Morgunblaðið - 07.07.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.07.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993 33 Auður Þorláks- dóttir — Minning Fædd 26. október 1930 Dáin 29. júní 1993 Þegar fréttin berst að hún Auður sé látin stöndum við sorgmædd og hljóð, öll okkar hugsun og tilfinn- ingar beinast til þessarar ljúfu konu og ástvina hennar. Efst í huga okkar streymir þakk- læti fyrir allt það sem hún lagði af mörkum til að hjálpa og gera svo mörgum öðrum lífið léttbærara. Þegar minnast á mannkosta Auðar er af svo mörgu að taka, en kannski ber þar hæst hve mikill styrkur hún var öllu sínu fólki. Hún var með afbrigðum gestris- in, jafnvel eftir að hún var orðin helsjúk lagði hún fyrir um hvernig skyldi taka á móti ættingjum manns hennar, sem hér eru í heimsókn frá Bandaríkjunum. Það mátti engum bregðast, því að trygglyndið og fórnfysin voru hennar aðalsmerki. Auður giftist Gunnari Má Torfa- syni árið 1949 og bjuggu þau lengst af í Grænukinn 17 í Hafnarfirði. Þar ólu þau upp sex mannvænleg börn, Harald, Maríu, Ársæl, Magneu, Olgu og Auði, einnig tóku þau að sér um árabil Ásgeir Pál systurson Gunnars. Bamabörnin eru orðin tólf og er þetta ásamt tengdabörnum einstaklega sam- rýndur og samhentur hópur. Mikill harmur er líka kveðinn að öldruðum foreldrum, sem sjá nú á bak yndislegri dóttur. Nú þegar komið er að kveðjustund kemur okkur þetta ljóð í hug: Þó ég sé látin, harmið mig ekki með táram. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og' ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Óþekktur höfundur, Neistar frá sömu sól.) Við Kiddi ásamt fjölskyldu okkar biðjum Auði blessunar og biðjum algóðan Guð að hugga og styrkja fjölskyldu hennar. Anna Erlendsdóttir. Auður fæddist í Reykjavík og ólst upp í Sogamýrinni, foreldrar hennar voru Magnea Einarsdóttir frá Borgarfirði eystri og Þorlákur Jónsson rafvirki frá Súgandafirði. Þær mæðgur bjuggu lengi hjá Haraldi Jónssyni og Olgu Eggerts- dóttur og þeirra börnum Guðbergi og Gyðu og var það eins og ein stór fjölskylda og hélst sú vinátta alla tíð. Auður gekk í Laugarnesbarna- skóla og síðar í Kvennaskólann í Reykjavík og lauk þaðan burtfarar- prófi 1948. Bekkurinn „Kvennó ’48“ hefur alltaf haldið hópinn og hittist reglulega. Hópurinn hélt uppá 40 ára útskriftarafmæli með viku ferð til Vínarborgar 1988. Sú ferð tókst svo vel, að það var sam- stundis byrjað að safna fyrir næstu ferð, sem var ákveðin eftir fimm ár. Sú ferð var farin nú í vor til Parísar, ein vika í maí, en því mið- ur var þar skarð fyrir skildi, Auði vantaði í hópinn vegna veikinda, og var hennar sárt saknað. Hún var alltaf lífleg og skemmti- leg og hnyttin í svörum og hún var vinur vina sinna, það fengu allir að reyna sem kynntust henni. Á Kvennaskólaárunum stundaði hún skíðaíþróttina. Hún var sannur Ármenningur og stundaði Jóseps- dalinn. Ármenningar frá þessum árum muna kannski frekar eftir hennar dugnaði og ósérhlífni í sjálf- boðavinnunni heldur en afrekum í skíðaíþróttinni. Á sumrin var hún í sveit á Syðri- Rauðalæk í Holtum. Henni varð vel til vina við alla þar á bæ og áttu