Morgunblaðið - 03.06.1993, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTÍJDAGUR 3. JÚNÍ 1993
57
ISHOKKI / URSLIT NHL-DEILDARINNAR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Gretzky alK í öllu
WAYNE Gretzky, íshokkíkóng-
urinn í NHL-deildinni, var allt í
öllu hjá Los Angeles Kings,
þegar liðið sótti Montreal heim
í fyrrinótt og vann 4:1. Gretzky
átti þátt í öllum mörkunum í
þessum fyrsta úrslitaleik lið-
anna um Stanleybikarinn og sá
til þess að Montreal tapaði
fyrsta heimaleik sínum í úr-
slitakeppninni.
Kings hefur ekki fyrr leikið til
úrslita, en Montreal er í 35.
skipti í úrslitum. Kings, sem sigraði *
Toronto í undanúrslitum með frá-
bærri frammistöðu í sjöttu og sjö-
undu viðureign félaganna, hélt
áfram á sömu braut, en Montreal
var ekki með á nótunum eftir átta
daga hlé.
Gretzky lagði upp þrjú mörk og
gerði eitt fyrir Kings, en átti einnig
hlut að máli, þegar Montreal jafn-
aði 1:1 í fyrsta leikhluta eftir að
Robitaille hafði skorað. Gretzky
reyndi að komast inní sendingu og
gerði það — skoraði í eigið mark.
„Við vorum spenntir og höfum nú
leikið þijá mjög góða leiki í röð, en
þetta er rétt að byija,“ sagði
Gretzky. „En Jacques Demers
[þjálfari Montreal] kann vel til
verka. Hann undirbýr lið sitt vel
fyrir annan leik,“ sagði sá besti,
sem átti síðasta orðið og gerði þá
14. mark sitt í úrslitakeppninni.
Kings sótti stöðugt allan leikinn,
en til að byija með var vöm liðsins
frekar óörugg. Það kom ekki að
sök, því Kelly Hrudey, markvörður,
bjargaði meistaralega hvað eftir
annað en alls varði hann 31 skot.
Robitaille kom gestunum aftur
yfir í öðmm leikhluta, en Roy,
markvörður heimamanna, kom í
veg fyrir fleiri mörk í leikhlutanum.
Finninn Jari Kurri skoraði í byrjun
þriðja leikhluta, níunda mark hans
í úrslitakeppninni og 102. í úrslita-
keppni á ferlinum, en hann er næst-
ur í röðinni á eftir Gretzky, sem
hefur gert 109 mörk til þessa.
Opna Selfoss!
Opna Selfossmótið í golfi fer fram á Svarfhóls-
velli við Selfoss laugardaginn 5. júní 1993.
Leiknar verða 18 holur, punktar samkvæmt
Stableford 7/8 forgjöf.
Verðlaun verða veitt fyrir 10 efstu sætin.
Aukaverðlaun eru fyrir að vera næstur holu
á 4./13. braut og 7./16. braut.
Ræst verður út frá kl. 8.00-10.30 og 13.00-
15.30. Rástíma er hægt að panta frá kl. 16.00
föstudaginn 4. júní í golfskálanum eða í síma
98-23335.
Mótanefnd GOS.
LITLI
ÍÞRÓTIASKÓLINN
LAUGARVATNI
Stórkostlegt tækifæri fyrir10-13árastelpurogstráka
í Litla íþróttaskólanum að Laugarvatni. Boðið erupp á
frábæra aðstöðu, hollan mat, fyrsta flokks
leiðbeinendurog heimsókn þekktra íþróttamanna.
Auk flestra íþróttagreina verður einnig boðiðuppá
ratleiki, fjallgöngur, bátsferðir og kvöldvökur.
Tímabil.
2. júlí-9. júlí (7dagar)
9. júlí-16. júlí (7dagar)
16. júlí - 23. júlí (7dagar)
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS
LAUGARVATNI
Látið ekki þetta tækifæri framhjá ykkur fara. Pantið
strax, því takmarkaður fjöldi kemst að. Allar nánari
upplýsingarveitir skrifstofa íþróttamiðstöðvar íslands
að Laugarvatni.
