Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
11
Hákan Branders sendiherra kveður eftir fjögurra ára dvöl
„Hiíð, hitabylgja og sand-
stormur í sömu vikunni“
ALDURSFORSETI erlendra sendiherra á íslandi, Hákan Branders frá
Finnlandi, hélt heimleiðis upp úr mánaðamótunum eftir fjögurra ára
dvöl hér á landi. Branders, sem vill að Islendingar kalli sig Hákon,
varð 65 ára í inaí og hlaut nú að hætta störfum sakir aldurs. Sendi-
herrann er afar hár maður vexti, grannur en stæltur og sópar að
honum á götu. Skiðagöngur í nágrenni höfuðborgarinnar og tíð sund-
iðkun hafa átt sinn þátt í halda heilsunni í lagi. Hann les orðið ís-
lensku og skilur hana vel, „slettir" oft íslenskum orðum í samtali við
blaðamann Morgnnblaðsins en Branders er úr röðum sænskumælandi
Finna. Samkvæmt finnskum reglum mátti Iiann fara á eftiriaun fyrir
tveim árum en bað um tvö ár í viðbót hér á íslandi.
„Mér fannst það væri eins og
að hætta í miðjum klíðum, núna
virkar þetta fremur eins og verk-
efnið hafi verið klárað. En það sem
skiptir öllu er að við hjónin, Ann-
eli og ég,, höfum átt frábær ár
hérna. Við höfum aldrei getað unn-
ið jafn mikið saman alla þá íjóra
áratugi sem ég hef verið í opin-
berri þjónustu, við höfum ferðast
mikið hér og eignast fjölda vina
og kunningja".
Branders og eiginkona hans hafa
verið mikilvirk hér, reynt að efla
samskipti þjóðanna og þá ekki slst
á menningarsviðinu. Þau hafa einn-
ig ferðast mikið um ísland, fóru
m.a. stutta ferð til Mývatns og
þarnæst suður um Austurland og
til Reykjavíkur nokkrum vikum
áður en haldið var áleiðis heim með
skipi Eimskipafélagsins. „Þessi ferð
var alveg dæmigerð, minnti svo vel
á það hve merkilegt þetta land er.
A innan við viku lentum við í hríðar-
hraglanda fyrir norðan, hitabylgju
fyrir austan og loks urðum við að
doka við í Skaftafeili vegna sand-
storms. Hér getur allt gerst“.
Branders minnist þess að Vigdís
Finnbogadóttir forseti hafi sam-
kvæmt hefð tekið á móti erlendum
sendiherrum, einnig þeim sem hafa
aðsetur í öðrum löndum, 17. júní
í Vinaskógi á Þingvöllum í fyrra.
„Þarna er þýft og votlent og forset-
inn klæddist að sjálfsögðu I sam-
ræmi við aðstæður. Margir sendi-
herrar frá suðrænum slóðum voru
hins vegar ekki vanir aðstæðum,
sumir jafnvel í íburðarmiklum og
fellingaríkum þjóðbúningum, eink-
um Afríkumennirnir. Þeir áttu svo-
lítið erfitt með að tipla á milli
þúfnakollanna á lakkskóm og halda
samt virðuleikanum".
Branders sagðist vera á því að
hann yrði nú eins konar óopinber
og sjálfskipaður sendiherra Islands
í Finnlandi. „Það er margt sem
hægt er að gera, t.d. útskýra sjón-
armið ísiendinga í hvalveiðimálun-
um. Það er mikil andstaða við hval-
veiðar í Finnlandi en aldrei er
hneykslast á því að við skjótum
30.000 elgi á hveiju ári“.
N orðurlandaráð
Hákan Branders starfaði áratug-
um saman fyrir Norðurlandaráð í
Helsinki og segist þá hafa átt mik-
il samskipti við Islendinga í tengsl-
um við starfið. „Þegar ég hóf störf
á fimmta áratugnum var skriff-
innskan lítil í Norðurlandasam-
starfinu og allt umfangið miklu
minna. Þá voru forsætisráðherr-
amir virkari í þessu samstarfi en
síðar varð; nú er ætlunin að efla
þátttöku þeirra á ný“.
— Er þetta samstarf mikið ann-
að annað glasaglaumur og ræðu-
skvaldur eða er þess konar gagn-
rýni óréttmæt?
„Auðvitað er það öllum ljóst að
veisluhöldin voru fyrstu árin mjög
mikil, allt of mikil og stóðu jafnvel
dögum saman. En samvinnan og
samheldnin sem skapast hafa milli
þjóðanna er mjög mikils virði. Eg
er bjartsýnn á framhaldið, hef enga
trú á því að aukin Evrópusamvinna
og aðrar breytingar bindi enda á
þetta starf sem þegar er orðið svo
rótfast en auðvitað geta áherslurn-
ar breyst. Svo er rétt að geta þess
að veisluhöldin hafa síðari áratug-
ina stórminnkað, eiginlega geldur
samstarfið fortíðarinnar nokkuð
Hákan Branders, fyrrverandi
sendiherra Finna á Islandi.
þegar almenningur gagnrýnir út-
gjöldin og gleðskapinn sem fylgir
þessu núna. Ef til vill væri rétt að
skipta um nafn á Norðurlandaráði!
En það er ómetanlegt að allir
helstu stjórnmálamenn á Norður-
löndum skuli undanfama áratugi
hafa kynnst vel, slík tengsl geta
skipt sköpum þegar viðkvæm mál
eru á dagskrá".