börnin hennar síðar eftir að fara þangað í sveit á sumrin. Þar kynntist hún Gunnari Má Torfasyni úr Hafnarfirði og giftist honum 18 ára gömul. Þau fóru að búa í litlu húsi við Hellisgerði í Hafnarfirði og Magnea bjó hjá þeim og börnin komu í fjölskylduna og alltaf virtist nóg rými í litla húsinu. „Hvor der er hjærterum, er der ogsá hus- rum,“ segja Danir. Þaðan fluttust þau í Köldukinn, en er þau luku við húsið sitt í Grænukinn 17 fluttu þau þangað. Börnin urðu sex, Haraldur Rafn, Gerður María, Ársæll Már, Magnea Þóra, Olga og Auður. Það var mikil vinna á stóru heim- ili og það var bakað og saumað og ptjónað. Allt fórst henni vel úr hendi, og ég vissi dæmi um það, ef dæturnar fengu ekki í búðum, það sem þær voru að leita að, þá báðu þær mömmu að sauma það fyrir sig. Eða ef þeim fannst léleg- ur frágangur á keyptum fötum, var betra að biðja mömmu að sauma, því var hægt að treysta. Hún var ekki bara góð móðir og uppalandi barna sinna, hún var líka vinur þeirra. Alltaf stóð Gunnar Már eins og klettur með henni og fjölskyldunni. Þetta hefur verið sér- lega samhent fjölskylda og þau hafa átt barnaláni að fagna og ekki falla tengdabörnin eða barna- börnin tólf síður inn í myndina. Ekki má gleyma saumaklúbbn- um, að þeysast milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur einu sinni í viku á árunum 1950 til 1960, þótti ekkert mál, bara að hoppa í strætó og ganga til og frá stoppistöðvum. Tvær bjuggú í Hafnarfirði, fjórar í Reykjavík. En tímamir breytast, ein fluttist til Bandaríkjanna og hinar fengu ýmsu öðru að sinna. Það var því hætt að hittast til hann- yrða, en vinátta og samfundir héldu áfram engu að síður. Það sem Auður vann utan heimilisins var mest tengt Öldu- túnsskóla, nema það sem fjölskyld- an vann í Galtalækjarskógi um Verslunarmannahelgar, o.fl. Hún var við ræstingar í skólanum og þegar þurfti að leysa húsvörðinn af, var leitað til hennar. En síðasta starf hennar við skólann er þó at- hyglisverðast. Hún settist á skóla- bekk með sjö ára börnum. Dóttur- sonur hennar skaddaðist mikið í alvarlegu umferðarslysi. Er hann komst á skólagöngualdur þurfti hann talsverðrar aðstoðar við til þess að geta sótt venjulegan skóla. Þetta tók amma að sér að gera og leysti það frábærlega vel. Starfs- heitið er stuðningsfulltrúi og þau voru fleiri börnin sem hún aðstoð- aði. Guð styrki aldraða móður, henn- ar er missirinn mikill eftir rúmlega 60 ára nána samveru, en einkadótt- irin skilur mikið eftir og þar eru margar hendur til að styðja hana. Hún missti ekki dóttur, þegar Auð- ur gifti sig, hún eignaðist son. Faðirinn saknar einnig dóttur sinnar, hann hefur þegar misst tvo syni, en Auður átti þijá hálfbræð- ur, Pál, d. 1986, Jón Kristin, d. 1983, og Gunnar og systir þeirra Ríkey. Eg bjó með minni fjölskyldu í húsi Þorláks og þekkti því þá fjöl- skyldu vel er ég kynntist Auði. Við vorum saman í Kvennaskólanum og á skíðum o.fl. Og í tvö ár urðum við samferða úr og í skóla í hádeg- inu því að hún borðaði hjá föður sínum og hans fjölskyldu. Þórhallur Bjöm Sig- mjónsson - Minning Fæddur 10. apríl 1909 Dáinn 27. júní 1993 Mánudagsmorguninn 