Morgunblaðið - 30.06.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
11
>
>
í
>
>
I
Morgunblaðið/Þorkell
Mauricio Marques sem þrumuguðinn í sýningu
Kramhússins á Raca.
og æft í þann mund að gestir
gengu í salinn. Ekki hef ég trú á
að Marques hafi haldið þessu við-
bótaratriði í sýningunni, enda var
það á skjön við allt annað.
Eftir hlé kom stórkostlegur
sólódans Mauricios Marques. Ró-
legur, yfirvegaður og vel upp-
byggður dans, sem var að sögn
tákndans fyrir vatn, fullur af mýkt
og dýrslegri spennu. Þama kom
greinilega fram,
hve góður dansari
Marques er og hve
fullkomið vald
hann hefur yfír
hreyfingum sínum
og dansi. Fjaður-
magn hans og
langar línur drógu
einmitt fram
þennan eðlislæga
mun, sem er á
svörtum döns-
urum og hvítum.
Síðast á efnis-
skránni var Mauc-
ulle, sem hefur
einnig þróast sem
dans útfrá bar-
dögum. Hver
dansari dansar
með tvö prik, sem
tákha skulu sveðj-
ur. Hér var mikið
afl og orka á ferð.
Dansinn byggði á
ákveðinni hrynj-
andi, á sókn og
vörn og því að ná
höggstað á and-
stæðingi sínum,
rétt eins og geng-
ur og gerist í bardögum. Dansar-
arnir stóðu sig vel og hafa greini-
lega numið töluvert af starfi sínu
í danssmiðjunni í Kramhúsinu. Það
er dönsumm nauðsyn að kynnast
öllum straumum í dansinum, jafnt
suður-amerískum og afrískum
dönsum sem öðmm. Kramhúsið
er í eðli sínu nokkurs konar gras-
rót í dansinum og allir vita, að
ekkert þrífst án góðrar grasrótar.
Bókmenntahátíð í Molde
Yíðkunnir höfundar
frá mörgiim löndum
ALÞJÓÐLEGA bókmenntahá-
tíðin í Molde í Noregi verður
haldin 4. - 11. júlí. Hátíðin er
sú stærsta sinnar tegundar í
Noregi. Upphaflega var gert
ráð fyrir að hátiðin yrði haldin
annað hvert ár, en að sögn
framkvæmdastjóra hátíðar-
innar, Knut 0degárd skálds,
þótti hátíðin í fyrra takast svo
vel að ákveðið var að verða
við óskum um að gera hátiðina
að árlegum viðburði.
Margir norskir höfundar og
fyrirlesarar koma fram á bók-
menntahátíðinni í Molde, meðal
þeirra Rolf Jacobsen og Herbjörg
Wassmo. Fulltrúi íslands verður
Matthías Johannessen og meðal
annarra erlendra höfunda verða
Bandaríkjamaðurinn Gore Vidal,
Fay Weldon frá Englandi, Juliana
Berlinguer frá Ítalíu, Josef Michl
frá Slóvakíu, Mateja Matevski
frá Makedoníu, Justo Jorge Padr-
ón frá Spáni, Antti Tuuri frá
Finnlandi, Göran Tunström frá
Svíþjóð, Vita Andersen frá Dan-
mörku og Lydia Didriksen frá
Færeyjum.
Knut 0degárd sagði í samtali
við blaðið að bókmenntahátíðin
hefði þróast í þá átt að verða enn
alþjóðlegri. Víðkunnir erlendir
rithöfundar sæktu hátíðina heim
og nokkrir af fremstu höfundum
Norðurlanda væru meðal þátt-
takenda.
Málarinn Sigrid Undset
Fyrirlestrar eru yfirleitt fyrri
hluta dags, en á kvöldin eru dag-
skrár með upplestri höfunda.
0degárd gat þess.að meðal þess
sem athygli hlyti að vekja væri
sýning á 42 vatnslitamyndum
eftir Sigrid Undset sem ekki
hefðu verið sýndar áður. „Á yngri
árum var henni ráðlagt að gera
eitthvað annað en skrifa, verk
þessa væntanlega Nóbelshöfund-
ar þóttu ekki efnileg", sagði
Knut 0degárd
Knut 0degárd, „og þá fór hún
að mála í staðinn."
