Morgunblaðið - 30.06.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 30.06.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993 17 Alls eru níu milljónir kvenna í Alþjóða- samtökum húsmæðra Vík verður lokað Meðferðarheimilinu Vík á Kjal- arnesi verður lokað í dag til að mæta niðurskurði í fjárframlög- um til SÁÁ. Framlag til SÁÁ var á síðustu fjárlögum lækkað um 20 milljónir króna. Ráðstafanir vegna niðurskurðarins lúta ein- ungis að lokun þessa heimilis til áramóta en aðrar deildir verða opnar áfram. Fyrrgreindar ráð- stafanir munu að sögn Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis SÁÁ hafa það í för með sér að mun færri muni eiga kost á eftirmeð- ferð en áður. I samtali við Morgunblaðið taldi Þórarinn það blóðugt að þurfa að loka þessari deild því að hún ásamt meðferðarheimilinu á Staðarfelli séu tiltölulega ódýrar í rekstri. „Á hveiju ári fara 30 milljónir króna í rekstur hvors heimilis um sig en það þýðir að hver eftirmeðferð kostar um 85 þúsund krónur á mann. Ef þessar tölur eru bornar saman við kostnað við hveija eftirmeðferð í Bandaríkj- unum þá er ljóst að munurinn er margfaldur. Þar kostar hver meðferð um fimm til átta hundruð þúsund krónur,“ sagði hann. Þórarinn sagði engar frekari breytingar vera á döfinni enda væru þessar breytingar einungis til hag- ræðingar og bráðabirgða. „Við mun- um halda uppi bráðaþjónustu og göngudeildir verða opnar áfram. En það sem stendur eftir er að færri munu komast í eftirmeðferð. Fram- vegis mun aðeins flórðungur sjúkl- inga eiga kost á slíkri meðferð í stað helmings áður,“ sagði Þórarinn. Hann segir að nú verði að meta hveij- ir ættu að eiga forgang á eftirmeð- ferð. Líklegast nyti landsbyggðarfólk forgangs en það á síður kost á vist á göngudeildum. Innheimtustofnunin krefst þess að inn- heimt sé af launum FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA gaf hinn 21. júní út breytingar á reglu- gerð, sem m.a. heimilaði Innheimtustofnun sveitarfélaga að krefjast þess af launagreiðendum, að þeir héldu eftir 50% af launum skuldara við stofnunina, en áður vai' í gildi heimild, þar sem stofnunin gat kraf- ist þess að 75% launa væri haldið eftir af launum. Frá þessu var skýrt í Morgunblað- inu síðastliðinn laugardag. Þá var sagt í frétt, að „kaupgreiðanda væri einungis heimilt að halda eftir að hámarki 50% af launum meðlags- greiðenda til lúkningar skuld við Inn- heimtustofnun sveitarfélaga í stað 75% áður“. Við þetta orðalag hefur verið gerð« athugasemd, þar sem fundið er að orðalaginu „kaupgreið- anda væri aðeins heimilt ...“, þar sem atvinnurekendur hefðu í raun engan hag af því að halda þessum fjármunum eftir, heldur stæðu í þessu tilfelli aðeins í sporum inn- heimtuaðila fyrir hið opinbera, í þessu tilfelli Innheimtustofnun sveit- arfélaga. Tekið skal fram að Morgunblaðið fékk í þessu tilfelli fréttatilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu, þar sem ofangreint orðalag var notað og í vinnslu ritstjórnar var því haldið, þótt annað orðalag hefði í raun gefið réttari mynd af því hvaða aðili það er, sem krefst þess að áðurnefndu hlutfalli launa sé haldið eftir. Boðið upp á ævin- týraferðir á Langjökul Grund, Skorradal. HÓPUR manna með Kristleif Þorsteinsson, bónda á Húsafelli, í broddi fylkingar, hafa endurvakið tæplega 20 ára gamalt félag, Langjökul hf., og bjóða nú upp á í um 1.400 metra hæð. Undirbúningur hefur staðið síð- ustu mánuði og þann 26. júní sl. var haldinn aðalfundur félagsins, kosin stjórn og starfsemi þar með formlega farin af stað. Stjórnar- menn voru kjörnir eftirtaldir: Kristleifur Þorsteinsson, Húsa- felli, Bergþór Kristleifsson, Húsa- felli, Jón Kristleifsson, Húsafelli, Jón Garðarsson, Reykjavík, og Þórður Stefánsson, Arnheiðar- stöðum. Hlutafé félagsins var ákveðið að yrði 6000.000 króna og hafa nú þegar safnast rúmlega 4000.000 króna og eru hluthafar margir, bæði einstaklingar og sveitarfélög. útsýnisferðir á Langjökul sem er Aðalfundurinn, sem haldinn var í félagsheimilinu Brúarási, var mjög eftirminnilegur því að aflo- knu sjórnarkjöri var gert fundar- hlé og hluthöfum og gestum sem fundinn sátu var boðið í ferð á Langjökul. Bækistöðvarnar við Langjökul eru í um það bil 20 km fjarlægð frá Húsafelli, farið að Kaldadals- vegi yfir brú sem er á Geitá og að jökulrótum. Vegurinn er fær öllum bílum. Boðið er upp á vél- sleðaferðir en til taks eru 8 vél- sléðar ásamt sleða leiðsögumanns sem ávallt mun leiðbeina gestum á jöklinum, en þar er betra að fara með gát því víða leynast Morgunblaðið/Davíð Pétursson Myndin er tekin í fundarhléi og sýnir stjórn og varastjórn