Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 37

Morgunblaðið - 05.06.1993, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JUNI 1993 37 Aleksei Shirov signrsæll __________Skák______________ Margeir Pétursson ALEKSEI Shirov frá Lettlandi sigraði á SKA-Mephisto stórmót- inu í Miinchen í Þýskalandi sem lauk um síðustu helgi. Þetta var annar mótasigur Shirovs á skömmum tíma, hann kom beint frá Najdorf-mótinu í Buenos Air- es þar sem hann varð einnig hlut- skarpastur. Shirov, sem aðeins er 21 árs, náði einnig fjórða sæti á Linares-mótinu í mars á eftir þeim Kasparov, Karpov og An- and. Hann virðist á góðri leið með að taka sér öruggt sæti í hópi 5-8 sterkustu skákmanna í heimi. Shirov tefldi á Apple-skákmótinu í Reykjavík í fyrra og sigraði þar ásamt Jóhanni Hjartarsyni. Svissneska bankasamsteypan Schweizerische Kreditanstalt og framleiðendur þýsku Mephisto- skáktölvanna stóðu fyrir mótinu, Úrslit urðu þessi: l'. Shirov, Lettlandi, 8 v. af 11 mögu- legum. 2. Gelfand, Hvíta-Rússl., Vh v. 3. Gurevich, Belgíu, 7 v. 4-5. Adams, Englandi, 6'h v. 4-5. Barejev, Rússlandi, 6V2 v. 6. Lutz, Þýskalandi, 6 v. 7. Júsupov, Rússlandi, 5 v. 8-9. Hertneck, Þýskalandi, 4'h v. 8-9. Hiibner, Þýskalandi, 4‘/2 v. 10. Lobron, Þýskalandi, 4 v. 11. Lautier, Frakklandi, 3 'h v. 12. Jóhann Hjartarson 3 v. Það er núvenginn vafí á því hver er efnilegasti skákmaður Þjóðvetja. Það er Christopher Lutz, 22ja ára, sem sýndi að annað sætið á eftir Karpov i Baden Baden í desember var engin tilviljun. Artúr Júsupov er sestur að í Múnchen og verður gjaldgengur í þýska Ólympíuliðið á næsta ári. Hann og núverandi for- ystulið Þjóðverja, Húbner, Lobron og Hertneck, náðu aldrei að blanda sér í toppbaráttuna. Frakkinn Lauti- er og Jóhann Hjartarson voru alveg heillum horfnir, náðu sér aldrei á strik. Lautier stökk alla leið upp í 2.645 stig á síðasta lista FIDE en virðist ætla að hafa skamma viðdvöl á toppnum. Jóhann reyndist ekki vera í nægi- lega góðri æfingu. Hann tapaði tveimur fyrstu skákunum og missti síðan vinningsstöðu gegn Gelfand í jafntefli. Eftir það var hann óþekkj- anlegur en tókst að vinna Lobron í síðustu umferð. Það var sérlega súrt í brotið að sleppa Gelfand af önglinum í hróks- endatafli: (Sjá stöðumynd) Svart: Jóhann Hjartarson Hvítt: Boris Gelfand 46. - Hd2! Fórnar a peðinu til að loka hvíta kónginn úti. 47. Ha7+ - Kd6 48. Hxa7 - c4? Þarna gengur öruggur vinningur úr greipum svarts. Rétt var 48. — Hdl! 49. Ha2 - Kd5 50. Ke2 og nú vinnur bæði 50. — Hcl 51. h4 (Eða 51. Kd3 - c4+ 52. Ke3 - Hel+ 53. Kf3 - Kd4) 51. - Kc4 52. h5 - Hhl og 50. - Hd4 51. h4 - Kc4 52. h5 - Kb3 53. Ha5 - Hd5! Nú bjargar Gelfand sér með laglegum varnarleik. 49. Ha8! - Kc5 50. Hc8+ - Kb4 51. Hb8+ - Ka3 52. Ha8+ - Kb2 53. Hb8+ - Kcl 54. Hc8 - Hxh2 55. Hxc4 - c2 56. g4 - Kb2 57. Kf4 - Kb3 58. Hc7 - Hhl 59. Kf5 - cl=D 60. Hxcl - Hxcl 61. Mánaðamót taflfélags- insHellis TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur mánaðamót mánudaginn 7. júní klukkan 20. Tefldar verða 7 um- ferðir eftir Monradkerfi, 10 mín- útna skákir. Þátttökugjöld eru 300 kr. fyrir félagsmenn og 400 kr. fyrir aðra. 60% af þáttökugjöldum fer í verðlaun. Teflt er í Menning- armiðstöðinni í