Sterk bókmenntahefð
í Molde
Bókmenntahátíðin er eins og
fyrr helguð minningu Björnstj-
erne Björnson og kennd við hann.
„Bókmenntahefðin er mjög sterk
í Molde“, sagði Knut 0degárd,
„Ibsen bjó hér á tímabili og skrif-
aði þá meðal annars Rosmers-
holm og Fruen fra havet. Alex-
ander Kielland var amtmaður hér
og Björnson kom eins oft og
hann gat, en hann bjó í nágrenn-
inu. Hér hittust þeir allir þrír og
borðuðu saman ríkulegar máltíð-
ir og við ætlum að líkja eftir einni
slíkri veislu.“
Knut 0degárd er nýkominn frá
Orkneyjum þar sem hann las úr
verkum sínum sem heiðursgestur
á Hátíð heilags Magnúsar sem
jafnan er haldin í júní og þykir
viðburður á Bretlandseyjum.
Listahátíð í Hafnarfirði
Nigel Kennedy á tón-
leikum í Kaplakrika
NIGEL Kennedy leikur á loka-
tónleikum Listahátiðar í Hafnar-
firði í kvöld, miðvikudaginn 30.
júní, kl. 20.30.
Nigel Kennedy var nemandi Ye-
hudi Manhuins og aðeins sjö ára
gamall þegar hann fékk styrk til
að nema við Tónlistarskóla Menu-
hins og þar var hann til sextán ára
aldurs. Hann fór í tónleikaferð með
Stephane Grappelli þegar hann var
fímmtán ára, en sautján ára gam-
all hóf hann nám í Juilliard tónlist-
arskólanum í New York. Hann
hætti þar eftir tveggja ára nám til
að taka fjölmörgum tilboðum um
tónleikahald.
Nigel Kennedy hefur valdið heil-
miklum óróa í klassíska tónlistarlíf-
inu í Bretlandi með klæðaburði sín-
um og framkomu. Það hefur farið
fyrir brjóstið á ýmsum að hann
skuli klæðast eins og pönkari eða
rokkstjama í stað þess að stíga á
sviðið í kjólfötum eins og venja er
til um klassíska tónlistarmenn og
finnst sumum þetta „óþarfa rudda-
skapur“.
Geisladiskar með leik hans selj-
ast í milljónum eintaka og hann er
sagður hafa fengið fleira fólk til
að hlusta á klassíska tónlist en áður
tíðkaðist. Um hann hefur einnig
verið sagt að hann brjóti niður
múrana milli klassískrar tónlistar
og rokks. Sjálfur segist hann frekar
vilja orða það svo, að hann sé ekki
að reisa múra en ef hann sé að
bijóta niður múrana þá sé það öllum
hoílt.
Á tónleikunum í Kaplakrika er
um helmingur efnisskrárinnar hans
eigin tónlist en hinn helmingurinn
byggist á tónlist Jimi Hendrix.
Kennedy segir að þeir sem kunna
að meta tónlist Vivaldis, Beetho-
vens og Mozarts fái örugglega eitt-
hvað við sitt hæfí, enda sækir hann
tónlistarlegan bakgrunn sinn beint
í smiðju gömlu meistaranna. Þeir
sem kunna að meta tónlist Jimi
Hendrix fái einnig eitthvað við sitt
hæfi og má því búast við ijölbreytt-
um og óvenjulegum tónleikum.
Hljómsveit Nigels Kennedys er
skipuð átta tónlistarmönnum sem
leika á fjögur rafmögnuð strengja-
hljóðfæri, tvær fíðlur, lágfíðlu og
selló, tvo kassagítara, bassa og
trommur. Meðal þeirra sem leika
með Kennedy eru sellóleikarinn
Nigel Kennedy leikur á lokatón-
leikum Listahátíðar í Hafnarfirði
í kvöld.
Caroline Dale, víóluleikarinn Bill
Hawkes, gítarleikararnir John Eth-
eridge og Sagat Guirey.
