Morgunblaðið - 03.06.1993, Page 53
MOK(SUNEWU)lt), FLMMTÚPAGUR 3- ;J.UN1:1993
STJÚPBÖRN
STÓRKOSTLEG GAMANMYND
UM RUGLAÐ FJÖLSKYLDULÍF!
Aðalhlutverk: Hillary Jocelyn Wolf
(Home alone), David Strathairn
(Silkwood) og Margaret Whitton
(9 i/í Weeks)
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FEILSPOR
*★★★ EMPIRE
★ ★★MBL. ★★★✓, DV
Einstök sakamálamynd,
sem hvarvetna hefur fengið
dúnduraðsókn og frábæra
dóma.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
NEMÓ LITLI
★ ★★ Al Mbl.
Teiknimynd með ísl. tali og söng.
Sýnd 5 og 7.
HÖRKUTÓL
Lögreglumaður fer huldu
höfði hjá mótorhjólaköppum.
Sýnd kl.9og11.
Bönnuð innan16 ára.
ÚtilífsskóK skáta hefur störf
Frá starfsemi Útilífsskólans sl. sumar.
ÚTILÍFSSKÓLI skáta
mun nú í sumar starfa sem
undanfarin ár. Skólinn er
rekinn af skátafélögum í
Reykjavík í samvinnu við
Bandalag íslenskra skáta,
Skátasamband Reykjavík-
ur, Landssamtökin
Þroskahjálp og Öryrkja-
bandalag Islands.
Á námskeiðum skólans
starfa fatlaðir við hlið ann-
arra þátttakenda. Tvenns-
konar námskeið verða í boði
nú í sumar. Annars vegar
eru það tveggja vikna nám-
skeið með fjölbreyttri dag-
skrá alla daga sem enda á
útilegu í skátaskála. Hins-
vegar eru það tvö kvöld auk
einnar helgar þar sem aðalá-
herslan er lög á útivist, út-
búnað, náttúruskoðun auk
almennra ferðamennsku.
Markmið skólans eru þau
sömu og skátahreyfingarinn-
ar, þ.e. að þroska börn og
unglinga til að verða sjálf-
stæðir, virkir og ábyrgir ein-
staklingar í þjóðfélaginu.
Hópvinna, krefjandi við-
fangsefni af ýmsum toga og
útilíf eru meginþættir í starfi
skólans.
Stjórnenedur skólans eru
reyndir skátaforingjar sem
hafa meðal annars starfað í
skólabúðum á Úlfljótsvatni
auk þroskaþjálfa.
Skráning og nánari upp-
lýsingar er að fá í Skátahús-
inu, Snorrabraut 60, 2. hæð.
(Fréttatilkynning)
Blómakynmng 1 Kringlimni
Dagana 3.-5. júní verða blóma- og garðdagar í Kringl-
unni. Þar er hægt að gera góð kaup á ýmsu fyrir garð-
inn, en einnig verður veitt ráðgjöf og kynningar verða
á staðnum. Göngugötum Kringlunnar verður breytt í
blómabreiðu, á meðan á markaðnum stendur.
Meðal þeirra aðila sem
selja eru Skógræktarfélag
Reykjavíkur með tijá- og
runnagróður, Skógrækt rík-
isins, sem selur harðgerðar
plöntur til jarðvegsbindingar,
og garðyrkjustöðvamar
Garðyrkjustöð Ingibjargar
Sigmundsdóttur og Gróðr-
arstöðin Lundur, sem munu
annast sölu á sumarblómum
og ljölærum plöntum. Blóma-
verslunin Sólblóm mun selja
pottaplöntur og afskorin
blóm ásamt fjölmörgu til
garðverkanna og blómaversl-
unin Dalía kynnir silkiblóm í
garðinn.
Kynning verður á starf-
semi Garðyrkjuskóla ríkisins,
sýnd sérstök dvergtré, sem
nefnast bonzai-tré, og sér-
stök kynning verður á vörum
frá Áburðarverksmiðju ríkis-
ins á vegum Byggt & búið.
Settur verður upp sólpallur á
vegum BYKO, þar sem sýnd
eru garðhúsgögn, skjólgirð-
ingar, ásamt því að ráðgjöf
verður veitt á staðnum. Ýmis
önnur ráðgjöf verður einnig
á staðnum og má nefna að
skrúðgarðaráðgjöf verður á
vegum íslensku umhverfis-
þjónustunnar og hinn lands-
þekkti óli Valur Hansson
verður viðskiptavinum
Kringlunnar innan handar
milli kl. 15 og 18 fimmtudag
Myndin segir frá Leslie
Zevo, sem erfír leikfanga-
verksmiðju eftir föður sinn.
Leslie er sannkallaður furðu-
fugl, en er engu að síður
staðráðinn í því að halda
uppi merki föður síns. Hann
og föstudag og milli kl. 12
og 16 á laugardag.
í Pennanum er lögð
áhersla á garðyrkjurit og
-bækur og í Hagkaup verður
grillkynning í nýrri garðvöru-
og grilldeild í matvöruversl-
uninni. Á laugardag verður
Vífílfell með kynningu á nýja
Fanta-drykknum og sýnd
verða stutt ballet-atriði í til-
efni „Blómavalsins" í Kringl-
unni.
á í mikilli baráttu við einn
léttgeggjaðan frænda sinn,
sem vill yfirtaka og breyta
rekstri verksmiðjunnar.
Verður þessi barátta þeirra
á milli hin skoplegasta.
(Úr fréttatilkynningu.)