29. júni síðastliðinn hringdi síminn hjá mér og í honum var Lovísa Sveinsdóttir í Grindavík að tilkynna mér og fjöl- skyldu minni að móðurbróðir minn, Þórhallur Siguijónsson, hefði látist kvöldinu áður. Mig setti hljóða. Ég held hreinlega að ég hafi verið nokkra daga að átta mig á því að ég ætti ekki eftir að sjá hann aftur eða heyra hlátur hans og hnyttin svör. Er ég sest niður og læt hugann reika til liðinna ára er margs að minnast. Skærust er minningin er von var á Þórhalli frænda, konu hans, Aðalbjörgu Þorvaldsdóttur, og bömum þeirra í heimsókn til Akureyrar að heimsækja systur sín- ar, Jóhönnu og Dagmar, og fjöl- skyldur þeirra. Var mjög sterkt samband þeirra á milli. Þá renndum við^út á Hjalteyri eða í Vaglaskóg. Ég veit að þeir sem til þekkja eru sammála mér að Þórhallur var einn af sönnum sonum íslands, hafsjór af fróðleik um land og þjóð. Hann hafði ómældan áhuga á ferða- lögum og fór mikið um landið sitt. Eigum við hjónin mjög fagrar og góðar minningar frá sumrinu 1987 er frændi og Bogga komu norður Kjöl og stoppuðu í nokkra daga. Við fórum þá á Siglufjörð að heim- sækja bernskuslóðir Þórhalls. Gekk hann þar að litlu húsi og barði á dyr. Þar kom gömul kona til dyra og kynnti hann sig fyrir henni. Sagði henni að faðir hans hefði byggt þetta hús og hann hefði búið þarna sem barn. Það var auðsótt mál að fá að skoða húsið. Við gleymdum bæði stund og stað við að hlusta á hann lysa bernsku sinni í þessu litla húsi. Þórhallur fór aft- ur suður Sprengisand og þá var hann búinn að fara langþráða ferð. Þórhallur var höfðingi heim að sækja, gestrisnari hjónum ogelsku- legri hef ég ekki kynnst. Þeir sem Þórhalli kynntust báru mikla virð- ingu fyrir honum, elskuðu hann og dáðu. Hann gaf mikið af sjálfum sér og eignaðist mikið í okkur öllum. Elsku Bogga, börn og tengda- börn, við flytjum ykkur okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum ykkur blessunar guðs. Kæri frændi, nú þegar þú ert farinn í ferðina óendanlegu viljum við hjónin og börnin okkar þakka þér fyrir allar samverustundirnar um leið og við óskum þér velferðar á strönd eilífðarinnar. Friður guðs þig blessi. Rósa Antonsdóttir. Hinn 27. júní síðastliðinn lést ástkær afi okkar, Þórhallur Björn Siguijónsson. Hann var afar sterk- ur persónuleiki, gjöfull og velviljað- ur og sá ævinlega það besta í hverri manneskju. Þegar við bjuggum erlendis sem börn þótti okkur vænt um að fá afa og ömmu í heimsókn og þau skildu eftir hlýjar og góðar tilfinningar í hjörtum okkar. Seinna, er við flutt- umst til íslands, nutum við þess að vera í nálægð við þau og varðveitum yndislegar minningar frá þeim tíma. Elsku afi, við þökkum þér inni- lega fyrir samverustundirnar. Ná- lægð þín hafði djúp áhrif á okkur og við munum ávallt sakna hennar. Dagný Pjóla sagði þegar hún heyrði að langafi væri dáinn: „Nú veit ég að langafi er kominn með hvítt, krullað hár, hann er orðinn engill. Við skulum passa langömmu fyrir hann.