Morgunblaðið - 03.06.1993, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
c'>p'«
Sviss 7
Ítalía 7
7
Portúgal 5
Malta 8
Eistland 6
HM-keppnin
1. RIÐILL
Aberdeen, Skotlandi:
Skotland - Eistland...................
Brian McClair (18.), Pat Nevin 2 (27., 72.
- vítasp.) - Sergei Bragin (57.). 14.307.
Staðan:
..7 5 2 0 18 : 4 12
..7 4 2 1 15 : 6 10
..7 3 2 2 10 : 9 8
5 2 2 1 8:4 6
8 116 3 :17 3
5 1 :15 1
2. RIÐILL
Ósló, Noregi:
Noregur - England...................2:0
Oeyvind Leon Hardsen (42.), Lars Bohinen
(48.). 22.500.
Staðan:
Noregur..............6 5 1 0 20: 3 11
England..............7 3 3 1 16: 6 9
Holland..............6 3 2 1 17: 8 8
Pólland..............5 3 2 0 8: 3 8
Tyrkland.v...........8 1 1 6 7:17 3
San Marínó...........8 0 1 7 1:32 1
Næsti leikur: Holland - Noregur 9. júnt.
3. RIÐILL
Kaupmannahöfn, Danmörku:
Danmörk - Albanfa..................4:0
John Jensen (11.), Frank Pingel 2 (20.,
40.), Peter Möller (28.). 39.503.
Riga, Eistlandi:
Eistland - N-trland................1:2
Einars Linards (55.) - Jim Magilton (4.),
Gerry Taggart (15.). 2.000.
Vilnius, Litháen:
Litháen - Spánn....................0:2
- Julen Guerrero 2 (73., 77.). 7.000.
Staðan:
Spánn............... 9 5 3 1 18: 2 13
Danmörk............. 8 4 4 0 9: 1 12
írland.............. 7 4 3 0 12: 2 11
N-írland............ 9 4 2 3 11:11 10
Litháen............. 9 2 3 4 8:14 7
Lfttland............10 0 5 5 4:17 5
Albanía.............10 1 2 7 5:20 4
4. RIÐILL
Kosice, Slóvakíu:
Tékkó/Slóvakia - Rúmenfa............5:2
Brabec (13.), Latal (37.), Dubovsky 3 (58.,
84., 90.) - Hagi 2 (28., 53.). 15.000.
Staðan:
Belgia...............8 7 0 1 15: 3 14
Rúmenía..............7 4 1 2 21:10 9
Tékkó/Slóvakía.......6 2 3 1 13: 7 7
Wales................6 3 1 2 11: 8 7
Kýpur................8 2 1 5 8:13 5
Færeyjar.............7 0 0 7 1:28 0
6. RIÐILL
Stokkhólmur, Svíþjóð:
Svíþjóð - ísrael....................5:0
Thomas Brolin 3 (17., 41., 65.), Par Zetter-
berg (55.), Stefan Landberg (89.). 22.000.
Staðan:
Svíþjóð..............6 5 0 1 13: 3 10
Frakkland............6 5 0 1 11: 4 10
Búlgaría.............7 4 1 2 12: 7 9
Austurríki...........6 2 0 4 9:10 4
Finnland.............5 1 0 4 4: 9 2
Ísrael.
..6 0 1 5 5:21 1
Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð:
Höttur - Þróttur N...............4:0
Haraldur Klausen 2, Gunnar Leifsson,
Heimir Hailgrímsson.
■Höttur mætir Einherja á Vopnafirði í 2.
umferð næsta miðvikudag.
2. deild kvenna
Haukar - Reynir S................3:2
Bergþóra Laxdal, Selma Sigurðardóttir, Lóa
B. Gestsdóttir - Heiða Haraldsdóttir, Linda
Helgadóttir.
Höttur-KBS.......................5:0
Helga Hreinsdóttir 2, Hugrún Hjálmars-
dóttir, Olga Einarsdóttir, Einarína Einars-
dóttir.
