Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 11

Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 11 > > í > > I Morgunblaðið/Þorkell Mauricio Marques sem þrumuguðinn í sýningu Kramhússins á Raca. og æft í þann mund að gestir gengu í salinn. Ekki hef ég trú á að Marques hafi haldið þessu við- bótaratriði í sýningunni, enda var það á skjön við allt annað. Eftir hlé kom stórkostlegur sólódans Mauricios Marques. Ró- legur, yfirvegaður og vel upp- byggður dans, sem var að sögn tákndans fyrir vatn, fullur af mýkt og dýrslegri spennu. Þama kom greinilega fram, hve góður dansari Marques er og hve fullkomið vald hann hefur yfír hreyfingum sínum og dansi. Fjaður- magn hans og langar línur drógu einmitt fram þennan eðlislæga mun, sem er á svörtum döns- urum og hvítum. Síðast á efnis- skránni var Mauc- ulle, sem hefur einnig þróast sem dans útfrá bar- dögum. Hver dansari dansar með tvö prik, sem tákha skulu sveðj- ur. Hér var mikið afl og orka á ferð. Dansinn byggði á ákveðinni hrynj- andi, á sókn og vörn og því að ná höggstað á and- stæðingi sínum, rétt eins og geng- ur og gerist í bardögum. Dansar- arnir stóðu sig vel og hafa greini- lega numið töluvert af starfi sínu í danssmiðjunni í Kramhúsinu. Það er dönsumm nauðsyn að kynnast öllum straumum í dansinum, jafnt suður-amerískum og afrískum dönsum sem öðmm. Kramhúsið er í eðli sínu nokkurs konar gras- rót í dansinum og allir vita, að ekkert þrífst án góðrar grasrótar. Bókmenntahátíð í Molde Yíðkunnir höfundar frá mörgiim löndum ALÞJÓÐLEGA bókmenntahá- tíðin í Molde í Noregi verður haldin 4. - 11. júlí. Hátíðin er sú stærsta sinnar tegundar í Noregi. Upphaflega var gert ráð fyrir að hátiðin yrði haldin annað hvert ár, en að sögn framkvæmdastjóra hátíðar- innar, Knut 0degárd skálds, þótti hátíðin í fyrra takast svo vel að ákveðið var að verða við óskum um að gera hátiðina að árlegum viðburði. Margir norskir höfundar og fyrirlesarar koma fram á bók- menntahátíðinni í Molde, meðal þeirra Rolf Jacobsen og Herbjörg Wassmo. Fulltrúi íslands verður Matthías Johannessen og meðal annarra erlendra höfunda verða Bandaríkjamaðurinn Gore Vidal, Fay Weldon frá Englandi, Juliana Berlinguer frá Ítalíu, Josef Michl frá Slóvakíu, Mateja Matevski frá Makedoníu, Justo Jorge Padr- ón frá Spáni, Antti Tuuri frá Finnlandi, Göran Tunström frá Svíþjóð, Vita Andersen frá Dan- mörku og Lydia Didriksen frá Færeyjum. Knut 0degárd sagði í samtali við blaðið að bókmenntahátíðin hefði þróast í þá átt að verða enn alþjóðlegri. Víðkunnir erlendir rithöfundar sæktu hátíðina heim og nokkrir af fremstu höfundum Norðurlanda væru meðal þátt- takenda. Málarinn Sigrid Undset Fyrirlestrar eru yfirleitt fyrri hluta dags, en á kvöldin eru dag- skrár með upplestri höfunda. 