Morgunblaðið - 05.06.1993, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
33
Of lágar sektir við
umferðarlagabrotum
Orðsendingtil Þorsteins Pálssonar, dóms-
málaráðherra, og annarra alþingismanna
eftir Ólaf Ketilsson
Svo sem ykkur er kunnugt, þá
munum við ökumenn vera mestu
lagabijótar lands og þjóðar. Enda
munum við vera fjölmennasta stétt
landsins, hættulegasta stétt landsins,
og þá líka sennilega heimskasta stétt
landsins. í mínu ungdæmi í barna-
skóla voru þeir taldir heimskir sem
gátu ekki lært barnalærdómskverið,
ásamt einskonar tölum í reikningi.
En nú á seinni árum eru flestir látn-
ir læra á bíl. En kunnátta og hlýðni
til þess að vinna verkið svo sem kenn-
arar mæla fyrir um er allt of skjald-
an hlýtt. í mínu ungdæmi var kenn-
urum fyrirskipað að veita nemendum
24 tíma tilsögn. Sömu lagafyrirmæli
giltu fram yflr 1940 þá ég fékk leyfl.
og framkvæmdi það verk að kenna
nokkrum tugum nemanda á bíl. Aft-
ur á móti tók það mig á annað ár
að fá að kenna á Austin, 5 tonna
að burðarmagni, með 18 feta langan
vörupall sem þurfti mikið rými til
þess að taka þverbeygjur. Þeir sem
þess nutu lærðu mest og best. Eg
hitti öðru hvoru 70 til 80 ára gamla
karla nú, sem minnast þess góða
tækis sem þeir lærðu á, en nú er
ekki leyft. I þá tfð var ökuhraði í
borg og bæjum aðeins leyfðir 18 km
á klst., en út á þjóðvegum 45 km.
Nú á liðnum árum þurfa ökukennar-
ar að veita ökunemum aðeins 16 tíma
tilsögn, til þess að ganga undir öku-
próf, sem flestir nemar láta sér
nægja.
En nú er aftur á móti öllum skip-
að að aka á 60 km hraða á mörgum
götum í borginni, en á 90 km hraða
úti á vegum. Fyrir fáum árum var
þessi ökuhraði lögleiddur af öllum
þingmönnum nema tveimur ang-
urgöpum, þeim Árna Johnsen og
Ragnari Amalds, sem vildu auka
hraðann upp í 110. Þeir hafa víst
ekki gjört sér grein fyrir því, að eft-
ir því sem hraðinn er meiri, því fleiri
verða ökutjónin, og skemmdirnar á
tækjunum þeim mun meiri, þá átaks-
hraðinn við ákeyrslur og utaníkeyrsl-
ur, dynja á bílunum. Það heyrast
margar tölur um aftanákeyrslur, og
þann hnykk sem fjöldi manna fær
af hálsmeiðslum, sem tryggingarfé-
lögin, eru búin á undanfömum ámm
að greiða margar milljónir fyrir. En
hafa nú loks endurskoðað og lækkað.
Frá upphafl íslandsbyggðar, hafa
íbúar hér á landi verið sektaðir fyrir
að bijóta þau lög og reglur sem
hveiju sinni vom í gildi. Á þeim tíma
þegar bílaumferð fór að vaxa hér á
landi, vom sendir eftirlitsmenn út
um vegi landsins, til þess að fylgjast
með því að við ökumenn fæm eftir
settum lögum og reglum sem þá
voro í gildi. Það skeði því í upphafi
ökuferilsins, þá ég var með vörubíl
hlaðinn af ull, árið 1929, að ég var
staddur móti Ondverðamesi í Gríms-
nesi er Kristín húsfreyja kom með
tvo kassa af laxi, sem hún þurfti að
koma til Reykjavíkur. Þar eð ég hafði
ekki getu til þess að koma kössunum
á vömpallinn, þá tók ég það ráð að
binda kassana upp á húsþakið. í
sama bili kom Björn Blöndal eftirlits-
maður þar og bannaði mér að flytja
kassana þannig; slíkt taldi hann ólög-
legt. Þeirri skipan hlýddi ég ekki,
og hélt mína leið. Þá skildi með okk-
ur að sinni en nokkru seinna sendi
Magnús Torfason sýslumaður kæm
frá Bimi, ásamt sektarkröfu að upp-
hæð, sem samsvaraði á þáverandi
Dagsbrúnartaxta 8 dagsverkum,
Tónlistarskóla
Kópavogs slitið
TÓNLISTARSKÓLI Kópavogs
lauk þrítugasta starfsárínu 21.
mai sl. og fóru skólaslitin fram í
Hjallakirkju að viðstöddu fjöl-
menni. I vetur stunduðu um 455
nemendur nám við skólann.