Lang- jökuls hf. sprungur sem geta verið varasam- ar. Þeir sem leigja sér vélsleða geta mætt á staðinn í sparifötum því með sleðunum fylgir allur búnaður, kuldagalli, öryggis- hjálmur, kuldaskór og vettlingar. Einnig er hægt að kaupa sér far með snjóbíl upp á jökul því hann er þarna til taks og tekur 13 far- þega. Skíði og snjóþotur eru einn- ig til staðar ef gestir koma ekki með það með sér. - D.P. FRÁ ÞVÍ árið 1927 hafa verið starfrækt Alþjóðleg húsmæðra- samtök, sem teygja anga sína til allra heimsálfa. Hér á landi er nú stödd Yrsa Berner, forseti Evrópudeildar samtakanna, en hún kemur frá Noregi. Tilefhi dvalar hennar hér er árlegt nám- skeið Norræna húsmæðrasambandsins, sem Norðurlöndin halda til skiptis. Meðlimir alþjóðasamtakanna, sem kallast ACWW (The Associated Country Women of the World), eru um 9 milljónir. Kvenfélagasamband íslands hefur verið aðili að samtökunum en í því eru um 20 þúsund konur frá öllu landinu. Kvenfélagasambönd á Norður- löndunum hittast árlega á nám- skeiði og í ár er það haMið á Lauga- vatni. Steinunn V. Óskarsdóttir, starfsmaður Kvenfélagasam- bandsins, sagði að þetta námskeið væri sambland af námskeiði og fríi fýrir þátttakendur. Á því eru rúmlega 100 konur frá Norður- löndunum og er yfirskrift þess að þessu sinni „Framtíð fjölskyldunn- ar - hugmyndir tveggja kynslóða." f A/ að hætti keisaranna ísland ötuit Innan ACWW starfar nefnd sem sér um sam- skipti við Sam- einuðu þjóðirnar og áður en Yrsa tók við starfi for- _____________ seta Evrópu- Yrsa Bemer ’ deildarinnar var hún formaður þeirrar nefndar. Hefur þessi nefnd starfað mjög að málum þriðja heimsins, sérstaklega í samvinnu við Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna og einnig Menntamálastofn- un Sameinuðu þjóðanna. Tvö stór mál á vegum Sameinuðu þjóðanna eru núna ofarlega á baugi hjá ACWW að sögn Yrsa en þau eru ár fjölskyldunnar á næsta ári og kvennaráðstefna árið 1995 í Pek- ing um konur, bæði á vegum Sam- einuðu þjóðanna. Yrsa sagði að Kvenfélagasam- band íslands hefði starfað mjög ötullega innan ACWW og væri þýðingarmikið því íslenskar konur hefðu sterka fulltrúa og mættu vel á alþjóðlegar samkomur. 100 konur á námskeiði SÁÁ mætir niðurskurði á rekstrarfé með lokun heimilis Hvers vegna skyldu nú yfir 30 manns hafa tryggt sér KÍNAFERÐ í september með HEIMSKLÚBBIINGÓLFS? Svarið er einfalt: KÍNAFERÐ HEIMSKLÚBBSINS BER AF, erfarin á besta árstíma í Kína, en i lok október/nóvember er kominn vetur í Norður-Kína og feröamannatímabilið liðið. TRAUST ER LYKILORÐ í viðskiptum Heimsklúbbsins, byggt á langri reynslu ingólfs Guðbrandssonar, kunnáttu í öllu sem lýtur að ferðamálum, rómaðri smekkvísi og gæðatilfinningu. Ferðin er farin undir leiðsögn hans sjálfs. Til alls er vandað eins og best verður á kosið, hæfileg blanda af skoðun, fræðslu og skemmtun og dvölin á bestu hótelum Kína hreinn unaður. Samt er ferðin ódýrari pr. dag en hversdagsferðir á miðlungshótelum. Sjálf Kínadvölin stendur í nærri tvær vikur, þar sem skoðaðir | eru allir frægustu staðir landsins og kennileiti. Henni lýkur í höfuðborginni BEIJING á sjálfu GRAND HOTEL með „keisaralegum" búnaði og þjónustu. Aðrir viðkomustaðir eru: GUANGZHOU, GUILIN, XIAN, SHANGHAI, HANGZHOU, BEIJING. Auk þess eru 4 dagar í HONG KONG og 5 í THAILANDI íferðalok. Tryggið ykkur sæti núna í þessa einstöku upplifun! Aðeins 6 sæti iaus. Svona tækifæri kemur aðeins einu sinnil Morgunblaðið/Bjami Drengjakór frá Tennessee UM SíÐUSTU helgi kom hingað til lands bandarískur drengjakór frá Chattanooga, Tennessee. Stúlknakór Grensáskirkju tók á móti þeim hér á landi og að mati Margrétar Pálmadóttur kórstjóra var dvölin hér á landi hápunkturinn á vel heppnaðri Evrópuferð drengjakórsins. Kórinn, sem í eru 42 drengir, héldu hér þrenna tón- leika og á einum þeirra sungu þeir ásamt dönskum jafnöldrum sínum í ráðhúsi Reykjavíkur. Iþrótta- og tóm- stundaráð skipulagði ennfremur siglingaferðir og útreiðartúra fyrir drengina sem héldu af landi brott á sunnu- daginn var ánægðir eftir viðburðaríka tónleikaferð. Aðaltilgangur samtakanna sagði Yrsa Berner í samtali við Morgunblaðið að væri að efla og bæta hag kvenna og fjölskyldna um allan heim. Um 75% af vinnu samtakanna hefur hingað til beinst að þróunarlöndunum að hennar sögn. Eitt stærsta verkefni Evr- ópudeildar samtakanna sagði Yrsa vera að koma Austur-Evrópulönd- um inn í samtökin en flest lönd í Vestur-Evrópu eru aðilar. N H F HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS AUSTURSTR&TI 17,4. hæi 101 REYKJAVÍK«SÍMI 620400-FAX 626564

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.