Morgunblaðið - 07.07.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993
Evrópuráðið
Loggjof í
Eistlandi
gagnrýnd
Strassborg. Reuter.
NEFND á vegum Evrópuráðsins
gagnrýnir nýsett útlendingalög í
Eistlandi og segir orðalag víða
óljóst og ekki sé girt nægilega
fyrir misbeitingu framkvæmda-
valds. Lennart Meri, forseti Eist-
lands, hafði óskað eftir áliti
nefndarinnar á nýju lögunum en
þau öðlast ekki gildi nema hann
staðfesti þau.
Setning nýju laganna fyrir tveim-
ur vikum kaliaði á harkaleg við-
brögð rússnesku stjórnarinnar.
Eistnesk stjórnvöld segja að um
misskilning sé þar að ræða. Sam-
kvæmt lögunum verða allir útlend-
ingar í landinu að sækja um dvalar-
leyfi innan árs. Þeir sem gera það
ekki verða að yfirgefa landið innan
tveggja ára. Heimilt er að synja
þeim sem ekki hafa vinnu um dval-
arleyfi. Þeir sem sækja hins vegar
um ríkisborgararétt verða að stand-
ast próf í eistnesku þar sem krafist
er 1500 orða forða.
Reuter
Sprengjutilræði á Norður-írlandi
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR gerðu 250 kg sprengju
óvirka í miðborg Belfast í gær eftir að önnur sprengja,
helmingi minni; hafði sprungið í smábænum Newtown-
ards á Norður-írlandi. Miklar skemmdir urðu á verslun-
um í götunni og 14 borgarar og fimm lögreglumenn
særðust. Lögreglan fékk aðeins 11 mínútur til að koma
fólki í burtu og írski lýðveldisherinn lýsti tilræðinu á
hendur sér. Myndin er af götunni þar sem sprengjan
sprakk.
Clinton vill leiötogafund
um atvinnulevsi í heiminum
Tókýó, San Francisco. Reuter, The Daily Telegraph.
í RÆÐU sem Bill Clinton Bandaríkjaforseti
flutti í San Francisco áður en hann hélt til
Japans í gær hvatti hann til þess að kallaður
yrði saman við fyrsta tækifæri sérstakur leið-
togafundur til að Ieggja drög að sameigin-
legri baráttu gegn atvinnuleysi. Atvinnuleysi
í Evrópubandalaginu, EB, er að meðaltali
um 10% en mun minna í Bandaríkjunum, sjö
af hundraði og atvinnuleysi hefur til skamms
tíma verið afar lítið í Japan. Það sem einkum
veldur áhyggjum í EB er að meira en helm-
ingur atvinnulausra hefur verið án vinnu í
meira en ár en samsvarandi hlutfall í Banda-
ríkjunum er aðeins 11%.
Clinton sagði að leiðtogar heims þyrftu að
ræða á sérstökum bráðafundi „orsakir og hugs-
anlegar leiðir til úrbóta vegna viðvarandi at-
vinnuleysis" og með þessu yrði stigið fyrsta
skrefíð í átt til nýsköpunar atvinnutækifæra.
Hann benti á að einkafyrirtæki í Evrópu hefðu
ekki bætt við neinum nýjum störfum undanfarin
20 ár, Bandaríkjamönnum og jafnvel Japönum
gengi einnig erfiðlega að fjölga störfum.
Sjöveldin sem funda í Tókýó eru Bandaríkin,
Japan, Þýskaland, Frakkland, Ítalía, Bretland
og Kanada. Komu leiðtogar þeirra allra til borg-
arinnar í gær að undanskildum Francois Mitterr-
and Frakklandsforseta sem kemur þangað í
dag. Á morgun, fímmtudag, er Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, væntanlegur til viðræðna við
leiðtogana. Sögðu talsmenn forsetans í Moskvu
í gær að Jeltsín myndi leggja fast að viðmælend-
um sínum að veita Rússum rýmri aðgang að
mörkuðum iðnveldanna.