MENNING/LISTIR
Myndlist
Myndlistarsýn-
ingn frá Hvíta-
rússlandi að ljúka
Um næstu helgi lýkur í MÍR-saln-
um, Vatnsstíg 10, sýningu hvítrúss-
neska listamannsins Arlens Kas-
hkúrevitsj. Á sýningu þessari eru um
50 svartlistarmyndir, pennateikning-
ar, steinþrykk og „au forte“-myndir,
m.a. 13 tilbrigði við „Fást“ eftir Goet-
he, myndskreytingar við Ljóðaljóðin,
Eddukvæði hin fornu og ljóð hvítrúss-
neska skáldsins Janka Kupala, einnig
myndaraðirnar „Borgarlífið" og
„Úmsátur11. Þá eru á sýningunni
gamlar myndir listamannsins við
skáldsögu Halldórs Laxness „Atóm-
stöðina".
Arlen Kashkúrevitsj hefur dvalist
hér á landi undanfamar vikur í boði
Félagsins MÍR ásamt konu sinni,
Ljúdmillu. Hún sýnir handpijónuð
leikfóng og blómakort á sýningu
eiginmanns síns í MÍR-salnum.
Sýningin á Vatnsstíg 10 er opin
næstu virku daga kl. 17-18.30, en á
laugardag 3. júlf og sunnudag 4. júlí
kl. 14-18 og er þá lokið. Aðgangur er
ókeypis.
Síðasti sýningar-
dag'ur hjáBjörgu í
Gallerí Úmbru
Sýning Bjargar
Atla í Gallerf
Úmbru á Bem-
höftstorfu lýkur í
dag, miðvikudag.
Á sýningunni,
sem Björg kallar
Svart á hvítu, era
17 myndir málað-
ar með svörtum
„... .akrýllit á hvítan,
Biorg Atla. ’
J 6 sendinn grann.
Sýningin er opin frá kl. 13-18.
Kjarvalsstaðir
Leitað að verkum
Gunnlaugs Blöndals
KJARVALSSTAÐIR munu standa fyrir yfirlitssýningu á verk-
um Gunnlaugs Blöndal í liaust á 100. ártíð listamannsins, en
hann fæddist árið 1893 og lést 1962. Er þetta stærsta sýning
á verkum - listamannsins sem haldin hefur verið sl. 30 ár.
Þorri Hringsson, upplýsingafulltrúi Kjarvalsstaða, segir að
stefnt sé að því að sýna 40-50 af merkustu verkum Gunn-
laugs, en til að það megi takast verði að relga slóð þeirra
verka sem eru skrásett en ekki vitað um eigendur að.
Gunnlaugur Blöndal
„Ástæðan fyrir því að við höfum
ekki yfírlitssýningu í tímaröð verk-
anna er sú að við viljum reyna að
sýna almenningi það besta sem
Gunnlaugur málaði,“ segir Þorri,
„en hann málaði gjarnan landslag,
þjóðlífsmyndir, hafnarstemmning-
ar og módel í n.k. seríum og við
viljum sýna bestu útgáfuna af
hveiju myndefni."
Að sögn Þorra vantar á annan
tug verka til að það mark náist
sem Kjarvalsstaðir setji sér varð-
andi gæði og umfang sýningarinn-
ar. „Við vitum af tilvist margra
mynda hérlendis, t.d. þær myndir
sem sýndar eru í bók þeirri sem
Helgafell gaf út árið 1963, en
getum ekki fundið eigendur þeirra.
Stafar það bæði af því að önnur
eða þriðja kynslóð erfíngja hefur
eignast verkin, en einnig vegna
þess að ör eigendaskipti hafa orð-
ið á myndum Gunnlaugs síðustu
áratugi og erfitt að rekja slóð
þeirra til dagsins í dag.“
Kjarvalsstaðir biðja þá sem eiga
myndir eftir Gunnlaug Blöndal,
eða hafa vitneskju um verk hans,
að hafa vinsamlega samband við
safnið svo unnt sé að safna saman
úrvali þeirra á yfírlitssýninguna í
haust.
r
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Herrasandalar
Verð kr.
Litur: Brúnn
Ath.: Mjög breiðir og með góðu innleggi
■ PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1
Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi,
sími 18519 sími 689212 sími 21212.
^