Morgunblaðið - 30.06.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
Fasteignamarkaðurinn á fyrsta ársfjórðungi 1993
Kaupsamningum fækkaði
um 8,6 prósent milli ára
KAUPSAMNINGUM á fasteignamarkaði fækkaði úr 467 á fyrsta
ársfjórðungi 1992 í 427 á fyrsta ársfjórðungi 1993, eða um 8,6%,
en frá fyrsta ársfjórðungi 1991 til fyrsta ársfjórðungs 1993 hefur
kaupsamningum fækkað um 24,8%. Þetta kemur fram í nýút-
komnu fréttabréfi Fasteignamats ríkisins.
í fréttabréfinu kemur fram að
nokkur óvissa hafi ríkt á fasteigna-
markaðnum hér á landi í upphafi
ársins og hafi bágbornu efnahags-
ástandi og óvissu um kjarasamn-
inga verið kennt um. Þegar fjöldi
kaupsamninga sem borist hafði
Fasteignamati ríkisins fyrir 20.
júní síðastliðinn var borinn saman
við þann fj'ölda sem borist hafði
fyrir sömu dagsetningu tvö undan-
farin ár kom í ljós að árið 1991
höfðu borist 568 samningar að
verðmæti 4.107 milljónir króna,
árið 1992 467 samningar að verð-
mæti 2.999 milljónir og árið 1993
höfðu borist 427 samningar að
verðmæti 3.040 milljónir króna.
Allar upphæðirnar eru á verðlagi
ársins 1993 og því samanburðar-
hæfar.
Minni meðalstærð
Raunverð hækkaði um 2,5% á
hvern fermetra í íbúðum í fjölbýlis-
húsum í Reykjavík á fyrsta
ársijórðungi 1993 borið saman við
fyrsta ársfjórðung 1992. Núvirt
söluverð á fermetra hækkaði um
4,5% og framreiknistuðull um 4,6%
en á sama tímabili hækkaði
lánskjaravísitalan um 2,0%.
Samkvæmt úrtakskönnun
Fasteignamats ríkisins hefur
meðalstærð seldra íbúða minnkað
um 1,9 fermetra milli sam-
anburðartímabilanna. Meðalstærð
eigna var 88 fermetrar á fyrsta
ársfjórðungi 1992, en 86,1
fermetri á fyrsta ársfjórðungi
1993. Meðalverð eigna var 5.796
þús. kr. á núvirði 1992, en 5.965
þús. kr. 1993, eða 2,9% hærra, og
söluverð á fermetra var 67.981 kr.
1992 en 71.021 kr. 1993.
Útborgunarhlutfallið 1992 var
41,5% á móti 40,6% 1993, eða 0,9
prósentustigum lægra, verðtryggð
lán voru 58% 1992 á móti 59,1%
1993, eða 1,1 prósentustigi hærra,
og óverðtryggð lán voru 0,5% á
fyrsta ársfjórðungi 1992 á móti
0,3% á fyrsta ársijjórðungi 1993,
eða 0,2 prósentustigum lægra.
VEÐUR
VEÐURHORFUR 1DAG, 3Ö. JÚNÍ
YFIRLIT: Við Reykjanes er 992 mb lægð, sem þokast norðaustur. Um
600 km suður af Hvarfi er vaxandi 1002 mb lægð, sem hreyfist austnorð-
austur. 1020 mb hæð er yfir Norðursjó.
SPÁ: Sunnan og suðvestan átt, víða kaldi eða stinningskaldi, rigning
eða skúrir sunnanlands og vestan en annars þurrt. Hiti 8-17 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðan og
norðvestan átt, strekkingsvindur austan til. Skúrir um norðan- og austan-
vert landið, en víðast bjart veður sunnan- og vestanlands. Hiti verður
á bilinu 6-15 stig, hlýjast sunnanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 18.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 880600.
Q
Heiðskírt
/ / /
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
/ * r
Slydda
■A
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjóður er 2 vindsfig.^
10° Hitastig
v Súld
- Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Greiðfært er um alla helstu þjóðvegi landsins. Á Vestfjörðum eru Þorska-
fjarðar- og Tröllatunguheiðar jeppafærar. Hálendisvegir eru óðum að
opnast hver af öðrum og er t.d. orðið fært um Uxahryggi, í Eldgjá að
sunnan, Veiðivötn, Jökulheima, Kerlingarfjöll að sunnan, Herðubreiðar-
lindir og Kverkfjöll. Einnig er Kjalvegur orðinn fær stórum bílum. Á
morgun miðvikudag verður opnað inn í Landmannalaugar um Sigöldu.
Víða er unnið við vegagerð, og eru vegfarendur af gefnu tilefni beðnir
að virða þær merkingar sem þar eru.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti ( síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 14 skýjað
Reykjavfk 9 rign. á sfð. klst.
Bergen 16 léttskýjað
Helsinki 15 þrumuveður
Kaupmannahöfn 19 léttskýjað
Narssarssuaq 4 súld
Nuuk 2 alskýjað
Osló 22 hálfskýjað
Stokkhólmur 20 skýjað
Pórshöfn 11 þokaás. klst.
