Morgunblaðið - 03.06.1993, Page 58

Morgunblaðið - 03.06.1993, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993 c'>p'« Sviss 7 Ítalía 7 7 Portúgal 5 Malta 8 Eistland 6 HM-keppnin 1. RIÐILL Aberdeen, Skotlandi: Skotland - Eistland................... Brian McClair (18.), Pat Nevin 2 (27., 72. - vítasp.) - Sergei Bragin (57.). 14.307. Staðan: ..7 5 2 0 18 : 4 12 ..7 4 2 1 15 : 6 10 ..7 3 2 2 10 : 9 8 5 2 2 1 8:4 6 8 116 3 :17 3 5 1 :15 1 2. RIÐILL Ósló, Noregi: Noregur - England...................2:0 Oeyvind Leon Hardsen (42.), Lars Bohinen (48.). 22.500. Staðan: Noregur..............6 5 1 0 20: 3 11 England..............7 3 3 1 16: 6 9 Holland..............6 3 2 1 17: 8 8 Pólland..............5 3 2 0 8: 3 8 Tyrkland.v...........8 1 1 6 7:17 3 San Marínó...........8 0 1 7 1:32 1 Næsti leikur: Holland - Noregur 9. júnt. 3. RIÐILL Kaupmannahöfn, Danmörku: Danmörk - Albanfa..................4:0 John Jensen (11.), Frank Pingel 2 (20., 40.), Peter Möller (28.). 39.503. Riga, Eistlandi: Eistland - N-trland................1:2 Einars Linards (55.) - Jim Magilton (4.), Gerry Taggart (15.). 2.000. Vilnius, Litháen: Litháen - Spánn....................0:2 - Julen Guerrero 2 (73., 77.). 7.000. Staðan: Spánn............... 9 5 3 1 18: 2 13 Danmörk............. 8 4 4 0 9: 1 12 írland.............. 7 4 3 0 12: 2 11 N-írland............ 9 4 2 3 11:11 10 Litháen............. 9 2 3 4 8:14 7 Lfttland............10 0 5 5 4:17 5 Albanía.............10 1 2 7 5:20 4 4. RIÐILL Kosice, Slóvakíu: Tékkó/Slóvakia - Rúmenfa............5:2 Brabec (13.), Latal (37.), Dubovsky 3 (58., 84., 90.) - Hagi 2 (28., 53.). 15.000. Staðan: Belgia...............8 7 0 1 15: 3 14 Rúmenía..............7 4 1 2 21:10 9 Tékkó/Slóvakía.......6 2 3 1 13: 7 7 Wales................6 3 1 2 11: 8 7 Kýpur................8 2 1 5 8:13 5 Færeyjar.............7 0 0 7 1:28 0 6. RIÐILL Stokkhólmur, Svíþjóð: Svíþjóð - ísrael....................5:0 Thomas Brolin 3 (17., 41., 65.), Par Zetter- berg (55.), Stefan Landberg (89.). 22.000. Staðan: Svíþjóð..............6 5 0 1 13: 3 10 Frakkland............6 5 0 1 11: 4 10 Búlgaría.............7 4 1 2 12: 7 9 Austurríki...........6 2 0 4 9:10 4 Finnland.............5 1 0 4 4: 9 2 Ísrael. ..6 0 1 5 5:21 1 Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð: Höttur - Þróttur N...............4:0 Haraldur Klausen 2, Gunnar Leifsson, Heimir Hailgrímsson. ■Höttur mætir Einherja á Vopnafirði í 2. umferð næsta miðvikudag. 2. deild kvenna Haukar - Reynir S................3:2 Bergþóra Laxdal, Selma Sigurðardóttir, Lóa B. Gestsdóttir - Heiða Haraldsdóttir, Linda Helgadóttir. Höttur-KBS.......................5:0 Helga Hreinsdóttir 2, Hugrún Hjálmars- dóttir, Olga Einarsdóttir, Einarína Einars- dóttir. Æfingaleikur Kópavogsvöllur: ísland - Svíþjóð U 20............1:2 Bryndís Valsdóttir (41.) - Janet Törnquist (35.), Rebecca Ingemarson (40.). Ahorfendur: Um 50. Staðan Staðan er þessi í 5. riðli: Rússland 6 4 2 0 12: 2 10 Grikkland 6 4 2 0 6: 1 10 ísland 6 1 2 3 4: 6 4 Ungverjaland....5 113 4: 6 3 Luxemborg 5 0 1 4 1:12 1 KNATTSPYRNA Náðiaðsetja skósól- ann í hann - sagði Eyjólfur Sverrisson um mark sitt |2Jjólfur Sverrisson var einn besti leikmaður íslands í gær og gerði markið. „Sendingin frá Amari [Gunnlaussyni] var mjög góð. Ég tók gabbhreyfingu í fjærhornið en fór í nærhomið og boltinn kom alveg á réttum tíma og ég náði að setja skó- sólann í hann og í netið,“ sagði Eyj- ólfur um markið. „Það var allt önnur barátta í liðinu núna en í Lúxemborg. Við vomm vakandi frá upphafí og lékum vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. Rússamir em mjög góðir og það var erfítt að halda þetta út á fullu. Við bökkuðum full mikið eftir markið, en getum verið sáttir við annað stigið. Það er ekki gefíð að ná öðm stiginu gegn Rússum.