Viðskiptamál í heita
pottinum
Branders svarar aðspurður að
ails ekki sé á döfinni að spara og
leggja niður fínnska sendiráðið í
Reykjavík, þótt nú kreppi mjög að
í finnskum efnahagsmálum. Finnar
geri sér grein fyrir mikilvægi lands-
ins, þeir fylgist vel með umræðu
um vestræn öryggismál og hlut-
verk íslands.
Hann segir að auka megi við-
skipti landanna. Oft Sé það ókleift
fyrir fínnska verslunarfulltrúann í
Osló að treysta nógu vel tengslin
við íslenska viðskiptaaðila; Noreg-
ur sé alveg nógu stór biti að kyngja.
Starfið hér hljóti því að verða um
of tilviljanakennt. „Sjálfur hef ég
reyndar notað mér heita pottinn í
laugunum til að koma á framfæri
áróðri fyrir fínnskri framleiðslu,
stundum með góðum árangri".
I litlu sendiráði eins og því
fínnska hlýtur mannfæðin að valda
nokkrum erfíðleikum á stundum
en gerir starf sendiherrans einnig
fjölbreyttara en ella, segir Brand-
ers. I þessu sambandi leggur hann
áherslu á mikilvægi Norræna húss-
ins, segist hafa komið ýmsu til leið-
ar með samvinnu við þá stofnun,
einkum hvað snerti menningarleg
samskipti.
Sendiherrann minnir á starf Su-
omifélagsins á íslandi, um 20 börn
Finna eða Finna og íslendinga öðl-
ist nú innsýn í finnsk mál og menn-
ingu með stuðningskennslu á veg-
um þess. Hann segist vera sérstak-
lega hreykinn af því að nú stundi
tveir íslendingar nám í skógfræði
í Ekenas í Finnlandi, það hafi ekki
gerst fyrr. Hann minnist einnig á
samstarf jafnt stjórnmálaleiðtoga
sem embættismanna Finna og Is-
lendinga í tengslum við samninginn
um Evrópskt efnahagssvæði, EES,
það hafí gengið „frábærlega vel“.
Arftaki Branders á íslandi verð-
ur Tom Söderman, sem verið hefur
aðalræðismaður í Gautaborg frá
1988.
Viðtal: Kristján Jónsson
CO'
Dagskrá
56. sjómannadagsins í Reykjavík
Laugardagur 5. júní:
Kl. 13.30 Björgunarskip SVFÍ, Hannes Þ. Hafstein, kemur tii
Reykjavíkur í fylgd annara skipa frá SVFÍ og skemmtibáta frá
Snarfara. Félagar í björgunarsveitinni Ingólfi sýna björgun af
sjó. Sjávarútvegssýning við Reykjavíkurhöfn á Austurbakka, í
Faxaskála og Kolaporti.
Sunnudagur 6. júní - sjómannadagurinn:
Kl. 08.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavíkurhöfn.
Kl. 11.00 Minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Biskupinn yfir íslandi, herra Ólafur Skúlason, minnist drukkn-
aðra sjómanna. Sr. Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson. Sjómenn aðstoða við messuna.
Einnig verður sjómannamessa í Bústaðakirkju. Prestur sr. Pálmi
Matthíasson. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Kl. 11.00 til 15.00 Skemmtisigling með varðskipi um sundin í
Reykjavík.
Merki dagsins gildir sem aðgöngumiði.
Útihátfðarhöld við Reykjavíkurhöfn:
Kl. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjómannalög.
Stjórnandi Eiríkur Stephensen.
Kl. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir Hannes Þ. Hafstein,
fyrrv. forstjóri Slysavarnafélags íslands.
Ávörp:
A) Fulltrúi ríkisstjórnarinnar,
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra.
B) Fulltrúi útgerðarmanna,
Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður frá Rifi.
C) Fulltrúi sjómanna,
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands.
D) Guðmundur Hallvarðsson,
formaður sjómannadagsráðs, heiðrar aldraða sjómenn með
heiðursmerki sjómannadagsins.
E) Aðrar heiðranir.
Kl. 15.00 Söngfélag eldri borgara í Reykjavík.
Söngstjóri Kristín Pétursdóttir.
Kappróður á Reykjavíkurhöfn:
Karla- og kvennasveitir keppa ásamt skipsáhöfnum. Félagar frá
björgunarsveitinni Ingólfi ásamt áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar verða með ýmsar uppákomur í Reykjavíkurhöfn.
Stefnt er að því að útihátíðarhöldum Ijúki kl. 17.00.
Sjómannadagsblaðið og merki dagsins verða seld á svæðinu
Athygli almennings skal vakin á því, að við Faxaskála verður til
sölu handavinna vistmanna Hrafnistu og bókin „Siglingasaga
sjómannadagsráðs".
Hrafnistuheimilin:
Kl. 13.30 til 17.00 Handavinnusýning og sala á handavinnu
verður opnuð í „Súðinni" á 4. hæð, E-álmu, Hrafnistu í Reykjavík.
Kl. 14.00 Kaffisala í báðum borðsölum Hrafnistu í Reykjavík.
Allur ágóði rennur til kaupa á messuskrúða fyrir
kapellu Hrafnistu.
Kl. 14.00 til 17.00 Handavinnusýning og sala verður opin í vinnu-
sal Hrafnistu í Hafnarfirði.
Kaffisala verður í vinnu- og skemmtisal.
Allur ágóði rennur til velferðarmála heimilismanna Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Sjómannadagshóf verður að kvöldi sjómannadagsins
á Hótel íslandi.
Miða- og borðapantanir á Hótel íslandi
kl. 13.00-17.00 laugardag og sunnudag.
Sjóntannadagurinit í Reykjavík