Morgunblaðið - 30.06.1993, Side 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
23
JpíirgmitMaMi
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Ryðjum nýsköpun
braut
AFlateyri er nú unnið
merkilegt tilrauna- og
brautryðjendastarf við kúfisk-
veiðar, vinnslu og markaðs-
setningu, eins og kom fram
hér í blaðinu sl. sunnudag.
Þeir sem ryðja brautina fyrir
aðra, þegar um nýsköpun í
atvinnulífi er að ræða, vinna
einatt vanþakklátt starf og
takast á við íjölmörg vanda-
mál, sem ekki er við að glíma
í hefðbundnum atvinnugrein-
um.
Það hefur sjaldan verið
brýnna en einmitt nú að
brydda upp á nýjungum í at-
vinnulifínu, sem gefa vonir um
auknar útflutningstekjur okk-
ar íslendinga. Við það eitt, að
þorskafli landsmanna á næsta
fiskveiðiári hefur verið ákveð-
inn 165 þúsund tonn, verður
hin brýna þörf enn ljósari.
Það er Einar Oddur Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri
Hjálms hf. á Flateyri, sem í
samvinnu við íslenskan skel-
fisk hf. og Miðnes hf. stendur
fyrir þessari tilraun. Forsvars-
menn tilraunarinnar ætla sér
tvö ár til þess að fullreyna
hvort hér geti verið um arð-
bæra útflutningsgrein að
ræða. Þeir staðhæfa að þótt
áður hafi verið gerðar tilraunir
með kúfiskveiðar hér við land,
hafi tilraunin aldrei verið gerð
til enda. Þeir telja, að mikið
hafi á vantað, að markaðsmál
hafi verið rannsökuð til hlítar,
sem hljóti þó að vera lykilat-
riði, þegar um nýja útflutn-
ingsgrein er að ræða.
Það kemur jafnframt fram
í máli Einars Odds Kristjáns-
sonar og annarra talsmanna
kúfiskveiðanna og vinnslunnar
á Flateyri, að á því tæpa ári
sem tilraunin hefur staðið,
hafa þeir lagt í umtalsverða
fjárfestingu og útgjöld, eitt-
hvað yfir eitt hundrað milljónir
króna.
Þetta er auðvitað lofsvert
framtak manna í einkarekstri
í sjávarútvegi, sem sjá að það
er lífsspursmál fyrir okkur ís-
lendinga að hámarka þann arð
sem við getum haft af fiski-
miðunum umhverfis landið, án
þess að ganga á höfuðstól
framtíðarinnar.
Um leið hlýtur þó að vakna
sú spurning, hvort hægt sé að
gera kröfu til þess, að einka-
fyrirtæki í sjávarútvegi, sem
líkast til hafa ekki mikla burði
í því árferði sem nú er, standi
ein undir þeim gífurlega kostn-
aði sem fylgir því að kanna
markaði erlendis fyrir sjávar-
afurð sem kúfisk, vinna hluta
þeirra markaða og tryggja
markaðssetningu vörunnar til
frambúðar.
Hér er augljóslega um hags-
munamál allrar þjóðarinnar að
ræða. Þess vegna er eðlilegt
að framtak sem þetta njóti
stuðnings t.d. í formi framlaga
til nýsköpunar og hagstæðra
lána. Við þurfum að fá úr því
skorið, hvort skelfiskveiðar og
vinnsla eiga framtíð fyrir sér
sem ný og öflug útflutnings-
grein innan sjávarútvegsins.
Skelfiskmiðin umhverfis
landið eru enn sem komið er
ónytjuð, að hörpuskel undan-
skilinni. Einar Oddur orðaði
það svo: „Okkur liggur lífið á
við að finna fleiri útflutnings-
greinar og nýta fleiri þætti úr
þessari auðlind, sem er hafið.“
Eiríkur H. Sigurgeirsson
sagði í samtali við Morgun-
blaðið: „Þótt við einbeitum
okkur að kúfisknum nú, á
meðan við erum að ná tökum
á veiðum, vinnslu og markaði,
þá hyggjumst við ekki láta þar
við sitja. Við ætlum okkur að
reyna að þróa í framtíðinni
aðrar skelfiskveiðar, meðfram
kúfiskveiðunum, sem eiga að
gefa jafnmikið eða meira í
aðra hönd.“ í því sambandi
nefnir Eiríkur beitukóng,
trjónukrabba og öðuskel.