Æfingaleikur
Kópavogsvöllur:
ísland - Svíþjóð U 20............1:2
Bryndís Valsdóttir (41.) - Janet Törnquist
(35.), Rebecca Ingemarson (40.).
Ahorfendur: Um 50.
Staðan
Staðan er þessi í 5. riðli:
Rússland 6 4 2 0 12: 2 10
Grikkland 6 4 2 0 6: 1 10
ísland 6 1 2 3 4: 6 4
Ungverjaland....5 113 4: 6 3
Luxemborg 5 0 1 4 1:12 1
KNATTSPYRNA
Náðiaðsetja
skósól-
ann í hann
- sagði Eyjólfur Sverrisson um mark sitt
|2Jjólfur Sverrisson var einn besti
leikmaður íslands í gær og
gerði markið. „Sendingin frá Amari
[Gunnlaussyni] var mjög góð. Ég tók
gabbhreyfingu í fjærhornið en fór í
nærhomið og boltinn kom alveg á
réttum tíma og ég náði að setja skó-
sólann í hann og í netið,“ sagði Eyj-
ólfur um markið.
„Það var allt önnur barátta í liðinu
núna en í Lúxemborg. Við vomm
vakandi frá upphafí og lékum vel,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Rússamir
em mjög góðir og það var erfítt að
halda þetta út á fullu. Við bökkuðum
full mikið eftir markið, en getum
verið sáttir við annað stigið. Það er
ekki gefíð að ná öðm stiginu gegn
Rússum.“
Gott að ná öðru stiginu
„Ég er mjög sáttur við jafnteflið
og það er gott að ná öðru stiginu
gegn Rússum. Það var mikil barátta
í liðinu og allir lögðu sig 110 prósent
fram,“ sagði Birkir Kristinsson,
markvörður. „Við hefðum getað unn-
ið með smá heppni og hefðum líka
auðveldlega getað tapað. Liðið datt
niður á hælana eftir að við náðum
forystu, en Rússar náðu þó ekki að
skapa sér mörg færi. Ég átti ekki
mikla möguleika er Kiijakov skor-
aði. Hann koma á ferðinni og ég kom
út á móti og reyndi að loka nærhom-
inu en hann setti boltann í fjærhom-
ið,“ sagði Birkir.
Anægður með stig-
ið, en ekki leikinn
sagði Pavel Sadyrine, þjálfari Rússlands
Pavel Sadyrine, þjálfari Rúss-
lands, var ánægður með stigið,
sem tryggði liðinu sæti í úrslita-
keppni HM í Bandaríkjunum að ári,
en að sama skapi var hann ósáttur
með frammistöðu sinna manna.
„Við þurftum eitt stig til að
tryggja farseðilinn til Bandaríkjanna
og aðalatriðið var að ná í hann, en
ég er ekki ánægður með hvernig við
fórum að því. Við lékum ekki eins
og um var rætt og liðið getur betur.
Strákamir sköpuðu sér mörg mark-
tækifæri en nýttu þau ekki eins og
efni stóðu til,“ sagði hann við Morg-
unblaðið.
fslendingar sóttu meira lengst af
í fyrri hálfleik og uppskáru eins og
til var sáð. Varstu rólegur í stöðunni
1:0 fyrir ísland?
„Knattspymumenn og þjálfarar
með ábyrgð era alltaf hræddir og
búast við hinu versta, en ég taldi
ekki raunhæfa möguleika á tapi, þó
knattspyrnan sé þannig leikur að
ávallt megi búast við öliu og aldrei
sé hægt að segja fyrirfram um hvað
gerist."
Um íslenska liðið sagði þjálfarinn:
„Það kom mér ekki á óvart. Leik-
mennirnir sýndu mikið hugrekki og
börðust. Allir stóðu fyrir sínu, en
númer 11 [Eyjólfur Sverrisson] var
lang bestur."