Nokkrír framhaldsskólanemend-
ur stunduðu tónlistarnám sem
valgrein og 2 voru á tónlistar-
braut.
í haust var tekið í notkun viðbót-
arhúsnæði sem skólinn festi kaup á
sl. ári og er um að ræða tvær
kennslustofur og tónleikasal. Efnt
var til veglegra- tónleika í tilefni af
opnun salarins og var tónlistarflutn-
ingurinn í höndum kennara skólans.
Nú í vor héldu tveir nemendur
opinbera tónleika í hinum nýja sal
skólans, þau Brynhildur Pjölnisdóttir
sem lauk burtfararprófí í einsöng,
en kennari hennar var Ánna Júlíana
Sveinsdóttir, og Guðjón Leifur Gunn-
arsson sem lauk 8. stigi í trompet-
leik sem nemandi Jóns Hjaltasonar.
Meðleikari á tónleikum þeirra var
Jóhannes Andreasen.
1 vetur voru haldnir yfir 30 tónleik-
ar innan skólans og vom þeir mjög
vel sóttir af aðstandendum nemenda.
Tónlistarskólinn hefur ávallt veitt
bæjarbúum þá þjónustu að koma til
móts við óskir ýmissa aðila um tón-
listarflutning eftir því sem við verður
komið.
Til nýlundu má telja að óperan
Hans og Gréta eftir E. Humperdinck
var tekin til sýningar í apríl í tón-
leikasal skólans en án hans hefði
sýningin ekki verið möguleg. Áður
var haldin forsýning á ópemnni fyrir
vistmenn Kópavogshælis. Þetta er í
fyrsta sinn sem ópera er sett á svið
í Kópavogi. Óperan er samin fyrir
börn og að því leyti ákjósanleg kynn-
ing á heimi ópemnnar. í uppfærslu
miðað við 10 tíma vinnu á dag.
Sekt sem svaraði átta
dagsverkum
En nú á tímum þessara háu skatta,
virðist mér alveg hafa gleymst að
sekta þá sem ökubrotin fremja. Máli
mínu til sönnunar hefur mér borist
skrá yfir 10 tíma Dagsbrúnarvinnu
sem nemur kr. 3.776.00. Samkvæmt
tjónaskýrslu frá lögreglunni í Kóþa-
vogi árið 1991 urðu 1.485 umferðar-
tjón þar. Meðalsektampphæð var
aðeins 3.760.00, sem samsvarar einu
dagsverki á móti átta dagsverkum
1992. Þessar sektartölur bið ég ykk-
ur að endurskoða og færa til sama
verðmætis og var 1929.
Það er mitt álit að þið alþingis-
menn látið framkvæma innheimtu á
ökusektum sem svarar 8 dagsverkum
hjá þeim lægstu, sem næmu þá krón-
um 30.080,-. Við það skuluð þið svo
bæta krónum 1.000.00 fyrir hvern
km er væri yfir 61 km hraða í borg-
inni ásamt kr. 1.000.00 til viðbótar
fari hraði yfir 91 km úti á vegum
landsins.
Þegar þið verið við þessari tillögu
minni mundu ökutjón lækka um nær
helming. Þá mundi heildarsektin sem
ríkissjóður fær nema tugum milljóna
til viðbótar því sem nú er. í þriðja
lagi mundu tryggingargjöldin einnig
lækka, en þau hafa farið síhækkandi
undanfarin ár.
Þar sem ég hef hér að framan
lýst því hversu alþingismenn á fyrri
Ölafur Ketilsson
„Það er mitt álit að þið
alþingismenn látið
framkvæma innheimtu
á ökusektum sem svar-
ar 8 dagsverkum hjá
þeim lægstu, sem næmu
þá krónum 30.080,00.“
ámm létu fram fylgja hæfilega háum
sektum á þeim mönnum er brutu
umferðarlögin sem varð til þess að
umferðarlagabrot voru varla þekkt,
og alls ekki á sjálfri alþingishátíð-
inni, þrátt fyrir það að nær allir bílar
landsmanna væm að flytja næstum
alla Reykjavíkinga frá Reykjavík til
Þingvalla á aðeins tveimur dögum.
Yfírstjóm hafði Bjorn Ólafsson þá
stórkaupmaður og síðar ráðherra.
