Morgunblaðið - 03.06.1993, Side 48
4»
þw.i i'/ýi, .8 auDAauTK-Mn eiaAia/.uDflOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1993
TISKA
Fallandi veldi fyrirsætanna
Undanfarin fimm ár hafa fyr-
irsæturnar Linda Evange-
lista, Christy Turlington og Naomi
Campbell verið. þær fyrirsætur
sem hvað oftast hafa prýtt forsíð-
ur hinna ýmsu tískutímarita.
Nú eru sögur hins vegar famar
að ganga um það í Bandaríkjunum
að veldi einhverra þeirra, jafnvel
allra, sé í hættu. Orðrómurinn
átti upptök sín nýlega þegar verið
var að kynna Parísartískuna fyrir
haustið. Sagan segir að Naomi
Campbell hafi neitað að taka þátt
í Chanelsýningunni, ef nýliðinn
Tyra Banks yrði líka þátttakandi.
Tyra Banks, sem er mjög ung að
árum, hefur farið óvenjuhratt upp
metorðastigann sem sýningar-
stúlka.
Ekki nóg með það, heldur
gengu þær sögur stuttu síðar, að
fyrirtækið Kenar, sem framleiðir
alls kyns íþróttavörur, hafi ekki
endumýjað samning sinn við
Lindu Evangelistu, en hún hefur
haft fastan samning við fyrirtæk-
ið undanfarin ár. Þykir Linda
hafa misst spón úr aski sínum,
því samningurinn var feitur biti.
Kenar valdi dönsku fyrirsætuna
Helenu Christensen, sem hefur
átt velgengni að fagna að undan-
förnu. Þá hefur Steven Meisel,
einn uppáhaldsljósmyndari Lindu,
misst af Bamey-auglýsingum sem
■ Linda Evangelista
■ missti samning við
■ fyrirtækið Kenar.
hann hefur haft samning við í
nokkurn tíma og Linda hefur vak-
ið athygli fyrir. í hans stað var
ráðinn tæplega þrítugur Breti,
Corinne Day. Sá hinn sami valdi
Kate Moss sem fyrirsætu í auglýs-
ingarnar, en þó er Kate Moss
ekki spáð langri glæstri framtíð
fyrir sér eins og Linda, Christy
og Naomi hafa átt.
Táningurinn Tyra
Banks hefur klifið
metorðastigann
mjög hratt.
Kate Moss fékk
auglýsingu Lindu
Evangelistu, en er
þó ekki spáð löng-
um ferli á toppin-
um.
Helena Christensen
er sú sem einna
mestar vonir eru
bundnar við.
KIRKJAN
Reynivalla
prestakall
vísiterað
Herra Ólafur Skúlason biskup
vísiteraði Reynivallapresta-
kall nú síðast í maí. Mánudaginn
17. maí var endurhæfingarstöð
SÁÁ að Vík heimsótt ásamt Ungl-
ingaheimili ríkisins að Tindum og
var endað í hádegisverði á Geðdeild
Borgarspítalans að Arnarholti. Eftir
hádegi voru kirkjurnar að Brautar-
holti, Saurbæ og Reynivöllum skoð-
aðar og'að lokinni heimsókn var
gestum boðið í matarveislu í Ás-
garðsskóla.
Sunnudaginn 23. maí var messað
í kirkjunum þrem, kl. 10.30, 13.30
og 15.00 og predikaði herra Ólafur
Skúlason, en sóknarprestur sr.
Gunnar Kristjánsson þjónaði fyrir
altari.
Vísitasían endaði með kaffi-
drykkju í Fólkvangi að söfnuðinum
viðstöddum. Við það tækifæri
töluðu herra Ólafur Skúlason, sr.
Bragi Friðriksson prófastur og sr.
Gunnar Kristjánsson. Þeir Brautar-
holtsbræður Páll og Jón Ólafssynir
þökkuðu gestum fyrir komuna.
Morgunblaðið/Hjalti
Séra Bragi Friðriksson og herra Ólafur Skúlason reyna líkams-
ræktartæki sem Lionsklúbburinn Víðarr gaf að Arnarholti.
Jóhannes Pálmason framkvæmdastjóri Borgarspítalans sést í
baksýn.
Við bjóðum landsins
mesta úrval
af veiðivörum
(og stöndum við það)
Við altarið á Arnarholti. F.v. Jóh"nns Pálmason, framkvæmda-
stjóri Borgarspítalans, sóknarpresturinn sr. Gunnar Kristjáns-
son, herra Ólafur Skúlason biskup og sr. Bragi Friðriksson
prófastur.
Góð byrjun á veiðitúr!
félk f
fréttum
f