Forsvarsmenn kúfiskveiða
og vinnslu á Flateyri horfa
fram á veginn og hafa mikla
trú á framtíð tilraunar þessar-
ar. Líkast til veitir þeim ekki
af bæði tröllatrú og bjartsýni,
því úrtöluraddirnar eru margar
og tiltrú manna á verkefnið
ekki ýkja útbreidd. En slíkt
mega þeir iðulega búa við sem
brautina ryðja.
í yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar frá 27. júní sl. um að-
gerðir til að mæta aflasam-
drætti segir m.a.: „Mun ríkis-
stjórnin m.a. auka framlag til
rannsókna með sérstakri
áherslu á nýsköpun. Einnig
verður komið á vettvangi til
umfjöllunar um nýjungar í at-
vinnulífi og hvað gera þurfí til
þess að nýjar atvinnugreinar
geti vaxið og dafnað hér á
landi.“
Verður ekki annað séð en
það tilraunaverkefni sem nú
er unnið á sviði kúfiskveiða,
vinnslu og markaðssetningar
falli að öllu leyti undir þessa
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Útlit fyrir að 17.0001 þorskkvóti flytjist á næsta ár
Reiknað með að kvóta-
miHifærslan jafnist út
og aflamark standist
Afli krókaleyfisbáta mun bæta 16.000 tonnum við
heildaraflann á yfirstandandi fiskveiðiári
Þorskaflinn fiskveiðiárið 1992-93
Heildaraflamark 1992-93 205.000 tonn
Kvóti geymdur frá fyrra fiskveiðiári +27.000 tonn
Afli smábáta utan kvóta +16.000 tonn
Afli sem ekki veiðist og er
geymdur til næsta fiskveiðiárs -17.000 tonn
Samtals Þorskafli 1992-93: 231.000 tonn
Morgunblaðið/Guðlaugur Tryggvi
Fyrsta eintak glímusögu afhent
FORSETI íslauds, frú Vigdís Finnbogadóttir, tekur við fyrsta ein-
taki bókarinnar „Islensk glíma og glímumenn“ úr hendi höfundar
og útgefanda, Kjartans Bergmanns Guðjónssonar.
Bókarforsíða
BÓKIN „íslensk glíma og glímu-
menn“ segir sögu glímunnar frá
landnámsöld. Hún greinir einn-
ig frá glímuköppum, brögðum
íþróttarinnar, glímumótum og
þeim félögum sem hana stunda.
Saga glímu á íslandi frá landnámsöld til vorra tíma
Hefur verið draumur
höfundar í yfír 50 ár
ÚT ER komin í einu bindi saga glímu á íslandi frá landnáms-
öld til vorra tíma. Hún er gefin út með forgöngu og á kostnað
höfundar, Kjartans Bergmanns Guðjónssonar, sem nær alla sína
ævi hefur helgað líf sitt glímunni, þjóðaríþrótt íslendinga. „Það
hefur verið draumur minn í mjög langan tíma að sjá sögu ís-
lenskrar glímu skráða. Sennilega eru yfir fimmtíu ár síðan ég
hóf að halda saman ýmsum upplýsingum, sögum og leiftrandi
frásögnum um íþróttina sem ég kynntist og lærði sjö ára gam-
all.“
Gaf bókina út sjálfur
Kjartan Bergmann sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið vera afskap-
lega ánægður með að saga glím-
unnar væri nú loksins komin út.
„Nú eru liðin 25 ár síðan ég lagði
það til sem fyrsti formaður Glímu-
sambands íslands að samin yrði
saga glímuíþróttarinnar og þá var
sú tillaga var samþykkt samhljóða.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan og til allrar óhamingju þróuð-
ust málin þannig að ekkert varð
úr áformum sambandsins," sagði
hann.