“ Gott að ná öðru stiginu „Ég er mjög sáttur við jafnteflið og það er gott að ná öðru stiginu gegn Rússum. Það var mikil barátta í liðinu og allir lögðu sig 110 prósent fram,“ sagði Birkir Kristinsson, markvörður. „Við hefðum getað unn- ið með smá heppni og hefðum líka auðveldlega getað tapað. Liðið datt niður á hælana eftir að við náðum forystu, en Rússar náðu þó ekki að skapa sér mörg færi. Ég átti ekki mikla möguleika er Kiijakov skor- aði. Hann koma á ferðinni og ég kom út á móti og reyndi að loka nærhom- inu en hann setti boltann í fjærhom- ið,“ sagði Birkir. Anægður með stig- ið, en ekki leikinn sagði Pavel Sadyrine, þjálfari Rússlands Pavel Sadyrine, þjálfari Rúss- lands, var ánægður með stigið, sem tryggði liðinu sæti í úrslita- keppni HM í Bandaríkjunum að ári, en að sama skapi var hann ósáttur með frammistöðu sinna manna. „Við þurftum eitt stig til að tryggja farseðilinn til Bandaríkjanna og aðalatriðið var að ná í hann, en ég er ekki ánægður með hvernig við fórum að því. Við lékum ekki eins og um var rætt og liðið getur betur. Strákamir sköpuðu sér mörg mark- tækifæri en nýttu þau ekki eins og efni stóðu til,“ sagði hann við Morg- unblaðið. fslendingar sóttu meira lengst af í fyrri hálfleik og uppskáru eins og til var sáð. Varstu rólegur í stöðunni 1:0 fyrir ísland? „Knattspymumenn og þjálfarar með ábyrgð era alltaf hræddir og búast við hinu versta, en ég taldi ekki raunhæfa möguleika á tapi, þó knattspyrnan sé þannig leikur að ávallt megi búast við öliu og aldrei sé hægt að segja fyrirfram um hvað gerist." Um íslenska liðið sagði þjálfarinn: „Það kom mér ekki á óvart. Leik- mennirnir sýndu mikið hugrekki og börðust. Allir stóðu fyrir sínu, en númer 11 [Eyjólfur Sverrisson] var lang bestur." KNATTSPYRNA / KONUR Tap gegn Svíum í Kópavogi KVENNALANDSLIÐI Svía undir 20 ára tókst naumlega aö bera sigurorð af A-liði íslands, 1:2, á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Eftir frábæran fyrri hálfleik dróg af íslendingum og öll mörkin komu undir leikslok. Svíarnir vora fljótari og reyndu skyndisóknir en barátta íslend- inga var mjög góð og oft brá fyrir góðum samleik sem gaf góð færi. Eftir hlé dróg af íslensku stúlkunum og Logi Ólafsson þjálfari skipti nokkrum varamönnum inná svo gestimir komust meira inní leik- Stefán Stefánsson skrifar inn. Á 35. mínútu skoraði Janet Tömquist með skalla af stuttu færi eftir homspyrnu og Rebecca Ingem- arson notaði sömu aðferð fimm mín- útum síðar þegar Svíar komust í 0:2. Bryndís Valsdóttir minnkaði muninn mínútu síðar. „Þær reyndu það sem við höfum æft og það er jákvætt. Við sofnuðum í fimm mínútur í seinni hálfleik og það má ekki gegn svona góðu liði. Það er staðreynd að íslenskar knatt- spyrnukonur verða að komast í betra líkamlegt form ef þær vilja ná lengra. Ég er ekki að kasta rýrð á þjálfar- ana en svona er þetta bara,“ sagði Logi þjálfari en þetta var fyrsti leik- ur landsliðsins undir hans stjórn. BADMINTON / HM I BIRMINGHAM Broddi og Ámi hársbreidd frá sigri Broddi Kristjánsson og Ámi Þór Hallgrímsson voru aðeins hársbreidd frá sigri á fímmta besta pari heims á heimsmeistaramótinu í badminton í Birmingham í gær- kvöldi. Leikurinn gegn Teerwiwat- ana og Thongsari frá Tælandi var gríðarlega spennandi, en nokkur mistök á þýðingarmiklum augna- blikum kostuðu Islendinga sigurinn. Broddi og Árni komust í 9:1 í fyrstu lotu og 10:5 en síðan kom slæmur kafli og Tælendingamir unnu lotuna 12:15. Seinni lotan þróaðist svipað, íslendingamir komust í 5:0 og 7:4 en síðan snér- ist leikurinn við og tapaðist 10:15. Birna Petersen og Guðrún Júlíus- dóttir léku tvíliðaleik kvenna í 3. umferð í gær gegn Irinu og Sabine frá Austurríki og töpuðu 3:15 og 4:15. Þar með