0degárd gat þess.að meðal þess sem athygli hlyti að vekja væri sýning á 42 vatnslitamyndum eftir Sigrid Undset sem ekki hefðu verið sýndar áður. „Á yngri árum var henni ráðlagt að gera eitthvað annað en skrifa, verk þessa væntanlega Nóbelshöfund- ar þóttu ekki efnileg", sagði Knut 0degárd Knut 0degárd, „og þá fór hún að mála í staðinn." Sterk bókmenntahefð í Molde Bókmenntahátíðin er eins og fyrr helguð minningu Björnstj- erne Björnson og kennd við hann. „Bókmenntahefðin er mjög sterk í Molde“, sagði Knut 0degárd, „Ibsen bjó hér á tímabili og skrif- aði þá meðal annars Rosmers- holm og Fruen fra havet. Alex- ander Kielland var amtmaður hér og Björnson kom eins oft og hann gat, en hann bjó í nágrenn- inu. Hér hittust þeir allir þrír og borðuðu saman ríkulegar máltíð- ir og við ætlum að líkja eftir einni slíkri veislu.“ Knut 0degárd er nýkominn frá Orkneyjum þar sem hann las úr verkum sínum sem heiðursgestur á Hátíð heilags Magnúsar sem jafnan er haldin í júní og þykir viðburður á Bretlandseyjum. Listahátíð í Hafnarfirði Nigel Kennedy á tón- leikum í Kaplakrika NIGEL Kennedy leikur á loka- tónleikum Listahátiðar í Hafnar- firði í kvöld, miðvikudaginn 30. júní, kl. 20.30. Nigel Kennedy var nemandi Ye- hudi Manhuins og aðeins sjö ára gamall þegar hann fékk styrk til að nema við Tónlistarskóla Menu- hins og þar var hann til sextán ára aldurs. Hann fór í tónleikaferð með Stephane Grappelli þegar hann var fímmtán ára, en sautján ára gam- all hóf hann nám í Juilliard tónlist- arskólanum í New York. Hann hætti þar eftir tveggja ára nám til að taka fjölmörgum tilboðum um tónleikahald. Nigel Kennedy hefur valdið heil- miklum óróa í klassíska tónlistarlíf- inu í Bretlandi með klæðaburði sín- um og framkomu. Það hefur farið fyrir brjóstið á ýmsum að hann skuli klæðast eins og pönkari eða rokkstjama í stað þess að stíga á sviðið í kjólfötum eins og venja er til um klassíska tónlistarmenn og finnst sumum þetta „óþarfa rudda- skapur“. Geisladiskar með leik hans selj- ast í milljónum eintaka og hann er sagður hafa fengið fleira fólk til að hlusta á klassíska tónlist en áður tíðkaðist. Um hann hefur einnig verið sagt að hann brjóti niður múrana milli klassískrar tónlistar og rokks. Sjálfur segist hann frekar vilja orða það svo, að hann sé ekki að reisa múra en ef hann sé að bijóta niður múrana þá sé það öllum hoílt. Á tónleikunum í Kaplakrika er um helmingur efnisskrárinnar hans eigin tónlist en hinn helmingurinn byggist á tónlist Jimi Hendrix. Kennedy segir að þeir sem kunna að meta tónlist Vivaldis, Beetho- vens og Mozarts fái örugglega eitt- hvað við sitt hæfí, enda sækir hann tónlistarlegan bakgrunn sinn beint í smiðju gömlu meistaranna. Þeir sem kunna að meta tónlist Jimi Hendrix fái einnig eitthvað við sitt hæfi og má því búast við ijölbreytt- um og óvenjulegum tónleikum. Hljómsveit Nigels Kennedys er skipuð átta tónlistarmönnum sem leika á fjögur rafmögnuð strengja- hljóðfæri, tvær fíðlur, lágfíðlu og selló, tvo kassagítara, bassa og trommur. Meðal þeirra sem leika með Kennedy eru sellóleikarinn Nigel Kennedy leikur á lokatón- leikum Listahátíðar í Hafnarfirði í kvöld. Caroline Dale, víóluleikarinn Bill Hawkes, gítarleikararnir John Eth- eridge og Sagat Guirey. MENNING/LISTIR Myndlist Myndlistarsýn- ingn frá Hvíta- rússlandi að ljúka Um næstu helgi lýkur í MÍR-saln- um, Vatnsstíg 10, sýningu hvítrúss- neska