Morgunblaðið - 07.07.1993, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.07.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993 19 Utanríkisráðuneytið beitir sér í tyrkneska forræðismálinu Krafa um að leitað verði að dætrum Sophiu Hansen LÖGFRÆÐINGAR Sophiu Hansen hafa krafist þess að leita megi dætur hennar uppi og færa henni. Gunnar Guðmundsson, íslenskur lögfræðingur hennar, er bjartsýnn á að jákvæð nið- urstaða fáist en svars er að vænta fyrir vikulok. Islenska utanríkisráðu- neytið hefur undanfarna daga beitt sér í málinu. Gunnar sagði að á mánudag hefði annars vegar verið lögð fram kæra á hendur Halim A1 fyrir að brjóta gegn umgengnisrétti Sop- hiu gagnvart dætrum þeirra um helgina og varðaði slíkt brot allt að sex mánaða fang- elsi. Hins vegar hefði verið farið fram á svo- kallaðan útvíkkaðan umgengnisrétt og fælist hann í því að hægt væri að láta sækja stelp- urnar hvar og hvenær sem væri og færa þær til móður sinnar. Gunnar var bjartsýnn á jákvæða niðurstöðu en svars er að vænta á næstu dögum. Gunnar kvað sannað að Halim A1 væri í Istanbúl en ekki í Sivas, nærri heimabæ sín- um, eins og hann héldi sjálfur fram. Bent hann því til stuðnings á að hann hefði svarað í síma á heimili sínu á sunnudagskvöldið. Hann hefði líka svarað í síma í fyrirtæki sínu á mánudag. Hann hefði hins vegar skipt yfir í ensku og ekki sagst vera við um leið og hann komst að því hver var að hringja. Þrýst á tyrknesk stjórnvöld Benedikt Jónsson, skrifstofustjóri í utan- ríkisráðuneytinu, sagði að starfsmenn ráðu- neytisins hefðu unnið í málinu á mánudag og þriðjudag. „Við höfum gefið tyrknesku sendiráði okkar í Kaupmahnahöfn fyrirmæli um að beita sér gagnvart tyrkneskum stjórn- völdum þannig að réttindi þeirra sem um ræðir, dætranna, móðurinnar og fylgdarliðs hennar, verði tryggð í hvívetna og að þær niðurstöður sem fyrir liggja séu virtar,“ sagði Benedikt. Hann sagði að með tyrkneskum stjómvöldum væri fyrst og fremst átt við dómsmálaráðuneyti og tyrkneska lögreglu. Að auki sagði Benedikt að þeim tilmælum hefði verið beint til ræðismanns íslendinga í Istanbúl að bjóða íslendingunum alla þá að- stoð sem hann gæti veitt. Hann sagði að ráðuneytið myndi halda áfram að fylgjast með málinu og færu aðgerðir af þess hálfu eftir framvindu mála í Tyrklandi. Trjásjúkdómar fremur bundn- ir við kvæmi en tegundina alla Lerkiáta, en ekki Douglas-áta, olli tjóninu í lerkilundinum í Heiðmörk i l l l i i i i i i i i i i i 1-r Myndin sýnir 100 cnt skáp, tvískipt- an m/hatta- billu, fata- béngi og 3 biUunu Verð kr. 16.313,- Einingastœrðir: 40, 50, 60, 80 og lOÖcm. föaflfe BÆJARHRAUNI 8. HAFNARFIRÐI, SÍMI 651499 STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI GÓÐ GREIDSLUKJÖR KOMIÐ hefur í ljós við rannsókn á sjúkum lerkitrjám í Heið- mörk, að ekki er um svokallaða Douglasátu að ræða, heldur er það svokölluð lerkiáta, sem skemmt hefur lerki þar og get- ið var í frétt á bls. 2 í Morgunblaðinu miðvikudaginn 30. júlí síðastliðinn. Við könnun á ástandi lerkitrjáa á landinu hefur og komið fram, að tré af kvæminu Hakeskoja, sem er á fertugs- aldri, virðist vera að drepast unnvörpum á blettum hér og þar um landið. í annarri viku júnímánaðar var farin