Morgunblaðið - 30.06.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1993
l« lk í
fréttum
Morgunblaðið/Ásdís Rósa Baldursdóttir
KNATTSPYRNA
Þróttarar snoðuðu þjálfarann
Peyjamótið í knattspymu fór fram í Vestmannaeyjum um síðustu helgi og heppnaðist mjög vel, þótt
veðurguðimir hafi ekki verið í sínu bezta skapi. Þróttarar úr Reykjavík urðu mjög sigursælir á
mótinu því þeir unnu gull í innanhússkeppninni og í keppni B-liða og silfur í keppni A-liða. Að auki áttu
þeir þijá drengi i „landsliðinu“ og til að kóróna frammistöðuna var Þróttarinn Sigmundur Kristjánsson
valinn leikmaður mótsins. Þjálfari drengjanna er Logi Úlfljótsson og fyrir keppnina, lagði hann hár sitt að
veði ef Þróttur ynni til gullverðlauna. Og þegar liðið kom til Reykjavíkur á mánudaginn var gengið snar-
lega til verks og Logi snoðaður.
Reuter
STWORNUR
Leikarinn Emilio Estevez
í nýrri kvikmynd
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Emilio Estevez kemur hér til fmmsýn-
ingar á kvikmyndinni „Sleepless in Seattle“ ásamt eiginkonu sinni
söngvaranum Paula Abdul. Myndin af þeim hjónum var tekin í Los Angel-
es, en myndin var fmmsýnd í Bandaríkjunum og Kanada 23. júní sl.
ISLANDSVINUR
Georgíumaðurínn kominn
aftur til Georgíu
Grígol Matsjavariani, eða Ge-
orgíumaðurinn svokallaði,
sem dvaldi á íslandi síðasta vetur
við íslenskunám, er nú kominn
heim til Tbilisi í Georgíu á ný.
Matsjavariani vakti athygli er bréf
frá honum birtist í Morgunblaðinu
þar sem fram kom að hann hafði
lært íslensku af sjálfsdáðum og
hafði hug á að komast í samband
við íslendinga. Var honum í kjöl-
farið boðið hingað til lands af ís-
lenskum stjórnvöldum og gefínn
kostur á að sökkva sér ofan í ís-
lenskunám og þýðingar.
Matsjvariani sagði að fyrsta
verkefni hans í Georgíu yrði að
prenta bók sem hann hefði verið
að þýða. „Um er að ræða fímm
íslenskar sögur og Islendingabók.
Ég er mjög þakklátur bæði Ólafi
Halldórssyni í Árnastofnun og
Gísla Sigurðssyni, sem hjálpuðu
mér að þýða bæði íslendingabók
og Grænlendingasögu. Ég er kom-
inn með útgefanda í Georgíu og
hjá íslenska menntamálaráðuneyt-
inu fékk ég eyðublað þannig að
þýðingasjóður á íslandi geti að-
stoðað útgefandann með styrk,“
sagði Matsjavariani við Morgun-
blaðið.
Hann sagði að fyrst yrði þó að
myndskreyta bókina og hefði hann
farið frá Islandi með ótal bækur
þar sem væri að finna myndir af
íslenskum búningum, fomíslensk-
um húsum, minjagripum og öðru
þess háttar.
Starfar að þýðingum
„Það var erfitt að þýða þessar
bækur. Allra erfíðast var að þýða
íslendingabók. Málið og efnið var
mjög flókið. Ég held þó að það
verði áhugi á þessum bókum í
Georgíu. Njála er til dæmis þegar
fáanleg og langflestir vita af ís-
lendingasögunum. Útgefandi
minn sagði eitt sinn að þær væru
aufúsugestir hjá öllum georgísk-
um útgefendum.
Ég er einnig búinn að þýða
forngeorgískt ritverk yfír á ís-
lensku með aðstoð Pjeturs Haf-
steins Lárussonar. Hann er þýð-
andi og skáld. Ég grófþýddi og
hann fínpússaði. Bókin kemur
kannski út í haust eða um næstu
jól. íslendingar og Georgíumenn
eru þar með að kynnast smám
saman. Um er áð ræða lítið rit-
verk, gersemi georgískra bók-
mennta líkt og Islendingabók á
íslandi. Ritið er nauðsynleg náms-
grein í skólum, þetta er söguleg
heimild frá fimmtu öld, eins konar
pfslarvættasaga. “
Matsjavariani sagði að vissu-
lega hefði verið gott að fara aftur
til Georgíu. Hann hefði verið far-
inn að sakna dóttur sinnar og for-
eldra. Hann bjóst þó við að sakna
íslands fljótlega og helst vildi hann
geta komið reglulega til landsins.
„Kannski kom það mér mest á
óvart varðandi íslendinga hversu
miklir „þjóðvinir" þeir eru. Þeir
spyija alltaf um ísland og á götun-
um og kaffihúsunum heyrast bara
umræður um Island og Islendinga.
Það er mjög lofsamlegt. Það er
líka eitt af sérkennum íslendinga
að ég hef aldrei séð montinn mann
eða drýgindalegan. Enginn remb-
ist við að gera sig breiðan. Það
er ny'ög auðvelt að hafa samskipti
við Islendinga án einhveijar upp-
gerðar."
Langar að koma aftur
Hann sagðist vonast til að geta
komið aftur til íslands á fyrri hluta
næsta árs en það væri ekki undir
honum einum komið. Að minnsta
kosti kæmi hann þegar búið væri
að prenta bókina.
Irma, eiginkona Grígols, dvald-
ist með honum hér á landi og hóf
nám í Háskólanum í íslensku fyrir
útlendinga skömmu eftir að þau
komu. Sagði Grígol að hún skildi
nú íslenskuna og gæti talað hana
mun betur en áður. „Það er orðið
mjög hættulegt að tala um leynd-
armál fyrir framan hana á ís-
lensku,“ sagði Grígol og bætir síð-
an við: „Má ég misnota vináttu
ykkkar? Er mögulegt að birta
pínulitla auglýsingu í Morgunblað-
inu. Ef einhver íslendingur eða
jafnvel hópur kemur til Georgíu
og ef þeir eða hann lenda í ein-
hveijum vanda eða misskilningur
kemur upp þá mega þeir snúa sér
strax til mín. Eða þá bara heim-
sækja mig og rabba saman á ís-
lensku." Heimilisfang Grígols og
Irmu er Kostava-stræti nr. 32,
inngangur 1, íbúð númer 1, Tbil-
isi, Georgíu. Sími þeirra er (88
32) 36 38 51.
Hann sagðist að lokum vilja
þakka öllum Islendingum fyrir
auðsýnda gestrisni og vináttu og
óska þeim alls góðs.'
Grígol Matsjavariani og Irma Oboladze,