Morgunblaðið - 30.06.1993, Page 1
56 SIÐUR B/C
144. tbl. 81. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Arásirnar á Irak
Hefndar-
aðgerð-
umhótað
Bagdad. Reuter, The Daily Telegraph.
DAGBLAÐ varnarmálaráðuneyt-
isins í írak hvatti til hefndar-
aðgerða gegn Bandaríkjamönn-
um og bandamönnum þejrra í
Miðausturlöndum, svo sem Israel-
um og Saudi-Aröbum, vegna eld-
flaugaárása Bandaríkjamanna á
Bagdad um helgina.
Dagblaðið sagði að búast mætti
við frekari árásum af hálfu Banda-
ríkjamanna og spáði þeim hrakförum
líkt og í Víetnam og Líbanon. Blaðið
hvatti íraka og „öll byltingaröfl" tii
hefndaraðgerða gegn „óvinum írösku
þjóðarinnar".
Mikil spenna er nú í Bagdad eftir
árás Bandaríkjamanna á borgina um
helgina. Skotið var í misgripum úr
loftvarnarbyssum á íraska flugvél í
gær. Að sögn íraska útvarpsins héldu
menn að þar færi bandarísk orrustu-
þota.
Tekist á um
eftirlitsmyndavélar
Burtreknir Albanir
SÍÐUSTU daga hefur gríska lögreglan rekið um 18.000 ólöglega innflytjendur frá Albaníu aftur til síns
heima en talið er, að þeir séu á bilinu 150.000 til 300.000 alls í Grikklandi. Með þessu eru Grikkir að
svara brottrekstri háttsetts prests í grísku rétttrúnaðarkirkjunni frá Albaníu en þar býr grískur minni-
hluti, 250.000 manns að sögn Grikkja en 60.000 að sögn Albana. Hafa samskipti þessara tveggja þjóða
ekki verið stirðari frá stríðslokum. Hér er verið að flytja burt albanska fjölskyldu í lögreglubíl en hún var
handsömuð í Aþenu.
S vartahafsfiotinii
Hermenn
hóta upp-
reisn gegn
forsetum
Kíev. Reuter.
HERMENN hótuðu í gær uppreisn
gegn forsetum Úkraínu og Rúss-
lands og sögðust ekki ætla að fara
eftir samkomulagi þeirra um að
skipta Svartahafsflotanum á milli
ríkjanna.
120 fulltrúar hermanna í sjóhetj-
um landanna efndu til fundar í Kíev
og sögðu að samkomulagið skaðaði
hagsmuni beggja ríkjanna. Þeir
kröfðust þess að rússnesk stjómvöld
fengju yfirráð yfír öllum skipum
Svartahafsflotans, en þau eru alls
300.
Embættismenn sögðu að yfírlýs-
ingin væri alvarleg uppreisn gegn
forsetunum tveimur, æðstu yfir-
mönnum herjanna. Hins vegar var
óvíst hvort í uppsiglingu væri almenn
uppreisn innan sjóheijanna.
Bosníiunenn reyna að leysa ágreining sinn um framtíð landsins
Ekki fylgdi sögunni hvort íraska
flugvélin varð fyrir skotum. Fjölmiðl-
ar í írak hafa varað við því að Banda-
ríkin muni brátt gera aðra árás.
Geta þeir sér þess til að Bandaríkja-
menn muni næst bera því við að Irak-
ar hafí neitað að samþykkja að Sam-
einuðu þjóðimar komi fyrir eftirlits-
myndavélum á tilraunastöðum fyrir
eldfiaugar. Starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna í Bagdad segja að írakar
taki ágreining um myndavélarnar
mjög alvarlega og þeir séu óðum að
flytja burt tæki frá eldflaugastöðum.
Bandarísk árásarþota skaut í gær
eldflaug á loftvarnastöð í suðurhluta
íraks eftir að ratsjá hafði verið stillt
á bandaríska þotu á svæðinu. Banda-
rískar herþotur hafa haldið uppi eft-
irliti á þessu svæði til að vernda shíta
fyrir her Sadda'ms Husseins.
Samkvæmt skýrslu á vegum utan-
ríkismálanefndar fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings sem birt var í gær
er geta fraka til framleiðslu her-
gagna 80% af því sem hún var fyrir
Persaflóastríðið. Þessi endurreisn
hefur orðið þrátt fyrir eftirlit og refsi-
aðgerðir Sameinuðu þjóðanna.
Forsætisnefndin hyggst
semja nýj a friðaráætlun
Moskvu, Sariycvo. Reuter, The Daily Telegraph.
FORSÆTISNEFND Bosníu ákvað á fundi
sínum í Sarajevo í gær að semja nýja áætlun
um framtíð landsins. Umdeild tillaga Serba
og Króata um að skipta Bosníu í þrjú smá-
ríki var ekki rædd á fundinum þótt nokkrir
nefndarmannanna níu væru augljóslega
hlynntir henni.
í yfirlýsingu frá nefndinni eftir fundinn sagði
að þrír fulltrúanna - múslimi, Króati og Serbi -
myndu semja nýja áætlun um framtíð landsins.
