Morgunblaðið - 07.07.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993
17
Morgunblaðið/Halldór Nellett
í sjálfheldu
MENNIRNIR voru í sjálfheldu á snös í þessu hrikalega gljúfri og komustu hvorki aftur á bak né áfram. Vinstra megin á myndinni sést
gulur reykurinn frá neyðarblysi þeirra og standa Þjóðverjarnir rétt ofan við reykjarsúluna.
vonar um að nokkur myndi koma
þeim til bjargar. „Við vorum farnir
að óttast að við myndum ekki lifa
þetta af,“ sagði hann.
Aðspurður um það fyrsta sem
þeir ætluðu að gera eftir að þeim
hefði nú verið bjargað sagði hann
að þeir ætluðu að fá sér eitthvað
að drekka og síðan skella sér í sturtu.
Á sunnudag halda þeir aftur til
Þýskalands og sagði hann að frá
nógu yrði að segja er þeir kæmu
heim. Hins vegar játaði hann að lík-
lega hefði vistin á kiettasyllunni í
Kollumúla sljákkað verulega í ævin-
týralöngun þeirra félaganna. „Ég
held að við höfum fengið okkur
fullsadda af ævintýrum í bili,“ sagði
Sandro Wais.
Bandaríska
bókasafn-
ið hættir að
lána út
BANDARÍSKA bókasafnið sem
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna starfrækir mun hætta allri
útlánastarfsemi frá og með 15.
júlí næstkomandi. Samkvæmt
fréttatilkynningu frá bókasafn-
inu er þetta gert vegna skertra
framlaga til starfrækslu upplýs-
ingaþjónustu utan Bandaríkj-
anna en það gerist í kjölfar um-
fangsmikils niðurskurðar í opin-
berum rekstri vestanhafs.
Hluti upplýsingaþjónustu safns-
ins mun eftirleiðis verða á vegum
menningarstofnunarinnar sem
áfram verður til húsa á Laugavegi
26. Síðasti skiladagur bóka og
myndbanda í útláni verður 13. ág-
úst og eru notendur safnsins hvatt-
ir til að gera skil fyrir þann tíma.
--------♦ » ♦---
Árbæjarsundlaug
Ráðinn úr
hópi70
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að ráða Stefán G. Kjartansson
forstöðumann Árbæjarlaugar.
Óvenju margir sóttu um starfið
eða 71.
íþrótta- og tómstundaráð lagði
til að Stefán yrði ráðinn en hann
gegnir starfi forstöðumanns Sund-
hallar Reykjavíkur.
qS4"'
Kampa-
kátur
HAFSTEINN
siglingakappi
kampakátur á
bryggjunni:
„Maður sækist
eftir frelsi frá
hinu daglega
amstri."
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Á innsiglingu
ELDING skríður inn í Innri-Njarðvíkurhöfn.
Fundur Roberto Tapia frá Mexíkó um síþreytu
Athugasemdir lækna á
500 manna fyrirlestri
UM FIMM hundruð manns sóttu erindi dr. Roberto Tapia frá
Mexíkó um síþreytu í Ársal Hótel Sögu á mánudagskvöld. Ingólf-
ur Guðbrandsson, sem aðstoðaði dr. Tapia við fundinn, sagði að
undirtektir almennings hefðu verið mjög góðar ojg fyrirlesturinn
vel sóttur. Nokkrir læknar undir forystu Ólafs Olafssonar land-
læknis hefðu hins vegar reynt að hleypa fundinum upp. Ólafur
sagði að dr. Tapia hefði einfaldlega verið spurður að því hvort
hann gæti lagt fram sannanir fyrir lækningum sínum og hefði
hann ekki getað gert það. Hann benti jafnframt á að þrisvar
hefði þess verið farið á leit við lækninn að hann framvísaði lækna-
leyfi sínu án árangurs.
