Morgunblaðið - 07.07.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.07.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993 ATVIN NUA UGL YSINGAR Mötuneyti Óskum eftir starfsmanni til að sjá um lítið mötuneyti. Reynsla nauðsynleg. Vinnutími frá kl. 10.00-14.00. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax. Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 10. júlí, merktar: „Mötuneyti - 10.07.“ Vegna útkomu bókar um gæðastjórnun og markaðsmál óskum við eftir að ráða 2-3 dug- lega sölumenn. Verða að hafa bíl til umráða og vera vanir sjálfstæðum vinnubrögðum. Laun verða föst og/eða prósentur. Upplýsingar gefur Marteinn milli kl. 9-12 daglega. Framtíðarsýn hf., sími 628780. Tækjastjórar Óskum eftir að ráða vana gröfumenn í grjót- vinnu. Mikil vinna framundan. Upplýsingar í síma 653140. Gunnar og Guðmundursf. Sinfóníuhljómsveit íslands auglýsir lausa stöðu bassabásúnuleikara frá og með 1. janúar 1994. Hæfnispróf verða haldin á tímabilinu 20.-25. september 1993. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói og í síma 622255. Sinfóníuhljómsveit íslands, pósthóif 7052 - 127 Reykjavík. Kennarar Kennara vantar að Kirkjubæjarskóla næsta skólaár. Gott húsnæði. Leikskóli á staðnum auk allrar almennrar þjónustu. Upplýsingar gefur Hanna Hjartardóttir, skólastjóri, í síma 98-74635. Frá Sólvallaskóla Selfossi Vegna forfalla eru tvær kennarastöður lausar til umsóknar við skólann. Meðal kennslugreina: Myndmennt, danska og enska. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 98-21178 eða 98-21256. Sölufólk ÍRLAWÞAUGL ysingar HÚSNÆÐI í BOÐI 112 fm verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði Til leigu er 112 fm húsnæði á jarðhæð. Ágæt staðsetning. Upplýsingar í síma 812300 frá kl. 9-16. RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS Auglýsing um faggildingu Rafmagnseftirlit ríkisins auglýsir eftir aðilum sem hyggjast sækja um faggildingu til að annast framkvæmd eftirlits með raforkuvirkjum. Skriflegt erindi þar að lútandi sendist Rafmagnseftirliti ríksins, Síðumúla 13, 108 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. Rafmagnseftirlit ríkisins. TILKYNNINGAR Lokað vegna sumarleyfa Skrifstofa félagsins verður lokuð vegna sumar- leyfa 7.-19. júlí. Styrktarfélag vangefinna. Greiðsluáskorun Hér með er skorað á gjaldendur í Hraun- hreppi að gera nú þegar skil á gjaldföllnum en ógreiddum gjöldum til sveitarsjóðs Hraun- hrepps. Um er að ræða eftirfarandi: Aðstöðu- gjald, fasteignaskatt, kirkjugarðsgjald, fjall- skilagjöld. Hafi gjöldin ekki verið greidd innan 15 daga frá dagsetningu þessarar áskorunar má við því búast að fjárnáms verði krafist hjá skuldurum án frekari fyrirvara. 7. júlí 1993. Oddviti Hraunhrepps. Styrkir til markaðs átaks á EES Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita á þessu ári styrki til útflytjenda til markaðsátaks á hinu fyrirhugaða Evrópska efnahagssvæði (EES) og hefur skipað starfshóp á vegum utanríkisráðuneytisins til að annast úthlutun. Áhersla verður lögð á að styrkja nýjungar og nýsköpunarstarf. Um styrki geta sótt fyrirtæki, einstaklingar eða stofnanir. Umsækjendur skulu leggja fram verkefnisáætlanir ásamt arðsemis- og kostnaðarútreikningum. Gert er ráð fyrir að styrkirnir geti að jafnaði numið um þriðjungi af kostnaðaráætlun hvers verkefnis, þó aldrei meira en helmingi og ber umsækjendum að gera grein fyrir því hvernig þeir hyggjast fjár- magna mismuninn. Utanríkisráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum um ofangreinda styrki. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst næstkom- andi og umsóknum skal skilað til viðskipta- skrifstofu utanríkisráðuneytisins, Hverfis- götu 115, 150 Reykjavík, bréfasími 624878. BÚSETI HUSNÆÐISSAMVINNUFÉLAG Sumarlokun skrifstofu Búseta Skrifstofan á Hávallagötu 24 verður lokuð frá 12. júlí til 9. ágúst nk. Hægt er að lesa áríðandi skilaboð inn á sím- svara, sími 25788. Lausar íbúðir verða næst auglýstar til úthlut- unar í Morgunblaðinu sunnudaginn 5. sept- ember. Skrifstofu- og lagerhúsnæði Um 220 fm skrifstofuhúsnæði er til leigu í Síðumúla 15, Reykjavík. Laust nú þegar. Á sama stað er til leigu lagerhúsnæði með góðri aðkeyrslu, 50-150 fm. Malbikuð lóð. Næg bílastæði. Upplýsingar í síma 44827 daglega. Eftirfarandi útboð eru til afhendingar á skrif- stofu okkar, Borgartúni 7, Reykjavík: 1. Sambýli fatlaðra, Sauðárkróki. Opnun 13. júlí 1993 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 12.450 m/vsk. 2. Hjúkrunardeild á Höfn, 1. áfangi. Opnun 5. ágúst 1993 kl. 11.00. Gögn seld á kr. 12.450 m/vsk. IIMIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS ________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK_ liíir %.SI^ SltlQ auglýsingar Sumarferð skíðadeildar Ármanns Farið verður helgina 9.-11. júlí að Seljavöllum undir Eyjafjöllum. Híst verður á föstudagskvöldi. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta. Nánari upplýsingar í símsvara 620005. FERÐAFÉLAG @ ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Miðvikudagskvöld 7. júli kl. 20.00: Almenningur - Gjásel. Skemmtileg kvöldganga sunnan Straumsvíkur. Brottför frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmegin og Mörkinni 6. Verð 700 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Helgarferðir 9.-11. júlí Brottför föstudag kl. 20.00: 1. Þórsmörk - Langidalur. Gönguferðir við allra hæfi. Góð gisting í Skagfjörðsskála. Munið ódýra sumardvöl. Ferðir einnig á sunnudögum og miðvikudög- um kl. 08.00 að morgni. 2. Fimmvörðuháls - Skógar. Gist I Þórsmörk. Gengið yfir hálsinn á laugardeginum (8-9 klst. ganga). Seljavallalaug heimsótt. 3. Landmannalaugar. Góð gist- ing í sæluhúsinu. Gögnuferðir. Brottför laugardag kl. 08.00: Siglt, gengið og hjólað á Kjalar- svæðinu. 1. Hvítárvatn-Karlsdráttur, sigllng. Gist í Hvftárnesskálan- um. Siglt með Vatnaferöum. Gönguferðir. 2. Fjallahjólaferð á Kjalvegl. Ferðin er í samvinnu við íslenska fjallahjólaklúbbinn. Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni Mörkinni 6, sfmi 682533. Dagsferð á Heklu laugardaginn 10. júlf kl. 08.00. Ferðafélag fslands. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Biblíulestur kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. SÍK, KFUM/KFUK-KSH „Saman og samhuga." Almenn samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58, í kvöld kl. 20.30. Upphafsorö: Gýða Karls- dóttir. Ræðumaður verður sr. Ólafur Jóhannsson. Samkoman er öllum opin. Þú ert velkomin(n)!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.