„Það hefði verið viðeigandi að
glímusambandið hefði haft for-
göngu og umsjón með útgáfu bók-
arinnar. En þar sem aldurinn hefur
færst yfir mig taldi ég óhjákvæmi-
legt að ég réðist í útgáfu sögunnar
á eigin spýtur," sagði Kjartan sem
um hálfrar aldar skeið hefur viðað
að sér fjölbreyttu efni um glímu-
íþróttina í störfum sínum sem
glímukennari, framkvæmdastjóri
Iþróttasambands íslands og for-
maður Glímusambandsins. „Það má
segja að ég hafi hreinlega ekki þor-
að að bíða lengur og sitja á merkum
upplýsingum og frásögnum,“ sagði
hann ennfremur, en hann er nú
orðinn 82 ára gamall.
í bókinni, sem er 425 blaðsíður
í stóru broti, er sögð saga glímunn-
ar frá landnámsöld til vorra daga.
Greint er frá uppruna íþróttarinnar
í sérstökum kafla. Þá er í nokkrum
köflum fjallað ítarlega um glírnu-
búnað, glímubrögð, keppnisfyrir-
komulag í íslenskri glímu og glímu-
kennslu. Bókin varðveitir einnig
frásagnir af frægum glímum og
glímumótum en þar ber hæst um-
fjöllun um Íslandsglímuna. Loks eru
kaflar í bókinni tileinkaðir einstök-
um glímufélögum og glímustarfi í
einstökum landshlutum.
Margir tugir mynda af einstökum
glímuköppum, hópum og glímu-
brögðum prýða bókina og fylgja
frásögn. Liðlega eitt þúsund
mannanöfn má ennfremur finna í
bókinni.
Víða umtalsverð-
ar verðhækkanir
GENGISFELLINGIN veldur fljótt verðhækkunum hér innanlands.
Þannig hefur samgönguráðuneytið heimilað hækkun millilandafar-
gjaida Flugleiða um 4% og olíufélögin munu væntanlega hækka bensín-
verð í dag eða á morgun. Iljá sumum bílaumboðum hafa bílar nú þeg-
ar hækkað, dæmi eru um að verð á byggingavörum hafi hækkað, auk
þess sem verð á fleiri vörum er í þann mund að hækka ef það hefur
ekki hækkað nú þegar.
Flestir viðmælendur Morgunblað-
isins töldu sig ekki geta tekið á sig
gengislækkunina með minni álagn-
ingu. Hún væri nú þegar í lágmarki
og því væri ekki ósennilegt að almenn
verðhækkun hjá þeim yrði um 7-8%
vegna gengislækkunarinnar.
Nýlegir bílar hækka líka
Talið er að hækkun á nýjum bílum
muni leiða til þess að einhver hækkun
verði einnig á nýlegum bílum, eða
bílum sem eru 1-3 ára gamlir. Að
sögn Stefáns Sandholts, söiustjóra
hjá Heklu, hefur sú verðhækkun ekki
enn komið fram en hann býst við að
hún geri það fljótlega.
Toyota hefur hækkað verð á flest-
um sínum tegundum vegna gengis-
lækkunarinnar en þó hefur ódýrasta
bíltegundin, Toyota Starlet, lækkað
úr 939 þúsund í 894 þúsund. Er lækk-
unin m.a. vegna þess að verðið er
reiknað út frá eldra gengi og vegna
tollabreytinga þann 1. júlí næstkom-
andi, að sögn Finns Jansens hjá Toy-
ota.
BYKO hækkar
Hjá BYKO fengust þær upplýs-
ingar að gengislækkunin myndi leiða
til hækkunar vöruverðs. Einhveijar
vörur hafa þegar hækkað og von er
á frekari hækkunum á næstunni þar
sem mikið af vörunum eru innfluttar,
að sögn Jóns Helga Guðmundssonar
hjá BYKO.