Hjólreiðahátíð
á Hvolsvelli
STÆRSTA hjólreiðahátíð sem haldin hefur verið á íslandi fyrr
og síðar er tilkomin vegna 60 ára afmælis Hvolsvallar og er þetta
einn af mörgum liðum í afmælisdagskránni. Að hátíðinni standa
Hvolshreppingar, Hjólreiðafélag Reykjavíkur og íslenski fjalla-
hjólaklúbburinn. Um framkvæmdina sér Sælubúið, nýstofnað fyrir-
tæki 1 ferðaþjónustu á Hvolsvelli. Hátíðin fer fram dagana 17. og
18. júlí.
vel. Eldingin er um 30 tonn að
stærð, hún er 63 fet að lengd,
mastrið er 22 metrar og djúpristan
er 2,5 m. Hafsteinn sagðist hafa
haft í huga við hönnunina að þar
sem 80% af siglingatíma seglskipa
væri undan vindi hefði hann haft
botninn sem líkastan brimbretti -
það hefði gefist vel og væri Elding
afbragðs sjóskip. Á meðan Haf-
steinn er að skoða landið, ætlar
bróðir hans, Þorgeir Jóhannsson,
að sigla Eldingu til Akraness þar
sem almenningi gefst kostur á að
skoða þetta fræga fley.
- BB
í fréttatilkynningu frá Sælubú-
inu segir að mikii gróska sé nú í
hjólreiðaíþróttinni og sífellt fleiri
átti sig á því að reiðhjól sé farar-
tæki sem hentar nútímafólki vel.
Reiðhjólf fylgir engin mengun, það
er ódýr fararskjóti og heilsusam-
legur og kannski eru hvergi betri
aðstæður til að hjóla en einmitt í
Rangárvallasýslu.
Árlegur viðburður
Stefnt er að því að hjólreiðahá-
tíðin verði árlegur viðburður.
Markmiðið er að fjölskyldan njóti
góðrar helgar við hjólreiðar. Eng-
inn þarf að setja hjólaleysi fyrir
sig því hjólaleiga verður á staðn-
um. Hafi menn ekki áhuga á að
hjóla geta menn gert ýmislegt
annað. Til dæmis er hægt að fara
í skoðunarferðir með rútu, í golf,
veiði eða á hestbak.
Boðið verður upp á mjög hag-
stæðar ferðir og gistimöguleika
ásamt sérstökum pastamatseðli
fyrir hjólreiðamenn að ógleymdri
kvöldvöku á laugardagskvöldið að
hætti Hvolsvellinga.
Sælubúið veitir allar nánari
upplýsingar og er opið alla daga
frá kl. 8-23.
Ingólfur sagði að dr. Tapia hefði
sérhæft sig í sjúkdómum, sem lækna-
vísindin hefðu hingað til staðið ráð-
þrota gagnvart, og hefðu þónokkrir
Islendingar þegar leitað sér lækninga
til hans í Tijuana í Mexíkó. Hann
sagði að þessi tengsl hefðu leitt til
-þess að dr. Tapia hefði haldið fyrir-
lestur um síþreytu hér á landi og
hefði mæting vægast sagt verið mjög
góð. Undirtektir hefðu líka verið mjög
góðar að því undanskildu að nokkrir
læknar undir foiystu Ólafs Ólafssonar
landlæknis hefðu gert athugasemdir
sem virst hefðu til þess gerðar að
veikja tiltrú áheyrenda á fyrirlesaran-
um.
Óeðlileg viðbrögð
Ingólfur sagði að sér hefði þótt
þessi viðbrögð afar óeðlileg og benti
hann í því sambandi á að dr. Tapia
væri bæði þekktur og vel menntaður
læknir. Svo mætti heldur ekki gleyma
því að hver einstaklingur væri ábyrg-
ur fyrir sínum eigin gjörðum. Ef
menn kysu að leita sér lækninga til
Mexikós væri það á eigin ábyrgð og
kostnað. Hvað fyrirlesturinn varðar
lét Ingólfur þess þar að auki getið
að ekki hefðu allir læknar verið sama
sinnis og landlæknir og hefðu margir
gert góðan róm að máli dr. Tapia.
Virðast meiningarlausar
lækningar
Ólafur Ólafsson landlæknir sagði
að dr. Tapia hefði einfaldlega verið
spurður að því hvort hann gæti lagt
fram einhveijar sannanir fýrir lækn-
ingum sínum en það hefði hann ekki
getað gert.
Sagði landiæknir að fólki væri að
sjálfsögðu í sjálfsvaid sett hvar það
leitaði lækninga. Sér fyndist engu að
síður að embættinu bæri skylda til
að komast að því hvort einhver mein-
ing væri með þessum lækningum og
svo virtist ekki vera.