listamannsins Arlens Kas- hkúrevitsj. Á sýningu þessari eru um 50 svartlistarmyndir, pennateikning- ar, steinþrykk og „au forte“-myndir, m.a. 13 tilbrigði við „Fást“ eftir Goet- he, myndskreytingar við Ljóðaljóðin, Eddukvæði hin fornu og ljóð hvítrúss- neska skáldsins Janka Kupala, einnig myndaraðirnar „Borgarlífið" og „Úmsátur11. Þá eru á sýningunni gamlar myndir listamannsins við skáldsögu Halldórs Laxness „Atóm- stöðina". Arlen Kashkúrevitsj hefur dvalist hér á landi undanfamar vikur í boði Félagsins MÍR ásamt konu sinni, Ljúdmillu. Hún sýnir handpijónuð leikfóng og blómakort á sýningu eiginmanns síns í MÍR-salnum. Sýningin á Vatnsstíg 10 er opin næstu virku daga kl. 17-18.30, en á laugardag 3. júlf og sunnudag 4. júlí kl. 14-18 og er þá lokið. Aðgangur er ókeypis. Síðasti sýningar- dag'ur hjáBjörgu í Gallerí Úmbru Sýning Bjargar Atla í Gallerf Úmbru á Bem- höftstorfu lýkur í dag, miðvikudag. Á sýningunni, sem Björg kallar Svart á hvítu, era 17 myndir málað- ar með svörtum „... .akrýllit á hvítan, Biorg Atla. ’ J 6 sendinn grann. Sýningin er opin frá kl. 13-18. Kjarvalsstaðir Leitað að verkum Gunnlaugs Blöndals KJARVALSSTAÐIR munu standa fyrir yfirlitssýningu á verk- um Gunnlaugs Blöndal í liaust á 100. ártíð listamannsins, en hann fæddist árið 1893 og lést 1962. Er þetta stærsta sýning á verkum - listamannsins sem haldin hefur verið sl. 30 ár. Þorri Hringsson, upplýsingafulltrúi Kjarvalsstaða, segir að stefnt sé að því að sýna 40-50 af merkustu verkum Gunn- laugs, en til að það megi takast verði að relga slóð þeirra verka sem eru skrásett en ekki vitað um eigendur að. Gunnlaugur Blöndal „Ástæðan fyrir því að við höfum ekki yfírlitssýningu í tímaröð verk- anna er sú að við viljum reyna að sýna almenningi það besta sem Gunnlaugur málaði,“ segir Þorri, „en hann málaði gjarnan landslag, þjóðlífsmyndir, hafnarstemmning- ar og módel í n.k. seríum og við viljum sýna bestu útgáfuna af hveiju myndefni." Að sögn Þorra vantar á annan tug verka til að það mark náist sem Kjarvalsstaðir setji sér varð- andi gæði og umfang sýningarinn- ar. „Við vitum af tilvist margra mynda hérlendis, t.d. þær myndir sem sýndar eru í bók þeirri sem Helgafell gaf út árið 1963, en getum ekki fundið eigendur þeirra. Stafar það bæði af því að önnur eða þriðja kynslóð erfíngja hefur eignast verkin, en einnig vegna þess að ör eigendaskipti hafa orð- ið á myndum Gunnlaugs síðustu áratugi og erfitt að rekja slóð þeirra til dagsins í dag.“ Kjarvalsstaðir biðja þá sem eiga myndir eftir Gunnlaug Blöndal, eða hafa vitneskju um verk hans, að hafa vinsamlega samband við safnið svo unnt sé að safna saman úrvali þeirra á yfírlitssýninguna í haust. r STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Herrasandalar Verð kr. Litur: Brúnn Ath.: Mjög breiðir og með góðu innleggi ■ PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1 Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn, Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi, sími 18519 sími 689212 sími 21212. ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.