Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JUNI 1993
17
Aukinn réttur sjúkra bama
eftirÁstuR.
Jóhannesdóttur
Foreldrar fatlaðra og sjúkra
barna geta átt rétt á greiðslum frá
Tryggingastofnun, í formi umönn-
unarbóta og umönnunarstyrks, að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Samkvæmt reglugerð sem sett var
í apríl 1992 í kjölfar breytinga á
almannatryggingalögunum um
fjárhagsaðstoð vegna fatlaðra og
sjúkra barna var miðað við að bam-
ið dveldi í heimahúsi og sjúkdómur
eða fötlun hefði í för með sér til-
finnanleg útgjöld, umönnun eða
gæslu.
Ákvæðið um að bamið dveldi í
heimahúsi gerði það að verkum að
ekki var unnt að sækja um greiðsl-
ur vegna sjúkra barna sem dvelja
á sjúkrahúsi. Slík dvöl getur þó
haft tilfinnanleg útgjöld í för með
sér fyrir foreldra. Nefna má vinnu-
tap, kostnað vegna gæslu annarra
bama í fjölskyldunni og önnur út-
gjöld svo sem tíðar ferðir á sjúkra-
húsið. Samtök foreldra alvarlegra
sjúkra barna hafa því barist fyrir
breytingu á þessari reglugerð.
Umönnunarbætur þrátt fyrir
sjúkrahúsvist
Nú hefur fyrrnefndri reglugerð
verið breytt í þá vem, að þrátt
fyrir ákvæði um dvöl í heimahúsi
er komin heimild til að greiða
umönnunarbætur þeim foreldmm
eða framfærendum sem eiga börn,
sem þurfa á langvarandi vistun á
sjúkrahúsi og yfirsetu þeirra að
halda vegna lífshættulegs sjúk-
dóms.
Upphæðir bóta miðast við
ákveðna flokka og fara þessi böm
í hæsta flokk, þ.e. fá hæstu bætur.
Lífeyrisdeild Tryggingastofnun-
ar hefur ekki fellt niður greiðslur
til foreldra þó svo að bömin leggist
inn á sjúkrahús, þrátt fyrir að
reglugerðin hafi ekki heimilað þess-
ar greiðslur, en umsóknir vegna
barna sem liggja inni á sjúkrahúsi
þegar umsókn berst hafa ekki ver-
„Nú, eftir breytinguna,
geta framfærendur
barna sem dvelja á
sjúkrahúsi vegna lífs-
hættulegs sjúkdóms og
þarfnast yfirsetu for-
eldris og framfæranda
sótt um umönnunar-
bætur frá Trygginga-
stofnun."
ið afgreiddar.
Nú, eftir breytinguna, geta
framfærendur bama sem dvelja á
sjúkrahúsi vegna lífshættulegs
sjúkdóms og þarfnast yfirsetu for-
eldris og framfæranda sótt um
umönnunarbætur frá Trygginga-
stofnun. Foreldrar þessara barna
sem hafa sótt um og fengið synjun
ættu nú að sækja aftur um. Um-
sókn ásamt læknisvottorði, hvort
tveggja á sérstökum eyðublöðum,
Ásta R. Jóhannesdóttir
þarf að berast Tryggingastofnun.
Þess má geta að ekki skal greiða
fyrir læknisvottorð, sem krafist er
vegna umsóknar.
Höfundur er deildarstjóri
féiagsmála- og upplýsingadeildar
Tryggingastofnunar ríkisins.
Vistheinitlíð að Sólheimum í Grímsnesi
Trj áræktardagur
haldinn á Sólheimum
Sunnudaginn 6. júní nk. verður
tijáræktardagur á Sólheimum í
Grímsnesi. Þá verður sumarbú-
staðafólk og annað áhugafólk um
tijárækt boðið velkomið í íþrótta-
leikhúsið á Sólheimum til að fræð-
ast um skilyrði til. trjáræktar í
Grímsnesi og val á tegundum og
aðferðum til ræktunarinnar. Dag-
skráin hefst kl. 14 og leiðbeinandi
verður Úlfur Óskarsson, skógfræð-
ingur.
Á Sólheimum er hefð fyrir því
að rækta grænmeti með lífrænum
aðferðum og nú eru þær aðferðir
einnig notaðar við ræktun á tijá-
plöntum, runnum og sumarblómum.
Þessar afurðir eru seldar á Sólheim-
um og sendar víða um héraðið og
til Reykjavíkur. Árlega eru jafn-
framt gróðursettar um 10.000-
15.000 tijáplöntur í um 80 ha skóg-
ræktarsvæði. Fólk er hvatt til að
sækja Sólheima heim í tilefni tijá-
ræktardagsins og að kynnast þeim
vörum sem þar eru unnar.
DEMPARAR
í MARGAR
GERÐIR BÍLA
Mjög goft verð.
Verðið á nýjum SAAB hefur laekkað um rúm 9%
á síðustu 12 mánuðum
Verö í maí 1992
2.049.000 kr.
Verð í maí 1993
1.894.000 kr.
SAAB 9000CD
beinskiptur
SAAB 9000 - öryggið uppmálað
Hagstæð gengisþróun.aukin framleiðni í SAAB-verksmiðjunum
og hagkvæmir samningar gera okkur kleift að bjóða þér ein bestu
bílakaupin í dag - SAAB 9000. Komdu og skoðaðu SAAB 9000
og þú færð bíl eins og þú vilt hafa hann
Þegar þú kaupir SAAB færð pú:
• Bíl eftir þínu höfði, 6-8 vikum eftir pöntun, ef fyrirliggjandi
úrval hentar þér ekki.
• Fullkominn staðalbúnað.
• Öruggasta bíl í heimi.*
Globus?
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55