Sími 98-61147, 98-61151 og fax: 98-61255
Reuter
Wayne Gretzky (númer 99) fagnar fyrsta markinu með Luc Robitaille,
sem skoraði, en Gretzky lagði það upp.
Baridey fór á kostum
CHARLES Barkley, leikmaður-
inn snjalli hjá Phoenix Suns,
var greinilega búinn aö fá nóg
af skrifunum um Michael Jord-
an, þegar hann mætti til leiks
í fimmta ieikinn gegn Seattie
SuperSonics - og hefur eflaust
hugstaö; Nú er komið að mér.
„Ég sagði við strákana að
koma knettinum til mín allan
leikinn og það tókst," sagði
Barkley, sem setti persónulegt
met í úrslitakeppni NBA í leikn-
um, sem Phoenix vann,
120:114. Hannsetti 43stig, tók
15 f ráköst, átti 10 stoðsending-
ar og náði 100% nýtingu úr
vítaskotum - setti ellefu ofan
í körfuna.
Barkley og Dan Majerle, 34 stig,
báru lið Phoenix uppi og jafnaði
Majerle NBA-met í úrslitakeppninni,
með þvi að skora átta
Gunnar þriggja stiga körfur,
Valgeirsson en hann skaut tíu
skrifar þnggja stiga skotum.
Chuck Person hjá
Indiana Pacers skoraði síðast átta
þriggja stiga körfur 1991.
Phoenix, sem er yfir 3-2 í leikjum
í úrslitakeppni austurdeildarinnar,
Reuter
Charles Barkley átti stórleik gegn
Seattle.
getur komist í úrslitakeppni NBA í
fyrsta skipti í 17 ár, eða síðan félag-
ið tapaði fyrir Boston Celtic 1976.
Til þess að komast í úrslit verður
félagið að vinna Seattle heima í næsta
leik. „Þetta var mjög mikilvægur sig-
ur fyrir okkur, því að við verðum að
koma í veg fyrir að leikmenn Seattle
fái sjöunda leikinn og tækifæri til að
klára dæmið á heimavelli," sagði
Barkley.
Viðureign félaganna var spenn-
andi. Þegar ein mín. var til leiksloka
var staðan 111:108. Þegar 34 sek.
voru eftir stal Sean Kemp knettinum
- brunaði með hann fram völlinn og
tróð honum í körfuna, 111:110. Dan
Majerle svaraði með þriggja stiga
skoti, 114:110, þegar 20 sek. voru
til leiksloka og gerði út um leikinn.
Eftir það skiputsu liðin að skora úr
vítaskotum og lokastaðan var
120:114.
Sean Kemp skoraði 33 stig fyrir
Seattle og Ricky Pierce 27.
Wilkens til Atlanta
Lenny Wilkens, fyrrum þjálfari
Clevelands, sem sagði starfi sínu
lausu hjá félagsins eftir sjö ára starf,
var í fyrradag ráðinn þjálfari Atlanta
Hawks. Það er ljóst að hann mun
stokka vel upp hjá Atlanta, en hann
er mjög skipulagður þjálfari með
ákveðnar skoðanir. „Eg er mjög
ánægður að Wilkens sé kominn til
okkar. Hann er mjög góður þjálfari,
sem stjómar eins og herforingi,"
sagði Dominique Wilkins, leikmaður-
inn sterki hjá Atlanta.
Vatnagörðum - Sími 689900
Vorum að fá nýja sendingu af mótorhjólum
CBR-600F
Vét Vökvakækl 100 hestafta.
4ra sftokka, 16 wnda DOHC inIine-4
Honda CB-750
jji Vét Loftkækl 73ja hestafia,
4ra strokka, 16 venda DOHC inline-4
Honda CBR-900RR
Vét Vökvakæld 124 hestaía,
4ra strokka, 16 ventla D0HC inSne-4