Morgunblaðið - 03.06.1993, Síða 59
59
Sáttur við
jafnteflið
RÚSSAR tryggðu sér farseðil-
inn á heimsmeistarakeppnina
í Bandaríkjunum 1994 með því
að gera jafntefli, 1:1, við íslend-
inga á Laugardalsvellinum. Þar
með urðu Rússar önnur þjóðin
til að fá farseðilinn, þar sem
Grikkir urðu fyrstir Evrópubúa
til að fá hann; í Moskvu á dög-
unum. Rússar fóru að eins og
svo margir ferðamenn sem
eiga leið vestur um haf - milli-
lentu á íslandi.
Pörug byijun íslendinga sló
Rússa út af laginu í byijun
leiksins, en leikmenn íslenska liðs-
Í ins sýndu mikla bar-
Sigmundur Ú. áttu. Þeir . gáfu
Steinarsson Rússum aldrei frið
skrifar 0g náðu góðum tök-
um á miðjunni og
oft ágætis samleiksköflum, en
sóknir íslenska liðsins voru ekki
nægilega öflugar. Aðeins tvisvar
kom skot að marki Rússa — fyrst
skalli Eyjólfs Sverrissonar á 11.
mín, sem Dimitri Kharine varði, en
síðan skoraði Eyjólfur mark ís-
lands, 1:0, á 27. mín.
Eftir markið drógu íslendingar
sig aftur og Rússar náðu að jafna,
1:1, á 40. mín. og aðeins einni mín.
seinna var Igor Kolyvanov nær
búinn að bæta við marki er hann
komst á auðan sjó fyrir framan
mark íslands - vippaði knettinum
yfir Birki Kristinsson, markvörð.
Eftir fjöruga byijun fór að draga
úr krafti leikmanna íslands og í
seinni hálfleik sýndu þeir fátt sem
gladdi augað. Rússar tóku völdin í
sínar hendur og þeir voru klaufar
að bæta ekki tveimur mörkum við.
Birkir Kristinsson varði glæsilega
skot frá Serguei Kiijakov, sem var
einn og óvaldaður inn í markteig á
72. mín. Sex mín. fyrir leikslok
átti Igor Lediakhov þrumuskot sem
hafnaði í þverslá - þaðan fór knött-
urinn til Kiijakovs, sem skaut fram-
hjá marki í dauðafæri.
Eins og fyrr segir byijuðu íslend-
mgar leikinn af krafti, en kraftar
leikmanna liðsins dugðu skammt.
Hlynur Stefánsson og Ólafur Þórð-
arson voru öflugir á miðjunni og
Arnór Guðjohnsen, Amar Gunn-
laugsson og Eyjólfur Sverrisson,
besti leikmaður Islands, hreyfanleg-
'r - unnu vel aftur og léku oft
skemmtilega á milli sín. Vamarieik-
ur íslenska liðsins var yfírvegaður
á meðan Rússar vora að átta sig á
hlutunum, en síðan náðu Rússar
°ft að sundra honum með snöggu
samspili - þríhymingsspili. Rússar
iéku seinni hálfleikinn eins og þeir
sem völdin hafa og þeir höfðu það
sem þeir sóttust eftir í höndunum;
farseðilinn til Bandaríkjanna.
Island - Rússland 1:1
Laugardalsvöllurinn f Reykjavík. Undan-
keppni HM, miðvikudagur 2. júní 1993.
Aðstæður: Logn og átta stiga hiti. Vötlur-
inn góður.
Mark islands: Eyjólfur Sverrisson (27.).
Mark Rússlands: Serguei Kirjakov (40.).
Rult spjald: Izudin Daði Dervic (63.), An-
drei Kanchelskis (70.).
Dómari: L.W. Mattram, Skotlandi, sem
dsemdi vel.
Línuverðir: G.R. Alison og M.F. Pocock,
Skotlandi.
Ahorfendur: 3.708 (Rúmlega 600 boðs-
gestir).
Lið Islands: Birkir Kristinsson, Hlynur
“irgisson, Kristján Jónsson, Guðni Bergs-
“n, Izudin Daði Dervic, Rúnar Kristinsson
(Arnar Grétarsson 78.), Hlynur Stefánsson,
Arnar Gunnlaugsson, Amór Guöjohnsen,
Eyjólfur Sverrisson (Haraldur Ingólfsson
83.).
Lið Rússlands: Kharine, Gorloukovitch,
°nopko, Ivanov, Kanchelskis, Tatarchouk
(Korneev 67.), Dobrovolski, Koulkov, Koly-
vanov (Lediakhov 75.), Juran, Kiijakov.
