Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 34

Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993 í mótvindi o g meðbyr Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Siglt til sigurs - Wind Leikstjóri Carroll Ball- ard. Kvikmyndatökusijóri John Tull. Aðalleikendur Matthew Modine, Jennifer Gray, Cliff Robertson, Jack Thompson, Stellan Skars- gaard, Rebecca Miller. Banda- rísk. TriStar 1992. Siglingakeppnir af þeirri stærðargráðu sem íjallað er um í Siglt til sigurs eru ekki íþrótt ríka mannsins heldur þess mold- ríka og gefst almenningi sjaldan tækifæri til að kynnast henni. Fáar keppnisgreinar eru glæsi- legri en kappsiglingar tignar- legra seglskipa og vart hægt að hugsa sér tilkomumeira mynd- efni. Enda er myndin bæði for- vitnileg og stórkostleg á að horfa á meðan skútumar svífa seglum þöndum í hinni erfiðu og mis- kunnarlausu keppni um Amer- íkubikarinn fræga. En dramað er þunnt og lang- dregið. Modine leikur upprenn- andi skipstjórnanda er missir naumlega af Ameríkubikamum fyrír hönd milljónerans Robert- sons. Manni metnaðarfullum og ekki bætir úr skák að erkifjand- inn, Ástralinn Thompson, hlýtur því verðlaunasætið og er það í fyrsta sinn sem bikarinn fer úr landi. Modine kemst að því að hann hefur einnig misst tökin á kæmstunni og skipsfélaganum (Grey), er hann heimsækir hana þar sem hún starfar við flugvéla- hönnun mitt í Nevadaeyðimörk- inni. Er orðin handgengin verk- fræðingnum, yfirmanni sínum (Skarsgaard). Söðlar nú Modine um og verður dóttir Robertsons (Miller) fyrir valinu. Þessi fema hyggur á hefndir, hannar nýja skútu og takmarkið að sigra Ástralina í næstu keppni. Ballard á að baki tvær úrvals- myndir um samskipti mannsins og umhverfis hans, The Black Stallion og Never Cry Wolf sem báðar eru hálf-sígildar. Og svík- ur heldur engan hér á meðan hann fæst við átök siglingakapp- anna við byrinn og boðaföllin. En sem fyrr segir er handritið langdregið og ógnarlöng atriði um nýsmíðina í eyðimörkinni draga myndina niður. Þá er róm- antíkin öll útí hött og lítið sann- færandi. Þar bætir ekki úr skák kraftleysi Grey í öðm aðalhlut- verkanna og ekki gustar af Mod- ine. Hér hefði þurft sannar stjömur, leikara sem valda myndum, halda þeim gangandi á daufum köflum. Það sópar hinsvegar að aukaleikumnum Skarsgaard, Thompson og Ro- bertson, en hlutskipti þeirra er oftast að dulla í bakgmnninum. Siglt til sigurs er tilkomumikil á meðan skútumar hafa sleppt landfestum, hér gefst landkröbb- um m.a. tækifæri á að sjá kvik- myndatöku á sjó, en ekki í þvottabala, raunvemlegar öldur og ágjöf en ekki brellur og bmnaslöngupus, en í landi er vindurinn allur í fangið og út- koman eftir því. Loftur J. Guðbjarts- son - sjötugnr Mörgum færi vísast líkt og undir- rituðum að sakna vinar í stað.væri hann „fjærri góðu gamni“ á jafn merkum tímamótum og em tilefni þessa greinarkorns. „Est proprium eus“ (þ.e. það segir nokkuð um af- mælisbamið) eins og hinir fomu Rómveijar hefðu væntanlega orðað það að hann skuli á sjálfan sjötugs- afmælisdaginn vera staddur í ann- arri heimsálfu þeirra erinda að sinna hugðarefnum sínum á félagsmála- sviðinu. Verða honum því fluttar fjarstöddum hugheilar ámaðaróskir og þakkir fyrir hálfrar aldar órofa vináttu og velgjörðir í minn garð, og Önnu konu minnar meðan hún lifði. En mál er að segja nánari deili á afmælisbaminu. Loftur Jömndur Guðbjartsson, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 5. júní 1923 á Bíldudal í Arnarfirði, Vestur-Barðastrandar- sýslu. Guðbjartur Friðrik Marías faðir hans, skipasmiður og útgerð- armaður í Gilshaga á Bíldudal og síðar Akureyri, f. 14. júlí 1892 og d. 18. júlí 1941, var sonur Friðriks Friðrikssonar, bónda í Litla-Laug- ardal í Tálknafirði (f. 8.9. 