Hann sagðist búast við 7-8% verð-
hækkunum, þó væru þær nokkuð
mismunandi eftir myntum. „Síðastlið-
ið haust töldu menn að það væri síð-
asta gengisfellingin sem íslendingar
myndu framkvæma. Við tókum hana
á okkur, lækkuðum álagninguna og
því fór hún ekki út í verðlagið. Þetta
getum við því miður ekki gert aftur.“
Fargjöld hækka
Samgönguráðuneytið samþykkti í
gær beiðni Flugleiða um 4% hækkun
á millilandaflugi. í vissum tilfellum
verður verðinu eitthvað hnikað til og
verðið verður lægra en sem nemur
4% hækkun, þó það sé almenna regl-
an.
Ferðaskrifstofan Úrval/Útsýn hef-
ur hækkað verð á sólarlandaferðum
almennt um 4,9-7,6% á helstu staði.
Að sögn Harðar Gunnarssonar hefur
verðhækkunin þó ekki haft áhrif á
eftirspurn.
Nokkrar verðbreytingar
vegna gengislækkunarinnar
j£P( BÍLAR W™8 — Verðið var kr. Verðið er nú kr. hækkar um kr.
Toyota Corolla 1.144.000 1.229.000 85.000
Toyota 4Runner 2.865.000 3.079.000 214.000
Mitsubishi Colt 1.097.000 1.179.000 82.000
Mitsubishi Pajeno (sjálfsk.) 3.779.000 4.062.000 283.000
sem
er
7,4%
7,5%
7,5%
7,5%
FLUGFARSEÐLAR
Keflavík - London (helgarapex) 28.020 29.140 1.120 4,0%
Keflavík Kaupmannah. (Saga-class) 87.120 90.620 3.500 4,0%
Sólarlandaferð hjá Úrval-Útsýn
- til Maliorca 50.000 52.400 2.400 4,8%
- til Portúgal 50.000 53.500 3.500 7,0%
BYGGINGARVÓRUR
Timbur, 1 metri (25 x 150 mm)
74,50
79,75 5,25 7,0%
Óvíst að Kreditkort
miði við nýtt gengi
ATLI Örn Jónsson, aðstoðarframkvæindastjóri Kreditkorta hf., seg-
ir að stjórn fyrirtækisins muni á fundi í vikunni ákveða við hvaða
gengi úttektir á tímabilinu 18.-28. júní miðist. Fram kom í fjölmiðl-
um í gær að Kreditkort hf. ætluðu að miða við gengi eftir gengis-
fellingu, en Atli Örn sagði að ekki væri búið að útiloka að miðað
yrði við eldra gengi.
Hafnaframkvæmdir fyrir
rúma 1,2 milljarða króna
MIKLAR hafnaframkvæmdir verða víða um iand í ár. Áætlað er að ríkis-
styrktar framkvæmdir við hafnir kosti tæpan milljarð króna og þar af
mun ríkið borga rúmar 700 milljónir. Auk þess mun Reykjavíkurhöfn
vinna fyrir um 240 miHjónir. Ríkið styrkir framkvæmdirnar mismun-
andi mikið, en algengasta talan er þó 75% af kostnaði, að sögn Her-
manns Guðjónssonar vita- og hafnamálastjóra. „Flestar framkvæmdirnar
felast í því að endurbyggja mannvirki, sem eru úr sér gengin og lang-
stærsti hluti þeirra er í því fólginn að bæta aðstöðuna fyrir fiskiskip-
in,“ sagði hann.
Morgunblaðið/J.G.
Bryggjan endurbyggö
RÚMUM 1.200 milljónum verður varið til hafnaframkvæmda til árs-
loka í ár. Mikið af þeim framkvæmdum felst, í endurbyggingum bryggja.
Faxabryggja við sementsverksmiðjuna á Akranesi, sem hér sést, er
ein af þeim.
ÚTLIT er fyrir að um 17.000 tonna
þorskkvóti verði geymdur til
næsta fiskveiðiárs samkvæmt
heimild í lögum, að sögn Krisljáns
Skarphéðinssonar, deildarsljóra í
sjávarútvegsráðuneytinu. Um
27.000 tonna kvóti var færður yfir
á fiskveiðiárið, sem lýkur í haust,
þannig að 10.000 tonn af kvótan-
um, sem geymdur var, hafa veiðzt.
