATNAGÖRÐUM - SlMI 689900
-góð fjárfesting