Leiðtogar með vafasamt umboð
Stjórnmálaskýrendur eru svartsýnir á að
árangur verði mikill á G 7-fundinum þar sem
leiðtogamir eru flestir í miklum vanda á heima-
slóðum. Þeir benda m.a. á að Mitterrand Frakk-
landsforseti hafí varla nokkurt umboð til að
ræða mikilvæg efnahagsmál eftir hrun sósíalista-
flokksins í kosningunum nýverið; Edouard
Balladur forsætisráðherra Frakka segir að for-
setinn muni ekki undirrita neina samninga í
Tókýó.
Stjórnarflokkur Miyazawa í Japan er einnig
illa staddur vegna spillingamála og klofnings.
Forsætisráðherrann er aðeins starfandi valda-
maður fram að kosningum síðar í mánuðinum.
Stjórnmálakerfi ítala er í rúst vegna spillingar-
mála og hruns hefðbundinna flokka, leiðtogar
Þýskalands og Bretlands eiga mjög í vök að
veijast. Kim Campbell, forsætisráðherra Kanada
og eina konan í hópnum, tók við embætti fyrir
fáeinum vikum.
Clinton, sem átti í erfiðleikum fyrsta hálfa
árið í embætti, er líklega sá eini sem getur talað
af nokkrum myndugleika en hann hefur bætt
stöðu sína verulega síðustu vikurnar með sigrum
á þingi. Utangarðsmaðurinn í Tókýó, Jeltsín,
þykir einnig hafa styrkst verulega en efnahags-
sérfræðingar eru nú mun bjartsýnni en fyrir
hálfu ári á að Rússum takist að rétta úr kútnum
á næstu árum og koma á markaðshagkerfí í
landi sínu.
Danielle Mitterrand hittir fangelsaðan andófsmann í Belgrad
Milosevic hafnar
að náða Draskovic
Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph.
DANIELLE Mitterrand, forsetafrú Frakklands, hvatti í gær til að
serbneska andófsmanninn Vuk Draskovic yrði sleppt úr haldi en
hann hefur verið í hungurverkfalli frá því hann var handtekinn
fyrir rúmum mánuði. Danielle Mitterrand kom til Belgrad á mánu-
dag og heimsótti í gær Draskovic á spítalann þar sem hann er í
haldi. Hún átti einnig fund með Slobodan Milosevic forseta Serbíu.
Milosevic hafnaði kröfu hennar um að Draskovic yrði sleppt úr
haldi. Vísaði hann til úrskurðar hæstaréttar Serbfu sem í gær
hafnaði náðunarbeiðni lögfræðinga Draskovic.
Kúbustjórn
Hvatttil
nýrrar
hugsunar
Havana. Reuter.^
KOMMÚNISTÁSTJÓRNIN á
Kúbu hvatti landsmenn á
mánudag til þess að tileinka
sér nýjan hugsunarhátt og
framkvæmdasemi til þess að
bregðast við efnahags- og
félagslegum vanda landsins.
Þessi málaleitan kom fram í
ríkisútvarpinu Rebelde, og þyk-
ir augljós vísbending um að
stjórnvöld séu reiðubúin til þess
að fóma hugmyndafræðilegum
kennisetningum fyrir raun-
særri og sveigjanlegri viðhorf.
„Nú er enginn tími til form-
festu,“ sagði Rebelde. „ÖIIu
má fóma, nema byltingunni
sjálfri, sjálfstæði okkar og
grundvallarhugsjón."
Erlendir stjórnarerindrekar í
Havana segja þetta nýja við-
horf áreiðanlega vera viðbrögð
við almennri óánægju.
Vuk Draskovic og eiginkona
hans Danica voru handtekin þann
2. júní eftir að til óeirða kom í
borginni er fjöldi manns krafðist
þess að stjóm Milosevic færi frá.
Lést einn lögreglumaður og fjöldi
mótmælenda særðust í óeirðunum.
Herma heimildir að þeim hjónum
hafi verið misþyrmt jafnt við hand-
töku sem í fangelsi og er Vuk sagð-
ur lífshættulega særður.
Hópur níu lækna, sem haft hef-
ur meðferð hans undir höndum,
sagði í gær að heilsu hans færi
hrakandi og væri
mikilvægt að
honum yrði sleppt
úr haldi þannig
að hægt yrði að
halda meðferð
hans áfram á
heimili hans.
Læknamir sögðu
einnig að heilsu
Danicu hefði
hrakað og hvöttu til að henni yrði
einnig sleppt.