“ Elsku hjartans afi, við kveðjum þig með þá fullvissu í huga og hjarta að leiðir okkar muni liggja saman á ný. Blessuð sé minning þín. en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgr.) Carolyn Linda, Elvar Þór, Cynthia Lisa og Edward Þórhallur. Góður vinur er genginn, við söknum hennar sárt, en fögnum því að þjáningarnar þurftu ekki að standa lengur. Margs er að minn- ast, minningin lifir. Sendi ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Dóra G. Jónsdóttir. Kær bekkjarsystir og vinkona er horfin úr hópnum. Við fyllumst trega og söknuði. Eins og ætíð þegar dauðinn kallar vini burt leita minningar á hugann. Leiðir okkar Auðar lágu fyrst saman í 9 ára bekk Laugarnesskóla og fylgdumst við að uns grunnskólanámi lauk vorið 1944. Báðar völdum við Kvennaskól- ann í Reykjavík sem framhalds- skóla, þreyttum inntökupróf um vorið og settumst í fyrsta bekk um haustið. Námsárin í Kvennaskólan- um liðu fljótt og við bekkjarsyst- urnar vorum svo sannarlega lífs- glaðar og fullar eftirvæntingar vor- ið 1948 er námi lauk. Nú skyldi velja störf og takast á við framtíð- ina. Tvær úr hópnum leituðu gæf- unnar í útlöndum, aðrar héldu áfram námi og enn aðrar hugðu á stofnun heimilis. Auður var sú fyrsta okkar er gifti sig og stofnaði heimili. Hún eignaðist ljúfan og góðan lífsföru- naut, Gunnar Má Torfason vörubíl- stjóra, og hófu þau búskap í Hafn- arfirði, þar sem þau bjuggu alla tíð. Það er reynsla margra, að sterk- ust vináttu- og tryggðabönd bind- ast gjarnan á unglings- og náms- árunum. Svo hefur reynst með okk- ur bekkjarsysturnar. Skömmu eftir útskrift vorið 1948 ákváðum við að hittast — halda hópinn. Fyrstu árin hittumst við á veitingastað, en þar kom að ákveðið var að flytja fundina okkar í heimahús. Fyrsti fundurinn var svo á heimili Auðar og Gunnars. Þröngt var setið enda lítil risíbúð. Oft vitnaði Auður í þennan fund og sagði gjarnan „að fyrst allar hefðu komist fyrir heima hjá henni á þeim árum, væri hvergi þröngt". Árin liðu og fleiri stofnuðu heim- ili og börnin fæddust. Við héldum trúfastlega hópinn og fylgdumst hver með annarri, sagðar voru sög- ur af börnunum, sýndar myndir og barnagarðveislur voru haldnar í nokkur sumur. Auður átti einna fjölmennasta hópinn, eignaðist sex mannvænleg börn. Þegar 40 ár voru liðin frá út- skrift okkar var farið í vikuferð til Vínarborgar, sem var okkur öllum ógleymanleg ferð. Nú í maí sl. er 45 ár voru liðin var farin vikuferð til Parísar. í þá ferð ætlaði Auður, en um sl. ára- mót kom í ljós, að hún var með illkynja sjúkdóm, sem hvorki skurðaðgerðir né önnur læknishjálp megnaði að vinna bug á. Heilsu hennar hrakaði stöðugt, uns hún lést 29. júní sl. Lífsgöngu Auðar er lokið. Kær bekkjarsystir og vinkona er gengin. Við bekkjarsysturnar eigum eftir að sakna Auðar, ekki sist á fundun- um okkar. Sakna trúfesti hennar, sakna hnyttinna tilsvara hennar og hreinskilni. Við allar vottum Gunnari eigin- manni hennar, börnunum, foreldr- um og öðrum aðstandendum, okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning um elskulega góða vinkonu og við felum hana góðum Guði á vald. Gréta Bachmann. Hvað er hel? Öllum líkn sem lifa vel. Þannig byrjar einn af sálmum sr. Matthíasar Jochumssonar og við hljótum að líta svo á, að dauðinn sé sárþjáðum sjúklingum