Morgunblaðið - 03.06.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Barna-
fataverslunin
Endur og hendur flytur
Verslunin Endur og hendur hefur
flutt úr Borgarkringlunni á Grens-
ásveg 16. Verslunin hefur sérhæft
sig í vönduðum ungbarnafatnaði frá
Frakklandi og Ítalíu og hvers kyns
smávöru fyrir yngstu krakkana, og
ýmsu til sængurgjafa. ■
Tinna með
Solbergsgarnið
Nýlega fékk Garnbúðin Tinna í
Hafnarfirði einkaumboð fyrir
norska vefnaðarvörufyrirtækið Sol-
berg. Verslunin hefur flutt inn garn
frá Uldvarefabrik í Noregi en bætir
nú sérhæfðu bómullargarni við fyr-
ir hekl og prjón sem jafnframt er
20-30% ódýrara en sambærileg
garn. ■
2U ia
VIKUNNAR
II — - M É^É
mm lasra sumara iiiuraap?
Stjúpur Hádegisblóm Bóndarós Hansarós Gljávíðir 30-40 cm Birki 50-75 cm Birki 75-100 cm Alaskaösp 125-150 cm Alaskaösp 151-175 cm
Aiaska, Breiðholti, Revkiavík 50 50 540 590 120 200 240 ekki til 450 4ára
Blómaval v/Sigtún, Revkiavik 49 tilboðsverð 50 598 595 110 ekki til 240 ekki til 1.100 hnausplanta 5-6 ára
Gróðrarstöðin Grænahlíð, Furuqerði 23, Revkiavik 50 50 550 590 120 ekki til 320 ekki til 1.600 hnausplanta 6-7 ára
Gróðrarstöðin Mörk, Stiömuqróf 18, Revkiavík 50 50 590 590 120 200 240 ekki til 450 4ára
Skógræktarfélag Reykjav., Fossvoqsbletti 1 50 50 ekki til 590 120 240 650 selt í potti 900 1.100 hnauspl. 5-6 ára hnausplanta 6-7 ára
f-róðrarstöðin Birkihlíð, Biri.'qrund I.Kópavoqi 50 50 550 450 90 240 320 ekki til ekki til
Garopiöntustöðin Lágafell, Miklaholtshreppi 50 50 ekki til ekki til ekki til ekki til 200 ekki tii ekki til
Garðplöntustöð Ásthildar, Isafirði 50 50 400 500 100 ekki til 500 900 ekki til hnausplanta 5-6 ára
Garðyrkjustöðin Rein, Eviafiarðarsveit 50 50 550 560 100 ípottum ekki til ekki til 300 5ára 500 5ára
Skóræktarfél. Eyfirðinga, Kjarnaskógi ekki til ekki til ekki til ekki til 100 ekki til 500 selt í potti 500 selt í potti 2 ára 800 selt i potti 3 árA
Gróðrarstöðin Sólskógar, Vallahreppi ekki til ekki til ekki til ekki til 95 300 350 590 5ára 1.380 hnausplanta 5 ára
Garðplöntusalan Borg, Þelamörk 54, Hveraqerði 40 40 375 550 upps. ekki til ekki til 400 3ára 550 4 ára
Garðyrkjust. Ingibjargar S., Heiðmörk 38, Hveraqerði 40 40 420 450 70 150 600 selt i potti 250 selt í potti 3 ára 600 selt I potti 4 ára
Stjúpurnar í Hveragerði
20% ódýrari en annars staðar á landinu
Kvöldverður hjá
TÖLUVERÐUR kippur kom í garðplöntusölu um hvítasunnu-
helgina. Sölumönnum bar flestum saman um að salan hefði
farið fremur seint af stað í ár og oft hafi verið meira
að gera um þetta leyti. Slæmt tíðarfar telja þeir höfuð-
ástæðuna en einnig sé til í dæminu að sumir hafi nú
minni fjárráð. Flestir reyni þó að fegra garða sína
fyrir 17. júni og búast þeir við mikilli sölu næstu tvær
vikurnar.
