Morgunblaðið - 07.07.1993, Síða 34

Morgunblaðið - 07.07.1993, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993 Paul Miller flotaforingi afhendir Sesselju S. Seiffert íslenska fánann. BANDARÍKIN Þjóðhátíð- ardagsins minnst í aðalstöðv- um NATO Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgun- blaðsins. f jóðhátíðardagur íslands var haldinn hátíðlegur í aðal- stöðvum NATO á hefðbundinn hátt, en markaði þó tímamót, því í fyrsta sinn í sögu NATO gegndi kona lykilhlutverki í athöfninni. Fram til þessa hefur ræðismaður íslands í Norfolk ætíð gegnt þe'ssu hlutverki, en hann er nú að láta af störfum fyrir aldurs sakir. Fyr- ir hönd annarra þjóða hefur hlut- verkið einnig ætíð verið í höndum karlmanna. Fánahylling á þjóðhátíðardegi aðildarþjóða NATO er formföst og stílhrein. Fjöldi foringja tekur þátt í henni. Eftir að liðsskipan hefur farið fram við fánastengurnar sex- tán eru 15 fánar dregnir að húni o g síðan leikinn þjóðsöngur Bandaríkjanna. Fulltrúi þeirrar þjóðar sem á þjóðhátíðardag tekur síðan við fána þjóðar sinnar úr hendi æðsta flotaforingja sem við- staddur er athöfnina og afhendir hann undirforingjum sem draga fánann að húni á heiðursstöng fánasvæðisins. Sesselja Seiffert tók sig vel út í þessu hlutverki á íslenskum búningi. Það var Paul Miller, yfirmaður Atlantshafsflota NATO, sem afhenti henni fánann. Þegar fáninn hafði verið dreginn að húni var þjóðsöngur íslands leikinn. COSPER imi COSPER Þarna eru nágrannamir. Sjónvarpið þeirra er greinilega líka bilað HVALVEIÐAR Norðmenn bjóða Bandaríkja mönnum birginn Margrét Danadrottning afhendir Lech Walesa forseta Póllands orð- una. GESTRISNI Dana- drottning heimsækir € Pólland • Margrét Danadrottning er í þriggja daga opinberri heimsókn í Póllandi ásamt eiginmanni sinum Henrik prins. Við upphaf heimsóknarinnar síðastliðinn mánudag hitti drottn- ingin Lech Walesa forseta Póllands og veitti honum orðu við það tæki- færi. Þá heimsóttu þau hjónin einn- ig Gdansk og Kraká. GESTIR Eistlendingar læra viðskipti á íslandi Tólf Eistlendingar verða allan ins hefur námið gengið mjög vel júlímánuð í viðskiptafræði- og engin stórvægileg vandamál námi hjá Stjórnunarfélagi íslands hafa komið upp. Fólkið er mjög í boði ríkisstjórnarinnar. Að sögn ánægt með dvölina en það býr hjá forsvarsmanna Stjórnunarfélags- fjölskyldum sem tengdar eru Juni- or Chamber- og Lyons-hreyfing- unum á íslandi. Um síðustu helgi var farið með gestina til Þingvalla og að Gullfossi og Geysi og vakti sú ferð mikla Iukku. > Norskur blaðamaður og ljós- myndari á tímaritinu Se og Her buðu Bandaríkjamönnum birginn fyrir nokkru þegar þeir stilltu sér upp fyrir framan Hvíta húsið í Washington og buðu þar- lendum að smakka á hvalkjöti — eða þannig. Þeir settu upp skilti sem á stóð: Norskt hvalkjöt. Norskur hvalur bragðast best. Það sem Bandaríkjamennimir vissu hins vegar ekki var að þeir voru að bragða á nautakjöti úr stórmarkaðinum á hominu og að Ijósmyndari tímaritsins lá í felum og tók myndir baki brotnu. Hvernig skyldu Bandaríkja- mennirnir hafa bragðist við? Ætli þeir hafi hrópað ókvæðisorð að sjómanninum? Nei, svo reyndist ekki vera. Flestir voru tilbúnir að smakka kjötið nema hópur græn- metisæta sem kom aðvífandi og hafði ekki lyst á kjöti. Sumir þeirra sem smökkuðu kjötið höfðu lesið um mótmæli gegn hvalveið- um í blöðunum en var bara alveg sama. i Þessi frú hafði aldrei heyrt um hvalkjöt og hafði enga löngun til að smakka það. Formleg móttaka var í höfuðstöðvum Stjórnunarfélags íslands fyrir Eistlendingana tíu sem komu til landsins sunnudaginn 27. júní. Við þetta tækifæri tóku einnig íslensku fjölskyldurnar við gestum sínum. Tveir Eistlendinganna voru ókomnir en voru væntanlegir á næstu dögum. HJOLREIÐAR Miguel Indurain talinn sigurstrangleg'ur Spánveijinn Miguel Indurain sem hjólaði í gulu peysunni í öðrum legg Tour de France hjólreiðakeppninnar áritar á meðfylgjandi mynd bol aðdáanda. Ekki fékk hann þó að hjóla í gulu peysunni í þriðja legg keppninnar, því Belginn Wilfried Nelissen skaust í efsta sætið og hlýtur þar af leiðandi gulu peysuna. Miguel Indurain hefur sigrað und- anfarin tvö ár og er einnig talinn sigurstranglegastur í hjólreiða- keppninni í ár. Reuter Spánverjinn Miguel Indurain áritar hér bol eins aðdáanda síns. Norðmaðurinn stillti sér upp með „hvalkjötið" og atburður- inn vakti forvitni flestra. Eftir tveggja tíma törn var grínið búið því lögregluþjónn kom aðvífandi og skipaði sjómanninum að hypja sig. Ef hann drifi ekki í því yrði honum gert ókleift að koma aftur til Bandaríkjanna. Ljósmyndarinn kom úr felum og þeir félagar vora ekki lengi að hafa sig á brott, innan við hálfa mínútu, að eigin sögn. HORW V/HALE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.