1843, d. 17.7. 1918), og Guðrúnar Jónsdótt- ur, húsfreyju, frá Króki í Dala- hreppi (f. 1.12.1848, d. 23.8. 1919). Jensína Sigríður móðir Lofts, hús- freyja á Bíldudal og síðar Akureyri, fædd 7. ágúst 1883 og dáin 29. mars 1965, var dóttir Lofts Bjarna Bjarnasonar, bónda og sjómanns á Gileyri, Eysteinseyri og Ystu-Tungu í Tálknafirði, síðast í Gilhaga í Bíldudal (f. 18.4. 1854, d. 15.6. 1923), og Guðrúnar Jónsdóttur, konu hans (f. 3.11. 1848, d. 6.6. 1926). Nokkmm ámm fyrir heims- PL«a hHutl Franc Booker kann að skora glæsitegar körfur og gæða sér á ekta Plzza Hut pizzi ptcsi -Hut Hótel Esja sími 680809 Mjódd sími 682208 Frí heimsendingarþjónusta styrjöldina síðari fluttist fjölskyldan til Ákureyrar, en þar féll heimilis- faðirinn frá, langt um aldur fram, árið 1941. Árið áður hafði Loftur lokið gagn- fræðanámi, en nú varð að afla tekna, því að hugurinn stefndi til frekara náms, og þremur ámm seinna lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri. Þar komu ótvíræðir náms- hæfileikar hans fram, einkum á sviði tungumála. Er til þess tekið að einn mesti enskumaður sem þetta land hefir alið, Sigurður Líndal Pálsson, fól Lofti að kenna dóttur sinni ensku á meðan hann var í námsorlofi frá kennslu við MA í Bretaveldi. Að loknu stúdentsprófi úr máladeild Menntaskólans á Akureyri 1947 var Loftur við nám í læknadeild Há- skóla íslands um eins árs skeið, til undirbúnings tannlækninganámi, og dvaldist þá um hríð sem skipti- stúdent (stipendiatti) við háskólann í Helsinki. Haustið 1948 hóf hann svo nám við háskólann í Leeds á Englandi, fyrst í tannlæknadeild, en síðar í heimspekideild, með hag- fræði og spænsku sem aðalgreinar og portúgölsku sem aukagrein. Lauk hann BA-prófí í þessum grein- um 1953. Eftir heimkomuna frá Leeds stundaði Loftur stjómsýslu- og skrifstofustörf, var viðskiptalegur framkvæmdastjóri fyrir Keflavík Offícers’ Open Mess 1953-1956, og fulltrúi á skrifstofu Véla- og raftækjaverslunarinnar hf. 1956- 1958. En í ársbyijun 1959 hóf Loft- ur aðalævistarf sitt er hann gekk í þjónustu Utvegsbanka íslands, fyrst sem fulltrúi í bókhaldsdeild aðal- bankans til 1963, síðan sem deildar- stjóri í hagfræðideild 1963-1971 og forstöðumaður hennar 1971- 1975, er hann var skipaður útibús- stjóri bankans í Kópavogi. Fór hann á eftirlaun um áramótin 1988/89. Á árunum 1959 til 1975 lagði hann einnig fyrir sig stundakennslu í ensku við ýmsa skóla, svo sem Námsflokka Reykjavíkur, Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar, Haga- skóla, Menntaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Hamrahlíð, enda eftirsóttur til slíkra starfa vegna yfirburðakunnáttu í þeirri tungu. Þá vann Loftur um hríð við orðfræðastörf á sviði ensku við Háskóla íslands 1988-1991. Þegar á Akureyrarárunum mun áhugi á félagsmálum hafa vaknað hjá afmælisbaminu, svo og vilji til að láta eitthvað gott af sér leiða. Hér verður stiklað á stóm og fátt eitt nefnt: Hann var í nefnd á vegum viðskiptaráðherra um dreifingu og birgðahald á olíuvöram 1968; í stjórn Byggingarsamvinnufélags ríkisstofnana 1957-1972 (formaður 1965-1972); en á seinni áram hefir Loftur starfað