Daglegt líf kannaði
verð á algengustu sumar-
blómum og trjáplöntum á
Reykjavíkursvæðinu og úti á
landi. Tekið skal fram að
ekki var um gæðasamanburð að
ræða og hæð plantnanna var látin
ráða verðflokkun en ekki aldur
og fegurð.
Enn sem fyrr eru stjúpur
a r i / ^
fær fólk til au
koma og sjá hvað er í boði
FYRIRTÆKI greiða stundum há-
ar upphæðir fyrir að auglýsa af-
slátt. Nýlega var “Sparihefti
heimilanna" dreift til 80 þús. fjöl-
skyldna. Þar eru afsláttarmiðar
frá 70 fyrirtífikjum sem um leið
auglýsa varning eða þjónustu.
Sturla Pétursson hjá G.Á. Péturs-
syni sagði fyrirtækið veita um 10%
staðgreiðsluafslátt, en 15% afsláttur
er auglýstur af Mongoose hjólum í
heftinu. „Við veitum þennan afslátt
burtséð frá því hvort fólk staðgreið-
ir eða ekki.“ Hann var spurður hvort
ekki væri nær að lækka einfaldlega
verðið: „Tilboð eru söluhvetjandi og
fólki finnst gaman að fá afslátt. Þó
við lækkuðum verðið, myndi fólk
samt vilja afslátt, en það er dæmi
sem ekki gengi upp.“
Jónína Pálsdóttir annar eiganda
fyrirtækisins sem gefur spariheftin
út, sagði að þetta væri í þriðja sinn
sem þau væru gefin út. Áður var
þeim dreift til 40 þús. fjölskyldna
og nú væri stefnt að útgáfu heft-
anna á 2ja mánaða fresti.
Auglýsing í heftinu kostar 82.500
kr. auk virðisaukaskatts og fyrirtæki
sem Daglegt líf ræddi við báru þess-
ari auglýsingaleið vel sögu. „Afslátt-
urinn verður til að fólk kemur frekar
til okkar og kynnist af eigin raun
því sem við bjóðum,“ sagði Heimir
Einarsson á Gauk á Stöng, en veit-
ingahúsið býður handhöfum spari-
hefta 20% afslátt af verði matseðils.
einum frægasta kvenkokki heims
í vinalegu litlu þorpi rétt utan borgarmarka Lúxemborgar rekur einn
frægasti kvenkokkur heims eigin veitingastað. Gestum er ráðlagt að
panta borð fyrirfram því færri komast að en vilja. Lea Linster er
lögfræðingur að mennt, en tók við veitingastaðnum af föður sínum
1985 eftir að veikindi fóru að hrjá hann, segir Lea mér eftir anna-
sama törn í eldhúsinu þetta laugardagskvöld. I þorpinu Frisange, sem
er 12 km frá borginni, búa um 700 manns. Lea segir íslendinga vera
aufúsugesti hjá sér enda sé sérstaklega ánægjulegt að gera þeim til
hæfis.
Á ferð um Lúxemborg fyrir
skömmu áttum við nokkur
mjög huggulega kvöldstund
hjá Leu, sem byrjaði á því að
bjóða okkur velkomin með
kampavíni í vínkjallaranum þar
sem eru heilu stæðurnar af
hinum ýmsu guðaveigum,
flöskur sem kosta frá 600 kr.
—^ og upp í 260 þúsund kr. dýr-
asta rauðvínsflaskan. Þar fyrir
utan hafa kóngulóavefír og tilheyr-
andi fúkkalykt fengið að grassera í
kjallaranum hjá Leu sem að mati
fagmanna tilheyrir í alvöru vínkjall-
ara enda þurfa sumar vínflöskurnar
að geymast í áraraðir áður en ráð-
legt er að dreypa á miðinum. Lea
segir að stilla þurfi hitastigi kjallar-
ans í hóf. Það megi aldrei fara yfír
18 gráður, en algengast er að því
sé haldið í 13-14 gráðum. Hún hefur
þó lítil afskipti af vínkjallaranum.