Þremenningarnir eru Ejup Ganic, varaforseti
Bosníu, Króatinn Miro Lasic og Miro Lazovic,
serbneskur forseti nefndarinnar. Ganic, sem er
stuðningsmaður Alija Izetbegovics, forseta Bosn-
íu, og andvígur þrískiptri Bosníu, sagði að það
myndi að öllum líkindum taka sjö til átta daga
að móta áætlun nefndarinnar. Þetta er í fyrsta
sinn sem nefndin kemur saman eftir að Izet-
begovic og Ganic neituðu að taka þátt í viðræðum
um tillögu Serba og Króata um stofnun þriggja
smáríkja í Bosníu.
Rússar gegn afnámi vopnasölubanns
Rússar sögðust í gær ætla að beita neitunar-
valdi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn
tillögu um að banni við sölu vopna til múslima í
Bosníu yrði aflétt. Fimm múslimsk ríki hafa lagt
til að banninu verði aflétt og umræður hófust um
tillöguna í öryggisráðinu í gærkvöldi. Auk Rússa
leggjast Bretar og Frakkar gegn tillögunni, þann-
ig að afar litlar líkur eru á að hún verði samþykkt.
Hersveitir stjómarinnar í Bosníu börðust í gær
við króatíska og serbneska hermenn nálægt bæn-
um Maglaj í miðhluta landsins. Stjómarhermenn-
irnir urðu að hörfa frá Novi Seher, hemaðarlega
mikilvægu þorpi í grenndinni, þegar króatísku
hermennimir gerðu serbneskum skriðdrekasveit-
um kleift að sækja fram.
Bæirnir Zavidovici, Maglaj og Zepoe urðu fyrir
hörðum stórskotaárásum Serba og Króata. Yfír-
menn stjómarhersins sögðu að serbnesku og króa-
tísku hersveitirnar hefðu hrakið þúsundir múslima
frá heimkynnum sínum. Yfírmaður eftirlitsnefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna telur að Serbar og Króat-
ar hafí tekið höndum saman um ná eins stómm
landsvæðum og mögulegt er af múslimum.
ELO-stigin tekin af
Kasparov og
Moskvu. Frá Lárusi Jóhannessyni, fréttaritara Morgunbladsins.
GARRÍ Kasparov, heimsmeistari í skák, og áskorandi hans,
Nigel Short, eru ekki á nýjasta lista Alþjóða skáksambandsins
(FIDE) yfir stigahæstu skákmenn. Þá vekur athygli að Júdit
Polgar er í 24. sæti á listanum.
Listinn verður birtur á morgun,
og er þetta þáttur í refsiaðgerðum
FIDE gegn skákmönnunum
tveim, sem halda einvígi á eigin
vegum í London. Efstur á hinum
nýja lista FIDE er Anatólí Karpov,
sem mun heyja einvígi við Jan
Timman um heimsmeistaratitil
FIDE. Timman er í 34. sæti á list-
anum. Margir stórmeistarar telja
aðgerðir FIDE of harkalegar. Þeir
segja það að taka stigin af skák-
mönnum jafngilda því að svipta
þá atvinnumöguleikum, þar eð
stigafjöldinn ráði því á hvaða
mótum þeim sé boðið að tefla.
Short
Ungverska skákkonan Júdit
Polgar er með 2630 stig á lista
FIDE og í 24. sæti. Er þetta besti
árangur sem nokkur skákkona
hefur náð.
Karpov sigraði á minningar-
móti um Mikhaíl Tal sem lauk í
Moskvu í gærkvöldi. Jan Timman,
sem teflir við hann um heims-
meistaratitil FIDE í haust, lenti
hins vegar í síðasta sæti.
í samtali við Morgunblaðið
Kasparov Short
hörmuðu Karpov og Timman
hvernig mál hefðu þróast og
sögðu það ef til vill of langt geng-
ið að taka Kasparov og Short af
stigalistanum. Karpov bætti þó
við að þeir hefðu sjálfír komið sér
í þessa klípu með því að hafa
ekki samráð við aðra skákmenn.
Það væri nokkuð seint nú að kalla
á samstöðu meðal skákmanna.
Sjá skákþátt á bls. 26.
---r--♦ ♦ ♦-----
Var rekinn
fyrir klórið
Harare. Reuter.
NÝLEGA gerðist það í
Zimbabwe, að dómari nokkur
var rekinn úr embætti og svipt-
ur leyfi til dómarastarfa. Var
það ástæðan hvað hann skrifaði
illa.
„Ég verð að viðurkenna, að ég
hef ekki fallega hönd en það getur
varla talist glæpur eða einhver sið-
ferðisbrestur," sagði dómarinn, Roy
Wilson, en hann hyggst áfrýja máli
sínu til hæstaréttar landsins. I upp-
sagnarbréfínu kom það fram, að
svo mikill tími hefði farið í að
“þýða“ það, sem frá honum hefði
komið, að ekki hefði verið um ann-
að að ræða en láta hann fara.