Úrskurður hæstaréttar Serbíu
virðist benda til að för Danielle
Mitterrand til Belgrad hafi mis-
heppnast. Hún afhenti Milosevic
bréf frá eiginmanni sínum Fran?o-
is Mitterrand Frakklandsforseta
en ekki hefur verið gefíð upp opin-
berlega hvað stóð í bréfinu. Sagði
hún að flugvél væri reiðubúin í
París til að koma til Belgrad og
sækja Draskovic-hjónin þannig að
hægt yrði að koma þeim undir
læknishendur í Frakklandi.
Mitterrand er forseti frönsku
mannréttindasamtakanna France-
Libertes og hefur margoft sýnt að
hún er óhrædd við að halda til
átakasvæða í heiminum telji hún
að hún geti látið eitthvað gott leiða
af sér. Fyrir um ári munaði
minnstu að hún týndi lífi í sprengj-
utilræði er hún ferðaðist um kúrda-
héruð íraks.
Danielle
Herlög
settí
Georg'íu
EDÚARD Shevardnadze, leið-
togi Georgíu, setti í gær herlög
í Svartahafshéraðinu Abkhazíu
vegna bardaga georgíska
stjórnarhersins og aðskilnaðar-
sinna í héraðinu. Herlögin gilda
í tvo mánuði.
ítalska heil-
brigðiskerfið
undir smásjá
RANNSÓKN spillingarmál-
anna á Ítalíu heldur áfram að
hlaða upp á sig og í gær beind-
ist athyglin að heilbrigðiskerf-
inu eftir að saksóknarar sögðu
að gmnur léki á því að embætt-
ismenn í heilbrigðisráðuneytinu
hefðu þegið mútur af lyfjafyrir-
tækjum. Embættismennirnir
eru sagðir hafa þegið peninga
af fyrirtækjunum fyrir að sam-
þykkja hækkun lyfja. Tveir
stjórnendur auglýsingastofu
voru einnig handteknir, en þeir
eru sakaðir um að hafa greitt
embættismönnum mútur til að
tryggja sér auglýsingasamning
við heilbrigðisráðuneytið vegna
baráttunnar gegn alnæmi.
Lettar fá gas-
ið áfram
LETTAR hafa greitt skuld sína
við Rússa vegna gaskaupa
þeirra, þannig að ekki verður
af þeirri hótun Rússa að skrúfa
fyrir gasleiðslurnar til Lett-
lands.
Fleiri Finnar
hlynntir EB
TÆPUR helmingur Finna, eða
48%, er hlynntur aðild að Evr-
ópubandalaginu (EB), sam-
kvæmt skoðanakönnun sem
birt var í gær. 40% voru með
aðildinni í febrúar. Andstæð-
ingar EB-aðiIdar voru 37%,
álíka margir og í febrúar.
116 bíða bana
í S-Afríku
AÐ MINNSTA kosti 116
manns hafa beðið bana í átök-
um stríðandi fylkinga blökku-
manna í Suður-Afríku frá því
á föstudag, þegar ákveðið var
að efnt skyldi til fyrstu kosn-
inganna með þátttöku allra
kynþátta 27. apríl á næsta ári.
Átökin hafa aðallega verið milli
stuðningsmanna Afríska þjóð-
arráðsins og Inkatha-frelsis-
flokksins.
Sorgá
Filippseyjum
MIKIL sorg var í bænum Boc-
aue á Filippseyjum í gær þegar
um 279 pílagrímar, sem fórust
þegar fljótandi musteri hrundi
á fljóti á föstudagskvöld, voru
bornir til grafar. Nokkrir ætt-
ingja fómarlambanna hafa hót-
að að höfða mál gegn skipu-
leggjendum trúarhátíðar, sem
fram fór í musterinu, vegna
þess að of margt fólk var í því
þegar það hrundi.
Japanir í ör-
yggisráðið?
JAPANIR tilkynntu í gær að
þeir hygðust óska eftir því að
fá fastafulltrúa í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna. Ekki kom
þó fram hvort þeir vildu fá
neitunarvald eins og ríkin fímm
sem nú hafa fastafulltrúa í ráð-
inu.