Algarve 24 þokumóða
Amsterdam 22 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Berlín 22 léttskýjað
Chicago 14 skýjaö
Feneyjar 23 skýjað
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 21 mistur
Hamborg 20 skýjað
London 23 skýjað
LosAngeles 17 heiðskírt
Luxemborg 23 heiðskírt
Madrid 25 skýjað
Malaga 29 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 23 alskýjað
Orlando 26 skýjað
París 23 léttskýjað
Madelra 22 skýjað
Róm 25 rlgn. á slð. klst.
Vín 20 léttskýjað
Washington 26 alskýjað
Winnipeg 11 skýjað
Meinað að leggjast að bryggju
RÚSSNESKI togarinn Severmaya Palmira á ytri höfninni í Reykjavík.
Gninur um rottugang
í rússneskum togara
SÓTTVARNARNEFND hafnaði því að rússneska skipið Severmaya
Palmira fengi leyfi til að leggjast að bryggju í Reykjavík, þar sem
grunur lék á að rottur væru um borð. Skipið kom til Reykjavíkurhafn-
ar til að taka olíu. Skipið var afgreitt með olíu án þess að það kæmi
til bryggju og í gær voru vistir
skipið lá á ytri höfninni.
„Skip eiga að vera með hin svo-
kölluðu rottu-vottorð gild þegar þau
koma. Ef við sjáum merki um rott-
ur, þó að vottorðið sé ekki útrunnið,
þá er samskiptum við þau hafnað,"
sagði -Heimir Bjarnason, aðstoðar-
fluttar út til skipsmanna þar sem
héraðslæknir í Reykjavík. Hann seg-
ir það almennt tíðkast að farið sé
um borð í rússneska togara til að
athuga hvort rottur geti verið um
borð.
Útbreiðsla HlV-veirunnar á Norðurlöndum
Meirihluti nýsmit-
aðra gagnkynhneigðir
MEIRIHLUTI nýsmitaðra af HlV-veirunni á Norðurlöndum eru nú
gagnkynhneigðir, en áður fyrr var meirihluti nýsmitaðra samkyn-
hneigðir og lyfja- eða eiturlyfjaneytendur. Að sögn Ólafs Ólafssonar
landlæknis eru t.d. 60-70% nýsmitaðra í Svíþjóð og Noregi gagnkyn-
hneigðir, en þar er fyrst og fremst um að ræða útlendinga eða Norður-
landabúa sem hafa dvalist lengri eða skemmri tíma í Afríku eða Suð-
ur-Asíu og smitast hafa við mök við hitt kynið.
Útbreiðsla HIV er hægari á Norð-
urlöndum en annars staðar og hefur
fjöldi nýsmitaðra á ári hverju ekki
aukist að ráði síðastliðin 2-3 ár.
Ólafur sagði að sú staðreynd að til-
fellum nýsmitaðra samkynhneigðra,
lyfja- ogv eiturlyfjaneytenda hefði
fækkað hlutfallslega sýndi að
fræðsla og öflugur áróður hefði skil-
að sér, og einnig það að sprautum
væri dreift ókeypis til sprautunot-
enda. Hann sagði að fræðsla og
áróður meðal ferðamanna og þeirra
sem dveljast langdvölum í þriðja
heiminum yrði aukinn, og væri haft
samband við ferðaskrifstofur í því
sambandi.
Aðspurður um hvort sama þróun
hefði orðið hér á landi varðandi hlut-
fallslega fjölgun gagnkynhneigðra
nýsmitaðra af HIV, sagði Ólafur að
erfitt væri að segja til um það vegna
þess hve fjöldi nýsmitaðra á ári
hveiju væri lítill hér á landi, en þró-
unin varðandi nýsmitaða væri þó að
flestu leyti svipuð hér og á hinum
Norðurlöndunum.
12 mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot
Níu mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir
18 ÁRA gamall piltur var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu
mánuði skilorðsbundna, og til greiðslu miskabóta fyrir að hafa þröngv-
að tveimur piltum, 15 og 16 ára gömlum, með ofbeldi og hótunum til
að hafa við sig kynferðismök.
Atburðurinn átti sér stað utan-
dyra í Kópavogi á nýársnótt 1993.
Piltamir tveir voru þar á göngu er
hinn dæmdi varð á vegi þeirra. Hann
skipaði þeim með hótunum að eiga
við sig mök og þorðu þeir ekki ann-
að en að láta að óskum hans.
Gerðar voru kröfur til að ákærði
greiddi hvorum foreldra piltanna 870
þúsund krónur auk dráttarvaxta og
að hann yrði dæmdur til refsingar.
Niðurstaða dómsins var sú að ákærði
hafi gerst sekur um brot það sem
honum var gefið að sök. Hann var
dæmdur til að sæta fangelsi í 12
mánuði en fullnustu níu mánaða er
frestað og fellur niður að tveimur
árum liðnum haldi ákærði almennt
skilorð. Þá var hann dæmdur til að
greiða foreldrum piltanna 150 þús-
und krónur auk dráttarvaxta, sakar-
kostnað og málsvarnarlaun. Sigurð-
ur Hallur Stefánsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
i
i
i
i
Í
i
I
I