Eiginmaðurinn er sérfræðingurinn á
því sviði.
Lea ræður aftur á móti ríkjum í
eldhúsinu og gerir það með glæsi-
brag. Þetta kvöld bauð hún upp á
fímm réttaða máltíð. Tveir forréttir
voru humarsalat og karfaréttur.
Kálfakjöt var aðalréttur kvöldsins
og eftirréttirnir karamellubúðingur
og pistage-ís með jarðarbeijum. Og
í lokin var borið fram kaffi og kon-
íak á eftir öllum herlegheitunum.
Slíkur málsverður kostar 5-6 þús.
með borðvíni.
Lea hreppti 1. sætið í Ólympíu-
keppni matargerðarmanna 1989, en
sú keppni er árlega í Lyon í Frakk-
landi. Framlag hennar var lamb í
kartöfluskel og þegar Daglegt líf fór
þess á leit við Leu að fá uppskriftina
af verðlaunaréttinum, var það auð-
sótt mál. Þess má geta að Lea kem-
ur til íslands síðar í sumar til að
elda fyrir sælkera.
Lamb
í kartöfluskel
(fyrir fjóra)
400 g hryggjarstykki, úrbeinað og
sinaskorió
vinsælastar í görðum lands-
manna, enda eru þær öðrum
plöntum harðgerari, litskrúðugar,
blómstra snemma og bera blómin
langt fram eftir hausti. Stjúpur
eru í raun tvíærar en tíðarfar hér
veldur því að yfirleitt Iifa þær
ekki nema eitt sumar. í blóma-
bænum Hveragerði má fá stjúpur
og önnur smáblóm 20% ódýrari
en gengur og gerist annars staðar
á landinu. Gljávíðir, 30-40 sm,
reyndist einnig ódýrastur þar á
70 kr. en dýrastur á þremur stöð-
um í Reykjavík á 120 kr.
Víða eru ýmis sértilboð og
væntanlega verða fleiri þegar líð-
ur á sumarið. í fyrra brast á hálf-
gert stjúpuverðstríð en þá fóru
stjúpurnar sumstaðar niður í í 28
kr. í Gróðrarstöðinni Mörk má fá
40 eins og hálfs árs birkiplöntur
(15-25 sm) í bakka á 900 kr. og
í Blómavali er tilboð á 90 birkig-
ræðlingum (10-15 sm) í bakka á
999 kr. ■
vþj
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Lea Linster, einn frægasti kvenkokkur heims, í eldhúsinu sínu í
Frisange í Lúxemborg.
600 g Bintje-kartölfur
1 msk. söxuó steinselja
salt og pipar
1 dl matarolía
Kartöfluskel
Þrífið kartöflur og rífið. Pressið vatn
úr þeim og steikið á pönnu í sjóð-
heitri matarolíu svo úr verði 5-6 mm
þykk pönnukaka. Steikið bara á
annarri hlið. Þegar pönnukakan er
vel brún setjið hana á viskustykki
með steiktu hliðinni niður. Saltið og
piprið lambið og stráið rifnu skorpu-
lausu brauði yfír kjötið. Stráið stein-
selju á pönnukökuna. Vefjið henni
síðan utan um kjötið og grillið í ofni.
Sósa
Setjið lambabein og mikið af græn-
meti, s.s tómata, hvítlauk, lárviðar-
lauf, timian, rósmarín og ögn af
steinselju í pott. Látið malla I 3-4
klst. sigtið og fleytið fituna af. (Auð-
veldast er að ná fitunni með því að
láta blönduna standa yfír nótt.)
Bætið við rósmarín, smjöri, salti og
pipar.
Þess má að lokum geta að sam-
kvæmt kokkabókum Leu er ákveðin
baunategund matreidd eftir kúnstar-
innar reglum sem meðlæti, en þar
sem baunir þessar eru óþekktar hér
á landi, látum við hér staðar numið
í von um að íslenskir sælkerar láti
sér nægja annars konar meðlæti.