Veiðar krókaleyfisbáta utan kvóta
nema 15 - 16.000 tonnum að auki
og allt útiit er því fyrir að þorsk-
aflinn á fiskveiðiárinu verði
230.000 tonn, eða 25.000 tonnum
umfram það heildaraflamark, sem
ákveðið var í fyrra. Krislján segir
að búizt sé við að heildaraflamark-
ið 165.000 tonn á næsta fiskveiði-
ári standist, þar sem millifærsla
kvóta jafnist út og smábátum verði
ekki leyft að auka við heildarafl-
ann.
Ef allur kvótinn, sem leyfilegt er
að geyma til næsta fiskveiðiárs, verð-
ur veiddur, verður heildarþorskaflinn
ekki 165.000 tonn, eins og sjávarút-
vegsráðherra hefur lagt til, heldur
182.000 tonn. Hins vegar segir Krist-
ján að til lengri tíma litið hafi að jafn-
aði 14 - 15.000 tonn verið geymd milli
fiskveiðiára, þannig að kvótafærslan
á milli ára ætti að jafnast út, að hans
mati. Kristján segir að kvótatilfærslan
yfir á yfirstandandi fiskveiðiár hafi
verið óvenjumikil, einfaldlega vegna
þess að kvóti síðasta fiskveiðiárs hafi
verið of stór miðað við aflabrögðin
og skipin ekki náð öllum þorskinum.
Smábátaaflinn verði 13.000
tonn í stað 20.000
Smábátaveiðar og línuveiðar utan
kvóta geta hins vegar sett heildarafl-
ann úr skorðum. Á yfirstandandi fisk-
veiðiári eru það einkum smábátaveið:
amar, sem auka við heildaraflann. í
reglugerð Þorsteins Pálssonar sjávar-
Vesturland og Vestfirðir
Á Vesturlandi verður framkvæmt
fyrir um 90 milljónir í ár og eru
stærstu verkefnin þar endurbygging
Faxabryggju við sementsverksmiðj-
una á Akranesi fyrir um 40 milljónir.
Verður hún breikkuð og viðlegukant-
urinn lagaður. Á Grundarfírði á að
dýpka við gömlu bryggjuna til að
lengja viðleguna.
Á Vestfjörðum munu hafnafram-
kvæmdir kosta um 140 milljónir og
vega þar langþyngst tæplega 95 millj-
ón króna lokaframkvæmdir við endur-
byggingu brimbrjóts í Bolungarvík. Á
Tálknafirði verður aðstaða fyrir smá-
báta bætt fyrir rúmlega 10 milljónir
króna í ár og á Bíldudal verður 16
útvegsráðherra er kveðið á um
155.000 tonna heildaraflamark fyrir
þau skip og báta, sem nú eru í afla-
markskerfinu, og 10.000 tonna afla-
mark til viðbótar fyrir krókaleyfis-
báta, í heild 165.000 tonn.
Þessar tölur byggja á því að tillög-
ur ráðherrans, um að setja alla smá-
báta undir heildaraflamark og tak-
marka línuveiðar utan kvóta, nái fram
að ganga á þingi í haust. Gert er ráð
fyrir að þannig komi 3.500 tonn af
155.000 tonna heildarkvótanum í hlut
smábáta, sem fiska eftir aflamarki,
og tæplega 10.000 til viðbótar í hlut
krókaleyfisbáta, samtals um 13.000
tonn. Á fiskveiðiárinu, sem nú er að
líða, veiddu smábátar á aflamarki hins
vegar 4.500 tonn og krókaleyfisbátar
hátt í 16.000, eða rúmlega 20.000
tonn. Munurinn á milli ára er 7.000
tonn. Miðað við núgildandi lög er
helmingurinn af línuafla yfir vetrar-
mánuði utan kvóta. Á yfirstandandi
fiskveiðiári er gert ráð fyrir að línu-
afli verði 30.000 tonn, en samkvæmt
tillögum sjávarútvegsráðherra verður
hann 25.000 tonn á næsta fiskveiðiári.