Til þess að umferðarlögum væri
hlýtt, vora nokkrir hraustir og full-
vaxnir strákar látnir standa meðfram
veginum með tveggja til fimm kíló-
metra millibili þá umferðin var mest.
Þessir strákar vora skráðir sem lög-
regluþjónar klæddir hvítum frökkum,
sem sumir eru á lífi enn í dag. Þá
vomm við ökumennimir það lög-
hlýðnir að enginn reyndi framúrakst-
ur.
í bókinni Alþingishátíðin 1930,
eftir Magnús Jónsson prófessor
stendur á blaðsíðu 109: „Brot gegn
ráðstöfunum þeim er gerðar kunna
að verða samkvæmt II. og III. lið
1. gr., varða sektum, allt að 2.000
kr., er renna í ríkissjóð. Skulu mál
út af brotum sæta meðferð almennra
lögreglumála.“
Verðmæti sektarinnar nam j>á_
rúmlega 160 dagsverkum, þar sem
10 tíma dagsverk var þá greitt á kr.
120,- svo sem stendur í vinnutexta
frá Verkamannafélaginu Dagsbrún
frá þeim tíma og ég hef fengið ljós-
rit hjá skrifstofu Dagsbrúnar. Hér
með leyfi ég mér að benda þeim
mörgu alþingismönnum, sem vom
ekki fæddir þá, að kynna sér og
breyta þeim lágu sektum við umferð-
arlagabrot sem nú em í gangi hjá
eftirtöldum sýslumönnum og lög-
reglustjóram eins og þeir vom nefnd-
ir árið 1990 eða 1991: í Keflavík,
Grindavík ásamt allri Gullbringu-
sýslu. Meðal sektarhæð undirritað
af Þóri S. Maronssyni yfirlögreglu-
þjóni kr. 4.978,00. í lögregluumdæmi
Kópavogs, Eiríkur Tómasson kr.
3.760,00. I lögregluumdæmi Árnes-
sýslu, Karl Hjaltason kr. 5.410,00. í
lögregluumdæmi Reykjavíkur, Böðv-
ar Bragason kr. 5.500,00.
Höfundur er fyrrverandi
sérleyfishafi.
skólans var óperan færð í styttri
búning í leikgerð Önnu Júlíönu, söng-
kennara skólans, en hún sljómaði
sýningunni.
Tvö tónskáld komu í heimsókn og
fluttu erindi. Áskell Másson flutti
erindi um eigin tónlist og Hilmar
Þórðarson,. sem er gamall nemandi
skólans, flutti erindi um ameríska
samtímatónlisL
Tónlistarskólinn stóð fyrir því
ásamt Tónlistarskólanum í Reykjavík
og Tónlistarskóla Garðabæjar að fá
hingað frá Bandaríkjunum þau Fem-
ando Laires og Nelitu Tme sem em
prófessorar í píanóleik við Eastman-
tónlistarháskólann í Rochester, New
York. Nelita hélt tónleika og píanón-
ámskeið fyrir nemendur skólanna.
Femando Laires er forseti Franz
Liszt-félagsins í Bandaríkjunum og
í tengslum við píanónámskeiðið flutti
hann fyrirlestur um Franz Liszt.
Einn af kennumm skólans, Ámi
Harðarson tónskáld, samdi tónlist við
alþjóðlegt ævintýri fyrir böm er
nefnist „Það sem vestanvindurinn
sá“. Verkið var samið að fmmkvæði
tónlistarskólans gagngert til flutn-
ings í leikskólum í Kópavogi. Böm
vom virkir þátttakendur í flutningn-
um sem vakti athygli og ánægju.
Foreldradagar vom haldnir um
leið og miðsvetrarpróf. Skólanum
lauk með vorprófum og áriegu kynn-
ingamámskeiði fyrir böm og er það
haldið til að vekja athygli á forskóla-
náminu.
Samtök norrænna tónlistarapp-
alenda halda ráðstefnu í Finnlandi
nú i byijun júli og mun Kristín Stef-
ánsdóttir blokkflautukennari sækja
hana ásamt nokkmm nemendum frá
skólanum er munu koma fram á
opnunarhátíð ráðstefnunnar.
(Fréttatilkynning)
ymng i
Glæsileg húsgögn frá
ligne roset
Opið um helgina
HIERO: Hönnun A. Hieronimus.
Innanhússarkitekt
okkar veitir ráðgjöf
m.a. vegna sérpantana
Opið laugardag kl. 11 -16
Sunnudag kl. 13 -16