mikið á vegum Rót- arýhreyfingarinnar á íslandi, er stofnfélagi í Rótarýklúbbnum Reykjavík-Breiðholt og hefír m.a. ' gegnt þar ritara- og forsetastörfum. ( Komst hann til hæstu metorða þar er hann varð umdæmisstjóri Rotary International á Íslandi 1991-1992. hefír hann þurft að sækja mörg þing á vegum hreyfíngarinnar á erlendri grand, enda þaulvanur ferðagarpur sem hefir lagt leið sína heimshorn- anna á milli, nú síðast á allsheijar- þing samtakanna í Melboume í Ástralíu. Þá er Loftur varaformaður sóknamefndar og safnaðarfulltrúi í Fellaprestakalli í Reykjavík. Hinn 12. desember 1953 gekk Loftur að eiga Vigdísi Guðfinnsdótt- ur, bréfritara. Foreldrar hennar, sem nú era látin, vora Guðfínnur Þorbjömsson, vélfræðingur í Reykjavík, og Marta Pétursdóttir eiginkona hans. Eiga þau Loftur og Vigdís tvær mannvænlegar dætur, Mörtu, iðnrekstrarfræðing, f. 19.3. 1955, og Svövu, iðnrekstrarfræðing, f. 2.2. 1957, og fjögur bamaböm. Skulu að lokum ítrekaðar þakkir til þeirra hjóna fyrir ótal samveru- stundir á liðnum árum sem hafa verið undirrituðum til óblandinnar ánægju, og jafnframt áréttað að slíka vini er gott að eiga að bak- hjarli í sviptingum lífsins. Á afmælisdaginn era þau heiðurs- hjónin stödd á Excelsior Hotel, 281 Gloucester Road, Causeway Bay, Hong Kong (Fax 8956669, sími 8948888), á heimleið af Rótarý- þinginu í Melboume. Heimir Áskelsson. Blóðbankaþing Norð- urlanda haldið hér BLÓÐBANKAÞING Norðurlanda er þessa dagana haldið á Landspít- alanum og lýkur þvi á laugardag. Þátttakendur eru um 50 manns. Aðal málefni þingsins er blóðsmit og smitvamir í blóðbankaþjón- ustu. Greinargerðir um tíðni veirusýkinga meðal blóðgjafa á Norður- löndum verða fluttar. Lýst verður nýjustu rannsóknaraðferðum við greiningu helstu veirutegunda sem þekktar eru að því að valda blóðsmiti í sambandi við notkun blóðs og blóðhluta í lækningaskyni. Meðal þeirra eru helstar lifrarbólguveira B og C og eyðniveira. Nýleg skimpróf fyrir lifrarbólgu- veira C era mikilsvert framfaraspor í smitvömum. Nú er mögulegt að fínna flesta þá blóðgjafa, sem sýktir era af lifrarbólguveira C án þess að hafa einkenni um sýkingu. Með því að útiloka blóðgjafa af þessu tagi frá því að gefa blóð er komið í veg fyrir heilsutjón hjá sjúklingum. Blóðbankinn fékk í september á síðasta ári öflugan sjálfvirkan tækja- búnað til að skima blóð blóðgjafa fyrir ofangreindum veirusýkingum. Skýrt verður frá árangri rannsókna með þeim búnaði fyrstu sex mánuð- ina. Á þingið koma sérfræðingar frá Frakklandi og Bandaríkjunum og lýsa nýjustu smitvamaraðferðum við plasma, plasmaþætti og blóðframur, sem nota á til lækninga. Sérstök sýning Tvö önnur viðfangsefni verða einnig tekin til meðferðar. Það er menntun lækna og rannsóknafólks í blóðbankaþjónustu og vísindarann- sóknir í blóðbönkum á Norðurlönd- um. Af því tilefni verður sett upp sérstök sýning fyrir þátttakendur um vísindarannsóknir í Blóðbankan- um, sem unnar hafa verið í sam- vinnu við sjúkradeildir Landspítalans og annarra sjúkradeilda og erlenda samvinnuaðila á síðustu tuttugu árum. Sýningin er í forstofu á 3. hæð geðdeildar Landspítalans en í fyrirlestrasal á þeirri hæð er þingið haldið. Á blóðbankaþinginu verður vakin sérstök athygli á brauðtryðjenda- starfí Bjöms heitins Sigurðssonar fyrsta forstöðumanns Tilraunastöðv- ar Háskólans í meinafræði á Keldum í rannsóknum á hæggengum veira- sjúkdómum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.