KNATTSPYRNA / KONUR
Tap gegn Svíum
í Kópavogi
KVENNALANDSLIÐI Svía undir
20 ára tókst naumlega aö bera
sigurorð af A-liði íslands, 1:2,
á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Eftir frábæran fyrri hálfleik
dróg af íslendingum og öll
mörkin komu undir leikslok.
Svíarnir vora fljótari og reyndu
skyndisóknir en barátta íslend-
inga var mjög góð og oft brá fyrir
góðum samleik sem
gaf góð færi. Eftir
hlé dróg af íslensku
stúlkunum og Logi
Ólafsson þjálfari
skipti nokkrum varamönnum inná
svo gestimir komust meira inní leik-
Stefán
Stefánsson
skrifar
inn. Á 35. mínútu skoraði Janet
Tömquist með skalla af stuttu færi
eftir homspyrnu og Rebecca Ingem-
arson notaði sömu aðferð fimm mín-
útum síðar þegar Svíar komust í 0:2.
Bryndís Valsdóttir minnkaði muninn
mínútu síðar.
„Þær reyndu það sem við höfum
æft og það er jákvætt. Við sofnuðum
í fimm mínútur í seinni hálfleik og
það má ekki gegn svona góðu liði.
Það er staðreynd að íslenskar knatt-
spyrnukonur verða að komast í betra
líkamlegt form ef þær vilja ná lengra.
Ég er ekki að kasta rýrð á þjálfar-
ana en svona er þetta bara,“ sagði
Logi þjálfari en þetta var fyrsti leik-
ur landsliðsins undir hans stjórn.
BADMINTON / HM I BIRMINGHAM
Broddi og Ámi hársbreidd frá sigri
Broddi Kristjánsson og Ámi Þór
Hallgrímsson voru aðeins
hársbreidd frá sigri á fímmta besta
pari heims á heimsmeistaramótinu
í badminton í Birmingham í gær-
kvöldi. Leikurinn gegn Teerwiwat-
ana og Thongsari frá Tælandi var
gríðarlega spennandi, en nokkur
mistök á þýðingarmiklum augna-
blikum kostuðu Islendinga sigurinn.
Broddi og Árni komust í 9:1 í
fyrstu lotu og 10:5 en síðan kom
slæmur kafli og Tælendingamir
unnu lotuna 12:15. Seinni lotan
þróaðist svipað, íslendingamir
komust í 5:0 og 7:4 en síðan snér-
ist leikurinn við og tapaðist 10:15.
Birna Petersen og Guðrún Júlíus-
dóttir léku tvíliðaleik kvenna í 3.
umferð í gær gegn Irinu og Sabine
frá Austurríki og töpuðu 3:15 og
4:15. Þar með er keppni íslendinga
á mótinu lokið.
Morjfunblaðið/Bjami Eiríksson
Izudln Daði Dervlc lék sinn fyrsta landsleik í gær. Hér horfír hann angistar-
augum á Serguei Kiijakov, sem er búinn að stinga sér í gegnum vömina og er
í þann mund að „hleypa af“ og skora eina mark Rússa.
Snöggtum betra
en síðast
- sagði Guðni Bergsson fyrirliði íslenska liðsins
Þetta var snöggt um betra held-
ur en í síðasta leik og ég held
að menn geti verið ánægðir með
leikinn og úrslitin,“ sagði Guðni
Bergsson fyrirliði íslenska lands-
liðsins. „Við ætluðum okkur að
byija af krafti, þeir voru óöruggir
með sig og við fengum góðar opnan-
ir og spiluðum vel á miðjunni. Þeir
efldust við fyrsta markið og í síðari
hálfleik voru þeir meira með bolt-
ann. Ég held að við verðum að vera
glaðir með jafntefli á móti Rússum,
miðað við tækifæri og styrkleika
voru úrslitin meira en ásættanleg,“
sagði Guðni.
