Morgunblaðið - 07.07.1993, Side 31

Morgunblaðið - 07.07.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 1993 31 Þór Ai'imson bakara- meistari — Mmning’ Fæddur 31. janúar 1947 Dáinn 22. júní 1993 Miðvikudaginn 23. júní sl. bárust þau tíðindi að Þór frændi hefði dáið daginn áður, þar sem hann bjó í Omaha í Nebraska. Frétt þessi kom sem reiðarslag, því að í huga mér var Þór kraftmikill og hraustur og á fullri ferð í lífinu við að byggja upp og hlúa að fjölskyldu sinni. Eins og svo oft áður er sá kallaður burt, sem maður á sízt von á og þeim mun sárari verður söknuður- inn þeim, sem næstir standa. En minningin um góðan dreng veitir þeim vonandi þann styrk, sem þau þurfa svo nauðsynlega á að halda til þess að vinna bug á sorg sinni. Við Þór vorum systrasynir, fædd- ir sama árið, hann 31. janúar 1947 og ég rúmum mánuði seinna. Fyrstu ár ævi okkar voru því samtvinnuð, þar sem heimili foreldra Þórs, þeirra Arna Guðmundssonar bakarameist- ar og Karólínu Stefánsdóttur á Bergþórugötu 6b, var eins konar miðpunktur tilveru okkar á þeim árum. Þór átti fjögur systkini, en þau eru Stefán Oli, Guðmundur (Gummi), Guðbjörg Sæunn (Bogga), sem eru eldri, og Stein- unn, sem er yngst. Heimili þeirra Árna og Línu var alltaf öllum opið og var þar oft margt um manninn, því að Lína átti sex systur. Alltaf þótti sjálfsagt að koma við á Berg- þórugötunni þegar farið var í bæ- inn, en Guðlaugur bróðir þeirra bjó einnig í sama húsi ásamt Þórdísi (Doddu frænku) konu sinni. Sjálf- sagt hefur oft mikið gengið á hjá okkur frændum á þessum árum, en aldrei man ég eftir að amast hafi verið við okkur þó að við ættum það virkilega skilið að fá ærlegar skammir. Þór var hraustmenni og vel sterk- ur, en óeigingjarn og eftirlátur, sérstaklega við frænda sinn, og það lýsir kannski vel skapgerð hans, þegar hann lenti eitt sinn undir bíl, sem verið var að ýta í gang, og slasaðist illa á fæti, þá sýndi hann mér stoltur sárin á fætinum, en varaði síðan frænda sinn við því að vera að þvælast fyrir bílum í slíku ástandi. Leiðir okkar Þórs skildu fljótlega eftir að á unglinsgsárin kom. Hann fór í Iðnskólann og lærði bakara- iðn. Hann kvæntist ungur Ingveldi Rósinkranz og eiga þau tvær dæt- ur. Þær eru Elín Hulda, 29 ára, sem nú á orðið tvö börn, og Margrét, 27 ára. Inga og Þór áttu vel saman og eftir að hafa baslað í nokkur ár hér heima, gerðu þau það sem marga langar til, en færri láta verða af, þ.e. að flytjast út í heim og reyna fyrir sér á fjarlægðum slóðum. Þau höfðu tækifæri til þess að flytjast til Bandaríkjanna og gerðu það. Því miður skildu leiðir þeirra fyrir nokkrum árum. Þór giftist aftur bandarískri konu, Patriciu, og átti með henni tvö börn, Frank Jóhann, sem er þriggja ára, og Elizabetu Ann, aðeins 17 mánaða. Fyrir átti Patricia þrjú börn. Missir þeirra er mikill, því að Þór var þeim öllum góður faðir og eiginmaður. Þór hefði ekki verið það að skapi að um hann væri skrifuð einhver lofræða, en ég veit að hann hefur getið sér góðan orðstír á þeim vett- vangi sem hann valdi sér og við munum öll geyma hann í minning- unni sem hraustan og góðan dreng, sem kvaddi alltof snemma. Megi góður Guð styrkja börnin hans og barnabörn, eiginkonu, móður og systkini í sorg þeirra. Stefán. Þór Árnason bakarameistari lést í Omaha, Nebraska, 22. júní. Þetta voru sorgartíðindi sem bárust vest- an úr Bandaríkjunum, banameinið hjartaáfall. Þór var fæddur 31. janúar 1947 og því aðeins 46 ára þegar hann lést. Hann var jarðsett- ur í Omaha. Þær voru margar minningamar sem sóttu á þegar ég heyrði að bróðir minn Þór væri látinn vestur í Bandaríkjunum. Ég minntist litla stráksins sem var með þeim ósköp- um gerður að hann gat ekki geng- ið framhjá sófaborði öðruvísi en að allt sem- á því var dytti í gólfíð. Unglingsins sem óx heldur hraðar og fyrr en jafnaldrar