líkn, þeg- ar batavonirnar eru brostnar. En þannig var komið fyrir Auði Þor- láksdóttur, sem lést 29. júní eftir erfiða baráttu við einn af skæðustu sjúkdómum okkar tíma. Kynni okkar Auðar voru orðin löng. Veturinn 1943-44 vorum við saman í undirbúningsdeild í Laug- arnesskólanum, þar sem aðalkenn- arinn var sá ágæti kennari og síðar skólastjóri Laugarnesskólans, Gunnar Guðmundsson. Síðan vor- um við fjóra vetur í sama bekk í Kvennaskólanum í Reykjavík, út- skrifuðumst þaðan vorið 1948. Þessi árgangur skólans hefur hald- ið vel saman og í sumar, á 45 ára útskriftarafmælinu, fóru bekkjar- systumar til Parísar og í þá ferð ætlaði Auður, en veikindin komu í veg fyrir það. Auður fæddist í Reykjavík 26. október 1930 og eru foreldrar hennar Magnea Einarsdóttir, sem fæddist að Hvannstóði í Borgarfirði eystri, og Þorlákur Jónsson, raf- virkjameistari frá Suðureyri við Súgandafjörð. Þau eru bæði á lífi í hárri elli. Hinn 5. mars 1949 giftist Auður Gunnari Má Torfasyni og bjuggu þau í Hafnarfirði allan sinn bú- skap. Þeim varð sex barna auðið. Elstur er Haraldur Rafn, rafvirki, f. 18.5. 1949, kona hans er Sigrún Ragnarsdóttir og eiga þau tvo syni; Gerður María, f. 15.5. 1950, maður hennar er Karl Júlíusson og eiga þau þijú börn; Ársæll Már, umsjón- armaður, f. 17.7. 1952, giftur Kristínu Kristinsdóttur, þau eiga þijá syni; Magnea Þóra, sjúkraliði á Borgarspítalanum, f. 5.12. 1953; Olga, aðstoðarmatráðskona á Landspítalanum, f. 5.10. 1956, hennar maður er Jörgen Tommy Jensen, þau eiga tvo syni. Yngst er Auður, f. 26.1. 1959, hún er gift Magnúsi Rúnari Jónssyni og eiga þau tvö börn. Barnabörn Auðar og Gunnars eru orðin tólf og bar hún hag þeirra mjög fyrir bijósti. Ekki reyndist hún síst dóttursyninum, sem slas- aðist mjög illa í bílslysi. Þegar hann fór að ganga í skóla eftir slysið, fylgdi hún honum og var með hon- um í skólanum í sjö vetur. Þar vár hún og ýmsum öðrum börnum til halds og trausts og mætti segja mér að hennar verði þar sárt sakn- að af mörgum. Alsystkini átti Auður engin, en þijá yngri hálfbræður, samfeðra. Af þeim er nú einn á lífi, yngsti bróðirinn, Gunnar, en látnir eru Jón Kristinn, sem lést 1983 og Páll 1986. Milli þeirra mæðgnanna, Magneu og Auðar, var ávallt mjög gott samband og höfðu þær búið saman í 58 ár, þegar Magnea fór, að eigin ósk, á Sólvang í Hafnar- firði fyrir u.þ.b. fjórum árum. Ekki rofnaði þó samband þeirra því að Auður fór alltaf annan hvern dag til móður sinnar. . Auður var góð heim að sækja og gaman var að hlýða á ýmsar frásagnir hennar, enda komst hún oft mjög skemmtilega að orði. Víst er um það, að hennar mun verða saknað úr hópi bekkjarsystranna, en sá hópur fer nú minnkandi því að Auður er sú fjórða sem fellur frá. Að leiðarlokum viljum við þakka allar góðu stundirnar sem við áttum. saman og sendum innilegar samúð- arkveðjur til Gunnars Más, afkom- endanna allra og foreldranna. Eilíft líf, ver oss huggun, vörn og hlíf líf í oss, svo ávallt eygjum æðra lífið, þó að deyjum. Hvað er atlt þá endar kíf? Eilíft líf. (Matth. Jochumsson) Jóhanna Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.