er keppni íslendinga á mótinu lokið. Morjfunblaðið/Bjami Eiríksson Izudln Daði Dervlc lék sinn fyrsta landsleik í gær. Hér horfír hann angistar- augum á Serguei Kiijakov, sem er búinn að stinga sér í gegnum vömina og er í þann mund að „hleypa af“ og skora eina mark Rússa. Snöggtum betra en síðast - sagði Guðni Bergsson fyrirliði íslenska liðsins Þetta var snöggt um betra held- ur en í síðasta leik og ég held að menn geti verið ánægðir með leikinn og úrslitin,“ sagði Guðni Bergsson fyrirliði íslenska lands- liðsins. „Við ætluðum okkur að byija af krafti, þeir voru óöruggir með sig og við fengum góðar opnan- ir og spiluðum vel á miðjunni. Þeir efldust við fyrsta markið og í síðari hálfleik voru þeir meira með bolt- ann. Ég held að við verðum að vera glaðir með jafntefli á móti Rússum, miðað við tækifæri og styrkleika voru úrslitin meira en ásættanleg,“ sagði Guðni. Pressuna vantaði er á leið „Fyrri hálfleikurinn var góður hjá okkur. Við náðum upp góðri pressu í byijun en það vantaði er á leið. Rússar eru með mjög sterkt lið og miðað við slakt gengi í síð- asta leik eru þessi úrslit ánægjuleg. Þetta gefur góð fyrirheit um næsta leik“ sagði Arnar Gunnlaugsson eftir leikinn. Úrslitln hleypa skapi í hópinn „Menn geta verið sáttir við úrslit- in miðað við tækifærin sem þeir fengu í síðari hálfleik. Við ætluðum okkur að pressa stíft og það gekk vel í fyrri hálfleik en það var mikil keyrsla á okkur strax í byijun og það var erfitt að halda henni," sagði Arnór Guðjohnsen. „Þessi úrslit peppa strákana upp, mér skilst að gagnrýnin hafi verið mikil á liðið eftir leikinn gegn Lúxemborg, og þessi úrslit rétta við móralinn og hleypa skapi í hópinn,“ sagði Arnór. Gaman en jafnf ramt erfitt „Það er alltaf gaman en jafn- framt erfitt að spila fyrsta leikinn," sagði Izudin Daði Dervic eftir leik- inn, sem var hans fyrsti en eflaust ekki sá síðasti fyrir íslands hönd. „Við verðum að vera ánægðir með jafntefli á móti Rússum, sem eru með eitt sterkasta lið í Evrópu. Þetta eru allt saman atvinnumenn sem leika á Ítalíu, í Þýskalandi og víðar og það var mjög erfitt að spila gegn þeim,“ sagði Daði. Að- spurður sagðist hann lítið geta dæmt um eigin frammistöðu, það væri annarra að segja til um það. „Hjá Rússum fannst mér Kitjakov bestur, lítill en fljótur og ótrúlega snöggur að snúa sér við,“ sagði Dervic. FOLK ■ EYJÓLFUR Sverrisson fór útaf meiddur er 7 mínútur voru eftir. Hann fékk spark í lærvöðva rétt fyrir ofan hné. „Ég fékk slæmt spark og það blæddi inná vöðvan og því bað ég um skiptingu," sagði Eyjólfur. ■ ARNAR Gunnlaugsson, sem lagði upp markið, var herbergisfé- lagi Eyjólfs fyrir leikinn. Þeir hafa því náð að stilla sig saman á Holiday Inn hótelinu miðað við samvinnu þeirra í markinu. „Við vorum búnir að ákveða að gera þetta einmitt svona,“ sagði Arnar eftir leikinn og glotti. Þetta var þriðja landsliðsmark Eyjólfs. ■ ÓLAFUR Þórðarson þurfti að skipta um skó er hálftími var eftir af leiknum. Krafturinn var það mikill f Ólafi að hann var búinn að spæna takkana undan skónum. ■ ARNÓR Guðjohnsen var með flensu og settur á pensilín fyrir leik- inn. „Ég var drulluslappur og hálf- partinn á hælunum,“ sagði Arnór, sem var augsýnilega mjög slappur eftir leikinn. Hann var elsti leikmað- urinn á vellinum, 32 ára. ■ BIRKIR Kristinsson, _ mark- vörður, hefur staðið í marki íslands síðustu 14 leikjum, eða frá þvf Ásgeir Elíasson tók við liðinu í september 1991. ■ ÍSLAND fór uppfyrir Ung- verjaland í 5. riðli undankeppninn- ar með jafnteflinu við Rússa í gær. ísland hefur 4 stig og er í þriðja sæti, en Ungverjar eru með 3 stig. Grikkir höfðu þegar tryggt sér þátttökurétt á HM í Bandaríkjun- um og í gær færðum við Rússum farseðilinn á HM.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.