Óbreytt kerfi skerði kvóta
stærri skipa
Breytingarnar á reglum um veiðar
smábáta og um línuveiðar þýða því
um 12.000 tonnum minni afla en í
ár. Hins vegar hafa verið miklar deil-
ur í stjómarliðinu um þessar tillögur
milljónum króna varið til nýrrar 30
metra langrar bryggju fyrir smábáta.
Á ísafirði verður 25 milljónum varið
til þekju á hafnarbakka.
Norðurland vestra
Á Norðurlandi vestra verður um
160 milljónum króna aðallega varið
til tveggja stórra hafnaframkvæmda.
Önnur þeirra er nýr brimvarnargarð-
ur á Blönduósi. Hann mun kosta um
115 milljónir, að sögn Hermanns og
verður að öllum líkindum tilbúinn í
ár. Á Sauðárkróki verður byggð 165
m stálþilshöfn fyrir 65 milljónir.
Norðurland eystra
Á Norðurlandi eystra er nýbúið að
ganga frá myndun hafnasamlags,
Þorsteins Pálssonar og ekki náðist
samstaða milli stjómarflokkanna um
að leggja fram frumvarp þessa efnis
á þinginu í vor. Sjávarútvegsráðherra
hyggst bregðast við þessu með því
að minnka afla annarra, fái krókaleyf-
isbátar og línubátar að halda sínu.
Gangi breytingarnar ekki eftir, lítur
sjávarútvegsráðherrann svo á að
draga verði þessi 12.000 tonn frá
155.000 tonna heildaraflamarki stærri
skipa og báta til þess að heildaraflinn
fari ekki yfir 165.000 tonn. „Sú afla-
aukning sem gert er ráð fyrir að
smábátarnir fái miðað við núgildandi
lög mun lúta þeim takmörkunum sem
frumvarpið frá í vor gerði ráð fyrir.
Ella þarf að koma til meiri skerðingar
á aðra báta og togara," sagði Þor-
steinn í Morgunblaðinu í gær.
Opið kerfi skýtur skökku við
Sigfús Schopka, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hann hefði ekki
verulegar áhyggjur af því að milli-
færsla kvóta milli ára hækkaði heild-
araflann, þar sem hún jafnaðist yfir-
leitt út. Hins vegar væri „opið kerfi“
á veiðum smábáta og á línuveiðum
yfir vetrarmánuðina meira áhyggju-
efni. „Þetta er ekki lokað kvótakerfí.
Það hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvernig eigi að loka því, en það
skýtur skökku við að kerfið sé opið í
annan endann,“ sagði Sigfús.
þannig að eitt félag mun framvegis
reka hafnirnar á Olafsfirði, Dalvík
og í Árskógshreppi. Á þessum höfnpm
verður framkvæmt fyrir yfir 120
milljónir króna, mest á Olafsfirði,
fyrir um 80 milljónir og fyrir um 35
milljónir á Árskógssandi. Á Ólafsfirði
verður ný bryggja byggð í stað eldri,
sem verður rifin og á Árskógssandi
á að lengja viðlegukantinn um 70 m.
í Grímsey verður byggð 40 m löng
viðlegubryggja fyrir tæpar 20 milljón-
ir inni í nýju bátahöfninni, sem var
byggð fyrir um 3 árum. Á sumrin er
þarna mikill fjöldi smábáta, að sögn
Hermanns, en þessi viðlegubryggja á
að bæta aðstöðuna fyrir þá, þar sem
höfnin dugar rétt fyrir heimamenn. í
Húsavík verður lokið við endurbygg-
ingu hafnarinnar, sem fólst í því að
bryggjan var breikkuð og höfnin
dýpkuð. Kostnaðurinn við það í ár
verður um 95 milljónir.
Austurland
Á Austurlandi verða hafnafram-
kvæmdir fyrir um 130 milljónir króna.