Gerðubergi og er mótið opið öllum. g5 — Kc4 og hér var samið jafntefli. Garðbæingar í EM skákfélaga íslandsmeistararnir 1992 úr Taflfélagi Garðabæjar halda senn til London og tefia í Evrópukeppni skákfélaga. TG er í mjög erfiðum riðli með Volmac Rotterdam frá Hollandi og St. Pétursborg frá Rússlandi. Einnig er við ramman reip að draga þar sem SC Stadthag- en frá Þýskalandi er og sænsku meistararnir Rochaden, Stokkhólmi. Garðbæingar ættu þó að eiga sæmilega möguleika gegn Espoo, Finnlandi, Barbican, London, og Rhyddings frá Swansea í Englandi. Evrópukeppnin er nú háð með nýju sniði. Teflt er í sjö riðlum og kemst aðeins eitt félag úr hveijum riðli í úrslitin. Á meðal liðsmanna TG eru tveir alþjóðlegir meistarar, þeir Björgvin Jónsson og Sævar Bjarnarson. Tómas Björnsson í landsliðsflokk Tómas Björnsson tryggði sér sæti í landsliðskeppninni á Skákþingi ís- lands í haust með því að sigra Arin- björn Gunnarsson í einvígi eftir harða keppni. Staðan var 2-2 og þurfti að framlengja, en þá varð Tómas hlutskarpari. Þeir tveir urðu jafnir í öðru til þriðja sæti í áskor- endaflokki á Skákþingi íslands um páskana. Boðsmót TR að hefjast Boðsmót TR hefst mánudaginn 7. júní kl. 20. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Um- ferðir eru á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum kl. 20. Um- hugsunartíminn er ein og hálf klukkustund á 36 leiki og síðan hálftími til að ljúka skákinni. Mót- inu lýkur 23. júní. Á meðal kepp- enda verða tvö skákforrit frá Kjarna hf., MChess Pro og Chess Genius og verða þau keyrð á SVC 486 tölvum. Teflt verður um nýjan farandbikar sem Kjarni hf. gefur til keppninnar. Öllum er heimil þátt- taka, en skráning er í símum 681690 og 813540 dagana fýrir mótið og á mótsstað. Blóma- og garð- dögum í Kringl- unni að ljúka UNDANFARNA daga hafa stað- ið yfir blóma- og garðdagar í Kringlunni þar sem settur hefur verið upp markaður á göngugöt- um Kringlunnar. Þar hefur viðskiptavinum Kringlunnar gefist kostur á því að gera góð kaup á ýmsu fyrir garðinn en einnig hafa sérfræðingar í garð- yrkjumálum og skipulagsmálum veitt ráðgjöf og kynningar hafa verið á staðnum. í dag er síðasti dagur þessarar blómlegu sölusýn- ingar en margt verður þar til skemmtunar fyrir gesti. Verslanir Kringlunnar eru opnar frá kl. 10-18.30 alla virka daga nema föstudaga þegar opið er til kl. 19. Laugardaga er opið frá kl. 10-16. (Úr fréttatilkynningu.) ^■A ISLANDI Það þarf engin gylliboð þegar nýr Ford Escort kostar aðeins frá 1.078 þús. kr. Ný og glæsileg hönnun Ford Escort bílanna í útliti og öryggisbúnaði gera þá fullkomnari en nokkru sinni. Þeir hafa kraft og snerpu sportbílsins, rými, öryggi og þægindi fjölskyldubílsins en eru á verði smábilsins. Ford Escort hefur ríkulegan staðalbúnað s.s. • vökvastýri • rafmagn i rúðum • samlæsingar í hurðum • útvarp og segulband Bílasýning Globus, Lágmúla 5 laugardag kl. 13-16 Akurcyri, BSA laugardag kl. 13-18 F7'*'’1 V'r"„: Nýja 16 ventla Z-vélin frá Ford sameinar fullkomnustu fjölventla- og hvarfakútatækni. Styrktarbitar í hliðarhurðum veita ökumanni og farþegum aukið öryggi og vemd. Gjobus? -heimur gœða! Lágmúla 5, sfml 91- 68 15 55

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.