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1993
Morgunblaðið/Bjami Eirfksson
GuAni Bergsson var heppinn að margra mati að fá ekki að líta rauða spjald-
ið strax í byijun leiks. Serguei Youran slapp einn innfyrir vömina og Guðni sá
sér þann kost vænstan að krækja aftan í Rússann. Dómarinn sá hins vegar
ekkert athugavert og dæmdi aukaspyrnu á Youran fyrir að bijóta á Birki.
íslendingar hug-
myndasnaudir
Serguei Kiijakov, leikmaður
með Kalsruhe í Þýskalandi,
var besti maður Rússa í gær-
kvöldi. Eins og samheijamir var
hann ánægður með stigið og sæti
í úrslitakeppninni, en óánægður
með sjálfan sig.
„Ég fékk iriörg marktækifæri,
opnaði dymar, en komst ekki inn,“
sagði hann við Morgunblaðið.
„Heppnin var ekki með mér að
þessu sinni — ég hefði átt að gera
fleiri mörk.“
Hann sagði að rússneska liðið
hefði verið lengi í gang. „Fyrstu
30 mínútumar eða svo voru erfíð-
ar, en eftir að við jöfnuðum var
þetta búið spii hjá íslendingum og
við vorum mun betri í seinni hálf-
leik.“
Honum þótti ekki mikið til ís-
lenska liðsins koma. „Liðið var
heppið að skora. Leikmennimir era
sterkir, en leikkerfið var mjög ein-
hæft og framstætt — langar send-
ingar fram í þeirri von að menn
næðu að skalla og skapa hættu.
Það vora engar breytingar, ekkert
hugmyndaflug."
„ÉG get ekki annað en verið
sáttur við jafnteflið miðað við
hvernig leikurinn þróaðist.
Rússarnir eru með gríðarlega
sterkt lið og leika hratt með
einni snertingu og því er erfitt
að eiga við þá,“ sagði Ásgeir
Elíasson, landsliðsþjálfari.
Asgeir sagði að strákamir hefðu
leikið eins og fyrir þá var lagt.
„Fyrstu þijátíu mínútumar vora
mjög góðar — meðan strákamir
höfðu kraft til. En eftir að við náðum
forystunni slitnaði þetta aðeins í
sundur, þá aðallega milli vamar og
miðlínu. Menn vora orðnir þreyttir í
síðari hálfleik enda mikil keyrsla og
þá datt einbeitingin niður og sending-
ar urðu ónákvæmar."
Hann sagðist ánægðastur með
öftustu vamarlínuna og þá baráttu
sem var í liðinu, ólíkt því sem var í
leiknum gegn Lúxemborg. „Annars
stóðu strákamir sig allir vel. Það kom
berlega í ljós í þessum leik að ef
menn vinna vel og baráttan er í lagi
er ýmislegt hægt. Við gerðum gott
mark og með smá heppni hefðu þau
getað orðið tvö. En það verður að
viðurkennast að lukkudísimar vora
með okkur í seinni hálfleik því þá
fengu Rússar tvö dauðafæri.
Við eram með mjög reynslulítið lið
miðað við það rússneska. Það era
aðeins þrír eða fjórir leikmenn í lið-
inu með reynslu, hinir hafa spilað í
tiltölulega stuttan tíma, eða í tvö til
þrjú ár og þaðan af minna."
Eyjólfur Sverrisson skoraði markið með laglegu skoti -
■ ^#út við stöng á 27. mín., eftir frábæran undirbúning Amars
Gunnlaugssonar. Amar náði knettinum á miðjum vallarhelmingi Rússa,
lék laglega á tvo rússneska leikmenn, sem eltu hann upp að vitateigs-
horni, þar sem Amar gerði sér lítið fyrir og lék á þá aftur og spymti
knettinum á milli þeirra fyrir markið, þar sem Eyjólfur var.
Vamarmistök íslendinga kostuðu það að Serguei Kiij-
akov náði að bruna í gegnum vömina - komast á auðan
sjó og spyma knettinum firam hjá Birki Kristinssyni og í homið fjær.
1:1
Morgunblaðið/Kristinn
Eyjólfur Sverrisson og Amar Gunnlaugsson fagna marki Eyjólfs, sem
hann skoraði eftir frábæran undirbúning Amars.
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Rússartryggðu sérfarseðilinntil Bandaríkjanna á HM 1994
Millilentu á íslandi