Morgunblaðið - 05.06.1993, Qupperneq 1
72 SIÐUR LESBOK/B
124. tbl. 81.árg.
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forseti Ukraínu
Itrekar
kjarn-
orkuaf-
vopnun
Kíev. Reuter.
LEONÍD Kravtsjúk, forseti
Úkraínu, ítrekaði í gær fyrri
yfirlýsingar um, að öll kjarn-
orkuvopn yrðu flutt frá land-
inu en svo virðist samt sem
þingið sé hlynnt því, að Úkra-
ína yerði einhvers konar kjarn-
orkúveldi. Hafa misvísandi yf-
irlýsingar úkraínskra ráða-
manna um þessi mál valdið
nokkrum áhyggjum á Vestur-
löndum.
Úkraínska þingið hefur síðustu
tvo daga fjallað um staðfestingu
START-l-sáttmálans og undirritun
samningsins um takmörkun við út-
breiðslu kjamorkuvopna en umræð-
unum hefur nú verið frestað fram
undir mánaðarlok. Fyrir skömmu var
talið, að hér væri aðeins um frá-
gangsatriði að ræða en í fyrradag
lýsti Leoníd Kútsjma, forsætisráð-
herra Úkraínu, yfir, að ríkið ætti
að halda eftir nokkru af kjarnorku-
eldflaugunum.
Kravtsjúk ítrekaði hins vegar í
gær á fundi með Andrej Kozyrev,
utanríkisráðherra Rússlands, að
stefnan væri óbreytt og Úkraína
ætlaði að staðfesta báða fyrrnefnda
samninga. Kvaðst Kozyrev treysta
því en á Vesturlöndum eru vaxandi
áhyggjur af því hver þróunin verður
í Úkraínu.
Andstæðingum START-1 á úkra-
ínska þinginu hefur fjölgað mikið
að undanfömu og þeir benda á, að
bara það eitt að afvopnast muni
kosta Úkraínumenn milljarða doll-
ara, sem ekki séu til. Þá segja þeir,
að gegn því að afvopnast verði að
koma einhverjar haldbærar trygg-
ingar í öryggismálum.
----» ♦ »--
Dönsk fyrirtæki
Mútur frá-
dráttarbær-
ar frá skattí
Kaupmannahöfn. Reutcr.
DÖNSK fyrirtæki sem nota
mútur til að ná viðskiptasamn-
ingum í Austur-Evrópu og Afr-
íku eru ekki þar með að aðhaf-
ast neitt ólöglegt, og það sem
meira er, mútufé er frádrátt-
arbært frá skatti.
„Mútukostnaður er frádráttarbær
ef fyrirtækin geta skjalfest nauðsyn
hans til að ná samningum," sagði
Ole Stavad, skattamálaráðherra.
Hann ráðlagði þó forsvarsmönnum
danskra fyrirtækja að nefna téðan
kostnað „ráðgj afarkostnað“ á skatt-
framtali frekar en að skrifa blátt
áfram „mútufé".
Falklandseyjar
EB bannar
hernum að
kaupainn-
lent kjöt
Brussel. The Daily Telegraph.
BRESKU hermennirnir á Falk-
landseyjum verða að sækja allt
sitt kjöt alla leið til Evrópu
vegna þess að reglur Evrópu-
bandalagsins (EB) banna hern-
um að kaupa kjötmeti sem
framleitt er á eyjunum.
Eina sláturhúsið á eyjunum full-
nægir ekki reglum EB um hreinlæti
og því þarf að flytja allt kjöt her-
sveitanna frá Bretlandi, um 12.600
kílómetra leið. Flutningaskip kemur
einu sinni á mánuði með kjötið, sem
er upprunalega frá Nýja Sjálandi
og Uruguay. Engin skip sigla frá
þessum löndum til eyjanna. 170
kindur og kýr eru á hvert manns-
barn á Falklandseyjum og eyja-
skeggjum hefur ekki orðið meint
af kjötinu úr sláturhúsinu þau 30
ár sem það hefur verið starfrækt.
Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um verndun svæða bosnískra múslima
Reuter
Tvísýnustu kosningarnar á Spáni
KOSNINGABARÁTTUNNI á Spáni vegna þingkosn-
inganna á morgun, sunnudag, lauk í gær. Þetta eru
tvísýnustu kosningamar í landinu frá því lýðræði var
tekið þar upp fyrir 16 áram.- Samkvæmt skoðana-
könnunum er lítill munur á fylgi stærstu flokkanna,
Sósiaíistaflokksins, sem hefur verið við völd í tæp
ellefu ár, og Þjóðarflokksins, sem er mið- og hægri-
flokkur. Myndin er af Felipe Gonzalez forsætisráð-
herra (t.h.) á kosningafundi í ólympíuleikvanginum
í Barcelona. 30.000 manns voru á fundinum, þeirra
á meðal kólombíski nóbelsverðlaunahafinn Gabriel
Garcia Marquez, sem veifar hér til fundarmanna.
NATO heimilað að grípa
til lofthemaðar í Bosníu
s Sameinuðu þjóðunum, Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ) samþykkti í gær
ályktun um að senda hermenn til að vernda sex griða-
svæði fyrir múslima í Bosníu þrátt fyrir efasemdir nokk-
urra aðildarríkja ráðsins um að þessi áform yrðu til þess
að Serbar létu af árásum sínum á múslima. Svæðisbundnum
bandalögum, svo sem Atlantshafsbandalaginu (NATO), var
jafnframt heimilað að grípa til lofthernaðar ef serbneskar
hersveitir ógna friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna.
Ályktunin var samþykkt með
13 atkvæðum gegn engu, en tvö
ríki sátu hjá, Pakistan og Venezú-
ela. Evrópuríki sem beittu sér fyr-
ir ályktuninni vonast til þess að
hægt verði að senda 5.000 her-
menn til viðbótar til að vernda
höfuðborgina, Sarajevo, og borg-
imar Tuzla, Zepa, Srebrenica,
Gorazde og Bihac. Öryggisráðið
heimilaði friðargæsluliðinu að
beita hervaldi til að vernda svæðin
verði ráðist á þau eða ef einhver
hinna stríðandi fylkinga hindrar
ferðir hermannanna eða starfs-
manna hjálparstofnana á svæðun-
um eða í grennd við þau. Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, á að leggja
fram skýrslu innan viku um hvem-
ig hægt verði að framfylgja áætl-
uninni.
Múslimar óánægðir
Sendiherra Bosníu hjá Samein-
uðu þjóðunum, Muhamed Sacir-
hey, gagnrýndi áætlunina og ríkin
sem beittu sér fyrir henni -
Bandaríkin, Rússland, Bretland,
Frakkland og Spán. „Það sem
vakir fyrir að minnsta kosti sum-
um þeirra er að fá diplómatíska
tylliástæðu til koma sér undan því
að grípa til harðari og viðameiri
aðgerða," sagði hann og lýsti Sre-
brenica sem „opnum útrýmingar-
búðum“.
„Fasistaeinræði“ í Serbíu?
Serbneski andófsmaðurinn
Milovan Djilas segir að Slobodan
Milosevic, forseti Serbíu, sé að
undirbúa „fasistaeinræði" í land-
inu. Stjóm landsins hefur tilkynnt
að hún hyggist banna starfsemi
Serbnesku endumýjunarhreyfing-
arinnar (SPO), helstu hreyfíngar
serbneskra stjórnarandstæðinga,
og leiðtogi hennar, Vuk Draskovic,
var handtekinn á mótmælafundi í
Belgrad á þriðjudagskvöld. Heim-
ildir hermdu í gær að Draskovic
væri svo illa á sig kominn vegna
barsmíða lögreglu að yfirvöld yrðu
líklega að sækja hann til saka í
fangelsissjúkrahúsi.
^ Reuter
I Borginni forboðnu
FJÖGUR ár voru í gær liðln frá því kínverski alþýðuherinn braut
mótmæli lýðræðissinna á torgi hins himneska friðar grimmilega á bak
aftur. Hervörður við torgið hefur verið efldur síðustu daga vegna ótta
yfirvalda við að umbótasinnar komi þar saman til að minnast blóðbaðs-
ins. Myndin var tekin í Borginni forboðnu í Peking þar sem sveitirnar
sem gæta torgsins hafast við.