eftirlitsferð á vegum Rann- sóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá og fylgdi einn af sér- fræðingum stofnunarinnar Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur sveppafræðingi og Halldóri Sverrissyni plöntusjúk- dómafræðingi hringinn í kringum landið með viðkomu í lerkilundum Skógræktarinnar. Var m.a. skoð- aður lerkilundurinn, sem um var rætt í Heiðmörkinni. Þar fannst engin Douglasáta, heldur reyndist skaðvaldurinn vera fagurlega app- elsínugulur sveppur með snjóhvítri loðbryddingu og heitir hann Lac- hnellula willkommii og hefur hlotið nafnið lerkiáta á íslensku. Þetta er asksveppur og fundust askhirsl- ur hans í lifandi greinum lerkisins í Heiðmörk. Það að sveppaldinin voru á lifandi hýsilvef bendir ótví- rætt til að um sníkjusvepp sé að ræða. Skyld tegund, sem lifir rot- lífi á dauðum lerkigreinum, er mjög lík lerkiátunni og þarf nákvæma smásjárskoðun til að greina á milli tegundanna. Slíkur sveppur fannst í dauðum greinum í Heiðmörkinni. Sá sveppur hefur verið nefndur á íslensku lerkiátulíki. Aðurnefnd eftirlitsferð Rann- sóknarstöðvar Skógræktar ríksins er fyrsta tilraun Skógræktarinnar í aldarfjórðung til að kanna út- breiðslu og skemmdir af völdum sjúkdóma og var nær eingöngu skoðað lerki. í ljós kom að lerkitré af kvæminu Hakeskoja á fertugs- aldri virðist vera að drepast unn- vörpum á blettum hér og þar um landið og einn þessara bletta er t.d. í Jónsskógi í Hallormsstað. Lerkidauði þetta vorið er því ekki eingöngu bundinn við Suðvestur- land og Vesturland, en virðist frek- ar fylgja ákveðnum kvæmum. Því er eigi unnt að tala um að lerki Jón K. Sæmundsson ljósmyndari látinn LÁTINN er í Reykjavík Jón K. Sæmundsson ljósmyndari, en hann rak um árabil ljósmynda- stofu Jón fæddist 18. september 1921 í Vestmannaeyjum óg voru for- eldrar hans Sæmundur Jónsson verslunar- og útgerðarmaður og kona hans Guðbjörg Gísladóttir. Hann lærði ljósmyndaiðn hjá Kjartani Guðmundssyni, ljós- myndara í Vestmannaeyjum, en vann síðan um nokkurt skeið í Reykjavík hjá Ólafi Magnússyni, konunglegum ljósmyndara. Jón K. Sæmundsson hélt til framhaldsnáms í Bandaríkjunum, en að námi loknu rak hann ljós- myndastofu í Tjarnargötu sem fyrr er sagt, um áratugaskeið. Jón K. Sæmundsson eigi erfitt uppdráttar á Suðvestur- landi, en svo virðist sem Rússa- lerki og Síberíulerki hafi orðið fyr- ir áföllum. í leiðangrinum fannst hins vegar sifjalerki og mýralerki, sem ekkert sá á. Sérfræðingarnir í þessum sjúk- dómum segja að með aukinni skóg- rækt þurfi að taka aukið tillit til tijásjúkdóma og þá til þeirra stofna sjúkdómsvaldanna, sem borist hafa til landsins. Þú svalar lestrarþörf dagsins Á VERÐLÆKKUN! Afmœliskynning d Ömmuflatkökum I tilefhi af 40 ára afhueli Ommubaksturs bjóðum við*. landsmönnum Ömmuflatkókur með 40% afmœlisafilœtti. Nýttu þér afmœlistilboðið okkar og nœldu þér íþennan jyrirtaks snœðingfiá Ömmubakstri. Ömmuflatkökur eru alveg ómissandi í ferðalagið og sjálfsagðar á matar- og kaffiborðið. Svipastu um eftir flatkökum fiá Ömmubakstri á afinælisafilætti í versluninni þinni. o 'jl "fTci7tii>B»rT40árÍ Bakarí Friðriks Haraldssonar sf. Kársnesbraut 96, Kópavogi Sími 91-41301

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.