Pressuna vantaði er á leið
„Fyrri hálfleikurinn var góður
hjá okkur. Við náðum upp góðri
pressu í byijun en það vantaði er
á leið. Rússar eru með mjög sterkt
lið og miðað við slakt gengi í síð-
asta leik eru þessi úrslit ánægjuleg.
Þetta gefur góð fyrirheit um næsta
leik“ sagði Arnar Gunnlaugsson
eftir leikinn.
Úrslitln hleypa skapi í hópinn
„Menn geta verið sáttir við úrslit-
in miðað við tækifærin sem þeir
fengu í síðari hálfleik. Við ætluðum
okkur að pressa stíft og það gekk
vel í fyrri hálfleik en það var mikil
keyrsla á okkur strax í byijun og
það var erfitt að halda henni," sagði
Arnór Guðjohnsen. „Þessi úrslit
peppa strákana upp, mér skilst að
gagnrýnin hafi verið mikil á liðið
eftir leikinn gegn Lúxemborg, og
þessi úrslit rétta við móralinn og
hleypa skapi í hópinn,“ sagði Arnór.
Gaman en jafnf ramt erfitt
„Það er alltaf gaman en jafn-
framt erfitt að spila fyrsta leikinn,"
sagði Izudin Daði Dervic eftir leik-
inn, sem var hans fyrsti en eflaust
ekki sá síðasti fyrir íslands hönd.
„Við verðum að vera ánægðir með
jafntefli á móti Rússum, sem eru
með eitt sterkasta lið í Evrópu.
Þetta eru allt saman atvinnumenn
sem leika á Ítalíu, í Þýskalandi og
víðar og það var mjög erfitt að
spila gegn þeim,“ sagði Daði. Að-
spurður sagðist hann lítið geta
dæmt um eigin frammistöðu, það
væri annarra að segja til um það.
„Hjá Rússum fannst mér Kitjakov
bestur, lítill en fljótur og ótrúlega
snöggur að snúa sér við,“ sagði
Dervic.
FOLK
■ EYJÓLFUR Sverrisson fór
útaf meiddur er 7 mínútur voru
eftir. Hann fékk spark í lærvöðva
rétt fyrir ofan hné. „Ég fékk slæmt
spark og það blæddi inná vöðvan
og því bað ég um skiptingu," sagði
Eyjólfur.
■ ARNAR Gunnlaugsson, sem
lagði upp markið, var herbergisfé-
lagi Eyjólfs fyrir leikinn. Þeir hafa
því náð að stilla sig saman á
Holiday Inn hótelinu miðað við
samvinnu þeirra í markinu. „Við
vorum búnir að ákveða að gera
þetta einmitt svona,“ sagði Arnar
eftir leikinn og glotti. Þetta var
þriðja landsliðsmark Eyjólfs.
■ ÓLAFUR Þórðarson þurfti að
skipta um skó er hálftími var eftir
af leiknum. Krafturinn var það
mikill f Ólafi að hann var búinn
að spæna takkana undan skónum.
■ ARNÓR Guðjohnsen var með
flensu og settur á pensilín fyrir leik-
inn. „Ég var drulluslappur og hálf-
partinn á hælunum,“ sagði Arnór,
sem var augsýnilega mjög slappur
eftir leikinn. Hann var elsti leikmað-
urinn á vellinum, 32 ára.
■ BIRKIR Kristinsson, _ mark-
vörður, hefur staðið í marki íslands
síðustu 14 leikjum, eða frá þvf
Ásgeir Elíasson tók við liðinu í
september 1991.
■ ÍSLAND fór uppfyrir Ung-
verjaland í 5. riðli undankeppninn-
ar með jafnteflinu við Rússa í gær.
ísland hefur 4 stig og er í þriðja
sæti, en Ungverjar eru með 3 stig.
Grikkir höfðu þegar tryggt sér
þátttökurétt á HM í Bandaríkjun-
um og í gær færðum við Rússum
farseðilinn á HM.