hans og var með þeim stærstu og sterkustu af félagahópnum um fermingu, enda þótt þessir sömu félagar yrðu flest- ir miklu hærri. Sama strák munaði ekkert um það fjórtán ára að st,anda allt að því þriggja sólar- hringa törn við fískimjölsverk- smiðju. Eitt sinnið var þegar hann, með Svenna vini sínum ,bjargaði stóra- bróður, sem var að halda sjálfum sér veislu og hafði fengið heilt knattspyrnulið í heimsókn. Það var drukkið stíft og þar kom að drykk- inn þraut og þá komu þessir ungu menn sakleysið uppmálað og færðu mér tvo lítra af sénever í afmælis- gjöf. Ég velti því dálítið fyrir mér dagana á eftir hvar strákarnir hefðu náð í vín svona nánast sam- stundis. Það var heldur lítið um svör svo að ég fór ekkert nánar út í það, enda varla venja að spyija hvaðan afmælisgjafir kæmu. Fimmtán árum seinna var það upplýst að þessar flöskur hefðu verið í kassanum sem ég átti og hafði ekki fundið annað í en tómar flöskur. Snemma gerðist Þór náttúraður fyrir konur og þótti mér það skrýt- ið hvað stelpur virtust sækja í hann, enda þurfti hann undanþágu til þess að kvænast aðeins sautján ára. Kona hans var Ingveldur Rós- enkranz eða Inga eins og hún var jafnan kölluð. Ingu og Þór tókst það sem fáum tekst. Þrátt fyrir að þau settu saman bú svona ung, þá héldu þau saman vinahópum sínum. Það var líka oft þröng á þingi hjá þeim í litlu íbúðinni á Vitastígnum. Þór fæddist á Bergþórugötu 6b, heima hjá móðurbróður sínum og konu hans Þórdísi sem hann var skírður eftir. Hann var í sveit á sumrum austur í Kerlingardal, rétt austan Víkur. Þetta varð „sveitin hans“ og talaði hann alltaf um það að hann kæmi strax til landsins þegar Katla bærði á sér. Þór fór snemma að vinna fyrir sér. Var það eitt af því fyrsta sem hann starfaði þegar hann var einhvers konar léttastrákur hjá Böðvari bryta á Esju eða Heklu. Þór lærði bakstur hjá Magnúsi Árnasyni í Björnsbakaríi á Hring- braut. Fljótlega eftir að sveins- prófi lauk fór hann að starfa hjá Brauð hf. suður í Kópavogi. Þar unnu þeir saman Sigurbjörn Sigur- bjartsson og Þór og var það upp- hafið að löngu samstarfi og vin- skap. Fyrst hjá Brauð og síðar vann Þór í Grensásbakaríi hjá Sig- urbirni allt til þess að Þór fluttist vestur um haf með fjölskyldu sína. Þar fór hann til starfa hjá íslensk- um manni búsettum í Omaha, Nebraska, vann hjá honum í nokk- ur ár, en síðan hjá bandarískum fyrirtækjum og reyndar eitt ár með eigin bakarí. Nú síðustu árin var hann með bakarí sem var starf- rækt við háskólann í Omaha. Þór var góður verkmaður og röskur til vinnu. Það var alltaf gott að hafa hann við hliðina á sér ef hlutirnir þurftu að ganga hratt og örugglega. Þór var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingveldur Rósenkranz, fædd 29. maí 1945 og með henni átti hann tvær dætur: Elínu Huld Þórsdóttir Kayyem, fædd 1. apríl 1964, gift Munzer Kayyem og eiga þau tvö börn, Rami Þór Kayyem, fæddur 11. mars 1988, og Symone Ingu Kayyem, fædd 16. september 1991. Onnur dóttir er Margrét Arnþrúður Þórsdóttir, fædd 26. apríl 1966. Ingveldur og Þór skildu. Eftirlifandi kona Þórs er Patricia Ann Arnason, fædd 24. september 1955, og áttu þau tvö börn. Frank Johann Amason, fæddur 8. apríl 1990, og Elisabeth Ann Amason, fædd 14. janúar 1993. Þór hafði gaman af því að segja frá og gerði það vel. Hann hafði gott auga fyrir því sem var spaugi- legt og var því gjarnan slegið á þá strengina í bréfum sem fóru okkar á milli. Það var því alltaf gaman að fá bréf frá Þór og í því síðasta er hann að segja frá því þegar hann undirbýr húsbílinn fyr- ir sumarið og átti nú að leggjast í helgarflakk með konu og ungana sína smáu um þetta stóra land sem þau bjuggu í. Það varð ekki, Þór fór í aðra ferð og hann fór einn. Hafi hann þökk fyrir samfylgdina og blessuð sé minning hans. Stefán Óli Arnason. Finnborg Ömólfs- dóttir - Minning efni af stofnun félagsins. Ekki man ég það allt en nokkrar ljóðlínur samt: Nú Völvur eru vígðar til verka hér í sveit, að efla dáðir drýgðar og dýr að vinna heit... Fædd 22. nóvember 1918 Dáin 13. júní 1993 Sumarið 1937 var gott sumar, sól og blíða hvern dag, eða þannig er það í minningunni. Minningin um hana Finnborgu er umvafin sól frá þessum tíma. Það var þá sem þær stöllur, Finn- borg og Þórdís Kristjánsdóttir frænka hennar, drifu í því að stofn- að var kvenskátafélag í litla þorpinu okkar. Við vorum sjö telpur sem unnum hluta og nú. Það var verið að malbera þegar fréttaritara bar að garði. Bæjar- verkstjórinn, Högni Bæringsson, lætur ekki sitt eftir liggja, fylgist skátaheitið sunnudaginn 9. ágúst 1937. Á eftir bauð Finnborg okkur heim til sín í súkkulaðiveislu. Félagið okkar hlaut nafnið „Völv- ur“ og fengum við það strax á til- fínninguna að ekki dygði að kafna undir nafni. Finnborg minnti okkur oft á hvað svona félagsskapur væri kjörinn til að rækta sinn innri mann. Hún hafði líka þau áhrif að mann langaði til að líkjast henni, fögur var hún svo að af bar og framkom- an tiginmannleg. Sturla Jónsson orti lítið Ijóð í til- af áhuga með og auðvitað lærist margt um leið. - Árni. Þar fremst skal talin Finna sem foringi í sveit, hún starfíð stórt vill vinna og stefnu rétta veit... Já, Finna varð okkar fyrsti for- ingi og við fengum oft samastað heima hjá henni á því menningar- heimili föður hennar Ömólfs Valdi- marssonar og Ragnhildar Þorvarð- ardóttur stjúpmóður hennar. Iðu- lega enduðu fundirnir með því að Finna setti plötu á fóninn. Ég man að þar heyrði ég í fyrsta skipti ungverska rapsódíu Lizt. Nú er Finna „farin heim“ eins og við skátar segjum. Henni fylgja þakkir fyrir þau áhrif sem hún hafði á líf unglingsstúlkna fyrir 56 árum. Eiginmanni hennar, börnum, tengdabörnum og systkinum henn- ar, votta ég innilega samúð mína. Edda Jónsdóttir frá Suður- eyri, Súgandafirði. Erfidrjiikjur (ilæsilcgkaffi- hlaðborð tallegir salir og mjög góð þjonusta. Ipplýsingar ísíma22322 FLUGLEIDIR HÐTIL LÖFTIUIJK Gatnagerðarmenn í Stykkishólmi. Miklar gatnaframkvæmdir Það verða miklar framkvæmdir við göturnar í Stykkishólmi á þessu sumri. Allar holur frá sl. vetri verða fylltar olíumöl. Hefur Borgar- verk hf. haft framkvæmdirnar með höndum eins og vinnu við höfn- ina en þar hafa sjaldan eða aldrei verið jafnmiklar framkvæmdir um tugi ára enda höfnin aldrei haft meira athafnasvæði til allra t Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR ÁGÚSTSSON vörubílstjóri, Kaplaskjólsvegi 50, lést í Landspítalanum þann 29. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks blóðskil- unardeildar Landspítalans. Marín Pétursdóttir, Ásgeir Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN ÁSGEIRSDÓTTIR, Bogaslóð4, Höfn í Hornafirði, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 8. júlí kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem, vildu minnast henn- ar, er bent á slysavarnadeildirnar á Höfn. Sigurður Lárusson, Ásgeir Sigurðsson, Guðmundur Sigurðsson, Vilborg Jóhannsdóttir, Hilmar Sigurðsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Dagbjört S. Sigurðardóttir, Finnur S- Jónsson, Aidis Sigurðardóttir, Guðmundur Eirfksson, Karl Þ. Sigurðsson, Svava Eyjólfsdóttir, Grétar L. Sigurðsson, Sigríður K. Sigurðardóttir, Sæmundur Gislason, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug, samúð og veitta aðstoð vegna fráfalls og jarðarfarar TORFHILDAR JÓSEFSDÓTTUR frá Torfufelli. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Angantýr Hjörvar Hjálmarsson, Sigfríður L. Angantýsdóttir, Pétur Brynjólfsson, Ingibjörg Angantýsdóttir, Haukur Karlsson, Elínborg Angantýsdóttir, Haraldur E. Ingimarsson, Sigurður Jósefsson, Svava Friðjónsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.