Sagabíó frumsýnir
myndina“Leikföng“
SAGA-BÍÓ hefur í dag sýniugar á myndinni „Leikföng“
eða „Toys“. Myndin er framleidd af Barry Levinson og
Mark Johnson og leikstjóri er Barry Levinson, en hann
hefur gert myndir á borð við „Rain man“, Good Morning
Vietnam" og „Bugsy“. í aðalhlutverkum eru Robin Will-
iams og Michael Gambon.
m
SÍMI: 19000
GOÐSÖGNIN
Spennandi hrollvekja af
bestu gerð
Mynd sem fór beint á
toppinn í Englandi
Árið 1890 var ungur
maður drepinn á
hrottalegan hátt.
Árið 1992 snýr
hann aftur...
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stranglega bönnuð
innan 16 ára.
OLÍKIR HEIMAR
Aðalhlutverk: Melanie Griffith.
Leikstjóri: Sidney Lumet.
„Besta ástarsaga síðustu ára“
★ ★★★ GE-DV
Sýnd kl. 5 og 9.
FERÐIN TIL VEGAS
★ ★★ MBL. Frábær gaman-
mynd með Nicolas Cage og
James Caan.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LOFTSKEYTA-
MAÐURINN
Meiriháttar gamanmynd sem
kosin var vinsælasta myndin á
Norrænu kvikmyndahátíðinni
'93 í Reykjavík.
★ ★ ★GE-DV
★ ★ ★Mbl.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
ENGLASETRIÐ
★ ★ ★ Mbl.
Sýnd kl. 7og 11.
SIÐLEYSI
★ ★ ★ Va MBL.
★ ★ ★ Pressan ★ ★ ★ Tíminn
Aðalhlutv.: Jeremy Irons og
Juliette Binoche.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
B.i. 12 ára.
Bmðubfllinn flautar tíl leiks
Morgunblaðið/Einar Falur
Starfsfólk Brúðubílsins, f.v.: Hörður Svavarsson, Helga
Steffensen, Jason Ólafsson og Sigríður Hannesdóttir.
FRUMSÝNING Brúðubíls-
ins verður fimmtudaginn
3. júní kl. 14 í Hallargarð-
inum við Fríkirkjuveg 11.
Þar er Iþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur-
borgar til húsa en Brúðu-
billinn starfar á vegum þess
í júní og júlí ár hvert.
Brúðubíllinn er barna-úti-
leikhús og líklega eina útileik-
hús landsins sem starfað hef-
ur reglulega í 16 sumur. Það
er Brúðuleikhús Helgu Stef-
fensen sem hannað hefur sýn-
ingarnar í síðstliðin 13 sum-
ur, eða frá árinu 1980.
Brúðubíllinn sýnir á öllum
gæsluvöllum borgarinnar og
á nokkrum öðrum útivistar-
svæðum. Hver sýning tekur
hálfa klukkustund og farið
er tveim sinnum á hvern völl.
Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir.
Tveir söngleikir á
dagskrá
Fyrri söngleikurinn, sem
sýndur verður í júní, heitir
„Nú gaman, gaman er,“ og
sá siðari, sem sýndur verður
í júlí, heitir Bimm-Bamm.
Leikritin eru eftir Helgu Stef-
fensen, það fyrra að nokkru
byggt á tékknesku ævintýri.
Helga hannar einnig brúður
og leiktjöld og stjórnar brúð-
unum ásamt þeim Sigríði
Hannesdóttur, Herði Svans-
syni og Jason Ólafssyni sem
er bílstjóri og tæknimaður
leikhússins. Sigriður semur
líka flestar vísumar sem em
sungnar.
Raddir brúðanna em á
bandi þar sem erfitt er að
tala beint á útisýningum. Það
eykur líka fjölbreytni í rödd-
um en setur vissar skorður í
samleik við börnin. Það eru
leikaramir Edda Heiðrún
Backman, Þórarinn Eyfjörð
og Sigrún Edda Björnsdóttir
ásamt þeim Helgu og Sigríði
sem ljá brúðunum raddir sín-
ar. Helga er leikstjóri og að-
stoðarleikstjóri er Sigrún
Edda. Magnús Kjartansson
sér um tónlistina.
Dagskráin
Þess má geta vegna fjölda
fyrirspurna um dagskrána i
sumar að „Dagbók Morgun-
blaðsins“ mun birta hvar
Brúðubíllinn sýnir.
(Fréttatilkynning)
--------» ♦ 4--------
■ AUSTURRÍSKI bjór-
inn Kaiser Premium, sem
er 5,4% að styrkleika miðað
við rúmmál, er nú aftur fáan-
legur á Islandi. Um er að
ræða flöskubjór, 24 stk. pr.
kassa. Austurríski framleið-
andinn hefur flutt bjórinn inn
á frísvæðið í Reykjavík, b.t.
Tollvörugeymslan hf., og
býður hann á verði, sem er
samkeppnishæft við aðrar
innfluttar bjórtegundir. Út-
söluverð á bjórnum frá ÁTVR
er nálægt 4.000 kr. pr. kassa,
en verðið getur verið lítillega
breytilegt; eftir því hversu
miklar pantanir berast ÁTVR
dag hvem. Kaiser Premium
bjórinn var á sínum tíma einn
af þremur erlendum bjórteg-
undum, sem fyrst var hafínn
innflutningur á, eftir að bjór-
banninu lauk árið 1989. Um-
boðsaðili fyrir Keiser Prem-
ium bjórinn er Útgarður sf.
Reykjavík.
(Fréttatilkynning)