Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTÍJDAGUR 3. JÚNÍ 1993 57 ISHOKKI / URSLIT NHL-DEILDARINNAR KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Gretzky alK í öllu WAYNE Gretzky, íshokkíkóng- urinn í NHL-deildinni, var allt í öllu hjá Los Angeles Kings, þegar liðið sótti Montreal heim í fyrrinótt og vann 4:1. Gretzky átti þátt í öllum mörkunum í þessum fyrsta úrslitaleik lið- anna um Stanleybikarinn og sá til þess að Montreal tapaði fyrsta heimaleik sínum í úr- slitakeppninni. Kings hefur ekki fyrr leikið til úrslita, en Montreal er í 35. skipti í úrslitum. Kings, sem sigraði * Toronto í undanúrslitum með frá- bærri frammistöðu í sjöttu og sjö- undu viðureign félaganna, hélt áfram á sömu braut, en Montreal var ekki með á nótunum eftir átta daga hlé. Gretzky lagði upp þrjú mörk og gerði eitt fyrir Kings, en átti einnig hlut að máli, þegar Montreal jafn- aði 1:1 í fyrsta leikhluta eftir að Robitaille hafði skorað. Gretzky reyndi að komast inní sendingu og gerði það — skoraði í eigið mark. „Við vorum spenntir og höfum nú leikið þijá mjög góða leiki í röð, en þetta er rétt að byija,“ sagði Gretzky. „En Jacques Demers [þjálfari Montreal] kann vel til verka. Hann undirbýr lið sitt vel fyrir annan leik,“ sagði sá besti, sem átti síðasta orðið og gerði þá 14. mark sitt í úrslitakeppninni. Kings sótti stöðugt allan leikinn, en til að byija með var vöm liðsins frekar óörugg. Það kom ekki að sök, því Kelly Hrudey, markvörður, bjargaði meistaralega hvað eftir annað en alls varði hann 31 skot. Robitaille kom gestunum aftur yfir í öðmm leikhluta, en Roy, markvörður heimamanna, kom í veg fyrir fleiri mörk í leikhlutanum. Finninn Jari Kurri skoraði í byrjun þriðja leikhluta, níunda mark hans í úrslitakeppninni og 102. í úrslita- keppni á ferlinum, en hann er næst- ur í röðinni á eftir Gretzky, sem hefur gert 109 mörk til þessa. Opna Selfoss! Opna Selfossmótið í golfi fer fram á Svarfhóls- velli við Selfoss laugardaginn 5. júní 1993. Leiknar verða 18 holur, punktar samkvæmt Stableford 7/8 forgjöf. Verðlaun verða veitt fyrir 10 efstu sætin. Aukaverðlaun eru fyrir að vera næstur holu á 4./13. braut og 7./16. braut. Ræst verður út frá kl. 8.00-10.30 og 13.00- 15.30. Rástíma er hægt að panta frá kl. 16.00 föstudaginn 4. júní í golfskálanum eða í síma 98-23335. Mótanefnd GOS. LITLI ÍÞRÓTIASKÓLINN LAUGARVATNI Stórkostlegt tækifæri fyrir10-13árastelpurogstráka í Litla íþróttaskólanum að Laugarvatni. Boðið erupp á frábæra aðstöðu, hollan mat, fyrsta flokks leiðbeinendurog heimsókn þekktra íþróttamanna. Auk flestra íþróttagreina verður einnig boðiðuppá ratleiki, fjallgöngur, bátsferðir og kvöldvökur. Tímabil. 2. júlí-9. júlí (7dagar) 9. júlí-16. júlí (7dagar) 16. júlí - 23. júlí (7dagar) ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS LAUGARVATNI Látið ekki þetta tækifæri framhjá ykkur fara. Pantið strax, því takmarkaður fjöldi kemst að. Allar nánari upplýsingarveitir skrifstofa íþróttamiðstöðvar íslands að Laugarvatni. Sími 98-61147, 98-61151 og fax: 98-61255 Reuter Wayne Gretzky (númer 99) fagnar fyrsta markinu með Luc Robitaille, sem skoraði, en Gretzky lagði það upp. Baridey fór á kostum CHARLES Barkley, leikmaður- inn snjalli hjá Phoenix Suns, var greinilega búinn aö fá nóg af skrifunum um Michael Jord- an, þegar hann mætti til leiks í fimmta ieikinn gegn Seattie SuperSonics - og hefur eflaust hugstaö; Nú er komið að mér. „Ég sagði við strákana að koma knettinum til mín allan leikinn og það tókst," sagði Barkley, sem setti persónulegt met í úrslitakeppni NBA í leikn- um, sem Phoenix vann, 120:114. Hannsetti 43stig, tók 15 f ráköst, átti 10 stoðsending- ar og náði 100% nýtingu úr vítaskotum - setti ellefu ofan í körfuna. Barkley og Dan Majerle, 34 stig, báru lið Phoenix uppi og jafnaði Majerle NBA-met í úrslitakeppninni, með þvi að skora átta Gunnar þriggja stiga körfur, Valgeirsson en hann skaut tíu skrifar þnggja stiga skotum. Chuck Person hjá Indiana Pacers skoraði síðast átta þriggja stiga körfur 1991. Phoenix, sem er yfir 3-2 í leikjum í úrslitakeppni austurdeildarinnar, Reuter Charles Barkley átti stórleik gegn Seattle. getur komist í úrslitakeppni NBA í fyrsta skipti í 17 ár, eða síðan félag- ið tapaði fyrir Boston Celtic 1976. Til þess að komast í úrslit verður félagið að vinna Seattle heima í næsta leik. „Þetta var mjög mikilvægur sig- ur fyrir okkur, því að við verðum að koma í veg fyrir að leikmenn Seattle fái sjöunda leikinn og tækifæri til að klára dæmið á heimavelli," sagði Barkley. Viðureign félaganna var spenn- andi. Þegar ein mín. var til leiksloka var staðan 111:108. Þegar 34 sek. voru eftir stal Sean Kemp knettinum - brunaði með hann fram völlinn og tróð honum í körfuna, 111:110. Dan Majerle svaraði með þriggja stiga skoti, 114:110, þegar 20 sek. voru til leiksloka og gerði út um leikinn. Eftir það skiputsu liðin að skora úr vítaskotum og lokastaðan var 120:114. Sean Kemp skoraði 33 stig fyrir Seattle og Ricky Pierce 27. Wilkens til Atlanta Lenny Wilkens, fyrrum þjálfari Clevelands, sem sagði starfi sínu lausu hjá félagsins eftir sjö ára starf, var í fyrradag ráðinn þjálfari Atlanta Hawks. Það er ljóst að hann mun stokka vel upp hjá Atlanta, en hann er mjög skipulagður þjálfari með ákveðnar skoðanir. „Eg er mjög ánægður að Wilkens sé kominn til okkar. Hann er mjög góður þjálfari, sem stjómar eins og herforingi," sagði Dominique Wilkins, leikmaður- inn sterki hjá Atlanta. Vatnagörðum - Sími 689900 Vorum að fá nýja sendingu af mótorhjólum CBR-600F Vét Vökvakækl 100 hestafta. 4ra sftokka, 16 wnda DOHC inIine-4 Honda CB-750 jji Vét Loftkækl 73ja hestafia, 4ra strokka, 16 venda DOHC inline-4 Honda CBR-900RR Vét Vökvakæld 124 hestaía, 4ra strokka, 16 ventla D0HC inSne-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.