í Neskaupstað er verið að byggja
nýja þryggju, sem kemur í stað eldri
bryggju og mun það kosta um 28
milljónir. Á Eskifirði er verið að
byggja nýja bryggju fyrir framan
frystihúsið, en gamla bryggjan var
nánast að hruni komin, að sögn Her-
manns. Á Breiðdalsvík hefur ekki
verið hægt að geyma stór fiskiskip í
höfninni vegna of lítils skjóls. Að laga
það mun kosta um 70 milljónir, en í
ár verður keypt efni fyrir um 30 millj-
ónir.
Suðurland og Reykjanes
Á Suðurlandi verður líklega fram-
kvæmt fyrir um 40 milljónir. Her-
mann sagði að áætlanir gerðu ráð
fyrir sandfangara við Nýja hraunið í
Vestmannaeyjum, en margt benti til
þess að fyrst yrði hafist handa við
nýjan farmskipakant í staðinn. Sú
framkvæmd mun kosta um 70 millj-
ónir en áætlanir gera ráð fyrir 30
milljóna króna ijárveitingu til Vest-
mannaeyja. í Þorlákshöfn verður
höfnin dýpkuð fyrir 10 milljónir.
Á Reykjanesi er stærsta fram-
kvæmdin við Eyjabakka í Grindavík,
fyrir 55 milljónir af um 130 milljóna
króna framkvæmd. Bryggjan sem er
þar fyrir og var byggð eftir gosið í
Vestmannaeyjum, að sögn Her-
manns, var gerð í flýti og af nokkrum
vanefnum.
Hjá Hafnarfjarðarhöfn fengust
þær upplýsingar að þekja verður
steypt fyrir um 29 milljónir og einnig
verðúr höfnin dýpkuð fyrir um 21
milljón. í Kópavogi verður um 6 til 8
milljónum kostað til Norðurgarðs að
sögn Sigurðar Geirdal, hafnar- og
bæjarstjóra í Kópavogi. Gatnagerð
við höfnina i Kópavogi mun kosta
allt að 20 milljónum. Framkvæmdir
við Kópavogshöfn eru ekki ríkis-
styrktar.
Reykjavík
Hannes Valdimarsson, hafnastjóri
í Reykjavík, sagði að þar mundi verða
framkvæmt fyrir um 240 milljónir.
75 milljónir færu alls í Miðbakkann
og 25 milijónir í dýpkun. Það efni,
sem kæmi upp í dýpkuninni, yrði
notað í Iandgerð í Sundahöfn, en land-
gerðin mun kosta 40 milljónir, að
sögn Hannesar. Fyrir utan þetta verð-
ur um 100 milljónum varið í viðhald
húsa og bryggja.
Atli Örn. Jónsson sagði að við
útreikning á erlendum úttektum
væri alltaf miðað við 17. hvers mán-
aðar, en að nú væri í athugun að
breyta því ef til vill.
Visa tekur væntanlega á sig
gengismun
Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Visa, sagði að í síð-
ustu gengisfellingu hefðu allar út-
tektir verið skrifaðar fram að geng-
isbreytingu á hinu eldra gengi. Hann
sagði að líklegt væri að sami háttur
yrði hafður á nú en það yrði þó
ekki staðfest fyrr en á stjórnarfundi
á morgun, fimmtudag.
Allar færslur Visa frá 18.-28. júní
miðast því væntanlega við gengi líkt
og það var sl. föstudag, eða rúmlega
66 krónur á dollar. Að sögn Einars
voru erlendar úttektir á þessu tíma-
bili um 2 milljónir dollara eða um
150 milljónir króna miðað við eldra
gengi. Þetta þýðir að Visa tekur á
sig rúmlega 11 milljóna króna geng-
ismun vegna gengislækkunarinnar
ef stjórnin ákveður svo. Það feluc
ekki endilega í sér að Visa tapi þess-
ari upphæð á gengislækkuninni þar
sem fyrirtækið var að hluta til búið
að greiða erlendar úttektir á tímabil-
inu 18.-28. júní til þeirra sem sent
höfðu inn nótur.
Það gildir einnig hjá Kreditkort-
um að nokkuð mismunandi er hvort
fyrirtækið greiddi erlendar úttektir
á tímabilinu 18.-28. júní fyrir geng-
isfellingu eða ekki.